Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020 ✝ Baldvin Krist-jánsson fædd- ist á Siglufirði 22. apríl 1944. Hann lést 2. september 2020 á krabba- meins- og blóð- lækningadeild Landspítalans við Hringbraut. Foreldrar hans voru Guðmunda Margrét Valde- marsdóttir, f. 7.1. 1922, d. 22.5. 1952, og Ingimar Hallgrímur Þorláksson, f. 23.6. 2024, d. 13.1. 2011. Kjörfaðir Kristján Skarp- héðinsson, f. 1.7. 1922, d. 7.4. 1988, hans sonur er Kristján Grétar. Fósturforeldrar um tíma voru Guðbrandur Jón Frí- mannsson og Hallfríður Ey- Baldvin Már og Jónbjörg Erla. 2) Róbert Páll, f. 1972, börn hans: Bakr Máni (látinn), Syr- ine Pálína og Björgvin Yazan. 3) Margrét, f. 1979, m. Jón Svanur Sveinsson, f. 1977, börn þeirra: Sveinn Máni, Guð- björg Amelía og Ísak Hrafn. Baldvin var bakarameistari að mennt og vann við það til ársins 1973. Eftir það vann hann við ýmis verslunarstörf, ökukennslu, sem gjaldkeri í banka en síðustu árin starfaði hann sem meðhjálpari, kirkju- vörður og útfararstjóri við Sauðárkrókskirkju. Baldvin og Jóna bjuggu megnið af sínum hjúskap- arárum á Sauðárkróki. Útför Baldvins fer fram í dag, 11. september 2020, klukkan 14 frá Sauðárkróks- kirkju. Verður athöfnin aðeins fyrir nánustu aðstandendur í ljósi aðstæðna í samfélaginu en verður streymt á youtube-rás Sauðárkrókskirkju. Virkan hlekk á streymið má nálgast á https://www.mbl.is/andlat/. björg Rútsdóttir, bæði látin. Þeirra börn eru Frímann, Margrét og Guð- brandur. Systkini Bald- vins samfeðra: Guðrún Margrét (látin), Erla Haf- dís, Guðfinna, Þór- dís Petra, Jó- hanna, Sólrún, Björn Þór, Birgir og Bylgja. Móðir þeirra var Elsa Petra Björnsdóttir. Baldvin giftist 22.4. 1967 Jónu Björgu Heiðdals, f. 3.12. 1948. Foreldrar hennar voru Heiðdal Jónsson og Sigrún Eiðsdóttir. Börn Baldvins og Jónu eru: 1) Kristján Óskar, f. 1968, m. Karen Emilía Jóns- dóttir, f. 1967, börn þeirra: Fallinn er frá góður vinur minn og frændi Baldvin Kristjánsson, eftir erfiða barráttu við krabba- mein. Við Baldvin vorum systrasynir, en móðir hans Margrét lést þegar Baldvin var 8 ára gamall. Okkar fyrstu kynni voru þegar hann ásamt foreldrum sínum kom í heimsókn til okkar suður í Garð, móðir hans Margrét þá orðin fár- sjúk. Ég man hvað mér fannst Margrét vera blíð og falleg kona. Ég skynjaði strax að þessi heim- sókn væri eitthvað sérstök, það var mikil sorg. Sjálfsagt hafa syst- urnar verið að ræða framtíð Bald- vins. Það var aldrei spurning með að Baldvin yrði velkominn til okk- ar á Bjarg sem og raunin varð. Hann kom á sumrin til okkar og var eins og eitt af systkinunum frá Bjargi. Við Baldvin vorum alla tíð mjög góðir vinir. Fórum í margar veiði- ferðir saman m.a. í Blöndu og átt- um þar margar skemmtilegar stundir. Þegar ég heimsóti Baldvin í síð- asta skiptið á spítalann ræddum við gamla daga og rifjuðum upp sögur frá því við vorum pollar. Baldvin sagði við mig, Siggi manstu þegar við stálum harðfisk frá nágranna okkar og hann napp- aði okkur? Manstu hvað hann var reiður og við skíthræddir? Svo vorum við líka skammaðir á Bjargi. Ég held að þetta hafi verið mesti glæpur sem hann frændi minn hefur framkvæmt. Eitt sinn fundum við brúsa með vökva í, við þurftum auðvitað að athuga innihaldið frekar og kveikti Baldvin þá á eldspítu, þá kom mikill blossi og stór hluti af hárinu á honum fór með blossan- um. Það var erfitt að útskýra hár- leysið á Baldvini fyrir mömmu