Morgunblaðið - 17.09.2020, Qupperneq 43
UMRÆÐAN 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL VIKTOR
Hvíldarstóll
KRAGELUND Aya K 129
KRAGELUND K371
Casö 701 langborð
Stólar
Sófasett
Borðstofuborð
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
o.m.fl.
Borstofuhúsgön frá Casö
Mikið úrval af
hvíldarstólum
með og án rafmagns.
KRAGELUND Handrup
Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu
Það standa fyrir
dyrum kosningar í
nýju sameinuðu sveit-
arfélagi á Austurlandi,
en markmiðið er klár-
lega ekki heimsyfirráð
og því síður dauði, fyr-
irsögnin er bara til að
ná athygli eins og vef-
miðlarnir gera.
Því hefur oft verið
haldið fram að samein-
ingar sveitarfélaga séu bara nauð-
vörn til að halda uppi lögbundinni
þjónustu, en svo tel ég ekki vera um
þessa sameiningu. Þetta er miklu
meira, og á að vera það og það er ekki
markmið okkar að standa vörð, held-
ur sækja fram. Við setjum okkur há-
leit og skýr markmið, um fólks-
fjölgun, fjölgun starfa, eflingu á alla
lund. Við getum allt, en fyrsta skrefið
er að átta okkur á því hvers við erum
megnug.
En það eru ljón á veginum, bæði
kerfisleg og heimatilbúin. Skipulags-
gerð hefur til dæmis verið til allt of
skamms tíma og ekki horft nema út
kjörtímabilið eða rúmlega það. Þröng
túlkun laga og reglugerða hefur ýtt
undir þetta og sérfræðingar á þessu
sviði endalaust að vinna upp sömu
hlutina. Slíkt er atvinnuskapandi, en
afar illa farið með faglega framsýni
og sköpunarkraft þessa frábæra
fólks, að ég tali nú ekki um fjármuni
íbúa. Aðalskipulag á að túlka meg-
inlínur til langs tíma og deiliskipulag
að vera nákvæmari útfærsla og það
er síðan sveitarfélagins að ákveða
hvenær deiliskipulag kallar á breyt-
ingu aðalskipulags, eða hvort breyt-
ingin er lítils háttar.
Núna er aðalskipulag,
sem að lágmarki á að
gilda til 12 ára, nánast
eins og rándýr loftmynd
af núverandi ástandi, en
enginn hefur hugmynd
um hvernig við ætlum að
sjá sveitarfélagið til
næstu 30-40 ára, sem
ætti að vera markmiðið.
Hvernig sem þessar
kosningar fara vona ég
að menn fari að hugsa
miklu lengra og öll fram-
boð komi sér saman um
meginlínur aðalskipulags til næstu
áratuga með þá framsýni að leið-
arljósi að innan u.þ.b. 30 ára verði
fólksfjöldi í sveitarfélaginu ekki undir
15-20 þúsund manns, sem myndi
gjörbreyta rekstri og þjónustustigi
innan þess.
Það eiga eftir að verða miklir þjóð-
flutningar á næstu árum og þá verð-
um við að vera tilbúin. Þetta skiptir
svo miklu máli því ef framtíðarsýnin
er sterk og samstaðan góð um meg-
inlínur, svo sem uppbyggingu vega-
kerfis, flugvalla og hafna ásamt íbúð-
ar- og atvinnusvæðum, þá er miklu
auðveldara að selja hugmyndina fyrir
nýbúa, ríkisstjórn og alþingismenn,
þeir myndu beinlínis missa vatn af
hrifningu!
Og hugsið ykkur alla möguleikana
sem skapast með því að hugsa um
sveitarfélagið sem eina heild: Sam-
vinna skóla, íþróttastarfs, menningar
og lista, og svo framvegis. Fullkomið
bíóhús á Seyðisfirði, afrískur
skemmtigarður í Kongó, októberfest
á Borgarfirði og adrenalíngarður of-
an Eyvindarár á Egilsstöðum, þar
sem ferðin byrjar með mest ógnvekj-
andi göngubrú á norðurhveli jarðar.
