Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2020 GMC Denali
Litur: Silver/ Dark walnut að innan.
2020 GMC Denali, magnaðar breytingar
t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi,
multipro opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum ásamt
mörgu fleirra. Skjáir í hauspúðum,
gúmmimottur, sóllúga.
VERÐ
13.290.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 GMC Denali Ultimate
Litur: White frost/svartur að innan.
Magnaðar breytingar t.d. 10 gíra
skipting, auto track millikassi,
multipro opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum ásamt
mörgu fleirra. Skjáir í hauspúðum,
gúmmimottur, sóllúga. Samlitaðir
brettakantar. Tveir alternatorar.
VERÐ
13.875.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 GMC Denali Ultimate
Litur: Svartur/ Svartur að innan.
Magnaðar breytingar t.d. 10 gíra
skipting, auto track millikassi,
multipro opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum ásamt
mörgu fleirra. Skjáir í hauspúðum,
dráttarbúnaður í palli, motta í palli,
samlítaðir brettakantar, sóllúga.
VERÐ
13.875.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 Ford F-350 XLT
Litur: Silver/ Grár að innan. 6,7L Diesel,
450 Hö, 925 ft of torque, 4X4, 10-speed
Automatic transmission, 6-manna.
Heithúðaður pallur.
VERÐ
11.290.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
Þúsundir flóttamanna á grísku eyj-
unni Lesbos höfðust við án húsa-
skjóls í gær eftir brunann í Moria-
flóttamannabúðunum í fyrradag.
Grísk stjórnvöld sendu í gær tvö
herskip og eina ferju til Lesbos. Alls
munu skipin þrjú geta skotið skjóls-
húsi yfir um 2.000 manns, en áætlað
er að á bilinu 12-13.000 flóttamenn
hafi endað á vergangi vegna eldsins.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari og Emmanuel Macron Frakk-
landsforseti kynntu í gær tillögu um
að ríki Evrópusambandsins myndu
taka að sér um 400 ungmenni sem
voru í búðunum, en þau höfðu verið
flutt til Grikklands í fyrradag.
Vilja loka búðunum varanlega
Grísk stjórnvöld lýstu yfir fjög-
urra mánaða neyðarástandi í fyrra-
dag og sendu óeirðalögreglu til eyj-
unnar. Þá reyndu Grikkir í gær að
koma upp nýju tjaldsvæði fyrir
flóttamennina, en íbúar á eyjunni
settu upp vegartálma til að koma í
veg fyrir að hægt væri að hreinsa
brunarústirnar.
Mikil spenna hefur ríkt á Lesbos
síðustu mánuði, þar sem innfæddir
hafa lagst gegn áformum um að
stækka búðirnar eða reisa aðrar á
eyjunni. „Núna er tíminn til þess að
loka Moria fyrir fullt og allt,“ sagði
Vangelis Violatzis, sveitarstjórn-
armaður á Lesbos, við AFP-
fréttastofuna. „Við viljum ekki aðrar
búðir, og við munum mótmæla öllum
byggingaráformum. Við höfum þurft
að glíma við þetta ástand í fimm ár,
það er kominn tími fyrir aðra að
bera þessar byrðar.“
Katerina Sakellaropoulou, forseti
Grikklands, sagði í gær að bregðast
þyrfti við stöðunni án tafa og án þess
að menn vikju sér undan ábyrgð.
„Þá getur Evrópa ekki sett kíkinn
fyrir blinda augað. Flóttamanna- og
innflytjendamálið er fyrst og fremst
evrópskt vandamál,“ sagði hún.
Notis Mitarachi, ráðherra inn-
flytjendamála sagði svo að hælisleit-
endur hefðu kveikt eldinn sem
gleypti búðirnar vegna þess að 35
manns þar hefðu verið settir í
sóttkví vegna kórónuveirunnar.
Þeir sluppu hins vegar úr henni
þegar eldurinn kviknaði og dreifðust
aftur meðal annarra flóttamanna.
Grísk heilbrigðisyfirvöld sögðu að
búið væri að finna aftur átta af þeim
35 og einangra á ný ásamt nánum
aðilum.
AFP
Matargjöf Flóttamenn á Lesbos treysta nú á matvælagjafir líkt og þessa og eru margir sem bíða við hvern bíl.
