Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020 ✝ Guðrún Mar-got Ólafsdóttir fæddist í Dengzhou í Henan- sýslu í Kína 12. febrúar 1930. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Grund 30. ágúst 2020, níræð að aldri. Foreldrar hennar voru Ólaf- ur Ólafsson, f. 14. ágúst 1895, d. 30. mars 1976, og Herborg Eldevik Ólafsson, f. 11. ágúst 1898, d. 5 mars 1992. Systkini Guðrúnar eru Jó- hannes, f. 26. mars 1928, Hjör- dís, f. 12. október 1931, Rann- veig, f. 27. júlí 1933, og son, f. 5. desember 2008. Guðrún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík 1950 og cand.mag.-prófi frá Háskólanum í Ósló í landa- fræði, sögu og ensku 1956. Guðrún var kennari við Kenn- araskóla Íslands þar til hún hóf störf við Háskóla Íslands árið 1974. Hún átti mikinn þátt í að byggja upp nám í landfræði, fyrst sem lektor en síðan sem dósent, allt þar til hún lét af störfum vegna aldurs árið 2000. Útför Guðrúnar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 11. sept- ember 2020, klukkan. 13. Vegna aðstæðna verða ein- ungis fjölskylda og nánir vinir viðstaddir athöfnina. Henni verður streymt á Facebook, slóðin er Útför – Guðrún Mar- got Ólafsdóttir. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/ y435hzkd/. Virkan hlekk má nálgast á https://www.mbl.is/ andlat/. Haraldur, f. 15. ágúst 1935, d. 9. mars 2019. Eiginmaður Guðrúnar var Helgi Guðmunds- son, f. 7. maí 1933. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Egill Óskar Helgason, f. 9. nóvember 1959, kvæntur Sig- urveigu Káradótt- ur, f. 21. september 1973. Son- ur þeirra er Kári, f. 14. mars 2002. 2) Halla Helgadóttir, f. 5. júní 1963, maður hennar er Ingvi Þór Elliðason, f. 24. júní 1966. Synir hennar eru Arn- aldur Bjarnason, f. 21. ágúst 1991, og Matthías Orri Ingva- Okkar kæra móðursystir Guð- rún Ólafsdóttir verður jarðsung- in frá Dómkirkjunni í dag. Um hugann reika margar ljúfar minningar um fjölskyldusam- veru með henni og frændsystk- inunum Agli og Höllu sem við ól- umst upp að hluta með framan af ævi okkar í fjölskylduhúsinu við Ásvallagötu. Við í kjallaran- um en þau á fyrstu hæð og afi, amma og Hjördís móðursystir okkar á annarri hæð. Það er margs að minnast og böndin ætíð sterk. Ævi Guðrúnar var um margt merkileg en hún og móðir okkar Rannveig fæddust í Kína á fjórða áratug síðustu ald- ar á róstusömum tímum þar í landi hvar afi okkar Ólafur og amma Herborg voru kristniboð- ar. Fimm voru þau systkinin og fæddust fjögur í Kína. Haraldur var yngstur og lést á síðasta ári en eftir lifa Jóhannes, Hjördís og Rannveig. Guðrún var ætíð glettin frænka og gaman að heimsækja fjölskylduna á Ás- vallagötuna eftir að við fluttum fyrir hornið á Ljósvallagötu. Í gömlum bréfum sem við fundum nýverið í fórum mömmu frá því þær systur voru liðlega tvítugar ævintýragjarnar stúlkur má glögglega sjá væntumþykju Guðrúnar og ábyrgð, en ávallt var stutt í gamansemina og mömmu ávarpaði hún í þessum gömlu bréfum sem „Elsku Blómhildur“. En hún var stóra systirin og gætti að þeim yngri - að þær skrifuðu gott mál og pössuðu stafsetningu og stíl- bragð – þar var kennarinn kom- inn fram. Þannig minnumst við Guðrúnar frænku - hún var glað- leg og hélt menningarheimili á Ásvallagötunni hvar hún bjó alla tíð og hélt þannig við fjölskyldu- óðalinu fyrir okkur hin. Það er ríkidæmi að geta heimsótt æsku- stöðvarnar og átti hún ógrynni af bókum og fallegum munum frá ferðum vítt og breitt um heiminn. Það er okkur bræðrum mikilvægt að böndin við Ásvalla- götuna bresti ekki og minnumst við