þegar við komum heim. Í þessari sömu heimsókn skil- aði ég kveðju frá systkinunum á Bjargi til Baldvins og þakkaði honum góð kynni. Baldvin bað einnig fyrir kveðjur til allra og sagði það ekki sjálfgefið að allir hefðu alltaf verið svona góðir við hann. Þetta lýsir frænda mínum best, alltaf svo þakklátur og vina- legur, fannst ekkert sjálfgefið sem snerti hann. Nú að leiðarlokum viljum við þakka þér kæri vinur samveru- stundirnar og vináttu og biðjum við góðan guð að styrkja Jónu og fjölskylduna alla í þeirra miklu sorg. Hvíl í friði. Þinn frændi og vinur, Sigurður Ingvarsson. Rótarýklúbbur Sauðárkróks sér á eftir góðum og gegnum fé- laga við fráfall Baldvins Kristjáns- sonar. Hann var félagi í klúbbnum í 33 ár, forseti klúbbsins 1997- 1998, aftur 2008-2009 og Paul Harris-félagi 2012. Baldi var áhugasamur félagi, tryggur, samviskusamur og frá honum stafaði vinsemd og velvilji til klúbbsins og félaganna. Hann var vinur allra og átti áreiðanlega ekki óvin. Því var hann klúbbnum mikilvægur félagi með áhrifum sínum á félagsandann og starf klúbbsins. Balda verður sárt saknað úr klúbbstarfinu. Að leið- arlokum vil ég þakka Baldvini Kristjánssyni vináttu, góðan fé- lagsskap og félagsstarf í Rótarý- kúbbi Sauðárkróks með samúðar- kveðjum til fjölskyldu hans. Fyrir hönd Rótarýklúbbs Sauðárkróks, Árni Ragnarsson forseti. Í dag er til moldar borinn kær vinur okkar hjóna, Baldvin Krist- jánsson, sem lést á Landspítalan- um 2. september sl. Baldvin eða Baldi eins og hann var ávallt kall- aður vann lengi eins og Gunnar í Búnaðarbankanum og síðar Arion banka. Kynni þeirra hófust þegar þeir voru ungir að árum og bar aldrei skugga þar á. Við höfum átt margar ánægju- legar stundir með þeim hjónum, meðal annars vorum við félagar í húsbílafélaginu Flakkarar og ávallt fylgdumst við að í ferðum og á samkomum í þessum ferðum var bílunum oftast lagt hlið við hlið. Baldi kom stundum við í Eskihlíð- inni, sagði að sig langaði til að sjá okkur og var það ætíð kærkomin heimsókn. Hann settist alltaf í sama sætið við eldhúsborðið og var spjallað og drukkið kaffi. Í minningarorðum um móður hans sem lést þegar hann var aðeins 7 ára gamall segir í lokaorðum að hún hafi verið gædd innilegri alúð og hlýju. Baldi erfði þennan eig- inleika móður sinn í ríkum mæli. Við kveðjum með söknuði traust- an og góðan vin sem alltaf var til staðar með sinni góðu nærveru. Við vottum Jónu og börnum þeirra og fjölskyldum innilega samúð Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (úr Hávamálum) Gunnar og Kristín. Það voru 12 sjö ára krakkar sem byrjuðu skólagöngu fyrir 69 árum síðan, öll með tilhlökkun en smá kvíðahnút í maga og síðar bættust fleiri við. Ég held við höf- um verið nokkuð samheldinn hóp- ur, þótt leiðir skildi eftir grunn- skóla þá hélst alltaf eitthvert samband og bekkjarmótin okkar alveg meiri háttar, hefðu bara þurft að vera fleiri. Það var frá- bært að fá að alast upp á Krókn- um í því frelsi sem þar var. Á vet- urna renndum við okkur á sleðum niður Kristjánsklaufina frá Ívari niður til Haraldar Júl, fórum á skauta á Flæðunum og grófum okkur snjóhús í hengjunum á Nöf- unum. Í þá daga voru engar hætt- ur. Strax á vorin var farið að veiða á gömlu bryggjunni og stokka upp og beita hjá trillukörlunum. Í skól- anum var þetta hefðbundna skóla- starf og ógleymanlegar eru skóla- skemmtanir og skólaferðalögin okkar í 6. bekk í Barnaskólanum