Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýningin Listþræðir verður opnuð í
tveimur sölum efstu hæðar Lista-
safns Íslands á morgun, laugardag.
Á henni má sjá 60 verk eftir 37 lista-
menn sem eiga það sameiginlegt að
nota þráð með einum eða öðrum
hætti í verkum sínum. Flest verkin
eru komin á sinn stað þegar blaða-
mann ber að garði og fjölbreytnin
mikil. Að sögn sýningarstjóranna,
þeirra Hörpu Þórsdóttur og Dagnýj-
ar Heiðdal, er tilefni sýningarinnar
aldarafmæli Ásgerðar Búadóttur á
þessu ári, en hún lést árið 2014, 93
ára að aldri. Verk eftir Ásgerði má
sjá innan um önnur á sýningunni, til-
komumikil og tignarleg. Og verkin
eftir listamennina 37 eru sannarlega
af öllum toga, til dæmis eitt unnið úr
rafmagnsvír og ljósaperu.
Um helmingur eign safnsins
„Útgangspunkturinn eru verkin í
safneign Listasafns Íslands, um
helmingur verkanna er úr okkar
safneign og við völdum líka verk úr
öðrum söfnum, frá einkaaðilum og
nokkur verk frá listamönnunum
sjálfum. Við erum að láta verkin tala
saman og oft kallast þau á við verk
Ásgerðar,“ segir Dagný þar sem við
göngum um sýninguna og bætir við
að þetta séu verk frá sjötta áratugn-
um og fram til dagsins í dag.
„Ásgerður var brautryðjandi í
textíllist samtímans hér á landi og
átti stóran þátt í að þessi listgrein á
sinn sess í íslenskri listasögu. Þó að
verk Ásgerðar séu ofin þá höfum við
ekki einskorðað okkur við vefnað
heldur lítum fyrst og fremst á efni-
viðinn sem hún notaði eins og ull og
hrosshár og bættum svo við verkum
úr öðrum þráðum,“ útskýrir Harpa.
Oft að fást við það sama
–Út frá hverju hugsið þið upp-
hengingu verkanna á sýningunni?
,,Það kemur vonandi í ljós, þegar
fólk fer að skoða,“ svarar Dagný.
„Þetta eru fjölbreytt verk en það
kemur samt fljótt í ljós að listamenn
eru oft að fást við sömu hlutina. Eins
og í íslenskri myndlist almennt er
náttúran mjög stór hluti, margir að
fjalla um hana eða tengsl mannsins
við hana.
Það kom því af sjálfu sér að í öðr-
um salnum eru verk þar sem mikið
er um náttúruna en svo er það líka
maðurinn sjálfur, tilfinningar,
draumar og þrár og jafnvel mar-
traðir. Annað þema tengist kvenna-
baráttunni á áttunda áratugnum sem
helst í hendur við upphafsár textíl-
deildarinnar við Myndlista- og hand-
íðaskólann. Þú sérð hérna nokkur
slík verk,“ segir Dagný og bendir
blaðamanni á verkin „Konur og
menn“ eftir Sigrúnu Sverrisdóttur
frá árinu 1976 og „Eldhús“ eftir
Önnu Þóru Karlsdóttur frá 1978.
Titlar lýsa því sem fyrir augu ber.
Líka karlar
Listamenn hafa notað þráðinn á
margvíslegan hátt, bæði spunnið
hann, litað, ofið og formað og í dag er
mikil gróska í þráðlistinni, eins og
bent er á í texta um sýninguna. Hafa
yngri kynslóðir listamanna sýnt
þræðinum áhuga og þá ekki bara
konur heldur líka karlar, þeirra á
meðal Loji Höskuldsson og á sýning-
unni má sjá meðal annars sjá verk
eftir Pétur Magnússon sem er ekki
dæmigert fyrir hann heldur ofið í
stafrænum vefstól. Sýnir það konu
með barn á hestbaki og folald. Verkið
er eflaust gott dæmi um „tilrauna-
kenndar leiðir og uppbrot á viðtekn-
um aðferðum textíllistar“, svo vitnað
sé aftur í sýningartexta. „Hann fær
hugmynd og hugmyndin krefst þess
að hann sé með veggteppi, kallar á
þráðinn,“ segir Dagný um þetta til-
tekna verk.
Harpa nefnir að á sýningunni megi
líka sjá verk listamanna eins og Hild-
ar Bjarnadóttur sem marki ákveðin
kaflaskipti. „Hún tengir hannyrðir
við listrænt myndmál og þetta er eitt
af þessum verkum sem hún gerði og
vakti mikla athygli á sínum tíma,“
segir Harpa og bendir á samhverft,
hringlaga verk sem er heklað og
greinilegt að Hildur er framúrskar-
andi í þeirri list. Harpa segir þráðinn
í raun aldrei slitna milli ólíkra kyn-
slóða listamanna því ákveðin þróun
og tilraunamennska hafi átt sér stað.