Senda skip til Lesbos til
að hýsa flóttamennina
Innfæddir leggjast gegn endurreisn Moria-búðanna
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bresk stjórnvöld héldu neyðarfund
með fulltrúum Evrópusambandsins í
gær eftir að sambandið hótaði Bret-
um lögsókn vegna nýs frumvarps
bresku ríkisstjórnarinnar um tolla-
mál milli Norður-Írlands og hinna
þjóðanna á Bretlandseyjum.
Maros Sefcovic, varaforseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, fundaði með breska ráðherran-
um Michael Gove, en þeir sitja í
sameiginlegri nefnd ESB og Bret-
lands sem á að fara yfir vandamál
sem koma upp tengd útgöngu Breta
úr sambandinu.
„Ég kom til þess að lýsa yfir alvar-
legum áhyggjum Evrópusambands-
ins af frumvarpinu,“ sagði Sefcovic
við fjölmiða fyrir fund hans með
Gove, en frumvarpið fór í gegnum
fyrstu umræðu á breska þinginu í
fyrradag.
Kurr innan stjórnarflokksins
Nokkur andstaða hefur myndast
við frumvarpið á breska þinginu eftir
að Brandon Lewis, ráðherra Norð-
ur-Írlandsmála, sagði í umræðum
þar að frumvarpið myndi brjóta
gegn ákvæðum Brexit-sáttmálans
sem Bretar og Evrópusambandið
gerðu með sér í fyrra, en frumvarpið
mun færa breskum ráðherrum viss
völd til að stýra tollum á milli Norð-
ur-Írlands annars vegar og Eng-
lands, Skotlands og Wales hins veg-
ar. 4. grein sáttmálans segir hins
vegar að þau mál eigi að vera á hendi
Evrópusambandsins.
Kurr er innan Íhaldsflokksins
vegna málsins og reyndu ráðherrar
ríkisstjórnarinnar í gær að fá þing-
menn flokksins til að styðja frum-
varpið. John Major, fyrrverandi for-
sætisráðherra Íhaldsflokksins og
andstæðingur útgöngu Breta úr
sambandinu, varaði í gær við því að
frumvarpið yrði að lögum. „Ef við
glötum orðspori okkar fyrir að halda
loforð okkar í heiðri, þá höfum við
glatað ómetanlegum hlut sem verður
mögulega aldrei hægt að endur-
heimta.“
Ríkisstjórnin hefur réttlætt frum-
varpið á þeim forsendum að sáttmál-
inn hafi verið samþykktur „í flýti“,
og að því sé einungis verið að lag-
færa viss ófyrirséð vandamál sem
séu einungis að koma núna upp á yf-
irborðið. Frumvarpið sé því „örygg-
isnet“ til þess að koma í veg fyrir að
Norður-Írland verði aðskilið frá hin-
um bresku þjóðunum ef Bretar og
Evrópusambandið ná ekki saman
um fríverslunarsamning.
Brexit fyrir Evrópudómstólinn?
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins lýsti því hins vegar yfir í
gær að litið yrði á samþykkt frum-
varpsins sem „alvarlegt brot á al-
þjóðalögum“ og málið hefði skaddað
traust Breta í samskiptum þeirra við
sambandið.
Hermdu heimildir breskra fjöl-
miðla að framkvæmdastjórnin hefði í
hyggju að sækja mál á hendur Bret-
um fyrir Evrópudómstólnum. Þá
hafði Daily Telegraph eftir embætt-
ismönnum í Brussel að Evrópusam-
bandið íhugaði að fara í tollastríð við
Breta beygði ríkisstjórnin ekki af.
Þá er óvíst hvaða áhrif málið muni
hafa á fríverslunarviðræður Breta
og Evrópusambandsins, en áttundu
viðræðulotunni á að ljúka í dag. Þær
viðræður hafa hins vegar skilað
litlum árangri til þessa, en bresk
stjórnvöld hafa gefið frest til 15.
október næstkomandi til þess að
ljúka þeim viðræðum með samningi.
Ágreiningur um fiskveiðar og ríkis-
aðstoð hafa hins vegar orðið að
ásteytingarsteini í viðræðunum.
Íhuga að fara í mál við Breta
Fulltrúar Breta og Evrópusambandsins funduðu í Lundúnum vegna Brexit-frumvarpsins Hóta að
fara með málið fyrir Evrópudómstólinn Ríkisstjórnin sökuð um að tefla orðspori Breta í tvísýnu
AFP
Brexit Michel Barnier, aðalsamningamaður ESB, gengur til fundar í Lundúnum í gær ásamt samningateymi sínu.