Guðrúnar með mikilli hlýju og virðingu og sendum fjölskyld- unni okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Pálmi og Ólafur Finn- bogasynir og fjölskyldur. Þegar maður sér fyrir sér Guðrúnu Ólafsdóttur gæti það verið á Hringbrautinni þar sem hún skundar létt í spori milli heimilis og vinnustaðar. Þegar nær er komið sér í sposka brosið og íhugult augnaráð. Við mæðgur kynntumst Guð- rúnu þegar við fluttum á Ás- vallagötuna árið 1970. Handan götunnar á númer 13 bjó Guðrún með fjölskyldu sinni, þau gam- algrónir Ásvallagötubúar í fjölskylduhúsi. Börnin á heim- ilunum mynduðu fljótt tengsl sín á milli og Guðrún varð traustur fjölskylduvinur. Sameiginleg við- horf tengdu okkur fjölskyldurn- ar og vinátta Guðrúnar náði í ríkum mæli til barnsins, Stein- unnar, því aldur skipti Guðrúnu ekki máli í mannlegum sam- skiptum. Hún skemmti sér með börnum, hlustaði á það sem þau höfðu fram að færa. Guðrún var heimsborgari, fædd í Kína og uppalin þar framan af æsku sinni. Rætur lágu líka til Noregs en móðir Guðrúnar var norsk. Eftir stúd- entspróf helgaði hún sig landa- fræði og var háskólakennari í þeirri fræðigrein bróðurpart starfsævinnar. Guðrún var víðförul, ferðaðist um allan heim. Oft lék landfræð- ingnum hugur á að kynna sér slóðir og þjóðir sem fáir Íslend- ingar þekkja vel. Á þessum ferðalögum var hún oft ein og þá kom sér vel meðfæddur styrkur og kjarkur til að takast á við hið óþekkta. Frásagnir hennar af ferðalög- um voru spennandi og skemmti- legar voru sögurnar frá barnæskunni í Kína þegar hún fór með barnagælur eftir kín- verskri fóstru sinni. Guðrún naut tónlistar, söng í kórum og sótti tónleika. Hún lét sig varða þjóðfélagsmál, ekki síst jafnrétti kynjanna, og stóð með fleiri konum að Kvenna- framboðinu og síðar stofnun Kvennalistans. Þær Helga nutu þess löngum stundum að deila þessum áhugamálum. Við mæðgur kveðjum ein- staka konu, þökkum henni fyrir vináttuna og gleðina sem hún veitti okkur. Við sendum hennar góðu börnum, Agli og Höllu og fjölskyldum þeirra, samúðar- kveðjur. Helga Ólafsdóttir, Steinunn Stefánsdóttir. Það var styrkur og gæfa Kvennaframboðsins, þegar því var ýtt úr vör í árslok 1981, hversu breiður og fjölbreyttur hópur kvenna lagði því lið. Þarna komu saman konur á öll- um aldri úr ýmsum áttum. Flestar með litla reynslu af póli- tísku starfi en allar með sömu brennandi þörfina til að láta um sig muna í baráttunni fyrir bætt- um hag kvenna. Guðrún var einn af stofnendunum og í nóvember 1981 var hún kosin í kynning- arnefnd fyrir væntanlegt fram- boð. Um vorið tók hún svo 10. sætið á lista Kvennaframboðs til borgarstjórnar Reykjavíkur, þá 52ja ára lektor við Háskóla Ís- lands. Hún sat í umhverfismála- ráði borgarinnar 1982-1986, fyrstu tvö árin sem aðalfulltrúi en seinni tvö sem varafulltrúi í samræmi við útskiptareglu Kvennaframboðsins. Umhverfis- málin voru hennar hjartans mál og í umhverfismálaráði fékk hún m.a. samþykkta friðun Skild- inganeshólanna auk þess sem hún beitti sér fyrir verndun suð- urstrandar borgarinnar. Hún hafði þungar áhyggjur af mikilli skólpmengun í fjörum borgar- innar og ein okkar minnist þess að hún sagði einhvern tímann: „Ég svaf bara ekkert í nótt, ég var að hugsa um holræsakerfið“. Seinna meir var hún svo í starfs- hópi á vegum Kvennalista um umhverfismál og stóriðju. Mest var þó líklega framlag hennar til tímaritsins Veru sem gefið var út á árunum 1983-1999 en Guð- rún var í ritnefnd á árunum 1985-1987 og svo aftur 1990- 1994. Þar skrifaði hún m.a. greinar um umhverfismál, um konur