Morgunblaðið - 17.09.2020, Side 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
www.gilbert.is
● Úrvalsvísitala aðallista kauphallar Ís-
lands lækkaði í gær um 0,66%. Mest
lækkuðu hlutabréf Icelandair í verði,
eða um 5,98%, í þriggja milljóna króna
viðskiptum. Næstmesta lækkunin varð
á bréfum Arion banka, en bréf félagsins
lækkuðu um 1,05 í nítján milljóna króna
viðskiptum. Þriðja mesta lækkunin á
markaðnum í gær varð svo á bréfum í
Festi, eða 1,04% í þriggja milljóna
króna viðskiptum.
Einungis þrjú félög hækkuðu í verði í
gær. Mest hækkuðu bréf Iceland Sea-
food, eða um 1,18%. Þá hækkaði fast-
eignafélagið Eik um 0,56% og Kvika um
0,43%:
Hlutabréf Icelandair
lækkuðu um 5,98%
17. september 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 135.07
Sterlingspund 174.37
Kanadadalur 102.73
Dönsk króna 21.587
Norsk króna 15.014
Sænsk króna 15.438
Svissn. franki 149.14
Japanskt jen 1.2809
SDR 191.31
Evra 160.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 196.9279
Hrávöruverð
Gull 1963.55 ($/únsa)
Ál 1749.0 ($/tonn) LME
Hráolía 39.7 ($/fatið) Brent
● BM Vallá hefur fyrst íslenskra steypu-
framleiðenda fengið útgefna EPD-
umhverfisyfirlýsingu á steinsteypu. Betri
yfirsýn sem fæst í krafti slíkrar umhverf-
isyfirlýsingar gefur möguleika á að fram-
leiða steypu fyrir viðskiptavini með allt að
35% minna kolefnisspor en gerist og
gengur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá
BM Vallá. „Við erum stolt af því að hljóta
þessa vottun og geta veitt viðskiptavinum
okkar vistferilsgreiningu steinsteypunnar sem þeir nýta í byggingarkosti sína,“ segir
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins sem rekur BM Vallá, í tilkynningunni.
Byggist á alþjóðlegum stöðlum
Umhverfisyfirlýsingin byggist á alþjóðlegum stöðlum og hefur verið vottuð af
norsku EPD-stofnuninni, EPD-Norge. ,,Umhverfisyfirlýsingin þýðir að nú er hægt að
öðlast yfirsýn yfir og fá nákvæmar upplýsingar um umhverfisáhrif steinsteypunnar,
allt frá öflun hráefna til afhendingar, þar með talið sjálft kolefnissporið.“
Gera steypu með 35% minna kolefnisspori
Steypubíll frá BM Vallá.
STUTT
lifunin ætti að vera af heimsókn í lónið. Það er
stór hluti af góðum árangri fyrirtækisins. Upp-
lifunin skilar sér beint í verðmætasköpuninni.“
Eins og Rósbjörg minntist á hér á undan
skiptir sagan sem sögð er miklu máli. Ef til
dæmis á að nota upplifunarhönnun til að búa
til góða ráðstefnu, þá verði að einblína á hvað
sá sem mætir á ráðstefnuna fær fyrir sinn
snúð. Að þar sé að finna einhverja sérþekk-
ingu, sem eflir viðkomandi, fyrirtækið eða
samfélagið í heild sinni.
Fengu besta fólkið
Eins og sagði hér á undan kemur fjöldi
þekktra einstaklinga að námskeiðinu. „Við
vorum svo heppin að fá besta fólkið í landinu
með okkur í lið, til að segja hvernig það býr til
upplifanir. Þar má nefna kvikmyndaframleið-
andann Sigurjón Sighvatsson, kvikmynda-
tónskáldið Veigar Margeirsson, Höllu Helga-
dóttur, framkvæmdastjóra Miðstöðvar
hönnunar og arkitektúrs, og Pál Óskar Hjálm-
týsson tónlistarmann.“
Þau Eyþór og Rósbjörg leituðu einnig út
fyrir landsteinana, en Írarnir Patrick Delaney
og Pádraic Gilligan frá Soolnua kenna á nám-
skeiðinu. „Þeir eru einna áhrifamestu sérfræð-
ingarnir á þessu sviði í heiminum í dag. Þeir
hafa til dæmis verið að hjálpa áfangastöðum að
byggja sig upp, og einnig unnið með fyr-
irtækjum og heilu atvinnugreinunum.“
Rósbjörg segir að núna, þegar atvinnulífið
sé í hægagangi vegna kórónuveirufaraldursins
sé gott að nota tímann til að efla starfsfólk, og
undirbúa viðburði næsta árs. „Ísland hefur svo
margt fram að færa, og það að bjóða enn sterk-
ari upplifun er eitthvað sem gæti til dæmis eflt
okkur sem áfangastað.“
Eyþór er samhliða störfum sínum í Aka-
demias framkvæmdastjóri fyrir ráðstefnur hjá
European Academy of Management. Hann
segir að nú þegar færa þarf ráðstefnur á netið,
sé fólk gjarnt á að halda að hægt sé að yfirfæra
ráðstefnuna beint þar yfir. „Auðvitað áttu ekki
að hugsa þannig, heldur þarf að hugsa um
hvað viðskiptavinurinn vilji fá á þessu sniði.
