Morgunblaðið - 17.09.2020, Qupperneq 1
Freyr Bjarnason
Oddur Þórðarson
Sighvatur Bjarnason
Á ögurstundu freistar Icelandair
þess að afla að lágmarki 20 milljarða
króna í nýju hlutafé, til að tryggja
áfamhaldandi rekstur eftir mikil
áföll sökum faraldurs kórónuveir-
unnar.
Hlutafjárútboð félagsins hófst kl.
níu í gærmorgun og klukkustund
síðar steig Bogi Nils Bogason, for-
stjóri Icelandair, í pontu á opnum
kynningarfundi þar sem hann fór yf-
ir stöðu félagsins og hvers fjárfestar
megi vænta um framtíðarhorfur. Fá-
menni var á fundinum en hægt var
að hlýða á kynningar um streymi.
Þrátt fyrir langan aðdraganda
hefur farið hljótt um mögulega þátt-
töku í útboðinu og enginn stór fjár-
festir steig fram fyrir skjöldu í gær
og lýsti yfir áformum um kaup.
Beri fullt traust til starfsmanna
Öll spjót hafa beinst að lífeyris-
sjóðunum, sem í dag eru stærstu
hluthafar félagsins. Samkvæmt
heimildum blaðsins var víða fundað
um málið í gær, en þegar eftir því var
leitað vildu forsvarsmenn sjóðanna
ekki tjá sig um áform sín eða mögu-
lega þátttöku í útboðinu.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, sagðist í samtali við mbl.is í gær
bera fullt traust til starfsmanna Líf-
eyrissjóðs verzlunarmanna til þess
að taka faglegar ákvarðanir um
mögulega aðkomu sjóðsins að útboð-
inu.
Drífa Snædal, forseti Alþýðusam-
bands Íslands, hafnaði því í gær að
sameiginleg viljayfirlýsing sam-
bandsins og Icelandair hefði verið
undirrituð á fundi miðstjórnar ASÍ í
gærmorgun. Heimildir Morgun-
blaðsins herma þó að sáttir hafi
náðst í deilu ASÍ og Icelandair.
Morgunblaðið leitaði eftir við-
brögðum tveggja lífeyrissjóða, Birtu
og LSR, um hvort yfirlýsingin hefði
áhrif á ákvörðun þeirra, en fékk þau
svör að þátttaka í útboðinu væri
skoðuð út frá fjárfestingarkostinum
einum saman. „Stjórnin er búin að
vera að funda út af málinu undanfar-
ið,“ sagði Arnaldur Loftsson, fram-
kvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðs-
ins. Hann vildi ekki greina frá því
hvort sjóðurinn ætti aðkomu að út-
boðinu og sagði sjóðinn hafa þá reglu
að tjá sig ekki um afstöðu til ein-
stakra fjárfestinga fyrir fram.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, sem sit-
ur í stjórn Gildis, staðfesti einnig að
fundarhöld hefðu verið í gangi en
vildi ekki tjá sig frekar um útboðið.
Hvorki náðist í stjórnendur Lífeyr-
issjóðs verzlunarmanna né Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins í gær-
kvöldi.
Mikil óvissa í alþjóðaflugrekstri
Greinendum kemur saman um að
fjárfesting í Icelandair sé áhættu-
söm þar sem mikil óvissa ríkir í al-
þjóðlegum flugrekstri, en benda á að
verð bréfanna sé hagstætt og ávöxt-
unin gæti reynst góð ef allt fer á
besta veg.
Gangi þær forsendur eftir sem
Icelandair kynnti í gær gæti vænt
ársávöxtun út árið 2024 verið á bilinu
17-50%. Íslandsbanki og Landsbanki
annast umsýslu útboðsins og skrán-
ingu, og verða niðurstöður gerðar
opinberar á morgun.
Ögurstund hjá Icelandair
Öll spjót beinast að stærstu hluthöfum félagsins, lífeyrissjóðunum Sáttir náðst
í deilu ASÍ og flugfélagsins Áhættusöm fjárfesting Niðurstöður á morgun
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kynning Tíminn tifar hjá Icelandair þessa dagana og forstjórinn, Bogi Nils Bogason, fylgdist með klukkunni á fundi með fjárfestum sem haldinn var í gær.
HLUTAFJÁRÚTBOÐI
LÝKUR Í DAG
20 milljarðar
hluta eru í boði, í
formi nýrra hlutabréfa
í Icelandair Group.
Ein króna
er á hvern hlut
samkvæmt auglýstu
útboðsgengi.
F I M M T U D A G U R 1 7. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 219. tölublað 108. árgangur
BORGARA HEIMA
BÚÐU TIL ÞINN
NÝTT
Í NETTÓ!
FJÖLBREYTT OG GIRNILEG HELGARTILBOÐ
Úrbeinaður
grísabógur
Í kryddsmjöri
1.150KR/KG
ÁÐUR: 2.299 KR/KG
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 17.—20. september
-50%
-40%
-20%
Ketópylsur
Með cheddar & chipotle
947KR/PK
ÁÐUR: 1.579 KR/PK
MIKIL VEISLA
BÍÐUR Í ÞJÓÐ-
LEIKHÚSINU
TEIKNAÐI UPP
1.500 KM
HESTAFERÐ
UNNIÐ ALLA
SÍNA LEIKI
TIL ÞESSA
TEKUR 50 DAGA 14 LEIKA VIÐ LETTA 62MAGNÚS GEIR 64
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir að
misræmi sé í tölum Evrópusam-
bandsins um útflutning á kjöti til Ís-
lands og innflutningstölum Hagstofu
Íslands. Tölur ESB séu hærri.
Samninganefnd bænda lýsti því yfir
á síðasta fundi samninganefnda
bænda og ríkisins um endurskoðun
rammasamnings um starfsskilyrði
landbúnaðarins að ekki yrði frekar
fundað fyrr en þetta misræmi hefði
verið skýrt. Fjármálaráðherra hefði
lofað að láta gera það.
Hann segir að skýrt sé í milliríkja-
samningum hvað megi flytja til
landsins á lægri tollum eða án tolla.
„Hver á að fylgjast með þessum
kvótum og hvað flutt er inn sam-
kvæmt þeim? Eða mega menn flytja
inn það sem þeim sýnist? Ef það er
raunin þurfum við enga milliríkja-
samninga,“ segir Gunnar. »28-29
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gagnrýni Gunnar Þorgeirsson, for-
maður Bændasamtaka Íslands.
Misræmi í
tölum um
innflutning
Bændur fresta
viðræðum við ríkið
Þrettán smit kórónuveiru greind-
ust á þriðjudag og var aðeins einn
þeirra sem greindist í sóttkví. Eldri
einstaklingur var lagður inn á
sjúkrahús en þó ekki á gjörgæslu.
Sóttvarnalæknir segir alltaf von-
brigði þegar smitum fjölgar og að á
næstu dögum ráðist hvort hert
verði á aðgerðum. Hann minnir á
mikilvægi einstaklingsbundinna
sóttvarna og segir það skipta öllu
máli að fólk sem finni fyrir ein-
kennum fari ekki til vinnu eða á
önnur mannamót. Kári Stefánsson,
forstjóri ÍE, er uggandi og segir Ís-
lendinga þurfa að vera undirbúna
undir aðra bylgju veirunnar. »2
Bakslag í baráttunni
við kórónuveiruna