í þróunarlöndum, mennta- mál kvenna og síðast en ekki síst um kvennarannsóknir en þar lagði hún mikið af mörkum. Hún sótti ýmis kvennarannsóknar- þing erlendis og miðlaði frá þeim í Veru en rauði þráðurinn í þeirri umfjöllun var sú skoðun hennar að kvennarannsóknir ættu að næra kvennapólitíkina og kvennahreyfinguna. Sjálf var hún frumkvöðull á sínu fræða- sviði og kynnti femínískar rann- sóknir í landafræði fyrir nem- endum sínum. Guðrún áorkaði miklu en aldr- ei með látum. Hún gerði allt vel, var róleg og yfirveguð og alltaf kurteis og elskuleg. Hún hefði getað verið móðir margra þeirra sem hún starfaði með í Veru og bjó bæði yfir meiri þekkingu og víðsýni en við hinar en kom samt alltaf fram við okkur sem jafn- ingja. Þó að henni lægi lágt rómur og þyrfti að etja kappi við há- værar ungar konur þá náði hún alltaf í gegn. Við hlustuðum þegar hún tal- aði. Hún hafði góðan húmor, var einstaklega glaðsinna og lét sig aldrei vanta í góðan gleðskap. Guðrún fylgdist vel með því sem við vorum að gera og það var alltaf gott að hitta hana á gangi í Vesturbænum og spjalla um það sem efst var á baugi í pólitíkinni. Fyrir nokkrum árum var ljóst að hún var ekki alltaf meðvituð um stund og stað en samt jafn hlý, brosandi og elskuleg og áður. Nú hefur hún kvatt og við fáum ekki lengur notið hennar góðu nærveru. Við þökkum vináttu hennar og handleiðslu á árum áður og mikilvægt framlag til baráttu kvenna fyrir betri heimi. Börnum hennar og barnabörn- um sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Jónsdóttir og Kristín Blöndal. Guðrún Ólafsdóttir var hríf- andi heimskona með mikla út- geislun og hreif hugi þeirra sem henni kynntust. Ólafur, faðir hennar, var um 14 ára skeið í Kína þar sem hann boðaði kristna trú og sinnti hvers konar líknarstörfum. Þegar hann sneri aftur til Ís- lands hófst eins konar Kínatrú- boð. Hann ferðaðist um landið og sýndi myndir sem hann hafði tekið. Hreif hann ýmsa með frá- sögn sinni af þessu stórmerka ríki. Þegar kínverskir tónlistar- menn komu hingað til lands í fyrsta skipti árið 1954 var hann beðinn að túlka fyrir þá og hið sama varð upp á teningnum þeg- ar hingað kom fyrsta menning- arsendinefndin frá Kína ásamt Peking-óperunni. Leiðir okkar Guðrúnar lágu saman í Háskóla Íslands á 8. áratug síðustu aldar. Við bræður höfðum valið okkur norsku sem aukafag og var Guðrún prófdóm- ari. Áttum við tal saman því að hún vissi um áhuga minn á Kína. Haustið 1977 buðu Kínversku vináttusamtökin Kínversk-ís- lenska menningarfélaginu að senda 10 manna sendinefnd til Kína. Þegar hafist var handa við að finna þátttakendur kom nafn Guðrúnar fram. Hún þá boðið okkur til mikillar ánægju. Það var einstaklega áhuga- vert að ganga með henni um strætin í Beijing. Hvarvetna birtist ýmislegt sem Guðrúnu rámaði í og eitt og eitt orð um mat og ýmsar hefðir rifjaðist upp fyrir henni. Til stóð að nefndin færi á heimaslóðir hennar, en þar sem engir innviðir voru fyrir hendi að taka á móti erlendum gestum varð ekkert úr því að við færum þangað. En nefndin fór býsna víða og ákvað kínverska fréttastofan, Xinhua, að senda með okkur blaðamann sem fylgdist með heimsókninni. Guðrún átti eftir að fara oftar til Kína og í annarri ferð hennar fann hún æskuheimili sitt. Nú, þegar Guðrún Ólafsdóttir hefur haslað sér völl á víðáttum almættisins, eru henni fluttar einlægar þakkir fyrir hlut sinn í auknum samskiptum Íslendinga og Kínverja. Eitt sinn var hún spurð hvort sá orðrómur væri réttur að er- lendir trúboðar hefðu valdið óróa í samskiptum þeirra við