Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020 Húsnæði íboði Til leigu 2 herbergja íbúð Glæný 66 m2 íbúð í nýju fjölbýlishúsi miðsvæðis í Kópavogi, með stæði í bílageymslu. Sérgeymsla og aðgengi að sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. Íbúðin er laus strax. Verð 245.000 á mánuði með húsgjöldum. Upplýsingar í síma 898 7820 Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Rimasíða 29F, Akureyri, fnr. 215-0059 , þingl. eig. Jan Frederik Kindt og Halldóra Friðriksdóttir, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðjudaginn 15. september nk. kl. 10:45. Jórunnarstaðir, Eyjafjarðarsveit, eignarhluti gerðarþola, fnr. 215-9023 , þingl. eig. Elmar Þór Magnússon, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 15. september nk. kl. 13:30. Aðalstræti 62, Akureyri, fnr. 214-4697 , þingl. eig. EXT ehf., gerðarbeiðendur Akureyrarbær og Landsbankinn hf., þriðjudaginn 15. september nk. kl. 10:30. Sandur land 3, Þingeyjarsveit, fnr. 216-4929 , þingl. eig. Sigfús Bjartmarsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 16. september nk. kl. 11:00. Vetrarbraut 4, Fjallabyggð, fnr. 213-1009 , þingl. eig. Joachim ehf., gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Fjallabyggð, fimmtudaginn 17. september nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 10. september 2020 Félagsstarf eldri borgara Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk- efni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Vantar þig pípara? FINNA.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Smá- og raðauglýsingar Aflagrandi 40 Vegna starfsdags félagsmiðstöðva í Vesturbæ, Mið- borg og Hlíðum er húsið einungis opið í hádegismat milli kl. 11 og 13. Góða helgi :) Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9- 16. Stólajóga með Hönnu kl. 9. Sýnum þætti úr Spaugstofunni kl. 13.50. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir vel- komnir. S. 411 2600. Bólstaðarhlíð 43 Starfsdagur hjá Samfélagshúsi Bólstaðarhlíð 43. Því er lokað í dag fyrir utan hádegismatinn. Bústaðakirkja Karlakaffi verður í dag kl. 10 í kapellunni við safnaðar- salinn. Hólmfríður djákni sér um stundina og sýnir myndir frá sumr- inu, ,,ferðumst innanlands”. Heitt á könnunni og nýbakað bakkelsi. Hlökkum til að sjá ykkur. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall við hringborðið kl. 8.50. Skráning á þátttökulista er á skrifstofunni kl. 8.50-16. Hádegis- matur kl. 11.30-12.30. Myndlistarnámskeið Margrétar kl. 12.30-15.30. Hæðargarðsbíó kl. 13. Sýnd verður myndin Life is beautiful. Síðdegis- kaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Garðabær Jónshús, félags- og íþróttastarf, s. 512 1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Dansleik- fimi kl. 9.30 og 10.15 Stjörnuheimilið. Gerðuberg 3-5 111 RVK Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 10-12 prjónakaffi (Háholt), kl. 10-10.20 leikfimi gönguhóps (sólstofu), kl. 10.30 gönguhópur um hverfið, kl. 13-16 bókband með leiðbeinanda, kl. 13-15 kóræfing (Háholt). Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 tréskurður. Heitt á könnunni kl. 9- kl. 15.30. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Handavinna - opin vinnustofa frá kl. 9-16. Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópur kl. 10, gengið frá Borgum. Hannyrðahópur frá kl. 12.30 við skapandi störf í listasmiðju. Hið sívinsæla vöfflukaffi Borgardætra hefst í dag kl. 14.30. Virðum samfélagssáttmálann 1 meter milli allra. Samfélagshúsið Vitatorgi Föstudagsspjall í handverksstofu kl. 10- 11.30. Eftir hádegi hittist Handaband í handverksstofu kl. 13-15.30. Þá verður haldið bingó í matsal 2. hæðar kl. 13.30 og vöfflukaffi í fram- haldi af því. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59! Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Syngjum saman í saln- um á Skólabraut kl. 10. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri 30 kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586. ✝ Sigurður Stef-ánsson fæddist að Grundarkoti í Héðinsfirði 23. júní 1925. Hann lést 3. september 2020. Foreldrar hans voru Stefán Er- lendsson, f. á Ámá í Héðinsfirði 27.6. 1888, d. 28.12. 1972, og eiginkona hans María Þórðar- dóttir, f. í Bræðratungu í Dýra- firði f. 11.10. 1889, d. 19.6. 1952. Sigurður ólst upp í Grundarkoti með foreldrum og systkinum, síðar fluttu þau til Siglufjarðar. Eiginkona Sigurðar var Ísól Karlsdóttir frá Garði í Ólafs- firði, f. 17. ágúst 1917, d. 2. febr- úar 2001. Foreldrar Ísólar voru Karl Guðvarðarson og Sólveig Rögnvaldsdóttir búendur í Garði. Börn Sigurðar og Ísólar eru 1) drengur fæddur í ágúst 1950 sem þau misstu aðeins nokkurra daga gamlan 2) Fanney, f. 7. sept. 1951, börn hennar eru: úr hjónabandi með Jakobi Daníels- syni, Sigurður Jakobsson, f. 1970, og með Pétri Erni Péturs- syni eignaðist hún Guðmund Rúnar Pétursson, f. 1978. Fann- ey á átta barnabörn og tvö Þórðardóttir sem nú er látin. Börn Óskars úr fyrra hjóna- bandi með Ragnheiði Ingunni Magnúsdóttur eru: Anna Bryn- dís fædd 1971 og Birgir Karl fæddur 1980. Dóttir Ragnheiðar Ingunnar og uppeldisdóttir Ósk- ars er Kristín Stefánsdóttir fædd 1967. Kona Óskars, Marite Tiruma á tvö uppkomin börn og eitt barnabarn. Óskar á átta barnabörn og fjögur barna- barnabörn. 6) Álfheiður Björk Karlsdóttir fædd 2. desember 1946, hennar maður er Benedikt Kristjánsson. Börn Álfheiðar úr fyrra hjónabandi með Einari Benediktssyni eru: Rósa, fædd 1967, Stefán, fæddur 1968, Aldís fædd 1975 og Ísól Björk fædd 1979. Barnabörn Álfheiðar eru átta og tvö barnabarnabörn. Árið 1951 festu Sigurður og Ísól kaup á eyðijörðinni Hólkoti í Ólafsfirði, sem þau byggðu upp frá grunni. Þar bjuggu þau í 40 ár en fluttu þaðan í raðhús á Að- algötu 50 í Ólafsfjarðarbæ. Eftir að búskap í Hólkoti lauk starfaði Sigurður fyrst við trésmíðar og síðan múrverk. Lengstan starfs- feril eftir búskapinn átti Sig- urður síðan við fiskeldi í Ólafs- firði, bæði lax og silungseldi sem hann veitti forstöðu í mörg ár. Útför Sigurðar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 11. september 2020, og mun hún fara fram aðeins að viðstöddum hans nánustu aðstandendum. barnabarnabörn. 3) Stefanía María (Stella) f. 2. maí 1954. Börn hennar í hjónabandi með Reyni Guðmunds- syni eru: Ívar Smári Reynisson f. 1973 og Jóhanna Lúvísa Reynisdóttir f. 1978. Börn henn- ar í hjónabandi með Heimi Loftssyni eru: Álfheiður Björk Sæberg f. 1983 og Bjarki Reyr Heimisson f. 1988. Stefanía María á níu barnabörn. Fósturbörn Sigurðar úr fyrra hjónabandi Ísólar með Karli Sig- tryggssyni eru 4) Karl Sigtrygg- ur Karlsson f. 30. september 1941, kvæntur Guðbjörgu Svein- björnsdóttur. Börn Karls úr fyrra hjónabandi með Þóru Benediktsdóttur eru: Einar Þór fæddur 1966 og Ísól Björk fædd 1972. Dóttir Guðbjargar og upp- eldisdóttir Karls er Kristbjörg Sigurðardóttir. Barnabörn þeirra eru níu og eitt barna- barnabarn. 