Morgunblaðið - 17.09.2020, Qupperneq 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
✝ Sveinn Þ. Guð-bjartsson
fæddist í „Kassa-
húsinu“ við Lækj-
argötu í Hafnar-
firði 28. janúar
1938. Hann lést á
Hrafnistu Hafnar-
firði 1. september
2020.
Foreldrar hans
voru Herdís Guð-
mundsdóttir ljós-
myndari, f. 30.5. 1898, d. 8.1.
1990, frá Skarði í Lundar-
reykjadal, og Guðbjartur Vig-
fús Ólafur Ásgeirsson, mat-
sveinn og ljósmyndari, f. 23.12.
1889, d. 18.10. 1965, frá Ísafirði.
Systkini Sveins voru: Sveindís
Ásgerður, f. 1918, d. 1937, Guð-
munda Gíslína Elka, f. 1920, d.
2010, Magnús Óskar, f. 1921, d.
1994, Katrín Guðmundína, f.
1922, d. 2005, Guðný, f. 1923, d.
2010, Hallfríður, f. 1925, d.
1926, Ásgeir Halldór f. 1927, d.
2012, Sólveig Jóhanna, f. 1929,
d. 2014, Þórarinn, f. 1931, d.
1933, Jón Ásgeir, f. 1934, d.
1935.
og hjá ýmsum innlendum og er-
lendum útskurðarmeisturum.
Hann stundaði síðan nám í
stjórnun heilbrigðisstofnana við
Nordiska Helsevard-háskólann í
Gautaborg og sótti ýmis sér-
námskeið við sama skóla.
Hann var rafeindavirki með
eigið fyrirtæki, Vélar og við-
tæki. Í 35 ár var hann stjórn-
andi á heilbrigðissviði, heil-
brigðisfulltrúi Hafnarfjarðar,
framkvæmdastjóri Heilsugæslu
Hafnarfjarðar og forstjóri Sól-
vangs.
Sveinn var varaformaður
SUS um skeið, sat í stjórn full-
trúaráðs sjálfstæðisfélagana í
Hafnarfirði, var stofnfélagi
Golfklúbbsins Keilis í Hafn-
arfirði, formaður Íþróttabanda-
lags Hafnarfjarðar, landsforseti
JC á Íslandi og stofnandi JC-
félaga. Hann var einn af stofn-
endum Kiwanis á Íslandi og tók
þátt í stofnum fleiri Kiwanis-
klúbba, var formaður safn-
aðarstjórnar Hafnarfjarðar-
kirkju. Sveinn sat líka í mörg-
um nefndum og stjórnum á
vegum Hafnarfjarðarbæjar.
Útför Sveins verður gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 17.
september 2020, og hefst at-
höfnin kl. 15.
Útförinni verður jafnframt
streymt á skjái í safnaðarheim-
ili kirkjunnar.
Sveinn kvæntist
12. febrúar 1959
Svanhildi Ingv-
arsdóttur, f. 11.
október 1937, d. 4.
mars á þessu ári.
Foreldrar hennar
voru hjónin Ingvar
Jónsson frá Loft-
sstöðum í Flóa, f. 4.
júní 1903, d. 3. júní
1979 og Guðrún
Sigríður Guð-
mundsdóttir frá Grænanesi,
Norðfirði, f. 25. desember 1902,
d. 28. október 1992.
Barn Sveins og Svanhildar er
Katrín Sveinsdóttir, fædd 12.
október 1962, gift Kristjáni
Rúnari Kristjánssyni, dætur
þeirra eru: Hildur Dís, í sambúð
með Þorgeiri Albert Elíesers-
syni, þeirra sonur er Sveinn
Rúnar. Svana Lovísa, í sambúð
með Andrési Garðari Andr-
éssyni, þeirra börn eru Bjartur
Elías og Birta Katrín.
Sveinn lauk prófum í raf-
eindavirkjun frá Iðnskólanum í
Reykjavík, stundaði nám við
Handíða- og myndlistaskólann
Stundin deyr og dvínar burt
sem dropi í straumaniðinn.