kínversk stjórnvöld. Svaraði hún því til að flestir þeirra hefðu unnið af heilindum að köllun sinni – kristniboði sem fólst m.a. í margs konar líknarstörfum, en hinu mætti ekki neita að hvar- vetna væri misjafn sauður í mörgu fé. Höfundur er vináttusendi- herra og fyrrverandi formaður Kínversk-íslenska menningar- félagsins. Arnþór Helgason Guðrún Ólafsdóttir var ein af brautryðjendum í íslenskum kvennarannsóknum og hvata- maður um áratuga skeið. Það byrjaði með Áhugahópi um ís- lenskar kvennarannsóknir þar sem konur úr ýmsum fræði- greinum komu saman og réðu ráðum sínum. Haustið 1985 stóð hópurinn fyrir fjölsóttri ráð- stefnu um íslenskar kvennarann- sóknir sem haldin var í Odda, húsi Háskóla Íslands, 29. ágúst til 1. september. Þar fluttu 24 konur erindi, hver um sína fræðigrein. Voru þau ári síðar gefin út á bók, með titlinum Ís- lenskar kvennarannsóknir, og er það dæmigert, að hún var fjölrit- uð, ekki prentuð. Á ráðstefnunni hélt Guðrún erindi um lífskjör kvenna, byggðaþróun og byggðastefnu, þar sem hún m.a. sagði frá markmiði og sögu kvennarann- sókna í landfræði, auk þess sem hún lagði línurnar fyrir okkur hinar með orðunum: Engar kvennarannsóknir án kvenna- pólitíkur. Ráðstefnan tókst vel og í framhaldi var ákveðið að vinna að tillögum um skipulag kvennafræða við Háskóla Ís- lands. Ég man þegar Guðrún hringdi í mig vorið 1990 þar sem ég var í rannsóknaleyfi hinum megin á hnettinum og sagði mér að málið hefði gengið í gegn og Rannsóknastofa í kvennafræð- um við Háskóla Íslands hefði verið stofnuð með reglugerð frá 7. mars. Hafði hún verið tilnefnd í stjórn og spurði mig hvort hún mætti leggja til að ég yrði það líka. Þannig atvikaðist það að við vorum saman í fyrstu stjórn Rannsóknastofu í kvennafræð- um og reyndar einnig þeirri næstu, ásamt fjórum fræðikon- um öðrum, hverri frá sínu sviði. Það var mikið í bígerð og haldn- ir margir fundir. Hafði ein stjórnarkona það á orði við mig seinna að þetta hefði verið skemmtilegasta stjórn sem hún hefði verið í, það hefði verið svo gaman á fundum. Var það ekki síst Guðrúnu að þakka með sinn fína húmor, snjöllu frásagnar- gáfu, heilindi, velvild og létta skap. Meðal þess sem stofan stóð fyrir var „Rabb um rannsóknir“ sem haldið var í hádeginu (og aðrir hermdu svo eftir). Í einu slíku sagði Guðrún frá rann- sóknaverkefni sem hún var að leggja drög að um ferðabækur eftir erlendar konur sem ferð- uðust um Ísland á 19. öld. Um það fjallar að nokkru greinin „Hefðirðu verið drengur, stúlka mín“ í Kvennaslóðum (2001), af- mælisriti til Sigríðar Th. Er- lendsdóttur. Segir Guðrún þar frá Íslandsferð skáldkonunnar Benedicte Arnesen-Kall árið 1867 og boðar framhald á þeirri rannsókn – rannsókn sem veik- indi hennar bundu svo sorglega enda á. En Guðrún sinnti ekki síður miðlun. Um árabil var hún í rit- stjórn Veru og birti þar fjölda skemmtilegra pistla, ritdóma og viðtala. Þá var hún í ritstjórn Landabréfsins, tímarits land- fræðinga, og birti þar krítískar greinar, þar sem landfræðin og kvennafræðin koma saman. Í rannsóknum sínum lagði Guðrún áherslu á sjálfstæð, vönduð og traust vinnubrögð, kenningar vel studdar heimild- um. Ég kveð hana með sömu orðum og hún í erindinu á ráð- stefnunni góðu árið 1985, sóttum í gríska heimspeki: „Það þarf fastan punkt til að standa á til þess að lyfta veröldinni.“ Helga Kress. Í dag kveðjum við Guðrúnu Margot Ólafsdóttur, kæra vin- konu og samstarfsfélaga til margra ára. Guðrún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1950 og cand.mag.