5) Óskar Þór Karls- son, fæddur 26. nóvember 1944, kvæntur Marite Tiruma Karl- sone. Börn Óskars eru Vilmund- ur fæddur 1965, móðir hans og barnsmóðir Óskars er Katla Elsku pabbi minn. Nú ertu farinn þína hinstu ferð og ég horfi á eftir þér með söknuð í hjarta. Lífsgangan þín var löng, en dauðinn sigrar okkur öll að lok- um. Líka orkubolta eins og þig. Ég átti því láni að fagna að kynnast þér tvisvar. Fyrst þegar að ég var barn og svo síðar á lífsleiðinni sem föður og vini. Þú varst óstöðvandi dugnað- arforkur og lést aldurinn ekki hafa áhrif á þig. Jú aldur er bara tölur sagðir þú. 92 ára komstu og mokaðir bílinn minn upp úr snjónum. Húmorinn þinn var einstakur og það sem upp úr þér valt vakti oft kátínu. Ég þakka þér samveruna og umhyggjuna, ferðafélaginn minn. Minningin yljar uns við hitt- umst á ný. Þín dóttir, Fanney Sigurðardóttir. Um miðja síðustu öld tók Sig- urður fóstri saman við móður okkar Ísól, sem þá var fráskilin kona með þrjú ung börn. Þau bjuggu í fyrstu á Siglufirði en festu svo kaup á jörðinni Hólkoti í Ólafsfirði og fluttu þangað snemma vors árið 1951. Jörðin Hólkot hafði þá lengi verið í eyði. Íbúðarhúsið hafi brunnið á sínum tíma, gripahús voru líka engin og ræktað land sáralítið. Fyrsta verk Sigurðar fóstra okkar fólst í að moka snjó og heilmiklum jarðvegi út úr húsa- rústunum og búa til grunn fyrir nýtt íbúðarhús. Síðan var íbúð- arhúsið reist þá strax um sum- arið og komið upp húsum fyrir þeirra litla bústofn að auki. Mörg erfið ár og krefjandi fylgdu svo í kjölfarið. Verkefnin voru endalaus og með ólíkindum hversu miklu tókst að koma í verk við afar knöpp efni á fáein- um árum. Bæði voru hjónin dug- leg og samhent með einbeittan vilja í því að ná því marki að byggja upp góða jörð. Fóstri okkar hann Sigurður var allt í senn, hamhleypa til allra verka þannig að fáir stóðust honum snúning, afar laghentur, góður smiður og múrari. Þannig byggði hann öll sín gripahús og hlöður sjálfur að mestu leyti. Öll vinnan við heyskapinn fyrstu ár- in var gerð án allra véla. Aðeins hestar okkar voru nýttir til flutninga á heyinu í hlöðu. Dráttarvélin kom ekki til sög- unnar fyrr en 8 árum seinna. Þá varð auðvitað mikil breyting á og upp frá því varð þeim hjónum kleift að annast búskapinn án utanaðkomandi hjálpar. Eftir að þau hjón brugðu búi starfaði Sigurður fóstri um langt árabil við lax- og silungseldi í Ólafs- firði. Það starf leysti hann með sóma, eins og allt annað sem hann tók sér fyrir hendur. Við þau störf lauk hann sinni löngu starfsævi. Eitt af helstu áhuga- málum Sigurðar var söngur. Hann hafði djúpa og fallega bassarödd og var lengi í Karla- kór Ólafsfjarðar. Á efri árum undi fóstri sér gjarnan við smíð- ar. Hann smíðaði m.a. æði marga fagurgerða kistla sem hann gaf svo afkomendum sín- um og vinum. Sigurður hafði líka yndi af útivist og hreyfingu. Hann fór daglega í langa göngu- túra og hélt þeim sið fram yfir nírætt. Hann var mjög heilsu- hraustur alla sína ævi, allt þar til undir það síðasta, þegar á hann lagðist sá skaðvaldur sem varð honum að aldurtila. Sigurður fóstri var