Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 Forstjóri BBC lét til sín taka ádögunum þegar hann lagði línurnar um að starfsmenn stofn- unarinnar mættu ekki vera hlut- drægir í umfjöllun sinni og ætti það einnig við um framgöngu þeirra á samfélagsmiðlum. Þetta vakti nokkra athygli enda höfðu starfsmennirnir ítrekað gert sig gildandi í at- hugasemdum um hin ýmsu mál og drógu ekki alltaf af sér.    BBC er ekki eini ríkisfjölmiðill-inn sem glímir við þennan vanda. Ríkisútvarpið býr einnig að fjölda starfsmanna sem gerst hafa æði virkir í athugasemdum hér og þar á netinu og láta fólk og fyrir- tæki finna fyrir óánægju sinni án nokkurs tillits til lagaákvæða um hlutleysi stofnunarinnar.    Nú hefur verið greint frá þvíað gamli markaskorarinn Gary Lineker, sem fjallar um íþróttir fyrir BBC, hafi endurnýj- að samning sinn þar um.    Fótboltakappinn er einn þeirrasem nefndir voru sérstaklega til sögunnar þegar forstjórinn lýsti stefnu stofnunarinnar enda hefur hann ekki þótt draga af sér í umræðum um eitt og annað á netinu.    Í nýja samningnum er kveðið áum að Lineker skuli gæta þess að vera óhlutdrægur og segir BBC að „engar undantekningar“ séu frá þeirri reglu.    Nú er spurning hvort Rúv.muni fara eftir eigin reglum og lagaákvæðum. Það er alls óvíst. Gary Lineker Gary þarf að gæta sín. Hvað með Rúv? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Á áttunda hundrað flugleggir voru bókaðir með afsláttarkóða Loftbrúar fyrstu viku verkefnisins, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. „Samtals hefur það sparað íbúum landsbyggðarinnar tæpar fimm milljónir króna,“ segir þar. Loftbrú veitir 40% afslátt til þeirra sem eiga lögheimili á lands- byggðinni fjarri höfuðborgarsvæð- inu og á eyjum án vegasambands. Undir Loftbrú falla Vestfirðir, hluti af Norðurlandi vestra, Norðurland eystra, Austurland, Hornafjörður og Vestmannaeyjar. Svæðið er afmark- að með tilliti til póstnúmera. Alls ná afsláttarkjör Loftbrúar til rúmlega 60 þúsund íbúa á þessum svæðum. Markmiðið með verkefninu er að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti. Fyrstu vikuna bókuðu rúmlega 700 hjá manns fluglegg hjá Air Ice- land Connect og um 30 hjá Erni. Meðalverð á fluglegg með afslætt- inum er um 16.600 krónur. Algengustu flugleiðirnar sem bók- aðar hafa verið eru frá Akureyri til Reykjavíkur og frá Egilsstöðum til Reykjavíkur. Almenningur getur skoðað réttindi sín á Ísland.is. sisi@mbl.is Margir hafa nýtt sér Loftbrúna  Íbúar á landsbyggðinni spöruðu sér tæpar fimm milljónir fyrstu vikuna Morgunblaðið/Árni Sæberg Loftbrúin Langflestir hafa bókað flug með Air Iceland Connect. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð- ardóttir, hefur staðfest ráðningu nýrra sóknarpresta á Húsavík og Ólafsfirði. Umsóknarfrestur um embætti sóknarprests í Húsavíkurpresta- kalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjar- prófastsdæmi rann út á miðnætti þann 6. júlí sl. Þrjár sóttu um. Kjörnefnd kaus séra Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur og hefur bisk- up staðfest ráðningu hennar. Sr. Sólveig Halla er fædd 14. des- ember 1977 og ólst upp í Lönguhlíð í Hörgárdal, dóttir Kristjáns Her- mannssonar og Jórunnar Sigtryggs- dóttur, sem er látin. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1997 og mag.theol.-prófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands 2004. Hún hefur verið prestur á Ak- ureyri og í Sømna í Noregi og bóndi í Þingeyjarsýslu. Var settur sókn- arprestur í Húsavíkurprestakalli við afleysingar frá 1. september 2019. Eiginmaður Sólveigar Höllu er Sigurður Páll Tryggvason og eiga þau tvö börn. Að auki á hún þrjú uppkomin stjúpbörn. Umsóknarfrestur um embætti sóknarprests í Ólafsfjarðarpresta- kalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjar- prófastsdæmi, rann út 7. júlí sl. Tvær sóttu um. Kjörnefnd kaus Guðrúnu Eggertsdóttur guðfræðing og hefur biskup staðfest ráðningu hennar. Guðrún Eggertsdóttir er fædd 12. janúar 1964 og ólst upp á Jörfa á Kjalarnesi, dóttir Eggerts Ólafs- sonar og Þóru Sigrúnar Gunnars- dóttur, sem er látin. Hún lauk kenn- araprófi frá Emerson College 2004, stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti vorið 2013 og guð- fræðiprófi frá Háskóla Íslands 2020. Guðrún hefur gegnt ýmsum störfum í gegnum tíðina, m.a. sem versl- unarmaður og Waldorf-kennari. Eiginmaður hennar er Jón Viðar Óskarsson, löggiltur rafverktaki. Eiga þau þrjú uppkomin börn auk sex barnabarna. sisi@mbl.is Tvær konur ráðnar til starfa í kirkjunni  Verða prestar á Húsavík og Ólafsfirði Sólveig Halla Kristjánsdóttir Guðrún Eggertsdóttir Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga 10–17 Laugardaga 11–15 2 0 0 0 — 2 0 2 0 Eldhúsinnréttingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.