og 3. bekk í Gaggó. Það hefur fækkað í hópnum sem hóf nám í 7 ára bekk. Gunnar Már Ingólfsson (Gunni Már), Guðmundur Sveins- son (Gumbi), Ögmundur Helga- son (Ömmi) og Hólmfríður H. Agnarsdóttir (Fríða á Heiði) sem kom í bekkinn okkar 12 ára og svo nú síðast Baldi sem kvaddi eftir nokkuð snarpa viðureign. Við Baldi fylgdumst að alla okkar skólagöngu. Baldi var mikill stærðfræðingur og skákmaður. Stóð ég lengi vel í honum á reikn- ingsprófum og var mikið kapp með okkur, en þegar algebran kom til sögunnar var ég búin á því. Einnig tefldum við mikið saman á barnaskólaárunum og unnum sitt og hvað, hann þó oftar. Baldi var einstaklega góður vinur og félagi. Ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tímann heyrt hann tala illa um nokkurn eða hallmæla neinum. Hann var ákaflega hlýr og elskulegur og hafði notalega nærveru. Hann var eins og klett- urinn okkar í bekknum. Lífsföru- nautur Balda er Jóna B. Heiðdal og eiga þau þrjú uppkomin börn. Baldi var mikill fjölskyldumaður og stoltur faðir, tengdafaðir og afi. Þegar hann hætti störfum hjá Sauðárkrókskirkju um áramót 2018-19 ætlaði hann að fara að njóta ævikvöldsins og fara að sinna fjölskyldunni betur. En það var ekki mikill tími eftir. Eftir að Baldi veiktist og var fluttur suður töluðum við saman í síma annað og eða þriðja hvert kvöld. Alltaf var hann jafn bjartsýnn og bar- áttuglaður. Hann batt svo miklar vonir við að fara á Grensás og þar heyrði ég síðast í honum og skildi hann ekkert hvað þetta gengi seint. Ég á eftir að sakna þessa góða vinar. Sakna þess að hann hringi og segi „Sæl ljósið mitt, ég er á leiðinni í kaffi og spjall,“ og þegar mætt er þá hlýtt faðmlag og koss á kinn. Við Baldi vorum sann- færð um að eftir jarðvist okkar hér tæki eitthvað annað við. Þá verður það ég sem hringi og segi „Sæll ljósið mitt, ég er að koma í kaffi og spjall.“ Þá hittumst við öll þessir gömlu góðu félagar, Ytribæingar á gamla Króki. Jónu og fjölskyldu votta ég mína inni- legustu samúð, þeirra missir er mikill. Kveð kæran vin og skóla- bróður, sjáumst. Sigrún Aadnegard. Kveðja frá sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju Fallinn er frá fyrir aldur fram, eftir nokkurra mánaða snörp og erfið veikindi, Baldvin Kristjáns- son. Hann kom inn í sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju árið 2001 og tók þar við sæti gjaldkera sókn- arinnar, sama ár hætti meðhjálp- ari kirkjunnar og tók Baldvin að sér starf hans. Árið 2004 losnaði staða kirkjuvarðar og varð það niðurstaðan að sameina starf kirkjuvarðar og meðhjálpara. Baldvin tók þetta starf að sér og annaðist það með miklum sóma samhliða annarri vinnu sinni og eftir það vék hann úr sóknar- nefnd. Þannig leiddi eitt af öðru og innan tíðar var hann kominn í fullt starf við kirkju og safnaðarheimili og síðar að stjórna grafartöku og frágangi í kirkjugarðinum. Baldvin var einstaklega skap- góður og mikið ljúfmenni, hafði góða og hlýja nærveru sem hann nýtti vel í samskiptum við fólk. Áhugasamur um kirkjunnar mál og lagði metnað sinn í að allar at- hafnir færu fram á virðulegan og vel skipulagðan hátt. Gott var til hans að leita og treystu safnaðar- meðlimir honum mjög vel, þeir fundu fyrir öryggi í návist hans jafnt í gleði og sorg. Hann átti auðvelt með að vinna með öllum hvort sem um var að ræða presta, sóknarnefnd eða aðra starfsmenn kirkjunnar. Allt gekk vandræða- laust fyrir sig. Starf kirkjuvarðar var oft og tíðum erilsamt, sumarfrí sundur- slitið og stundum lítið. Baldvin kvartaði ekki en sagði einstaka sinnum „ég er svolítið þreyttur“. Árið 2018 ákvað Baldvin að segja starfi sínu lausu við Sauðárkróks- kirkju og fara að hægja ferðina. Hann hætti störfum í árslok 2018. Sóknarnefnd þakkar Baldvin gott og ánægjulegt samstarf í gegnum árin og erum við þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast honum. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans og vinum sem við sendum innilegustu samúðarkveðjur. Ingimar Jóhannsson. Baldvin Kristjánsson ✝ Jón Ármannfæddist á Fossi, Húsavík, 10. janúar 1936. Hann lést á sjúkradeild HSN Húsavík 1. sept- ember 2020. For- eldrar hans voru Árni Jónsson frá Fossi, f. 14. október 1901, d. 14. nóv- ember 1994, og Guð- rún Stefanía Stein- grímsdóttir frá Túnsbergi, f. 21. febrúar 1908, d. 21. sept- ember 1990. Þau eignuðust alls sjö börn og var Jón Ármann miðjubarn. Eldri en Jón Ár- mann voru Kristín, f. 19. júní 1928, d. 30. ágúst 2012, Stein- grímur, f. 25. nóvember 1930, d. 12. febrúar 2014, og Sigrún Kristbjörg, f. 18. nóvember 1931, d. 16. apríl 2020, en yngri systkinin lifa bróður sinn, þau Bjarni, f. 23. maí 1938, Agnes, f. 9. desember 1943, og Sigurður, f. 12. nóvember 1948. Jón Ármann kvæntist Fann- eyju Árdísi Sigvaldadóttur, f. 1. janúar 1939, frá Hofsárkoti í Svarfaðardal, 1958. Þau skildu. Börn þeirra eru 1) Árni, f. 1959, kvæntur Sigríði Kristínu Sverr- isdóttur, f. 1965. Börn þeirra eru Lovísa Fanney, f. 1993, Jón Andri, f. 1996, og Daníel Geir, smíði í Iðnskólanum á Húsavík og hjá frænda sínum Stein- grími Birgissyni og lauk síðar meistaraprófi. Hann stofnaði með honum trésmíðaverk- stæðið Hlyn árið 1964 og ráku þeir síðan húsgagnaverslun með sama nafni. Síðar stofnuðu Jón Ármann og Árdís Híbýla- þjónustuna, verslun með gólf- efni, málningarvörur og innréttingar og ráku hana í nokkur ár. Jón Ármann starf- aði sem byggingarstjóri Hótels Húsavíkur og Dvalarheimilis aldraðra á Húsavík auk þess að reka eigið trésmíðaverkstæði um árabil. Byggingar og end- urgerð gamalla húsa áttu hug hans allan og honum var um- hugað um að bjarga slíkum verðmætum og bera mörg hús á Húsavík handverki hans glöggt vitni. Hann var um tíma virkur í bæjarpólitíkinni á Húsavík og sat einnig í stjórn ýmissa félaga og fyrirtækja. Tónlist var alla tíð hluti af lífi Jóns Ármanns og hann var einn af stofnendum Lúðrasveitar Húsavíkur og spilaði með henni í fjölda mörg ár. Útför Jóns Ármanns fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 11. september 2020, kl. 14. Streymt verður frá útförinni á https://tinyurl.com/ y6k8k82g/. Virkan hlekk á streymið má nálgast á https// www.mbl.is/andlat/. f. 2001. 2) Margrét Kristín, f. 1960, gift Árna Sveini Sigurðssyni, f. 1960. Börn þeirra eru Gunnar, f. 1995, og Unnur, f. 1998. 3) Sigvaldi Óskar, f. 1965, kvæntur Sigrúnu Birnu Sigtryggs- dóttur, f. 1967. Börn þeirra eru Sóley Ásta, f. 1996, í sambúð með Nathan Masters, f. 1995, Sunna Dís, f. 2003, og Dagur Smári, f. 2004. 