Öll var sæla er ann að hvurt
óséð - eða liðinn.
(E. Ben.)
Þegar hugurinn reikar til
baka birtast ljúfar minningar
um hjartahlýjan pabba. Pabba
sem ferðaðist mikið þegar ég
var lítil og var svo spenntur
þegar hann kom heim að þó það
væri nótt þá vakti hann mig til
að færa mér pakka frá útlönd-
um.
Pabbi minn, hjá þér var mikið
af öllu, þú varst venjulega með
tvær til þrjár myndavélar á þér,
ljósmyndari af Guðs náð og
tókst óhemju mikið af myndum.
Ferðaðist mikið, varst í mörgum
félögum, nefndum og ráðum.
Safnaðir öllu mögulegu, frí-
merkjum, myndavélum, verk-
færum, listmunum stórum og
smáum, o.fl. o.fl.
En þú áttir líka mikið af kær-
leika og máttir ekkert aumt sjá,
varst mikill mannvinur og alltaf
að gauka að þeim sem þurftu á
að halda en það mátti helst eng-
inn vita af því. Þú hafðir séð
margt á langri ævi og hafðir það
að leiðarljósi að sælla er að gefa
en þiggja.
Þú varst orðheppinn maður,
hafðir ávallt svar á reiðum
höndum, kunnir vísur og brand-
ara sem þú notaðir á viðeigandi
hátt og á réttum tíma.
Frásagnargleðin var þvílík að
þú gast haldið mörgum sögum í
gangi í einu án þess að rugla
þeim saman og var ég iðulega
löngu búin að týna þræðinum
þegar þú allt í einu endaðir aft-
ur á réttum stað.
En pabbi minn, mér fannst þú
ekki alltaf svona frábær, á ung-
lingsárunum hefði ég gefið mik-
ið fyrir það að þú talaðir ekki
svona mikið og við hvern sem
var eða á ferðalögum okkar til
Kaupmannahafnar þegar þú
byrjaðir yfirleitt á því að heim-
sækja ostameistarann á Købma-
gergade, þú elskaðir osta og
ostalyktina og eftir að heim var
komið þá gaus úr ísskápnum
hrikalegur fnykur. Þá var mér
ekki skemmt og vinkonur mínar
minnast þess með orði sem er
ekki birtingarhæft.
Það keyrði þó um þverbak
þegar þú á mannamótum tókst
þig til og söngst hástöfum
„Svantes lykkelige dag“ og oft-
ar en ekki kominn upp á stól.
Það fór svo að ég þroskaðist
og lærði að meta þessi uppátæki
þín og sem betur fer hafði
mamma oftast húmor fyrir þeim
enda ekki vanþörf á.
Ég á ómetanlegar minningar
um okkur sem tengjast veiði-
ferðum í Borgarfjörðinn þar
sem keyrt var um í óþéttum bíl-
um á rykugum vegum yfir ár og
læki og þótti ekki tiltökumál
þótt spryngi á dekki eða gat
kæmi á hljóðkút. Þið voruð stór-
huga félagarnir og tókuð Gljúf-
urá á leigu sumar eftir sumar og
seinna Urriðaá.
Þú varst áhugamaður á
mörgum sviðum lífsins, stúder-
aðir matseld og varst mikið með
mömmu í eldhúsinu og vissir
fátt skemmtilegra en að halda
veislur. Það var alla tíð gest-
kvæmt hjá ykkur á Kletta-
hrauninu þar sem þið höfðuð bú-
ið ykkur fallegt heimili sem var
stútfullt af list og góðum önd-
um. Þið voruð fagurkerar og
nutuð þess að sitja saman í stof-
unni að spjalla og hlusta á góða
tónlist.
Þú varst alla tíð listelskur,
teiknaðir, málaðir og síðustu ár-
in varstu duglegur að skera út
og tálga, áttir fallegan skáp með
verkum eftir þig og nú er skáp-
urinn kominn aftur heim á
Klettahraunið þar sem áfram
verður hægt að njóta listmuna
þinna og hnífarnir eru á sínum
stað fyrir strákana að skoða.