Horfa þarf á tæknina og sníða upplifunina að
henni.“
Rósbjörg telur að þegar faraldrinum lýkur,
muni ráðstefnuhald í heiminum fara aftur af
stað, en þó með breyttu sniði. Hún telur að
flestar ráðstefnur verði með blendingssniði (e.
Hybrid), þ.e. bæði í sal og á neti. „Það verður
áskorun, að sníða upplifunina að báðum að-
ilum, þeim sem eru heima hjá sér og þeim sem
eru á staðnum.“
Námskeiðið Leiðtogi í upplifunarhönnun
verður einmitt haldið með blönduðu sniðið,
bæði á netinu og í húsakynnum Akademias. 35
komast að og því þarf að hafa hraðar hendur
að skrá sig, enda hefur námskeiðið nú þegar
fengið góð viðbrögð að sögn Eyþórs.
Upplifunin er mikilvægust
Fjöldi þekktra aðila kennir á námskeiði sem efla á aðferðafræði við mótun upplifana á Íslandi
Gæti hjálpað bæjarfélögum að laða að ferðamenn Gott að nýta tímann í kórónuveirufaraldrinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Námskeið Rósbjörg og Eyþór Ívar segja að upplifun sé góð leið fyrir atvinnugreinar til að
koma nýsköpun á framfæri. Hún gerist þó ekki af sjálfu sér, hana þurfi að hanna.
Leiðbeinendur
» Sigurjón Sighvatsson
» Patrick Delaney
» Pádraic Gilligan
» Veigar Margeirsson
» Páll Óskar Hjálmtýsson
» Leifur Welding
» Halla Helgadóttir
» Hlín Helga Guðlaugsdóttir
» Katrín Ólína Pétursdóttir
» Sigurður Þorsteinsson
» Rósbjörg Jónsdóttir
» Heimir Sverrisson
» Eyþór Ívar Jónsson
» Guðmundur Arnar Guðmundsson
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ef þig hefur einhvern tímann dreymt um að
verða leiðtogi í upplifunarhönnun, er tækifær-
ið komið, því ráðgjafarfyrirtækið Akademias í
Borgartúni 23 býður nú upp á námskeið í því
að „efla aðferðafræði við mótun upplifana á Ís-
landi“, eins og það er útskýrt á heimasíðu
fyrirtækisins. Fyrsti hluti af sex hefst 19.
október.
Að námskeiðinu standa Rósbjörg Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri ráðstefnufyrirtæk-
isins Cognito, og Eyþór Ívar Jónsson, ráðgjafi
og eigandi Akademias, en þau hafa fengið til
liðs við sig ýmsa vel þekkta aðila úr ýmsum
áttum. „Hugmyndin sem kviknaði hjá okkur
upphaflega var að búa til námskeið sem gæti
hjálpað fólki að búa til betri viðburði. Við byrj-
uðum að velta fyrir okkur hvað væri mikilvæg-
ast til að gera góðan viðburð, og við vorum
sammála um að það væri upplifunin,“ segir
Eyþór Ívar í samtali við Morgunblaðið.
Gerist ekki af sjálfu sér
Hann bætir við að upplifun gerist ekki af
sjálfu sér, hana þurfi að hanna. „Við fáum inn
fólk úr listum, viðskiptum og þessum við-
burðaheimi, til að koma saman og ræða hvað
upplifun er í þessu samhengi, frá ólíkum sjón-
arhornum.“
Rósbjörg segir að upplifun sé góð leið fyrir
ýmsar atvinnugreinar til að koma nýsköpun
sinni á framfæri. En til að upplifunin komist til
skila, þarf ýmislegt að koma saman, eins og
framsetning, samsetning, góð saga og um-
gjörð.
Eyþór segir sem dæmi að bæjarfélag sem
þarf að ná athygli ferðamanna gæti notfært
sér upplifunarhönnun í þeim tilgangi. „Bæj-
arfélagið þarf að finna hvaða upplifun það er
sem fær ferðamanninn til að koma og eyða
tíma á staðnum.“
Bláa lónið er gott dæmi um aðila sem notað
hefur upplifunarhönnun með framúrskarandi
hætti, að sögn Eyþórs. „Þar veltu menn því
fyrir sér hvaða sögu þeir vildu segja, hver upp-