Vísað í Viktoríutímann
Eitt tilkomumesta verk sýning-
arinnar er eftir Hrafnhildi Arnar-
dóttur - Shoplifter, unnið úr hári.
Verkið er frá árinu 2005 og samsett
úr ótalmörgum fléttum. Safnið keypti
það nýverið. „Þetta tengist þessu
gamla handverki,“ segir Dagný og að
verkið heiti „The Right Brain“ eða
„Hægra heilahvelið“. Verkið vísi í
handverk Viktoríutímans, þegar fólk
hafi byrjað að búa til minningargripi
úr mannshári, blóm og myndir.
Dagný gengur að verki eftir Guð-
rúnu Marinósdóttur þar sem unnið er
með hrosshár. Útkoman er allt önnur
en kveikjan sú sama, útskýrir Dagný.
Þannig liggur þráðurinn milli ólíkra
listamanna og kynslóða.
Land sauðanna
Talið berst aftur að Ásgerði og
Harpa segir aðdáunarvert að hún hafi
hvergi kvikað í sinni listsköpun sem
er mjög krefjandi. „Þessi sýning,
Listþræðir, heiðrar minningu hennar
en við erum ekki að segja að Ásgerð-
ur hafi haft bein áhrif á þessa lista-
menn,“ bendir Harpa á. En líkt og
Ásgerður búi listamennirnir sem eiga
verk á sýningunni yfir mikilli færni
og margir hverjir leiki þeir sér með
vefnaðarhefðina. Ádeila kemur líka
við sögu í nokkrum verkanna og má
þar nefna „Land sauðanna“ eftir
Ragnheiði Björk Þórsdóttur frá 2012,
unnið úr ull í sauðalitunum og gert
með röggvarfeldstækni. Í fjarlægð
sést að myndefnið er Ísland og Dagný
segir listakonuna hafa við gerð þess
meðal annars verið að hugsa um
hversu miklir sauðir við Íslendingar
værum. Það var og.
Sýningin verður opnuð á morgun,
laugardag, og lýkur 24. janúar 2021.
Listamennirnir sem verk eiga á
sýningunni eru Anna Líndal,
Anna Þóra Karlsdóttir, Arna Ótt-
arsdóttir, Auður Vésteinsdóttir,
Ása Ólafsdóttir, Ásgerður Búa-
dóttir, G. Erla – Guðrún Erla
Geirsdóttir, Guðrún Gunnars-
dóttir, Guðrún Marinósdóttir,
Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson,
Hildur Bjarnadóttir, Hildur Há-
konardóttir, Hólmfríður Árna-
dóttir, Hrafnhildur Arnardóttir –
Shoplifter, Hrafnhildur Sigurð-
ardóttir, Ingibjörg Styrgerður
Haraldsdóttir, Ingunn Fjóla Ing-
þórsdóttir, Ívar Valgarðsson,
Jonna – Jónborg Sigurðardóttir,
Kristinn G. Harðarson, Kristín
Gunnlaugsdóttir, Kristín Jóns-
dóttir frá Munkaþverá, Lilý Erla
Adamsdóttir, Loji Höskuldsson,
Nína Gautadóttir, Oddný E.
Magnúsdóttir, Ólöf Einarsdóttir,
Pétur Magnússon, Ragna Ró-
bertsdóttir, Ragnheiður Björk
Þórsdóttir, Rósa Sigrún Jóns-
dóttir, Sigrún Sverrisdóttir, Sig-
urlaug Jóhannesdóttir, Vigdís
Kristjánsdóttir, Þorbjörg Þórð-
ardóttir, Þór Vigfússon og Þór-
dís Alda Sigurðardóttir.
Listþræðir
37 LISTAMENN
Gegnumgangandi þráður
Verk eftir 37 listamenn má sjá á sýningunni Listþræðir í Listasafni Íslands Þráður kemur við sögu
með einum eða öðrum hætti í verkunum Tilefni sýningarinnar aldarafmæli Ásgerðar Búadóttur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sýningarstjórar Harpa og Dagný við verk Hrafnhildar „Shoplifter“ Arnardóttur, „Hægra heilahvelið“.
Sauðalitir „Land sauðanna“ eftir Ragnheiði B. Þórsdótt-
ur er unnið úr ull með svokallaðri röggvarfeldstækni.
Þræðir „Fífur í Galtalæk og útilegudót“, verk frá 2018
eftir Loja Höskuldsson. Blönduð tækni á Hessian-striga.