Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 60
60 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Betri svefn Melissa Dream er hannað til að stuðla að djúpri slökun og værum svefni. Þessi blanda inniheldur ekki efni sem hafa sljóvgandi áhrif. Valið besta bætiefni við streituhjá National Nutrition í Kanada „Þvílíkur munur! Ég bæði sef fastar og sofna fyrr. Ég ligg ekki andvaka á koddanum og vakna endurnærð og úthvíld. Ég sef alla nóttina og er ekki sífellt að vakna upp eins og áður. Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla“ Elsa M. Víðis. 50 ára Guðlaug fæddist í Keflavík og er fædd þar og upp- alin. Hún er með meistaragráðu í menningarstjórnun og er menningarfulltrúi Reykjanesbæjar. Maki: Halldór Sigurðsson, f. 1961, við- skiptafræðingur og starfar í áhættu- stýringardeild Landsbanka Íslands. Börn: Arnar Geir, f. 2001 og Sóley, f. 2006. Fóstursynir Guðlaugar eru Elv- ar, f. 1981 og Róbert, f. 1986. Foreldrar: Erna Guðlaugsdóttir, f. 1948 og Neil Lewis, f. 1947. Fóstur- faðir Guðlaugar er Hjörtur Krist- jánsson, f. 1952. Guðlaug María Lewis Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er svo margt sem manni getur dottið í hug en á samt enga möguleika í heimi raunveruleikans. Virtu skoðanir ann- arra ef þú vilt sjálfur að aðrir taki þig alvar- lega. 20. apríl - 20. maí  Naut Hvort sem þú ætlar þér það eða ekki þá muntu vekja athygli annarra í dag. Var- astu að láta hugmyndaflugið hlaupa með þig í gönur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Sköpunargáfa þín er einstaklega mikil í dag. Ef umhverfið er eilítið óþægi- legt, áttu það til að bíða með að tjá þig þar til aðstæður breytast. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Fólk hlustar þegar þú talar, en í dag læturðu meira gott af þér leiða með því að hlusta. Vandaðu þig í samskiptum við sam- starfsfélagana í dag. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að athuga vel hvernig þú set- ur hlutina fram því það skiptir sköpum að allir skilji hvert þú ert að fara. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef þú kemur auga á veikleika þína muntu forða þér frá því að gera sömu mis- tökin aftur og aftur. Þá veistu hvað hlutirnir eru erfiðir og munt afreka miklu meira. 23. sept. - 22. okt.  Vog Fyrst þú ert að nálgast það sem þú vilt, er kominn tími til þess að hugsa lengra. Treystu því og íhugaðu stöðu þína. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það getur kostað málamiðlanir að leita til annarra um framkvæmd hluta. Skoðaðu málin frá öllum hliðum áður en þú tekur ákvörðun. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Lítið bros getur dimmu í dags- ljós breytt. Notaðu skipulagshæfileikana til þess að sýna ást þína á skapandi hátt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert tilbúinn til að taka stórt skref fram á við. Reyndu að nýta þér hæfi- leika þína til fullnustu og trúðu á sannfær- ingu þína. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú stendur frammi fyrir flóknu vandamáli og þarft aðstoð við úrlausn þess. Brjóttu odd af oflæti þínu og biddu um að- stoð, þú munt ekki sjá eftir því. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þetta er góður dagur til að ræða málin í einlægni við vinkonu þína. Hrein- skilni og vinátta munu skila málum í höfn. að vera sá erlendi nemandi sem gaf mest af sér til fræðastarfs og starfs lagadeildarinnar í heild. Í janúar 2006 fluttist Ingibjörg Ólöf til Genfar í Sviss þar sem hún starfaði fyrst hjá EFTA-skrifstof- unni í fríverslunarsamningadeildinni og tók m.a. þátt í að semja við Kól- umbíu, Perú, Indland og Mið- Austurlöndin í Flóaráðinu. Síðan hóf hún störf hjá áhættufjárfestingar- sjóði og starfaði þar sem lögfræði- ráðgjafi þar til hún flutti til Íslands árið 2012 og setti upp ásamt nokkr- lagadeild Háskóla Íslands 1998 með embættispróf í lögfræði. Eftir það starfaði hún hjá sýslumanninum á Seyðisfirði í eitt ár en var síðan ráðin til þáverandi landbúnaðarráðuneytis