Morgunblaðið - 17.09.2020, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, sér sóknar-
færi víða í landbúnaði. Nefnir akur-
yrkju, framleiðslu nautakjöts og starf
nýstofnaðs Matvælasjóðs. Þá eigi
sauðfjárræktin tækifæri í aukinni
sölu ef hægt væri að bjóða ferskt kjöt
í lengri tíma og laga framboð kjöts að
þörfum neytenda í nútímasamfélagi.
Hann vekur athygli á því að tölum
um útflutning ESB á kjöti ber ekki
saman við innflutningstölur hér og
veltir því fyrir sér hvort meira sé
flutt inn en heimilt er. Hann finnur að
því að stjórnsýslan skuli ekki hafa
betra eftirlit með nýtingu tollkvóta
samkvæmt milliríkjasamningum og
krefst þess að þetta misræmi verði
skýrt.
Staðan í landbúnaði er ágæt, að
mati Gunnars. Faraldur kórónuveiru
hafi ekki haft afgerandi áhrif. Ekki
varð samdráttur í sölu á kjöti, í heild-
ina, þótt sala á dýrustu steikunum
hafi minnkað. Örlítill samdráttur hef-
ur orðið í sölu á mjólk og rjóma. „All-
ir Íslendingar hafa verið heima og
það vegið upp á móti samdrætti í
komum erlendra ferðamanna. Hins
vegar hefur neyslumynstrið breyst,
minna er selt af lúxussteikum og
rjóma en meira af almennum búvör-
um í verslunum,“ segir Gunnar.
Krefjast skýringa á misræmi
Bændasamtökin eiga nú í við-
ræðum við ríkisvaldið um endur-
skoðun á rammasamningi um almenn
starfsskilyrði í landbúnaði. Hann
kemur í framhaldi af endurskoðun
samninga um sauðfjárrækt, naut-
griparækt og garðyrkju. „Ekki var
vilji fyrir því hjá ríkisvaldinu að setja
aukna fjármuni í neina af þessum
samningum. Þegar svo kórónuveiru-
faraldurinn hófst voru allt í einu
boðnar 200 milljónir aukalega í garð-
yrkjuna, út samningstímann. Það er í
sjálfu sér mjög jákvætt,“ segir Gunn-
ar. Þeim fjármunum verður aðallega
varið í niðurgreiðslu á flutnings-
kostnaði rafmagns og stuðning við
útiræktun grænmetis.
Hann segir að hægt væri að gera
landið sjálfbærara með korn til fóð-
urs og manneldis með því að auka
kornrækt. Í viðræðum um ramma-
samning hafi komið fram að ekki
væri vilji hjá ríkisvaldinu til að auka
stuðning við akuryrkjuna. Nefnir
Gunnar einnig í þessu sambandi að
Danir séu að vinna prótein úr grænu
hráefni. Telur hann að gríðarleg
tækifæri geti verið hér á landi til að
gera prótein úr grasi eða öðrum
gróðri og jafnvel lúpínu. Nóg sé af
landi hér.
„Stór hluti af starfsskilyrðum land-
búnaðarins felst í tollvernd, tollum og
heimildum til innflutnings á búvör-
um. Staðan er hins vegar sú að miklu
munar á tölum um útflutning á bú-
vörum frá ESB til Íslands og inn-
flutningstölum Hagstofunnar. Töl-
urnar frá ESB eru hærri. Á síðasta
fundi samninganefndanna sagðist ég
ekki ætla að ræða málin frekar fyrr
en fundið hefði verið út úr þessu mis-
ræmi,“ segir Gunnar. Segist hann
hafa orð fjármálaráðherra fyrir því
að það verði gert.
Hann segir að skýrt sé í milliríkja-
samningum hvað megi flytja til
landsins á lægri tollum eða án tolla.