-prófi frá Háskólanum í Osló í landfræði, sögu og ensku árið 1956. Hún hóf störf við jarð- og landfræðiskor Háskóla Ís- lands árið 1974, um það leyti sem við vorum að hefja þar nám. Hún var fyrsti kvenlektorinn við Verkfræði- og raunvísindadeild og átti stóran þátt í að byggja landfræðina upp sem vísinda- grein innan HÍ. Eftir hana liggja ýmis rit og greinar. Við minn- umst Guðrúnar hér vegna vin- áttu hennar og mannkosta. Aðrir munu segja frá fræðistörfum hennar og kennslu. Guðrún var einstök og kær- komin fyrirmynd okkar í náminu við jarð- og landfræðiskor HÍ á fyrrihluta áttunda áratugar síð- ustu aldar, en þá var skorin að öðru leyti mönnuð ágætum körl- um! Guðrún var fáguð í fram- komu og hlý. Hún var ein af þessum djúpvitru konum sem höfðu farið víða og séð margt. Hún átti ríkan þátt í að gæða gamla atvinnudeildarhúsið, þar sem jarð- og landfræðin voru til húsa, bæði mannlegri hlýju en einnig alþjóðlegum straumum, sem eru svo mikilvægir í uppeldi háskólanema. Síðar nutum við þeirra forréttinda að starfa með Guðrúnu innan HÍ. Guðrún var einstaklega vinnu- söm, fordómalaus og umgekkst alla sem jafningja. Aldrei fund- um við t.d. fyrir því að rúmlega 20 ára aldursmunur var á okkur. Í námsferð til Noregs vorið 1977 bundumst við Guðrúnu tryggum vinaböndum sem áttu eftir að dýpka og þróast þegar við urð- um samstarfsfélagar eftir að námi lauk. Guðrún hafði lifandi áhuga á rannsóknum okkar og bar hag okkar innan vísindasam- félagsins fyrir brjósti. Það var gott að eiga stuðning hennar vís- an. Guðrún var ekki upptekin af efnislegum gæðum. Hún var mikill lestrarhestur og listunn- andi, átti mjög gott bókasafn, sótti listasöfn og var tryggur áskrifandi að sinfóníutónleikum. Við hittumst oft til að gleðjast og ræða málin og af öllum vina- fundum með Guðrúnu komum við ríkari, því hún kom oftar en ekki með nýjan og óvæntan vinkil á málefni líðandi stundar. Hún hafði einnig áhuga á börn- um okkar og velferð þeirra. Spurði grannt út í skólagöngu og fylgdist með þroska þeirra. Gjarnan kom hún með gjafir úr ferðum sínum frá framandi lönd- um bæði til þeirra og okkar. Guðrún var einlægur jafnrétt- issinni og sat m.a. í stjórn fyrstu rannsóknarstofu í kvennafræð- um við HÍ. Hún tók þátt í að þróa kvennalandfræði í sam- starfi við ýmsar forystukonur á heimsvísu, sem komu gjarnan hingað til lands til funda við hana. Guðrún tók einnig virkan þátt í nærsamfélaginu og var á lista Kvennaframboðsins 1982. Hún starfaði fyrir framboðið í nefndum á vegum borgarinnar og sat í ritstjórn tímaritsins Veru. Að leiðarlokum er okkur þakklæti efst í huga. Þakklæti fyrir að hafa kynnst heimsborg- aranum, fræðaranum og mann- vininum Guðrúnu Ólafsdóttur. Börnum hennar, þeim Agli og Höllu og fjölskyldum þeirra vottum við dýpstu samúð. Árný Erla Sveinbjörns- dóttir, Bryndís Brands- dóttir, Guðrún Gísladóttir. Guðrún Margot Ólafsdóttir  Fleiri minningargreinar um Guðrúnu Margot Ólafs- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær systir okkar, mágkona og móðursystir, KOLBRÚN SÆVARSDÓTTIR, héraðsdómari, Grænuhlíð 4, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 9. september. Útförin verður auglýst síðar. Eva Guðrún Gunnbjörnsd. Örn Elvar Arnarson Stefán Kristján Gunnbjörns. Steinunn Margrét Larsen Páll Jóhannsson Jóhannes Arnar Larsen Rannveig Skúla Guðjónsdóttir Friðrik Rafn Larsen Íris Mjöll Gylfadóttir Linda Rut Larsen Eiður Ingi Sigurðarson Freyja Guðrún Mikkelsdóttir Eldgrímur Kalman og Gunnbjörn Ernir Atlas Arnarsynir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.