mikill mannkostamaður og þess nutum við öll afkomendur hans í ríkum mæli. Af honum lærðum við margt í uppvextinum sem kom sér vel fyrir okkur síðar. Aldrei gerði hann neinn greinarmun á sínum eigin dætrum og fóstur- börnum sínum. Honum þótti jafn vænt um okkur öll og sýndi það ætíð í orði og verki. Elsku fóstri, á þessari skilnaðarstund er okkur mikið þakklæti til þín í huga. Takk fyrir allt. Takk fyrir hvernig þú reyndist okkur í upp- vextinum og svo alla tíð síðar. Við þökkum þér fyrir allar þær gleðistundir sem við áttum sam- an með þér. Þú stóðst alltaf eins og klettur við hlið mömmu alla tíð. Þú mátt vera stoltur af því mikla dagsverki sem þú áorkaðir í þínu lífi. Þótt þú sért nú horf- inn á braut munu minningarnar um þig lifa og fylgja okkur sem leiðarljós alla tíð um ófarinn veg. Hvíl í friði, elsku Sigurður fóstri. Guð blessi þig. Meira: mbl.is/andlat Óskar Þór Karlsson, Karl Sigtryggur Karlsson, Álfheiður Björk Karlsdóttir. „Er það kitluafi?“ spurði Vict- oría Dís þegar ég sagði henni að Sigurður afi væri dáinn. Þannig man hún hann, afann sem hún hitti síðast þegar hún var 5 ára gömul, afann sem var svo skemmtilegur. Mínar fyrstu minningar af stundum með afa eru líka óljósar; við bæjarlækinn að brjóta ís svo vatnið næði til bæjar, í skemmunni eitthvað að bardúsa, uppi í fjalli að tína ber, með heimalningana að gefa þeim pela, við heyskap, um morgun að róa út á vatn að vitja neta, á dráttarvélinni á leið með mjólk í kaupfélagið. Minningarnar þyrl- ast upp þegar ég hugsa til baka og þvílíkur fjársjóður þær eru. En ekki minnst dýrmætar eru minningarnar um heimsóknir með mín eigin börn til afa. Þá var hann í essinu sínu, að leika við þau og var óþreytandi í að svara spurningum um lífið og til- veruna, til í alls konar vitleysu, gaf sig alltaf allan. Ég var líka svo lánsamur að fá að verja með honum stundum eftir að ég sjálfur var orðinn fullorðinn, maður með manni, og þá var oft glatt á hjalla. Afi hafði líka gaman af lífinu, var töffari, reffilegur og spengilegur, í fantaformi langt fram yfir ní- rætt, talaði tæpitungulaust þeg- ar við átti, var orðheppinn og einskis manns eftirbátur. Magn- aður maður. Fyrir norðan, nú í sumar þeg- ar ég heimsótti afa sem þá var á sjúkrahúsinu á Siglufirði, þar, og á Ólafsfirði, hvar og við hvern sem minnst var á afa var alltaf viðkvæðið: „ Já, hann Sig- urður, hann er svo...“ og allir höfðu gott af honum að segja, um góð viðkynni, greiðvikni, ljúfmennsku, fyrir að vera eins og hann var. Og þetta, auðvitað, var áður en hann dó. Ætli ég hafi ekki verið á fimmta ári þegar afi smíðaði handa mér hrífu og ég gekk stoltur og rakaði í garða með fullorðna fólkinu þegar Snati Lubbason, sem þá var á hunda- unglingsárum, stökk á hrífu- skaftið og beit í sundur. Þá var ekki lofað að kaupa nýja hrífu eða smíða aðra, eins og nú er gert þegar hugga þarf börn, þegar flest er einnota og auð- veldara að henda en hirða um, nei ég fékk að sætta mig við orð- inn hlut og lærðist að sumt er óbætanlegt. Líklega ein ástæða þess að ég held svo fast í minn- ingar, þær eru ómetanlegar, og þótt ég viti að ég hitti ekki afa aftur, hérna megin alla vega, hvað sem verður, veit ég að hann verður alltaf með mér og börnunum mínum svo lengi sem við lifum. Einar Þór Karlsson. Sigurður Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.