Morgunblaðið - 11.09.2020, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Magnaður nýr spennuþriller
með Russell Crowe í aðalhlutverki.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Harry Potter
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* The Secret :
Dare to dream
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Sýning á verkum myndlistarkon-
unnar Katrínar Ingu Jónsdóttur
Hjördísardóttur verður opnuð í
Gallery Gudmundsdottir í Berlín í
dag. Galleríið er rekið af Guðnýju
Guðmundsdóttur myndlistarkonu
sem hefur verið búsett í Berlínar-
borg um árabil.
Sýninguna kallar Katrín Inga
„Land self love - Your self is land of
love.“ Í tilkynningu segir að í verk-
unum kanni listakonan ferla ástar,
eignarhalds og tjáningar gegnum
eigin líkamleika, „í leit að jafnvægi
milli Erosar og Thanatosar“. Síðan
Katrín Inga lauk MFA-námi við
School of Visual Arts í New York
hefur hún sýnt víða.
Sjálfsást Hluti eins verks Katrínar Ingu.
Katrín Inga opnar sýningu í Berlín
Einn dáðasti djassbassaleikari síð-
ustu sex áratuga, Bandaríkjamað-
urinn Gary Peacock, er látinn, 85
ára að aldri.
Peacock kom víða við á löngum
og litríkum ferli en er ekki síst
þekktur fyrir tjáningarríkan leik
sinn, sem hann sagði mótaðan af
zen-búddískri iðkun sinni, og þátt-
tökuna í hinu fræga Standards-tríói
píanóleikarans Keiths Jarrett þar
sem Jack DeJohnette hefur leikið á
trommurnar.
Peacock gat sér fyrst orð í frjáls-
um djassi, í sveitum með Paul Bley
og Albert Ayler, en átti eftir að
sýna djassgeggjurum að hann gat
tekist listavel á við öll form tónlist-
arinnar. Á sjöunda áratugnum lék
Peacock til að mynda um tíma með
rómuðu tríói Bills Evans og leysti
einnig af í kvintetti Miles Davis.
Á áttunda áratugnum bjó Pea-
cock um tíma í Japan, hellti sér í
búddísk fræði og lék með þarlend-
um djössurum. Síðustu áratugina
var tríó Jarretts hans aðalsveit.
Ljósmynd/Olivier Bruchez
Dáður Peacock leikur á bassann árið 2003.
Gary Peacock
bassaleikari látinn
Stelpur úr 8. og 9. bekk í grunn-
skólum Reykjavíkur hafa nú í vik-
unni sótt námskeiðið Stelpur filma!
í Norræna húsinu og notið þar
handleiðslu fagfólks í kvikmynda-
geiranum og lært nokkur undir-
stöðuatriði kvikmyndagerðar.
Námskeiðið er nú haldið í þriðja
sinn og unnið í samstarfi Mixtúru
margmiðlunarvers og alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Reykja-
vík, RIFF, auk þess að hljóta styrk
úr Barnamenningarsjóði.
Margir reyndustu handritshöf-
undar og kvikmyndagerðarmenn
landsins leiðbeina stelpunum og er
verkefnið liður í að rétta af kynja-
hallann sem ríkir í kvikmyndagerð
á Íslandi, eins og segir í tilkynn-
ingu. Margir samverkandi þættir
gera það að verkum að stelpur eru
ólíklegri til þess að prófa sig áfram
í greininni og láta rödd sína heyr-
ast, segir þar, og með námskeiðinu
er ætlunin að stelpur fá næði til að
þroska sína hæfileika. Meðal kenn-
ara á námskeiðinu eru Margrét
Örnólfsdóttir handritshöfundur,
Nanna Kristín Magnúsdóttir, leik-
kona og leikstjóri, Valdís Ósk-
arsdóttir klippari, Erla Stefáns-
dóttir kvikmyndagerðarkona,
Baltasar Kormákur, leikstjóri og
framleiðandi, og Margrét Jónasar
framleiðandi.
Ljósmyndari Morgunblaðsins leit
við í Norræna húsinu í gær og
myndaði glaðbeittar stúlkur og
kennara.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Liður í að rétta af kynjahallann
Ronald „Khalis“ Bell, einn stofn-
enda og söngvari Kool & the Gang,
einnar vinsælustu dægursveitar
áttunda áratugarins, er látinn, 68
ára að aldri. Bell samdi mörg vin-
sælustu lög hljómsveitarinnar, eins
og Celebration, Cherish, Jungle
Boogie og Summer Madness.
Rætur stofnenda Kool & the
Gang lágu í djasstónlist en bræð-
ingur þeirra úr djassi, fönki, sálar-
tónlist og R&B sló í gegn á diskó-
tímum áttunda áratugarins. Vin-
sældirnar döluðu um tíma en
sveitin náði lögum aftur á vinsæld-
arlista á níunda áratugnum og þau
voru iðulega notuð í vinsælum kvik-
myndum. Á síðustu árum vann Bell
að ýmsum samstarfsverkefnum en
starfrækti einnig hljómsveitina
Kool Baby Brotha Band.
Söngvari Kool & the Gang allur
Lagahöfundur Ronald „Khalis“
Bell samdi lögin og var söngvarinn.
hún hefur þó áhyggjur af fólki sem
hefur starfað á þessu sviði en margir
hafa misst vinnuna. Yfir 90 prósent
galleríanna lokuðu fyrir gestum á
fyrstu mánuðum faraldursins og þá
hafði það mikil áhrif á sölu að hætt
var við allar stóru listkaupstefnurnar
sem fyrirhugaðar voru víða um lönd.
Smám saman hafa gallerí og kaup-
stefnur styrkt sölu á netinu, með
nokkrum árangri. Í fyrra fóru um 10
prósent viðskipta gallería fram á netinu en um mitt
þetta ár var talan komin upp í 37 prósent.
Í skýrslunni kemur fram að um þriðjungur gallería
hafi dregið úr starfseminni og sagt upp hluta starfs-
manna. Ekki er gefið upp hversu mörg gallerí hafi
hætt rekstri en spáð er að þeim fari fjölgandi.
Samkvæmt nýrri skýrslu um áhrif kór-
ónuveirufaraldursins á sölu samtíma-
myndlistar, hefur markaðurinn dregist
saman um 36 prósent síðan í mars. Í
skýrslunni, sem kynnt var í The New
York Times, segir að þrátt fyrir að
markaðurinn hafi dregist þetta mikið
saman séu efnaðir safnarar enn að
kaupa myndlist.
Skýrslan er byggð á upplýsingum frá
795 galleríum í 60 löndum og gefur því
góða mynd af ástandinu. Áætlað er að í fyrra hafi heims-
markaðurinn með listaverk og forngripi velt 64 millj-
örðum dala og hafi myndlistargallerí höndlað með 58
prósent af þeirri upphæð.
Vitnað er í aðalhöfund skýrslunar sem telur að mark-
aðurinn muni jafna sig, þegar bönd nást á veiruna, en
Myndlistarmarkaðurinn hefur dregist saman um þriðjung
Markaður Á listkaupstefnu.