Hugsið ykkur bara! Þetta eru ekki
draumórar því allt þetta er mann-
anna verk, ekki náttúrulögmál.
Byggðastofnun vinnur flott starf til
uppbyggingar á landsbyggðinni, en á
sama tíma er haldið úti algjörlega úr-
eltum lögum sem beinlínis hamla
dreifbýlinu. Til dæmis borgar dreif-
býlið sérstakan taxta á dreifingu raf-
magns, nota bene, frá þéttbýlinu þar
sem ekkert rafmagn er framleitt, og
það hamlar allri atvinnustarfsemi í
sveitum og jafnvel í útjaðri þéttbýla.
Það er augljóst að slík lög voru hugs-
uð á meðan rafmagni væri komið á
alla dreifbýlisstaði, en virkar nú letj-
andi fyrir Rarik og hæsta verðið
greitt þar sem þjónustan er lökust.
Heilbrigðisstofnanir á landsbyggð-
inni fá framlög í samræmi við eitt-
hvert landsmeðaltal, sem end-
urspeglar á engan hátt raunkostnað
og eru því alltaf fjársveltar, sem aftur
leiðir til óþarfa vísana á mun dýrari
úrræði. Reyndar held ég að eitt
stærsta vandamál stofnana séu Ex-
cel-sérfræðingarnir sem trúa orðið
svo stíft á líkönin sín að þeir eru hætt-
ir að nota skynsemina. Lesa ekki á
milli línanna og skilja ekki lengur
hvað sparnaður í einum kassa getur
þýtt miklu meiri kostnað í þeim
næsta. Alltof mikil og nákvæm
deildaskipting er þáttur í þessu.
Byggðastofnun, með hjálp þings-
ins, hlýtur að vilja stoppa ýmiss kon-
ar mismunun gagnvart landsbyggð-
inni, sem þrífst í skjóli úreltra laga og
reglugerða, og þegar það tekst þá
mætti afnema misvægi atkvæða í
leiðinni. Allir þegnar landsins eiga að
hafa sama rétt.
Nóg að sinni, meira seinna, góðar
stundir.
Eftir Sigurð
Ragnarsson » Byggðastofnun,
með hjálp þingsins,
hlýtur að vilja stoppa
ýmiss konar mismunun
gagnvart lands-
byggðinni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
á Egilsstöðum.
sigurdur@manatolvur.is
Sigurður Ragnarsson
Austurland – heimsyfirráð eða dauði…
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?
Velvakandi
Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Það er oft naggað í heilbrigðiskerf-
inu okkar, en þegar við þurfum á því
að halda stendur það með sínu fólki,
þjóðinni. Það er kannski dýrt, því
neitar enginn, og gangarnir á spítöl-
unum langir, en starfsfólkið ynd-
islegar manneskjur, og tækjabún-
aður hreint ekki svo slæmur, ef við
berum „nýrri“ tækin saman við sýn-
ishornin í glerskápunum frá árdög-
um Lansans um 1930.
Komir þú á göngudeild eða bráða-
deild sérðu mannlífsflóruna og sjúk-
dómsflóruna og undrast hvað margir
þurfa að leita sér hjálpar og hve
mörgum er veitt hjálp. Og þú ferð
jafnvel að umla innan í þér „The
band played waltzing Matilda“ þar
sem lýst er særðum og veikum sem
koma heim úr fyrra stríði til Ástralíu
og fólkið á kajanum horfir á her-
mennina setta í land. Hjá okkur og
núna eru allar hendur á lofti til
hjálpar og það er unnið í hverjum
kima við þessa löngu ganga, og í há-
deginu má sjá þekktan umhverf-
ismann og fjallatoppara skáskjóta
sér í lúgu Rauða krossins og fá sér
prins póló og kók í gleri. Ekkert stíl-
brot í gangi þar.
Sunnlendingur.
Heilbrigt kerfi
og kók í gleri
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon