Morgunblaðið - 17.09.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér finnst þetta alvarlegt mál en
það er því miður lýsandi fyrir þá
óreiðu sem er í skipulagsmálum í
borginni. Það er enginn fókus á það
sem fólkið og markaðurinn kallar
eftir,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR.
Tillaga Sjálfstæðisflokksins um
skipulagningu hagkvæms húsnæðis
fyrir almennan markað á Keldum og
í Örfirisey var felld á fundi borgar-
stjórnar á þriðjudag. Eyþór Arnalds,
oddviti flokksins, benti á að samið
hafi verið um að skipuleggja íbúða-
byggð á Keldnalandinu í fyrra en
enn hafi ekkert gerst. Ekki sé staðið
við skuldbindingar sem felist í sam-
göngusáttmálanum né lífskjara-
samningnum. Vísar Eyþór þar til
plaggs um stuðning stjórnvalda við
lífskjarasamninga þar sem segir:
„Ríkið og Reykjavíkurborg komist
að samkomulagi um að hefja skipu-
lagningu Keldnalands, m.a. með
markmiðum um félagslega blöndun,
og semji í framhaldinu um eignar-
hald og framkvæmdir.“
Kom fram í umræðum um málið
að stefnt sé að uppbyggingu á Keld-
um árið 2030 og því vakna spurn-
ingar hver tengingin við lífskjara-
samninginn er, en hann rennur út
árið 2022.
Ragnar Þór segir í samtali við
Morgunblaðið að það sé dapurleg
niðurstaða að borgaryfirvöld skuli
ekki leggja meira af mörkum og
hefði viljað sjá tillöguna samþykkta.
„Þetta eru ofboðslega dapurleg
vinnubrögð af hálfu borgarinnar og
ábyrgðarleysi að taka ekki þátt í
þeirri uppbyggingu sem stefnt var
að með gerð lífskjarasamningsins.
Markaðurinn kallar klárlega eftir
hagkvæmum
íbúðum. Fólk sem
er jaðarsett hefur
ekki efni á að
kaupa lúxusíbúðir
á þeim miðbæjar-
svæðum sem
byggð hafa verið
upp.“
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir,
formaður skipu-
lags- og sam-
gönguráðs, segir að verið sé að vinna
stóra breytingu á aðalskipulagi þar
sem tekið er tillit til framtíðarnýt-
ingar Keldnalandsins. Mikil vinna sé
fram undan við greiningar á svæðinu
en forsenda fyrir uppbyggingu þar
séu góðar almenningssamgöngur.
Því sé horft til 2030 í tengslum við
uppbyggingu borgarlínu. „Það er
hins vegar ekki loku fyrir það skotið
ef það er vilji til að fara fyrr í upp-
byggingu á svæðinu að flýta þessum
legg borgarlínu. Boltinn er hjá rík-
isstjórninni hvað þetta varðar en við
erum alveg til í að vinna með þeim ef
það er vilji til að breyta þessu,“ segir
Sigurborg.
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra bendir á að um 40 at-
riði hafi verið á lista yfir stuðning
stjórnvalda við lífskjarasamninginn
og sum þeirra taki sinn tíma. Mörg
atriði fari fyrir þingið á vetri kom-
anda. „Hluti af þessum yfirlýsingum
um húsnæðis- og samgöngumál lutu
að því að tryggt yrði að byggðar
yrðu upp almenningssamgöngur og
mögulegt væri að byggja ódýrt hús-
næði. Það horfir auðvitað ekki til
eins eða tveggja ára heldur allrar
framtíðar,“ segir ráðherra.
Hvað Keldnalandið sjálft varðar
segir Sigurður Ingi að unnið sé að
því að stofna félag sem meðal annars
taki við Keldnalandinu og annist þar
þróun til að hámarka verðmæti.
„Það er öllum ljóst að það mun
taka tíma, hversu langan veit ég ekki
en í framkvæmdaáætluninni er
borgarlínutengingin þar í öðrum
áfanga eftir 2028. Ef það er hægt að
fara fyrr af stað og hraðar er það já-
kvætt en augljóslega sá ekki nokkur
maður fram á að það væri búið að
byggja Keldnalandið innan þriggja
ára gildistíma lífskjarasamnings-
ins.“
Segir vinnubrögðin dapurleg
Formaður VR ósáttur við að tillaga um uppbyggingu Keldnalandsins hafi verið
felld í borgarstjórn og vill uppbyggingu Boltinn hjá ríkinu, segir Sigurborg Ósk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Keldur Verðmætt byggingarland í borginni sem nýtt verður á næstu árum.
Sigurborg Ósk
Haraldsdóttir
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Ragnar Þór
Ingólfsson
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hefur
skipað nýja siðanefnd Ríkisútvarps-
ins (Rúv.). Siðanefnd hefur ekki ver-
ið skipuð í Efstaleiti síðan fyrri
nefnd lét af störfum í fyrra, en það
kom í ljós þegar Samherji kærði á
dögunum ellefu starfsmenn Rúv.
fyrir brot á siðareglum, sem lúta að
þátttöku þeirra í þjóðmálaumræðu á
félagsmiðlum.
Samkvæmt traustum heimildum
Morgunblaðsins verður formaður
nýju siðanefndarinnar Gunnar Þór
Pétursson, lagaprófessor og deildar-
stjóri hjá ESA, en hann er skipaður
af útvarpsstjóra án tilnefningar.
Starfsmannasamtök Ríkisútvarps-
ins tilnefndu Sigrúnu Stefánsdóttur,
fyrrverandi fréttamann hjá Rúv., en
Siðfræðistofnun tilnefndi Pál Rafnar
Þorsteinsson, sem er starfsmaður
hennar. Hann er jafnframt fyrrver-
andi fréttamaður hjá Rúv. og var á
sínum tíma aðstoðarmaður Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdóttur, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra fyr-
ir Viðreisn.
Óvíst er hvernig Samherji bregst
við skipun nefndarinnar, en lögmað-
ur félagsins sendi í fyrri viku fyr-
irspurn til útvarpsstjóra og gerði at-
hugasemdir við málsmeðferð
Ríkisútvarpsins, þar sem m.a. var að
því fundið að innanbúðarfólk í Efsta-
leiti réði meirihluta nefndarinnar.
Nú er ljóst að utanhússmaðurinn í
siðanefndinni er einnig með tengsl
við fréttastofuna, þar sem hinir
kærðu starfa.
Samherja þóttu svör útvarps-
stjóra ekki fullnægjandi, svo spurn-
ingar voru ítrekaðar í öðru bréfi. Þar
var aftur spurt hvert hafi verið til-
efni setningar siðareglnanna 2016 og
endurskoðunar þeirra aðeins þrem-
ur árum síðar. Jafnframt var spurt
hvernig endurskoðuninni væri hátt-
að og hvort hún varðaði þær greinar,
sem kæra Samherja nú tekur til.
Ný siðanefnd Ríkis-
útvarpsins skipuð
Tveir fyrrverandi
fréttamenn í siðanefnd
um kæru Samherja
Morgunblaðið/Eggert
Efstaleiti Engin siðanefnd var
starfandi þegar Samherji kærði.
Egypska fjölskyldan sem fyrirhugað
var að vísa úr landi í gærmorgun var
ekki til staðar í húsnæði sínu þegar
til brottvísunar átti að koma. Því gat
brottvísun ekki farið fram að sögn
stoðdeildar ríkislögreglustjóra.
Yfirvöld vita ekki enn hvar fjöl-
skyldan er niðurkomin og ekki hefur
enn þá verið lýst eftir henni. Mál
fjölskyldunnar komst í hámæli ný-
verið en hún hafði verið hér á landi í
15 mánuði þegar úrskurður kæru-
nefndar útlendingamála um brott-
vísun lá fyrir.
Síðan hafa liðið nokkrir mánuðir
og hafa stjórnvöld verið gagnrýnd
fyrir að enn skuli fyrirhugað að vísa
fjölskyldunni úr landi þrátt fyrir að
hún hafi nú dvalið hér í um tvö ár. Þá
hefur komið fram í fjölmiðlum að
börnunum innan fjölskyldunnar líði
vel hér á landi og að þau hafi jafnvel
lært íslensku.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra segir að reglum
verði ekki breytt til þess að bjarga
fjölskyldunni frá brottvísun.
Ljósmynd/Sema Erla Serdar
Enn á landinu Egypska fjölskyldan
sem senda átti úr landi í gær.
Fjölskyld-
an enn hér
á landi
Þið finnið okkur á Facebook Kaia.homedecor og á Instagram.
Einnig er hægt að hafa samband við okkur í síma 822 7771 eða 822 7772.
Fallegt úrval af
vínylgólfmottum
Oleanna Frumsýningá morgunborgarleikhus.is
Tryggðu þér miða