Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020 SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heimili& hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 25. september Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 21. sept. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur náð langt, en staldrar sjaldan við og hrósar sjálfum þér. Hikaðu ekki því þú hefur allt sem til þarf. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ættir að leita ráða hjá góðum vini varðandi krefjandi verkefni, sem þér hefur verið falið, en stendur aðeins í þér. Varastu þó að láta afvegaleiða þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Settu þér alltaf raunhæf takmörk og stefndu að þeim hvað sem tautar og raular. Kynntu þér nýjar hugmyndir í heim- speki, trúmálum eða stjórnmálum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt eitthvað sé að angra þig skaltu reyna að taka því með jafnaðargeði. Hugs- aðu bara málið í næði, og farðu af stað þeg- ar þú ert tilbúinn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Rómantíkin nær sér á skrið, þó að þú takir kannski varla eftir því. Ef þú neyðir þig til þess að vera glaður í bragði, finnur þú eitthvað til þess að gleðjast yfir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ágengni er ekki endilega besta leiðin til að ná settu marki. Njóttu hinna smærri sigra, þeir skipta meira máli en þú gerir þér grein fyrir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Upp- finningamenn eru einstaklingar sem óttast ekki mistök og hvort sem gengur vel eða illa viltu að hlutirnir séu eftirminnilegir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhver þér nákominn þarf á hjálp þinni að halda. Ekki aðeins veistu ná- kvæmlega hvað þú vilt heldur veistu líka hvernig þú átt að fá því framgengt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Feimni er valkostur, ekki ein- kenni á persónuleikanum. Láttu ekkert stíga þér til höfuðs heldur gefa þér aukinn byr. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er hætt við fjölskyldudeilum í dag. Nú veistu hvað gagnast þér og hvað ekki svo þú átt að eiga auðvelt með að sætta deiluaðila. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur þörft fyrir að kafa til botns í hlutunum. Gefðu sjálfum þér tæki- færi og opnaðu dyrnar að hjarta þínu því þá geta góðir hlutir gerst. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er töluverður hraði í þínu lífi þessa stundina. Mundu að sýna öllum hlut- um lotningu og njóta þess, sem þeir hafa upp á að bjóða með virðingu og þakklæti. einnig Guðlaugur Jónsson og ég var ráðinn og af þeim lærði ég fagið. Þessi rakarastofa var mjög merkileg því hún var elsta rakarastofa lands- ins og var starfrækt í rúm 100 ár, allt til ársins 2007.“ Halldór fór í Iðnskól- ann og lærði bóklega hlutann og fór að vinna strax eftir útskrift á rakara- stofunni á Hótel Sögu þar sem hann hefur unnið sleitulaust frá árinu 1971. „Fyrsti dagurinn minn á stof- unni var 2. júní 1971, en ég mætti ekki fyrr en klukkan 10, því fyrst þurfti ég að fara á lögreglustöðina,“ segir hann íbygginn. Ekki var lög- reglan þó að reyna að hafa hendur í hári Halldórs vegna glæpsamlegrar hegðunar, heldur voru bara sveins- prófin afhent á lögreglustöðinni í þá daga. Nú er spurning hvernig það hafi verið að útskrifast sem hárskeri á hippatímabilinu þegar allir ungir menn voru með hár niður á herðar. „Okkur, sem vorum sjálfir ungir og síðhærðir, var treyst til að snyrta Sögu. „Þeir voru mjög skemmtilegir rakararnir og svo sá ég auglýst eftir nema á rakarastofuna á Kirjutorgi 6, svo ég fór þangað og þar tók á móti mér Haukur Óskarsson hárskeri og H alldór er Vestur- bæingur í húð og hár. Hann fæddist í Eyvík við Arnargötu í Reykjavík og ólst upp á Grímstaðarholti, sem er svæðið sem markast vestan við flugvallar- svæðið og sunnan við Melana niður að Ægisíðu og nær austur að miðjum Hjarðarhaga. „Arnargata er pínulít- ill götustubbur sem liggur á milli Fálkagötu og Tómasarhaga og þar var gott að alast upp. Það var mikið frelsi á þessum árum og við strák- arnir spiluðum fótbolta með Þrótti, sem var þá í gömlum hermanna- bragga þarna niðri á kambinum,“ segir Halldór og bætir við að Þróttur hafi ekki flutt inn í Sæviðarsund fyrr en á sjöunda áratugnum. „Frá barns- aldri var draumurinn að fá að fara á sjó með grásleppukörlunum í Gríms- staðavör, þar sem grásleppuhjall- arnir voru við Ægisíðuna. Á þessum tíma voru engin barnaheimili svo ég muni eftir og við gengum um sjálfala, en höfðum alltaf athvarf heima.“ Halldór flutti á Fálkagötuna í sannkallað fjölskylduhús þegar hann var fimm ára. „Afi og tveir bræður pabba byggðu húsið og þarna bjuggu afi og amma og þrjár fjölskyldur sona þeirra, svo maður hafði alltaf athvarf og líka aðhald, þótt við vær- um lausir og liðugir að leika okkur úti alla daga. Ég var orðinn 6 eða 7 ára gamall þegar fyrsti róluvöllurinn kom á Dunhagann. Svo fór maður í tímakennslu að ég held einu sinni eða tvisvar í viku til Þórðar á Melhag- anum til að læra að lesa.