„Hver á að fylgjast með þessum kvót-
um og hvað flutt er inn samkvæmt
þeim? Eða mega menn flytja inn það
sem þeim sýnist? Ef það er raunin
þurfum við enga milliríkjasamninga.
Við hjá Bændasamtökunum höfum
ekki aðgang að þessum upplýsingum.
Ég tel að ef við fengjum frið til að
starfa á grundvelli gildandi samninga
gæti atvinnugreinin plumað sig
ágætlega.“
Gunnar bætir því við að aðalrökin
fyrir samningum um aukinn inn-
flutning hafi verið fjölgun ferða-
manna frá Evrópu. Nú séu fáir ferða-
menn á landinu og allur
innflutningurinn í samkeppni við inn-
lenda framleiðslu. Hann bíti í því við
útboð á tollkvótum í miðjum kórónu-
veirufaraldrinum hafi tollarnir lækk-
að og því sé innflutt kjöt nú með lág-
um tollum. Komi það sérstaklega illa
við innlenda nautakjötsframleiðslu
sem verið sé að reyna að byggja upp
með fjárfestingu í nýjum holdanauta-
stofni.
Stefnan mikilvæg
Kristján Þór Júlíusson landbún-
aðarráðherra kynnti á búnaðarþingi í
byrjun mars áform um gerð land-
búnaðarstefnu. Það átti að gerast
strax. Síðan hefur lítið frést af því
máli, þar til í vikunni að kynnt var
verkefnastjórn undir forystu Björns
Bjarnasonar, fyrrverandi þingmanns
og ráðherra.
Gunnar segir að innandyra hjá
Bændasamtökunum sé hafin vinna
við undirbúning landbúnaðarstefnu.
Kallað hafi verið eftir áherslum hjá
búgreinafélögunum. Bindur hann
vonir við að vel takist til um mótun
landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Það
hafi áhrif á næstu endurskoðun bú-
vörusamninga árið 2023, og verði
væntanlega leiðandi við gerð nýrra
samninga þremur árum síðar.
Sóknarfæri í fersku kjöti
Miklar neyslubreytingar hafa orð-
ið á síðustu árum og áratugum.
Gunnar nefnir í því sambandi að sí-
fellt fleiri vilji nýtt kjöt en ekki frosið
og aukin eftirspurn sé eftir tilbúnum
réttum. Stundum vanti upp á að
bændur séu upplýstir um þarfir
markaðarins og neytenda. Þar á milli
séu vitaskuld millistykki í afurða-
stöðvum og verslunum. Flestar af-
urðastöðvarnar séu í eigu bænda og
ættu því að hafa góða möguleika á að
koma upplýsingunum til skila.
Sauðfjárbændur hafa lent í
hremmingum vegna verðfalls á
kindakjöti fyrir fáeinum árum og
þótt verðið hafi þokast upp á við er
það langt frá því að skila þeim fyrri
tekjum. Gunnar segir að vegna
fækkunar fjár í landinu sé að komast
á jafnvægi milli framboðs og eftir-
spurnar, framleiðslan sé hæfileg fyr-
ir íslenska markaðinn þótt flytja
þurfi út aukaafurðir. „Til lengri tíma
litið tel ég að tækifæri séu til sölu á
fersku kjöti yfir lengri tíma og með
því geti verðið hækkað og bændur
borið meira úr býtum.“
Segir Gunnar að það sé ekkert
náttúrulögmál að slátrun fari fram í
fjórar til sex vikur að hausti, þótt það
hafi alltaf verið gert þannig. Til þess
að lengja tímann þyrftu afurðastöðv-
arnar að sameinast þannig að ein sé
fyrir norðan og önnur fyrir sunnan.
Með því væri hægt að hagræða.
Bændur hafi ekki efni á þessari
miklu fjárbindingu í sláturhúsum. Þá
yrði auðveldara að nýta sláturhúsin
betur stærri hluta ársins og hafa
ferskt kjöt á boðstólum í lengri tíma.
