Morgunblaðið - 17.09.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
Sundaborg 7-9 | 104Reykjavík | Sími 511 4747 | www.northwear.is
Starfsmannafatnaður
Einkennisfatnaður
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fimm framboðslistar eru í boði við
kosningar til sveitarstjórnar hins
sameiginlega sveitarfélags á Aust-
urlandi. Kosningarnar fara fram á
laugardag. Ný sveitarstjórn tekur
við eftir kosningar og starfar aðeins
fram að næstu sveitarstjórnarkosn-
ingum, eða í rúmlega eitt og hálft
ár.
Sameining Fljótsdalshéraðs,
Djúpavogshrepps, Seyðisfjarðar-
kaupstaðar og Borgarfjarðarhrepps
á sér langan aðdraganda. Eftir mik-
inn undirbúning voru tillögur sam-
einingarnefndar lagðar fyrir íbúana
í atkvæðagreiðslu sem fram fór 26.
október á síðasta ári og var samein-
ing samþykkt í öllum fjórum sveit-
arfélögunum. Boðað var til kosn-
inga til nýrrar sveitarstjórnar 18.
apríl en þeim var síðan aflýst á síð-
ustu stundu vegna samkomutak-
markana og óvissu í kórónuveiru-
faraldri. Nú á að reyna aftur.
Reynt fólk í framboði
Ekki er að sjá að önnur bylgja
faraldursins hafi teljandi áhrif á
framkvæmd kosninganna. Fram-
boðin geta þó ekki haldið opna fundi
en frambjóðendur heimsækja fyrir-
tæki og fara mikinn á samfélags-
miðlum. Þá hafa íbúar verið beðnir
að nýta sér sem mest utankjörfund-
aratkvæðagreiðslu til þess að létta
álaginu af kjörstöðunum á kjördag.
Kosnir verða ellefu fulltrúar í
sveitarstjórn. Sem fyrr segir er fólk
af fimm framboðslistum í boði, lista
Framsóknarflokks, Sjálfstæðis-
flokks, Austurlista, Miðflokks og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Á öllum listunum er
reynt fólk úr fráfarandi sveitar-
stjórnum í efsta sæti eða einhverju
af efstu sætum. Þannig er Stefán
Bogi Sveinsson, forseti bæjar-
stjórnar á Fljótsdalshéraði, efsti
maður á lista Framsóknarflokksins,
Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á
Djúpavogi, oddviti sjálfstæðis-
manna og Hildur Þórisdóttir, for-
seti bæjarstjórnar á Seyðisfirði, er
oddviti Austurlistans.
Erfitt er að átta sig á stöðu fram-
boðanna innbyrðis. Skoðanakönnun
sem héraðsmiðlarnir Austurglugg-
inn og Austurfrétt gerðu í lok ágúst
bendir til að kosningarnar geti orð-
ið spennandi. Sjálfstæðisflokkurinn
hafði forystuna, kom út með 27%
fylgi og þrjá menn kjörna, Austur-
listinn með 23% og þrjá, Miðflokk-
urinn og Framsókn með 20 og 16%
og tvo fulltrúa hvor og VG með 15%
og einn mann kjörinn. Verði þetta
niðurstaðan er einn möguleiki á
tveggja flokka meirihluta, það er að
Sjálfstæðisflokkur og Austurlisti
fari í eina sæng.
Deiliskipulag afgreitt heima
Ein af helstu nýjungunum við
sameininguna á Austurlandi er
stofnun svokallaðra heimastjórna
sem verða fjórar, ein í hverju gömlu
sveitarfélaganna. Þær fá, sam-
kvæmt undanþáguheimild í sveit-
arstjórnarlögum, heimildir til að
taka endanlegar ákvarðanir um mál
nærsamfélagsins, svo sem um deili-
skipulag, framkvæmaleyfi, mál
tengd fjallskilum og að veita um-
sagnir um ýmis leyfi. Björn Ingi-
marsson, bæjarstjóri Fljótsdalshér-
aðs, segir að menn telji að
stjórnsýslan verði skilvirkari með
því að heimamenn á hverjum stað
taki ákvarðanir sem snerta nær-
samfélagið.
Kosið verður í heimastjórnirnar í
kosningunum á laugardag. Kosnir
verða tveir fulltrúar í hverja og síð-
an kýs ný sveitarstjórn þriðja
fulltrúann. Allir íbúar sveitarfélag-
anna eru í kjöri en fólki sem hefur
áhuga á að taka þátt í þessu starfi
er boðið að kynna sig á heimasíðu
sameiningarinnar. Þegar hafa
nokkrir gert það.
Samgöngumálin mikilvæg
Björn telur að stærsta verkefni
nýrrar sveitarstjórnar verði að
raungera þær hugmyndir og til-
lögur að stjórnkerfi sem undirbún-
ingsstjórn skili af sér. Einnig að
láta þetta nýja sveitarfélag starfa
sem eina heild.
