Morgunblaðið - 17.09.2020, Page 36

Morgunblaðið - 17.09.2020, Page 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er nú komin á fullt. Skoðanakann- anir benda til þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti eigi á brattann að sækja, nú þegar innan við fimmtíu dagar eru til kjördags, en hann verð- ur 3. nóvember næstkomandi. Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demó- krata, hefur þannig mælst með nokkuð örugga forystu á landsvísu, eða um 50% fylgi, en forsetinn hefur verið með um 42-43% fylgi. Kann- anir á landsvísu segja hins vegar ekki alla söguna, því að á endanum eru það kosningar í hverju ríki fyrir sig sem munu ráða því hver verður næsti forseti Bandaríkjanna. Ekki er á vísan að róa í þeim efnum og eru því bæði Biden og Trump nú á far- aldsfæti vítt og breitt um Bandarík- in til þess að vinna sér inn sem mest fylgi fyrir lokasprettinn. Það hvert frambjóðendurnir ferðast segir hins vegar ýmislegt um landslag kosn- inganna, en bæði Biden og Trump leggja nú höfuðáherslu á nokkur lykilríki, sem munu ráða úrslitum í haust. Kosið „rétt“ frá 1996 Biden heimsótti þannig Flórída- ríki í fyrsta sinn í kosningabarátt- unni nú í vikunni, en ríkið hefur oft verið talið meðal þeirra sem skipta hvað mestu máli í kapphlaupinu um Hvíta húsið. Frá árinu 1996 hefur sá frambjóðandi sem unnið hefur ríkið einnig náð meirihluta kjörmanna og forsetaembættinu um leið, en fræg- ust er líklega rimma George W. Bush og Als Gore í kosningunum ár- ið 2000, þar sem niðurstaðan valt á því hvor hefði betur í Flórídaríki. Það ýtir undir „sveifluhneigð“ rík- isins, að íbúar þess skiptast nokkuð jafnt milli flokka, en Repúblikana- flokkurinn hefur þó á síðustu árum átt ögn meira fylgi í ríkinu en með- altal hans á landsvísu hefur sagt til um. Vegið meðaltal skoðanakannana í ríkinu bendir til þess að hann njóti þar 48,2% fylgis, en Trump 47%. Munurinn er þar því einungis um 1,2 prósentustig í ríkinu, sem skýrist að einhverju leyti af því að forsetinn hefur á síðustu vikum náð að sækja í sig veðrið meðal karlmanna af róm- önskum uppruna. Mikilvægi Flórída endurspeglast einnig í því að milljarðamæringurinn Michael Bloomberg tilkynnti fyrr í vikunni að hann hygðist verja 100 milljónum bandaríkjadala til kosn- ingabaráttu Bidens í ríkinu. Ekki er víst hvaða áhrif sú peningagjöf mun hafa, en á sama tíma berast fregnir af því að framboð Trumps eigi nú í nokkrum fjáröflunarvandræðum. „Blái veggurinn“ endurreistur? Auk Flórída hefur Biden einnig heimsótt lykilríkin Wisconsin, Michigan og Pennsylvaníu á síðustu dögum. Allt eru þetta ríki, sem þóttu vera svo örugg vígi Demókrata- flokksins að talað var um „bláa vegginn“, en Trump náði að vinna þau öll árið 2016. Að þessu sinni benda kannanir til þess að Biden myndi vinna þau öll á ný, og er mun- urinn um fjögur prósentustig í Pennsylvaníu og Michigan, en rúm- lega sex prósentustig í Wisconsin. Ríkin þrjú ráða yfir samtals 46 kjör- mönnum af þeim 538 sem eru í boði, en vegna stöðunnar í öðrum ríkjum gæti Biden jafnvel tapað í Flórída og samt unnið kosningarnar, haldi hann ríkjunum þremur ásamt þeim