Við stöndum á tímamótum,
nýbúin að kveðja elsku mömmu
og nú kveðjum við pabba sem
var og verður órjúfandi hlekkur
í lítilli en samhentri fjölskyldu.
Þín ástkæra dóttir,
Katrín.
Elsku afi minn.
Mikið sem það er sárt að
kveðja þig, en ljúfar minningar
streyma fram í hugann þar sem
þú og amma voruð svo stór part-
ur af mínu lífi. Það er alltof stutt
síðan við kvöddum ömmu en þið
áttuð einstaklega ástríkt sam-
band og hafið ekki getað verið
hvort án annars lengur.
Það eru varla til nógu falleg
lýsingarorð sem geta lýst þér
sem manneskju og varst þú
gæddur öllum þeim góðu mann-
kostum sem hægt er að búa yfir.
Þú varst einstaklega góður
við allt og alla svo eftir var tek-
ið, og sérstaklega við fjölskyld-
una þína sem þú vildir allt fyrir
gera, í hverri heimsókn, sem
voru á tíðum oft í viku, fengum
við að heyra hvað þú værir
þakklátur að eiga okkur að og
vorum við alltaf í bænum þínum.
Það lýsir þér vel að það síð-
asta sem þú ræddir við mig var
að segja mér hvað mamma hefði
komið inn sem ljósgeisli í lífið
ykkar ömmu og fært því birtu
og fannst þér því nafnið á nýja
langafabarninu svo vel við hæfi,
en þú hafðir þann hæfileika að
tala svo fallega um allt og alla.
Ég er þakklát að þú hafir fengið
að hitta langafastelpuna þína og
strjúka henni um vanga, lang-
afadrengirnir þínir Bjartur Elí-
as og Sveinn Rúnar fá að segja
Birtu Katrínu sögur af þér og
mun minning þín lifa um
ókomna tíð hjá þeim.
Þú kaust að sjá allt það góða í
lífinu og varst brosmildur og
léttur í lund, jafnvel dálítið
stríðinn á góðum degi. Þú varst
mikill listunnandi og skapandi
og á ég góðar minningar úr
æsku þegar ég fékk að vera hjá
þér í bílskúrnum að teikna og
skoða allt dótið sem þú áttir. Þú
lagðir grunninn að minni sköp-
un og varst ákaflega stoltur
þegar ég lagði stund á listnám,
og varst að sjálfsögðu sá fyrsti
sem keypti af mér verk.
Þú hafðir alveg einstaklega
ljúfa nærveru, hjá ykkur ömmu
var yndislegt að vera og skiljið
þið eftir stórt skarð í mínu
hjarta og lífi.
Það er erfitt að trúa því þó að
þú sért raunverulega farinn, svo
friðsæll varstu í kistunni að það
var sem þú svæfir værum svefni
og ef ég loka augunum finnst
mér þú enn vera hér hjá okkur.
Þú og amma áttuð dásamlegt
líf og hugga ég mig við þá til-
hugsun að nú eruð þið amma
sameinuð á ný, með Tinnu ykk-
ar og vakið yfir okkur.
Ég mun reyna mitt besta að
tileinka mér þína kosti og æðru-
leysi í mínu lífi og aldrei munum
við gleyma þér og ömmu. Þú
gerðir líf okkar ríkara.
Takk fyrir lífið og yndislegar
minningar, ég er stolt að hafa
átt þig sem afa.
Hvíldu í friði og megi guð
geyma þig og ömmu.
Þín,
Svana Lovísa.
Elsku afi.
Þú varst langlangbesti
langafi minn. Þú varst bestur í
heimi að tálga kalla sem var
gaman að skoða og alla hnífana
þína. Ég sakna þín, afi minn.
Bjartur Elías langaf-
astrákur.
Elsku afi Svenni.
Ef Guð lofar að lifa hittumst
við á morgun, var setning sem
þú hefur sagt við mig í mörg ár
og var þetta líka það síðasta
sem ég sagði við þig á mánudegi
þegar ég kyssti þig bless. Ekki
grunaði mig að þetta yrði í síð-
asta sinn. Þú sofnaðir svefnin-
um eilífa um nóttina.
Þú varst einstakur maður á
svo margan hátt. Þú sást það
góða í öllum og þoldir ekki
óréttlæti og kenndir okkur að
það eina sem skiptir máli þegar
upp er staðið er fólkið sem mað-
ur hefur í kringum sig.
Það eru óteljandi minningar
sem koma upp í hugann á
stundu sem þessari. Ég er þakk-
lát fyrir allan þann tíma sem þú
fékkst hér á jörðinni en á sama
tíma er söknuðurinn svo mikill.
Við erum lítil fjölskylda og því
hefur stórt skarð verið höggvið í
hópinn.
Minningar um ferðalög,
Hveragerði, veiðiferðir og gist-
ingar á Klettahrauninu eru
margar.
Ég fékk að vinna hjá þér á
Sólvangi sem unglingur, bæði
við að hirða um garðinn og einn-
ig í þvottahúsinu. Ég man svo
vel að í þvottahúsinu fannst mér
vera óbærilega heitt og fannst
ekki hægt að vinna við þessar
aðstæður.
Ég fór upp á skrifstofu til afa
og sagði að hann yrði að laga
þetta. Viti menn, eins og hendi
væri veifað var þetta lagað.
Afi gerði hvað sem er fyrir
mig og Svönu systir enda vorum
við augasteinarnir hans eins og
hann svo oft sagði.
Afi talaði alveg ótrúlega mik-
ið og endalaust sem hann gat
sagt frá og þekki ég engan
mann sem var með jafn gott
minni og afi. Það var mikil gæfa
þegar Toggi kom inn í líf mitt og
eignaðist afi nýjan félaga og var
samband þeirra einstakt, enda
margir sem héldu hreinlega að
Toggi væri barnabarn hans.
Sveinn Rúnar ber nafnið vel og
lítur allt út fyrir að hann muni
tala jafn mikið og þú gerðir.
Ég veit það hafa verið miklir
fagnaðarfundir á himnum og
amma Svana hefur tekið vel á
móti Svenna sínum.
Það verður skrítið að hafa þig
ekki hér lengur enda hittumst
við oftast nokkrum sinnum í
viku.
Minningarnar lifa með okkur
og ef Guð lofar þá hittumst við
aftur.
Hildur Dís.
Elsku afi Svenni.
Ég sakna þín svakalega mikið
og ég bið að heilsa ömmu Svönu.
Þinn
Sveinn Rúnar
langafastrákur.
Genginn er góður maður, ást-
kær ömmubróðir minn Sveinn
Guðbjartsson. Hann var yngst-
ur í stórum hópi systkinanna í
Kassahúsinu svokallaða við
Lækjargötuna í Hafnarfirði og
er síðastur þeirra til að kveðja.
Svenni frændi var mikill fjöl-
skyldumaður. Hann hafði ein-
lægan áhuga á stórfjölskyldunni
allri og var stoltur af sínu fólki;
fylgdist af áhuga með öllum,
gladdist yfir góðum árangri og
var fyrstur að veita stuðning
þegar eitthvað bjátaði á. Fé-
lagslyndari mann var erfitt að
finna og tók hann virkan þátt í
ýmis konar félagsstarfi í gegn-
um árin og var oftar en ekki
kominn í forystuhlutverk. Hann
gerði stundum grín að því
vafstri öllu og sagðist hafa um
tíma verið „formaður formanna-
félagsins“.
Svenni var fagurkeri sem
unni menningu, sögu og listum.
Bar heimili hans og Svönu þess
glöggt merki. Hann var áhuga-
samur um myndlist og bækur og
var hann jafnan eitthvað að
grúska í gömlum tímaritum og
bókum. Það er vart hægt að
nefna Svenna nema nefna Svönu
hans í sömu andrá, svo samhent
sem þau voru alla sína tíð. Svo
geislandi glöð og falleg hjón.