“ Eins og al- gengt var á þessum árum fór Halldór í sveit og var 9 sumur hjá afa sínum og ömmu á Nautaflötum í Ölfusi. Hann segir sveitadvölina hafa verið dásamlega og gott að kynnast öðru- vísi lifnaðarháttum. Á veturna gekk hann í Melaskóla og síðar Hagaskóla. Þegar Halldór er spurður hvað hafi vakið áhugann á hárskeraiðn- inni, segir hann að það hafi verið fínn hárskeri á Hjarðarhaganum og árið 1964 var stofnuð rakarastofa á Hótel síða hárið á yngri mönnunum, en svona upp úr 1974 fóru menn að láta klippa sig og svo má ekki gleyma permanent-tískunni sem varði um nokkurt skeið.“ Halldór segir að í hárskurðinum sé tískan allsráðandi og það sem þykir flott einn daginn, gæti þótt afar hallærislegt þann næsta og svo aftur komist í tísku enn seinna. „Tískan er breytileg og mjög skemmtileg finnst mér. Ég er ekkert viss um að ég væri enn þá í þessu fagi ef ég væri enn þann dag í dag að klippa sömu gömlu herraklipping- arnar og maður gerði fyrst.“ Eins og fram hefur komið vinnur Halldór enn á hárgreiðslustofunni á Hótel Sögu, Hársögu, sem hann rek- ur með félaga sínum Rögnvaldi Hreiðarssyni körfuboltadómara. „Ég er langelsti starfsmaðurinn í Bænda- höllinni og enginn sem hefur unnið þar jafn lengi og ég,“ segir Halldór sem bætir við að félagi hans Rögn- valdur hafi einnig slegið met, því hann hafi dæmt yfir 2.000 leiki á sín- um ferli sem körfuboltadómari. „Vinur minn spurði mig að því hvenær ég ætlaði eiginlega að hætta að klippa og konan mín svaraði að bragði að ég myndi fyrr skilja við sig en að að hætta með fastakúnnana, karlana mína. Það segir kannski allt sem þarf. Ég hef reyndar minnkað við mig vinnuna, en það er bara svo gaman í vinnunni og að hitta alla gömlu vinina. Núna er ég t.d. að bíða eftir fyrsta barnabarni eins við- skiptavinar míns, því þá væri það sjötti ættliðurinn í fjölskyldunni sem ég klippi.“ Utan vinnunnar hefur Halldór átt mörg áhugamál. Sautján ára fór hann að spila á trommur með hljóm- sveit Guðmundar Sigurjónssonar, en í þeirri sveit voru allir eldri en hann. „Undir 1970 var ég farinn að spila með félögum mínum á Gríms- staðaholtinu í hljómsveit sem hét Ernir. Við vorum mikið að spila í Klúbbnum og á Röðli og eins mikið uppi á Velli. Þar spiluðum við kántrí- tónlist, svona í ætt við Brimkló.“ Halldór Helgason hárskeri og eigandi Rakarastofunnar á Hótel Sögu – 70 ára Úr einkasafni. Fjölskylda Halldór og Selma og afkomendurnir. Fremri röð f.v.: Soffía, Stella, Emil Kári og Lára. Aftari röð: Andrea, Halldór Óskar, Halldór Helga- son, Selma, María, Freyja Sól, Kristinn Snorri, Selma og Ingi Jóhannes. Enginn starfsmaður unnið jafnlengi í Bændahöllinni Vesturbæingurinn Halldór Helga- son spilaði fótbolta með Þrótti. Til hamingju með daginn 30 ára Brynjar ólst upp í Keflavík en býr núna í Reykjavík. Hann er tónlistarmaður og spilar á gítar í hljóm- sveitinni Of Monsters and Men. Brynjar seg- ist hafa áhuga á mat- reiðslu og útivist en samt sé það fátt annað en tónlistin sem eigi hug hans all- an. Of Monsters and Men gaf út nýtt lag, Visitor, í vikunni og myndbandið var frumsýnt á miðvikudaginn var. Sambýliskona: Ragnhildur Gunn- arsdóttir, f. 1989, talmeinafræðingur. Foreldrar: Leifur Gunnar Leifsson, f. 1956, húsasmíðameistari í Keflavík, og Guðlaug Brynja Hjartardóttir, f. 1958, sjúkraliði í Keflavík. Brynjar Leifsson 40 ára Drífa ólst upp í Borgarnesi en býr í Reykjavík núna. Hún er lýðheilsufræðingur og starfar sem verk- efnastjóri hjá velferð- arsviði Reykjavíkur- borgar. Maki: Jakob Hallgeirsson, f. 1975, rekstrarstjóri hjá Íþróttafélagi Reykja- víkur. Börn: Benedikt Bergmann, f.2001, Hild- ur Arney, f. 2005, og Jóhanna Karen, f. 2007, Sveinbjörnsbörn. Foreldrar: Baldur Jónsson, f. 1953, lag- ermaður hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, og Jóhanna Skúladóttir, f. 1956, héraðs- skjalavörður hjá Héraðsskjalasafni Borg- arfjarðar. Drífa Baldursdóttir LEIÐRÉTT Texti féll niður Þau leiðu mistök urðu í blaðinu í gær að texti féll niður í af- mælisgrein um Sigurð E. Sigurðsson, framkvæmdastjóra lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hér er textinn réttur: Börn Sigurðar og Steinunnar eru 1) Haukur, f. 7.5. 1985, for- ritari í Hollandi, í sambúð með Emmu Theodórsdóttur sem er grafískur hönnuður. 2) Valur, f. 8.3. 1989, geislafræðingur í Reykjavík, og 3) Erla Sigríður, f. 14.8.1997, læknanemi í Reykjavík. Systkini Sigurðar eru 1) Gunnsteinn, f. 8.12. 1964 umsjónarþroskaþjálfi í Snæfellsbæ. 2) Sævar Sigurðsson, f. 3.5. 1968, framkvæmdastjóri fram- kvæmdasviðs Íslenska gámafélagsins í Reykjavík. 3) Eydís Ósk, f. 2.9. 1970, mannauðsstjóri hjá Vestmannaeyjabæ. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.