Morgunblaðið - 17.09.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Arnhildur Hálfdánardóttir hlaut fjölmiðlaverðlaun um-
hverfis- og auðlindaráðuneytisins og Kári Kristjánsson
náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við
hátíðlega athöfn í gær, á Degi íslenskrar náttúru. Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlind-
aráðherra, afhenti verðlaunin en dómnefnd skipuð fag-
fólki úr fjölmiðlum valdi handhafa fjölmiðla-
verðlaunanna.
Var það niðurstaða dómnefndar að veita Arnhildi
Hálfdánardóttur, dagskrárgerðarkonu á RÚV, verð-
launin fyrir þáttaröðina Loftslagsþerapíuna sem var á
dagskrá Rásar 1 síðastliðinn vetur.
Í rökstuðningi dómnefndar segir að með þáttunum
hafi Arnhildur skoðað ýmsa snertifleti loftslagsbreyt-
inga við hið mannlega, meðal annars pólitík og siðferði.
Í umsögn ráðherra vegna náttúruverndarviðurkenn-
ingar Sigríðar í Brattholti kemur m.a. fram að Kári,
sem stundum hafi verið talað um sem landvörð Íslands,
hafi sinnt náttúruvernd af miklum áhuga og eldmóði
undanfarna áratugi.
Morgunblaðið/Eggert
Arnhildur og Kári verðlaunuð
Á þriðjudag greindust 13 ný kórón-
uveirusmit hér á landi og hafa ekki
greinst fleiri smit síðan 6. ágúst.
Einn eldri einstaklingur var lagður
inn á sjúkrahús á þriðjudag en hann
er ekki á gjörgæslu. Alls eru nú
fimm smit komin upp hjá starfs-
mönnum Háskóla Íslands og þar að
auki eru tveir nemendur Háskólans í
Reykjavík smitaðir. Íslensk erfða-
greining hefur boðist til þess að
skima alla starfsmenn og nemendur
skólanna tveggja þeim að kostnaðar-
lausu og er sú vinna nú þegar hafin.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sagði í samtali við mbl.is í
gær að það muni ráðast á næstu dög-
um hvort farið verði í frekari losanir
á samkomutakmörkunum. Smit-
rakning vegna smitanna á þriðjudag
muni vera aðeins flóknari viðureign-
ar í ljósi þess hve stór hluti þeirra
var ekki í sóttkví og hversu lítil
tengsl voru á milli einstaklinganna.
Þórólfur segir það skipta höfuðmáli
að hver og einn gæti að eigin sótt-
vörnum og að fólk sé ekki að fara á
mannamót með einkenni. Hann segir
að í einhverjum tilfellum séu ein-
staklingar ekki að halda sig heima
þrátt fyrir að sýna einkenni.
„Einstaklingar sem eru veikir og
eru að fara í vinnuna og eru að fara á
fleiri staði,“ segir Þórólfur og bætir
við að þannig séu ansi margir sem
geta verið berskjaldaðir fyrir smiti,
sem geri smitrakningarteymi erfið-
ara fyrir.
Nýi hnappurinn reynst vel
Víðir Reynisson, yfirlögreglu-
þjónn almannavarnadeildar ríkislög-
reglustjóra, segir að mögulegt sé að
fólk slaki aðeins á sínum persónu-
legu smitvörnum þegar sóttvarnayf-
irvöld slaka á samkomutakmörkun-
um. Það geti útskýrt þann fjölda
smita sem greindist á þriðjudag.
„Við höfum séð það þegar við er-
um að slaka á reglunum og rýmka
aðeins þá hefur fólk örlítið slakað
sínum persónulegu reglum og þetta
er kannski hluti af því, án þess að það
sé hægt að fulllyrða endilega um
það.“
Þeir sem vilja tilkynna um brot á
sóttvarnalögum geta nú gert það
með því að ýta á þar til gerðan hnapp
á upplýsingasíðunni covid.is. Víðir
segir að gott hefði verið að taka
þennan hnapp í gagnið fyrr. Áður
var tekið við tilkynningum um brot í
gegnum símtöl og skilaboð á sam-
félagsmiðum en nú hafi þessi mál
verið sett í fastari skorður. Hann
segir engan vilja vera að skammast í
neinum en í tilefni þess fjölda sem
greindist á þriðjudag sé mikilvægt
að minna fólk á að sinna einstak-
lingsbundnum sóttvörnum; passa
upp á eins metra regluna, hand-
þvottinn og sprittið.