Örlögin höguðu því þannig að
Svenni var ekki lengi án Svönu
sinnar nú þegar aðeins fáeinir
mánuðir eru á milli andláta
þeirra. Einstök gestrisni þeirra
og hlýlegt viðmót laðaði marga
að þeim og til þeirra var alltaf
gott að koma. Svenni sagði
skemmtilega frá og átti ætíð
áhugaverðar sögur af mönnum
og málefnum í handraðanum.
Hann lagði jafnan gott eitt til.
Svenni hafði sérstaklega gaman
af því að ræða pólitíkina og rifja
upp fyrir mér atvik og baráttur
fyrri tíma þegar hann tók virk-
an þátt í bæjarmálunum í Hafn-
arfirði.
Ekki get ég sagt að hann hafi
hvatt mig til að fara í pólitíkina,
raunar varaði hann mig við.
„Mundu Rósa mín að í pólitík-
inni eru ekki allir viðhlæjendur
vinir,“ sagði hann og brosti.
Síðan studdi hann mig alltaf
með ráðum og dáð.
Það eru margar ljúfar minn-
ingar sem hægt er að ylja sér
við þegar komið er að kveðju-
stund. Ég minnist þess með sér-
stakri hlýju hve þau Svenni og
Svana tóku jafnan vel á móti
föður mínum og Bjartmari litla
þegar heimsóknir þeirra á
Klettahraunið urðu fastur liður
er afinn stytti drengnum stund-
ir á milli sjúkrameðferða. Bjart-
mari fannst eftirsóknarvert að
koma til þeirra og fallegt sam-
band varð til. Nú eru þau öll far-
in til austursins eilífa.
Mestur er missir Katrínar,
sólargeislans í lífi Svenna og
Svönu, Rúna, og fjölskyldu
þeirra. Hugur minn er hjá ykk-
ur elsku Katrín og fjölskylda.
Megi dýrmætu minningarnar
um ástríka foreldra veita ykkur
styrk. Hafðu þökk fyrir allt og
allt elsku frændi.
Rósa Guðbjartsdóttir.
Því er lokið. Vinur minn
Sveinn Guðbjartsson hefur
hvatt jarðlífið og horfið til aust-
ursins eilífa. Sigldi yfir móðuna
miklu í kjölfarið á eiginkonu
sinni, Svönu, sem lést 4. mars
2020 og var jarðsungin 25. júní
2020
Stuttu eftir að ég flutti til
Hafnarfjarðar árið 1975 var mér
boðin þátttaka í einkagufu-
klúbbi þar sem Sveinn var að-
almaðurinn. Klúbburinn hét
Gufuklúbburinn Sér allt og
heyrir allt (se og hør på dansk).
Sveinn Þ.
Guðbjartsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁRNI HALLDÓRSSON
skipstjóri og útgerðarmaður
á Eskifirði,
lést miðvikudaginn 9. september.
Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn
19. september klukkan 14.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Kristín A. Árnadóttir Halldór Árnason
Björn Árnason Sigrún Árnadóttir
Guðmundur Árnason Auður Sigrúnardóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður og ömmu,
SR. ELÍNAR SALÓME
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Þrastarhöfða 2, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og heimaþjónustu Heru fyrir hlýhug
og góða umönnun.
Soffía Kristín Þórðardóttir
Þórdís Ögn Þórðardóttir Þorvaldur Finnbogason
Sölvi Þórðarson Sara Þórunn Óladóttir Houe
og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og
kærleik vegna andláts
SIGURÐAR EMILS ÓLAFSSONAR
húsasmiðs.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
heimahjúkrunar Reykjavíkur, deildar 11E og
Líknardeildar LSH fyrir einstakan hlýhug og ómetanlegan
stuðning.
Guðný Ásta Ottesen
Hildigunnur J. Sigurðardóttir Jón Grétar Hafsteinsson
Ólafur Már Sigurðsson Hekla Hannibalsdóttir
Oddgeir Reynisson
Lilja Rut Grätz Christopher Grätz
og afabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁGÚST ALFREÐSSON,
Skipasundi 41, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 3. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Kristín Pétursdóttir
Haraldur Ágústsson
Helga Vala Ágústsdóttir
Pétur Magni Pétursson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn