Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég er alveg himinlifandi. Það var æðislegt að fá þau tíðindi að hafa unnið þessa keppni,“ segir Kristín Marksdóttir sem bar sigur úr býtum í samkeppni um myndskreytingu á dósir hins áfengislausa Bríó sem nú er fáanlegur í verslunum. Borg brugghús auglýsti í sumar eftir tillögum að myndskreytingu á Bríó. Tíu ár eru liðin síðan bjórinn vinsæli kom á markað og af því til- efni var gerð áfengislaus útgáfa af honum sem vakið hefur talsverða at- hygli síðustu vikurnar. Halda marg- ir því fram að þarna sé kominn ein- hver besti áfengislausi bjór sem fengist hefur hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá Borg brugghúsi hafa þegar selst yfir 30 þúsund dós- ir, sem hafi verið langt yfir vænt- ingum. Áfengislaus Bríó sé þegar orðinn einn vinsælasti bjór brugg- hússins. Mikill áhugi reyndist á samkeppni um útlit dósanna. Alls bárust rúm- lega tvö hundruð tillögur að mynd- skreytingum og var meirihluti þeirra frá konum, eða um 60%. Hug- myndir kvennanna féllu líka betur í kramið hjá dómnefnd brugghússins og svo fór að tillögurnar í fimm efstu sætunum voru frá konum. Sigurtillaga Kristínar er uppfærð útgáfa af myndinni sem prýðir hefð- bundnu Bríó-dósirnar. „Ég endur- teiknaði manninn á þeirri dós og gerði það með smá tvisti; setti á hann klikkuð augu og partíhatt eins og hann væri að fagna tíu ára afmæl- inu,“ segir Kristín. Kristín er 23 ára og lauk námi í myndskreytingu við Leeds Art Uni- versity í vor. Hún sá keppnina aug- lýsta í Morgunblaðinu og fannst til- valið að taka þátt í henni. Það skilaði sínu og hlýtur Kristín 407.413 krón- ur að launum fyrir sigurinn en það jafngildir listamannalaunum í einn mánuð. Ljósmynd/Hari Sigurvegari Kristín Marksdóttir fékk sér einn Bríó eftir að hafa unnið samkeppni um hönnun nýrra dósa. Fangaði áfengislausa Bríó-andann best allra  Kristín sigraði í hönnunarkeppni  Konur í efstu sætum Bríó Áfengislaus en í góðu stuði. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ? BROTINN SKJÁR? Sanngjörn verð og hröð þjónusta Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Veðurstofan, í samráði við almanna- varnir, hvetur fólk á Norðurlandi og þá sérstaklega í nánd við Trölla- skaga og Flateyjarskaga að huga að öryggi sínu komi til þess að stór skjálfti ríði yfir á Tjörnesbrotabelt- inu á Skjálfandaflóa. Virkni hefur verið þar síðan í sumar og í fyrradag mældust skjálftar upp 4 og 4,6 á svæðinu. Eru það öflugustu skjálft- ar sem mælst hafa síðan í júní í sum- ar þegar skjálftahrinan hófst. Mældust þá þrír skjálftar á bilinu 5-6. Heimildir eru um enn stærri skjálfta á svæðinu. Skemmdur urðu á húsum Í frétt á vef Veðurstofunnar kem- ur fram frá Kristínu Jónsdóttur veð- urfræðingi að ástæða sé til þess ætla að skjálfti upp að stærðargráðunni 7 gæti riðið yfir svæðið. Í ljósi þess hvetja Veðurstofan og almanna- varnir fólk m.a. til þess að vera með- vitað um að halda sig frá skemmd- um byggingum komi til skjálfta, halda sig frá höfnum og strönd vegna hættu á flóðbylgju auk þess að huga að innanstokksmunum og lausamunum á heimilum. Einar Bessi Gestsson, náttúru- vársérfræðingur hjá Veðurstofu Ís- lands, segir að ástæða þess að gert sé ráð fyrir því að skjálfti allt að sjö stigum geti riðið yfir svæðið sé að heimildir bendi til þess að slíkt hafi áður gerst á svæðinu. Þannig hafi skjálfti árið 1755, á milli Flateyjar og Húsavíkur, verið metinn 7,0 að stærð. Þá varð tjón á bæjum í Þing- eyjarsýslum og Grímsey. Árið 1872 urðu miklir jarðskjálftar á Húsavík- ur-Flateyjarmisgenginu og stærð stærstu skjálftanna er metin um 6,5 með þó nokkurri óvissu. Miklar skemmdir urðu á byggingum á Húsavík Til samanburðar voru Suður- landsskjálftarnir árið 2000 6,5 að stærð og skjálftinn árið 2008 6,3. „Virknin sem er núna er áframhald á skjálftavirkninni í júní. Þá var skjálftavirknin út af mynni Eyja- fjarðar en svo færði hún sig á Skjálf- anda og þar eru þessir síðustu skjálftar. Öll þessi skjálftavirkni er á sama Húsavíkur- Flateyjarbelt- inu,“ segir Einar. Að sögn hans höfðu í gær mælst allt að 700 eftirskjálftar frá því í fyrradag þegar stóru skjálftarnir mældust. „Í ljósi þessarar skjálfta- virkni metum við það svo að það séu auknar líkur á að von sé á fleiri skjálftum sem eru jafn stórir og þeir sem urðu í gær [fyrradag] eða stærri,“ segir Einar. Heimildir um skjálfta upp á 7 á svæðinu  Sama skjálftavirknin og var í sumar  Allt að 700 eftirskjálftar mældust Morgunblaðið/Sigurður Bogi Húsavík Skjálftavirknin hefur mælst á Skjálfandaflóa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.