Það skapi jafnframt meiri möguleika
á útflutningi á fersku kjöti.
„Ef markaðurinn vill ferskt kjöt,
af hverju reyna menn ekki að leysa
þessi skipulagsmál. Kaupendur vör-
unnar þurfa að eiga þetta samtal við
framleiðendur tímanlega, ekki dag-
inn sem pöntun fer fram. Með því að
ganga frá samningum um fyrirfram-
sölu gegn ákveðnu verði og afhend-
ingu á tilteknum tíma getur bóndinn
séð sér hag í að flýta tilhleypingum.
Ég er ekki að segja að allir hafi að-
Mörg sóknarfæri í landbúnaði
Formaður Bændasamtakanna telur tækifæri felast í að laga framleiðslu betur að óskum neytenda
Gagnrýnir eftirlit með innflutningi Misræmi í útflutningstölum ESB og innflutningstölum hér
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Garðyrkjubóndi Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og fjölskylda hans rækta krydd, blóm og fleira í garðyrkjustöðinni Ártanga í
Grímsnesi. Hann er í fullu starfi í félagsmálum og stjórnar Sigurdís Edda Jóhannesdóttir, kona hans, daglegum rekstri fyrirtækisins.
Formaðurinn
» Gunnar Þorgeirsson er 57
ára gamall, prentari og garð-
yrkjufræðingur. Foreldrar hans
eru Þorgeir Baldursson, fv.
prentsmiðjustjóri í Odda, og
Ragna María Gunnarsdóttir.
» Gunnar rekur garðyrkju-
stöðina Ártanga í Grímsnesi
með konu sinni, Sigurdísi Eddu
Jóhannesdóttur. Þau eiga þrjú
börn.
» Hann var lengi í hrepps-
nefnd Grímsnes- og Grafnings-
hrepps og jafnframt oddviti og
um tíma formaður Sambands
sunnlenskra sveitarfélaga.
Gunnar hefur verið formaður
Sambands garðyrkjubænda frá
2015 og var kosinn formaður
Bændasamtaka Íslands í byrj-
un mars sl.
Bændasamtökin hafa verið í vandræðum með að fjármagna starfsemi
sína síðan dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að búnaðargjald sem
lagt var á alla framleiðslu væri ólögmætt. Gunnar Þorgeirsson telur að
mistök hafi verið gerð við að afnema búnaðargjaldið. Það hafi vissulega
ekki mátt nota í hagsmunagæslu samtaka bænda en hægt hefði verið að
lækka það og nota áfram í þróunarstarf og rannsóknir.
Í staðinn var tekið upp félagsgjald, sem nú er veltutengt, en aðeins
hluti bænda sér sér hag í að greiða. Bændasamtökin hafa þurft að rifa
seglin verulega og hafa ekki efni á því að sinna hagsmunagæslu og al-
mennu markaðsstarfi fyrir landbúnaðinn með sama hætti og áður. „Við
höfum ekki bolmagn til að horfa til framtíðar, getum aðeins reynt að
slökkva elda,“ segir Gunnar.
Unnið er að breytingum á félagskerfinu og var samþykkt á síðasta bún-
aðarþingi að stefna að sameiningu samtaka bænda. Gunnar segir að
vantað hafi upp á stefnumörkun, að menn hafi á hreinu hvert samtökin
ætli að stefna. Verið sé að vinna í því og að skilgreina hlutverk búgreina-
félaganna í nýju skipulagi og verkefni búnaðarsambandanna. „Ég á von á
því að við getum kynnt fyrsta handritið í október og sagt grasrótinni
hvað forystan leggur til. Ef við náum samstöðu verða tillögur um nýtt
skipulag lagðar fyrir búnaðarþing í vor,“ segir Gunnar.
Geta aðeins slökkt elda
HAGSMUNAGÆSLA OG ALMENNT MARKAÐSSTARF