og starfaði þar til áramóta 2005/2006. Hún tók þó tæplega árs frí til að nema alþjóða- og samanburð- arlögfræði við George Washington University í Washington DC þar sem hún útskrifaðist vorið 2003. Þar vann hún málflutningskeppni ásamt þrem- ur öðrum erlendum kvenstúdínum og hlaut auk þess viðurkenningu fyrir I ngibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir fæddist 17. september 1970 í Reykjavík en ólst upp á Kollsá II í Hrútafirði. Fyrsta launaða vinna Ingi- bjargar Ólafar var í sláturhúsinu á Borðeyri og hún dvaldi öll sumur og vann í Hrútafirðinum ýmis störf. „Það var dásamlegt að alast upp í sveit. Ég byrjaði að keyra dráttarvél sex ára gömul, vegna þess að Atli bróðir minn var að gera við drátt- arvél sem hann þurfti aðstoð við að draga í gang. Svo ég var sett í öku- mannssætið og eftir það varð ekki aftur snúið. Þetta myndi þykja fjarstæðukennt í dag en fyrir 44 ár- um þótti þetta ekki tiltökumál.“ Ingibjörg Ólöf gekk í barnaskól- ann á Borðeyri og fór síðan í heima- vistina við Héraðsskólann á Reykj- um í Hrútafirði, en fór þaðan í Verzlunarskóla Íslands þar sem hún kláraði verslunarpróf vorið 1987. Þá tók við Menntaskólinn við Hamra- hlíð og útskrifaðist hún þaðan árið 1990. Eftir menntaskólann ákvað Ingibjörg Ólöf að taka sér smáhlé á námi og lagði land undir fót og fór til Lúxemborgar þar sem hún starfaði í gallabuxnabúð og á bar. Eftir dvöl- ina erlendis lá leiðin í Háskóla Ís- lands þar sem hún nam lögfræði. Hún vann með skólanum m.a. hjá flugfélaginu Atlanta og tók hlé á náminu að hluta til á meðan. Hún vann hjá Atlanta í þrjú ár og bjó og starfaði m.a. í Sádi-Arabíu, á Eng- landi og á Spáni. „Það var mjög áhugavert að flytja til Sádi-Arabíu. 1996. Við bjuggum í litlu þorpi sem kallast Rose Village og vorum nokk- uð frjáls þar en um leið og við fórum út fyrir þorpið þurftum við konurnar að vera huldar frá hvirfli til ilja. Mað- ur gat átt á hættu að trúarlögreglan stoppaði okkur og skipaði okkur t.d. að hylja hárið betur. Svo voru búðir sem bönnuðu aðgang hunda og kvenna. Allt frekar óraunverulegt fyrir ungar íslenskar konur sem voru aldar upp við jafnrétti kynjanna,“ segir Ingibjörg Ólöf en bætir við að þegar hún kom til lands- ins aftur 2008 hafi hún séð miklar breytingar til aukins frelsis. Ingibjörg Ólöf útskrifaðist frá um öðrum lögmannsstofuna Land lögmenn. Á meðan Ingibjörg Ólöf bjó á Íslandi starfaði hún einnig sem stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs og sat auk þess í stjórnum ýmissa fyr- irtækja. Árið 2017 flutti hún til Brussel og hóf störf í lagadeild Eft- irlitsstofnunar EFTA þar sem hún starfar enn í dag. Ingibjörg Ólöf vann um tíma við kvennahjálpina sem er ókeypis lög- fræðiaðstoð fyrir konur og hún hefur einnig skrifað nokkrar greinar í Morgunblaðið. Þá hefur Ingibjörg Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur hjá eftirlitsstofnun EFTA – 50 ára Ljósmyndir/úr einkasafni. Útivist Ingibjörg Ólöf á góðri stundu með fósturdóttur sinni Charlotte Julia Nielssen í kajakferð. Hvergi betra en í firðinum fagra EFTA Ingibjörg að störfum í Brussel. Heimaslóðirnar Það var gott að alast upp í Hrútafirðinum fallega. 40 ára Ásgeir fæddist í Reykjavík en býr í Reykjanesbæ í dag. Hann er málarameist- ari. Ásgeir hefur mikinn áhuga á íþróttum og þá sérstaklega fótbolta og í enska boltanum er það Liverpool sem á hug hans allan. Einn- ig hefur hann áhuga á utanlandsferðum. Maki: Lára Ágústsdóttir, f. 1986, leikskóla- kennari. Börn: Matthildur, f. 2002, Elísabeth, f. 2007, Ari Freyr, f. 2016 og Aría Líf, f. 2020. Foreldrar: Björgvin Andri Guðjónsson pípulagningameistari, f. 1954, og Sigrún Alda Júlíusdóttir ræstitæknir, f. 1956. Ásgeir Freyr Björgvinsson Til hamingju með daginn Reykjavík Jökull Logi Hafþórs- son fæddist í Reykjavík 19. októ- ber 2019 á Landspítalanum í Reykjavík. Hann vó 4.030 g og var 54 cm á lengd. Móðir hans er Elísa Elínardóttir. Nýr borgari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.