Býst við annarri bylgju
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, var ugg-
andi yfir stöðunni og sagði í viðtali
við mbl.is í gær að Íslendingar ættu
að búa sig undir aðra bylgju veir-
unnar hér á landi í ljósi nýrra smita.
„Það er ógnvekjandi. Þetta fólk er
úti um allt í samfélaginu og mér
finnst líklegt að smit sé það líka. Ég
held að við ættum að búa okkur und-
ir að það gæti komið önnur bylgja
eftir svona eina til tvær vikur. Þótt
ég sé ekki að leggja það á okkur að
það komi eða spá því að það gerist þá
finnst mér að við verðum að búa okk-
ur undir það.“
Flest smit síðan 6. ágúst
Þrettán smit á þriðjudag og einn á sjúkrahúsi Kári Stefánsson er uggandi og
varar við annarri bylgju Ítreka mikilvægi einstaklingsbundinna sóttvarna
Innanlands
Landamæraskimun:
Virk smit Með mótefni
Beðið eftir mótefnamælingu
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna 15.6.-15.9.
437 einstaklingar eru í sóttkví
2.189 staðfest smit
75 eru með virkt smit
Heimild: covid.is
13,6 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
238.738 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
141.396 sýni
20
15
10
5
0
Nýgengi
innanlands:
júní júlí ágúst september
Óstaðsett 0 10
Austurland 0 0
Höfuðborgarsvæði 52 233
Suðurnes 6 40
Norðurland vestra 0 1
Norðurland eystra 2 5
Suðurland 11 130
Vestfirðir 4 14
Vesturland 0 4
Einangrun
(virk smit)
Sóttkví
Einangrun og
sóttkví eftir
landshlutum
1 einstaklingur er á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu
Morgunblaðið/Snorri Másson
Bið Fleiri tugir biðu í röð eftir því
að komast í skimun ÍE í gær.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, segir í bréfi til
flokksystkina sinna að hún hyggist
gefa kost á sér til
embættis varafor-
manns Samfylk-
ingarinnar á
næsta landsþingi
flokksins sem
haldið verður 6. til
7. nóvember næst-
komandi. Helga
segir að hún finni
fyrir síauknum
áhuga á Samfylk-
ingunni og að nýtt
fólk á öllum aldri sé að ganga til liðs
við flokkinn. Ný forysta hafi verið kos-
in innan Ungra jafnaðarmanna en eins
og Morgunblaðið hefur greint frá varð
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar,
Ragna Sigurðardóttir, þar hlutskörp-
ust.
Helga segir í bréfi sínu að búast
megi við því að þó nokkur skjálfti verði
við ríkisstjórnarborðið í aðdraganda
þingkosninganna sem fara fram
haustið 2021. Komandi vetur verði
strembinn og að tekist verði á um stór
mál í landspólitíkinni. Þingflokkur
Samfylkingarinnar muni leggja höf-
uðáherslu á jöfnuð, mannréttindi, vel-
ferðar- og heilbrigðiskerfið og fjöl-
breytta atvinnustarfsemi um land allt í
baráttunni við kreppuna í kjölfar kór-
ónuveirufaraldursins.
Helga segir einnig að Samfylkingin
muni vera skýr valkostur fyrir þá sem
vilji flokk sem hugsi út fyrir rammann
og leiti nútímalausna í stað gamalla og
endurunninna lausna.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borg-
arfulltrúi í Reykjavík, hefur gegnt
varaformennsku í flokknum und-
anfarin ár.
Vill gegna
varafor-
mennsku
Segir komandi vet-
ur verða strembinn
Helga Vala
Helgadóttir