sem nú þegar eru talin eru líkleg eða örugg til að kjósa Demókrataflokk- inn. Beðið eftir kappræðunum Ferðalög Bidens eru að einhverju leyti svör við ásökunum Trumps, um að Biden hafi eytt síðustu mánuðum „í felum“, en kosningabarátta Bid- ens þótti hófstillt framan af, og er raunar enn þegar hún er borin sam- an við dagskrá Trumps. Forsetinn heldur nú hvern kosningafundinn á fætur öðrum, og stærði hann sig af því að hafa haldið fundi í þremur ríkjum, á meðan Biden lét sér eitt nægja. Fundir Trumps hafa þó ekki verið lausir við gagnrýni, þar sem stuðn- ingsmenn hans hafa haft þann hátt- inn á að koma margir saman innan- dyra, þvert á ráðgjöf sóttvarna- yfirvalda. Líklega mun sú gagnrýni hrökkva skammt, en kannanir benda til þess að stuðningsmannakjarni forsetans sé nú þegar nokkuð viss um að hann sé réttur maður á rétt- um stað. Eitt helsta áhyggjuefni Trumps er að hann hefur lítt náð út fyrir þann hóp. Forsetinn bindur því helstu vonir sínar við það, að kapp- ræður forsetaefnanna muni færa honum yfirhöndina, en Biden hefur í gegnum tíðina þótt nokkuð misjafn í slíkum keppnum. Fyrstu kappræð- urnar af þrennum fara fram 29. september næstkomandi. Frambjóðendur á ferð og flugi  Innan við fimmtíu dagar þar til kosið verður til forseta í Bandaríkjunum  Frambjóðendur beggja flokka einbeita sér að lykilríkjunum  Biden með forystu víða en Trump bindur vonir við kappræður AFP Í Flórída Joe Biden, frambjóðandi demókrata, ræðir við blaðamenn á flug- vellinum í Tampa, en þetta var fyrsta heimsókn hans þangað í baráttunni. Fylgi Trump og Biden, staðan í lykilríkjunum Þessi sex ríki hafa yfi r 100 kjörmenn Ríki Donald Trump Joe Biden Fjöldi kjörmanna Flórída 47,1% 48,7% +1,6% 29 Pennsylvan ía 44,7% 49,0% +4,3% 20 Michigan 43,6% 47,8% +4,2% 16 Wisconsin 43,4% 50,1% +6,7% 10 Norður-Karólína 47,1% 47,8% +0,7% 15 Arizona 44,8% 49,5% +4,7% 11 H ei m ild : R ea lc le ar p ol it ic s. co m 11 29 15 16 10 20 AFP Í Nevada Donald Trump Bandaríkjaforseti blæs fingurkossum til stuðn- ingsmanna sinna eftir þéttsetinn kosningafund sinn í Las Vegas í Nevada. Yoshihide Suga var í gær kjörinn af japanska þinginu til þess að taka við embætti forsætisráðherra eftir að Shinzo Abe, sem lengst allra hefur gegnt embættinu, lét af völdum fyrr í mánuðinum. Suga hét því í þakkarræðu sinni að hann myndi halda kórónuveirunni í skefjum og reyna að byggja upp á ný efnahag landsins, sem nú gengur í gegnum samdrátt vegna heimsfar- aldursins. Þá sagðist Suga myndu halda stefnumálum Abes á loft. „Við þurf- um að ýta áfram stefnumálum ríkis- stjórnar Abes, mér finnst sem það sé verkefnið sem fyrir mig hefur verið lagt,“ sagði Suga meðal annars í ræðu sinni. Suga er 71 árs gamall og stýrði hann síðast skrifstofu ríkisstjórnar- innar. Var Suga ötull talsmaður Abes og álitinn hans hægri hönd. Ríkisstjórn Suga er að miklu leyti svipuð og fráfarandi ríkisstjórn Abes, þar sem bæði utanríkis- og fjármálaráðherrann verða áfram í sínum hlutverkum. AFP Forsætisráðherra Suga þakkar hér þingmönnum fyrir kjörið. Mun halda áfram á sömu braut og Abe ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.