Ekki virðist mikið svigrúm fyrir
önnur stefnumál eða skrautfjaðrir
enda stutt til næstu kosninga. Þó
virðast samgöngumálin og atvinnu-
málin vera efst á baugi hjá flestum
framboðunum. Sérstaklega sam-
göngumálin enda eru þau grund-
völlur þess að sveitarfélagið geti
talist ein félagsleg heild. Til stendur
að gera göng á milli Héraðs og
Seyðisfjarðar og með því skapast
möguleikar á að leiða heitt og kalt
vatn til Seyðisfjarðar. Endurbætur
á veginum til Borgarfjarðar eystri
eru vel á veg komnar en þarf að
klára. Þá er stórt mál að tengja
syðsta hluta sveitarfélagsins,
Djúpavogshrepp, við miðjuna,
Fljótsdalshérað. Það gerist með
nýjum heilsársvegi um fjallveginn
Öxi. Undirbúningur þeirrar fram-
kvæmdar hefur eitthvað þokast
áfram.
Þá verður eitt af fyrstu verk-
efnum sveitarstjórnar að ákveða
formlega nafn á sveitarfélaginu. Í
ráðgefandi atkvæðagreiðslu sem
efnt var til fékk nafnið Múlaþing
flest atkvæði.
Útlit fyrir spennandi kosningar
Kosið til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi á laugardag Einnig kosið til
héraðsstjórna sem fara með völd í málefnum nærsamfélagsins Samgöngur helsta baráttumálið
Kortagrunnur: Loftmyndir ehf.
1
Sveitarfélag Íbúafjöldi
Borgarfjarðarhreppur 122
Seyðisfjarðarkaupstaður 680
Djúpavogshreppur 501
Fljótsdalshérað 3.619
Alls 4.922
Egilsstaðir
Borgarfjörður
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Íbúafjöldi í Múlaþingi
FL
JÓ
TS
DA
LS
H
RE
PP
UR
FJARÐA-
BYGGÐ
DJÚPAVOGS-
HREPPUR
BORGARFJARÐAR-
HREPPUR
FLJÓTSDALS-
HÉRAÐ
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Byggð Fjórir þéttbýlisstaðir eru í
Múlaþingi, Egilsstaðir stærstir.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vitinn á Gjögurtá, austan Eyja-
fjarðar, virðist hafa staðið af sér
miklar jarðskjálftahrinur sem geng-
ið hafa yfir svæðið undanfarnar vik-
ur og mánuði.
Starfsmenn Vegagerðarinnar,
sem eru í árlegri viðhaldsferð um
landið með Landhelgisgæslunni á
varðskipinu Þór, komu í Gjögur-
táarvita í gærmorgun. Að þeirra
sögn er allt í stakasta lagi enn þá þó
að vissulega hallist vitinn eins og
undanfarin ár en hann hafi þó lítið
hreyfst í skjálftunum undanfarið.
„Sinnt var hefðbundnu viðhaldi á vit-
anum og vonandi stendur hann
áfram af sér komandi jarðhrær-
ingar,“ segir í frétt á heimasíðu
Vegagerðarinnar
Í sumar var sögð af því frétt að
óttast væri að vitinn hefði orðið fyrir
skemmdum í jarðskálftahrinum en
mikil skriðuföll urðu í fjallshlíðinni
ofan vitans í júní. Landhelgisgæslan
flaug þá yfir vitann til að skoða að-
stæður úr lofti og einnig fékkst stað-
festing frá bátum að vitinn lýsti enn.
Gjögurtáarviti er fjögurra metra
hár, byggður árið 1970, og stendur
tæpt á mjóum klettarana. Hann hall-
ast lítils háttar á stallinum þar sem
hann stendur og hefur gert undan-
farin ár.
Gjögur, Gjögrar eða Gjögurfjall
er ysta fjall á Flateyjarskaga, 721
metri á hæð, segir á alfræðiritinu
Wikipediu. Fram úr fjallinu gengur
lítið nes sem kallast Gjögurtá og
markar það mynni Eyjafjarðar aust-
an megin. Austan fjallsins er Kefla-
vík, en sunnan þess eru Látrar.
Gjögurfjall er einnig nyrsta fjall
Látrafjalla, en svo nefnist fjallgarð-
urinn upp af Látraströnd allt inn að
Kaldbak fyrir ofan Grenivík.
Ljósmynd/Guðmundur Jón Björgvinsson
Gjögur Starfsmenn Vegagerðarinnar sinntu almennu viðhaldi á vitanum.
Allt í himnalagi í
vitanum á Gjögurtá
Hefur staðið af sér jarðskjálftahrinur