4) Anna Sigrún, f. 1968, gift Magnúsi Hermanns- syni, f. 1963. Dætur þeirra eru Halldóra, f. 1990, og Heiðrún, f. 2002. Sambýlismaður Halldóru er Aðalsteinn Pálsson, f. 1990, og þau eiga saman Herdísi Mar- íu, f. 2011, og Ingu Bergdísi, f. 2014. Jón Ármann og Árdís eignuðust dreng árið 1962 sem lést skömmu eftir fæðingu. Eftirlifandi sambýliskona Jóns Ármanns er Þórhildur Sigurðardóttir, f. 27. apríl 1944, frá Hallormsstað. Börn hennar eru Sigurður Örn, f. 1961, Páll, f. 1964, Laufey, f. 1966, Egill, f. 1967, Jóhannes, f. 1975, Arn- þrúður, f. 1977, og Sigurlaug, f. 1982. Jón Ármann lærði húsgagna- Elsku Jón Ármann. Það er erfitt að ímynda sér Strandberg án þín þar sem þú sit- ur í sólinni með kaffibolla sem hægt var að ræða öll heimsins mál yfir; allt frá lífi fuglanna í trjánum til stöðunnar í veröld- inni. Það var jafn mikilvægt og jafn gott viðfangsefni í spjall eða góðar rökræður, flónska mann- anna eða gangur náttúrunnar. Við systkinin minnumst þín með þakklæti. Við vorum ætíð velkomin á heimili ykkar mömmu, alltaf hús sem stóð okk- ur opið og þú mættir okkur með jákvæðu og hlýju hugarfari. Þú reyndir aldrei að ala okkur upp, þrátt fyrir að það hafi eflaust mátt á köflum, heldur tókst okk- ur eins og við erum og studdir okkur í því sem við vorum að gera. Við minnumst með hlýju þess sem þú gafst af þér. Þú sýndir þeim verkefnum sem við stóðum í ætíð áhuga og veittir okkur lið, hvort sem það var í hversdegin- um eða einhverju stærra. Börnin okkar áttu í þér góðan leikfélaga og vin. Þegar þau voru í heim- sókn ljómaðir þú hreinlega og varst alltaf til í sprell og leiki. Það virtist aldrei of mikill fyrirgangur eða of mikil læti, það var alltaf rúm fyrir börn til að vera þau sjálf, hlæja og leika sér. Jafnvel þegar heilsan var farin að bresta varstu til í æsilegan eltingaleik við þau í kringum húsið. Það var gaman að sjá ykkur mömmu skapa ykkur heimili saman í Strandbergi. Þú varst völundur í höndunum og með sterkt fegurðarskyn sem skín í gegn, bæði í húsinu sjálfu og garðinum í kring. Smíðisgripir, nýkomnir úr rennibekknum, bera bæði færni og æfðu auga vitni. Þú kunnir líka að njóta fegurð- ar í verkum annarra og skreyta umhverfi þitt og auðga með myndlist og bókum, en ekki síst tónlist, þar sem þú varst bæði vel liðtækur sjálfur og kunnir að hlusta og lygna aftur augunum af einbeitingu og ánægju. Það var okkur systkinunum styrkur að finna þetta viðhorf fagurkerans til okkar eigin listsköpunar og að finna að þú hafðir alltaf bæði trú og áhuga á fjölbreyttum við- fangsefnunum. Það er ótal margs að minnast en ofarlega er þakklætið og sökn- uður. Við vottum mömmu, börn- um Jóns Ármanns, fjölskyldum þeirra og aðstandendum öllum okkar dýpstu samúð. Hvíldu í friði. Jóhannes, Arnþrúður, Sigurlaug og fjölskyldur þeirra. Jón Ármann Árnason Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTRÚN JÓHANNSDÓTTIR, andaðist á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, 4. september. Útför hennar fer fram frá Höfðakapellu 15. september. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánir ættingjar og vinir viðstaddir. Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir einstaka alúð og umönnun. Friðbjörn Björnsson Kristín Guðbrandsdóttir Ingi Björnsson Margrét Baldvinsdóttir Ásbjörn Björnsson Hlíf Hansen ömmubörn og langömmubörn Okkar ástkæra GUÐRÚN INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR Hofteigi 4, Reykjavík, lést þann 7. september sl. á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útför hennar fer fram frá Laugarneskirkju, 17. september kl. 13, að viðstöddum nánum aðstandendum og vinum en einnig verður streymt frá afhöfninni. Fyrir hönd aðstandenda, Marteinn Rúriksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.