Morgunblaðið - 17.09.2020, Side 64

Morgunblaðið - 17.09.2020, Side 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Okkar bíður mikil veisla, allt litróf mannlegra tilfinninga,“ segir Magn- ús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri um komandi leikár Þjóðleikhússins sem hefst formlega um helgina með frumsýningu á Upphafi. „Veturinn leggst einstaklega vel í mig enda er- um við með afar fjölbreytt og metn- aðarfullt leikár þar sem hvergi er slegið af. Fjöldi sterkra listamanna hefur gengið til liðs við Þjóðleikhúsið á síðustu mánuðum og leikárið ein- kennist ekki síst af miklum fjölda íslenskra verka og góðu úrvali barna- sýninga,“ segir Magnús Geir þegar hann er spurður hvernig veturinn leggist í hann nú meðan eins metra reglan er í gildi út af kófinu og há- marksfjöldi leikhúsgesta má vera 200. „Nýverið hefur verið slakað á tak- mörkunum í tvígang og við gerum ráð fyrir frekari tilslökunum á næst- unni. Hins vegar er okkur ekki til set- unnar boðið og því hefjum við leik miðað við núverandi takmarkanir. Við trúum því að þjóðin þurfi á því að halda að sækja sér andlega næringu og skynjum skýrt ákall um það. Við ætlum að taka þátt í því að koma hjól- unum af stað á nýjan leik og okkar hlutverk er að hreyfa við og hrífa áhorfendur með okkur. Við þurfum öll á því að halda. Leikárið sem við erum að leggja upp með markar að mörgu leyti nýtt upphaf hér í Þjóðleikhúsinu,“ segir Magnús Geir og tekur fram að það skýrist meðal annars af nýju teymi listrænna stjórnenda, sem hefur endurskoðað áherslur og stefnu leik- hússins. „Við höfum líka nýtt tímann síðustu sex mánuði meðan leikhúsið hefur verið lokað almenningi til að gera gagngerar endurbætur á forsal til að bæta þjónustuna við áhorfendur með það að markmiði að efla leikhús- upplifun þeirra,“ segir Magnús Geir og nefnir í því samhengi bætta veit- ingaaðstöðu og nýja leikhúsbókabúð þar sem ný íslensk verk, nýjar þýð- ingar verka, bækur um leikhús og prentaðar leikskrár verða til sölu. Hvalreki fyrir íslenskt leikhús „Fyrsta frumsýningin á Stóra svið- inu verður 26. september á Karde- mommubænum eftir Thorbjørn Egner, sem er ástsælasta fjölskyldu- sýning Íslendinga fyrr og síðar,“ segir Magnús Geir, en leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. „Þetta ástsæla verk birtist hér í viðamikilli og metn- aðarfullri uppsetningu,“ segir Magn- ús Geir og vísar þar til stórs leikhóps og fjölmennrar hljómsveitar. Bendir hann á að þegar sé orðið uppselt á fyrstu 30 sýningarnar. „Í lok október er komið að Fram- úrskarandi vinkonu sem er stórsýn- ing í fleiri en einum skilningi. Leik- verkið er byggt á Napólí-sögum Elenu Ferrante, sem er stór epísk, dramatísk saga, en á sama tíma að- gengileg,“ segir Magnús Geir og tek- ur fram að sýningin verði brotin upp með tveimur hléum. „Uppsetningin er leidd af einum fremsta leikstjóra heims í dag, Yaël Farber,“ segir Magnús Geir og áréttar að það sé hvalreki fyrir íslenskt leikhúslíf að fá Farber til starfa hérlendis. „Leikhóp- urinn er agndofa yfir aðferðum henn- ar,“ segir Magnús Geir og bendir á að Farber leiði tæplega 30 manna leik- hóp og sterkt teymi listrænna stjórn- enda. „En í þeim hópi er hreyfihöf- undurinn Conor Doyle, sem er einn leiðtoga hins þekkta Punch Drunk leikhúss.“ Höfundur leikgerðarinnar er April de Angelis og Salka Guð- mundsdóttir íslenskaði. Jólasýning Þjóðleikhússins er Nashyrningarnir eftir Eugène Ionesco í þýðingu Guðrúnar Vil- mundardóttur og leikstjórn Bene- dikts Erlingssonar „Þetta merka verk var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 1961 aðeins ári eftir heimsfrumsýn- inguna,“ segir Magnús Geir og fagn- ar því að verkið sé loks aftur að rata á svið í atvinnuleikhúsi hérlendis. „Þetta er eitt af merkustu verkum 20. aldarinnar. Verk sem talar sterkt inn í samtímann og leikstjórinn er með spennandi og ærslafullar hugmyndir um uppsetninguna.“ Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare í leikstjórn og leikgerð Þorleifs Arnar Arnarssonar og þýð- ingu Jóns Magnúsar Arnarssonar og Hörpu Rúnar Kristjánsdóttur verður frumsýnt á Stóra sviðinu í febrúar. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að leikhópurinn undir stjórn Þorleifs muni töfra fram mjög kraftmikla, nú- tímalega og óvænta útgáfu af þessari frægustu ástarsögu allra tíma,“ segir Magnús Geir og áréttar að sýn Þor- leifs á verkið sé afgerandi þar sem kastljósinu verði ekki síst beint að hlutskipti Júlíu í verkinu. „Síðasta frumsýningin á Stóra sviðinu er nýtt íslenskt verk eftir Tyrfing Tyrfingsson í leikstjórn Stef- áns Jónssonar sem nefnist Sjö ævin- týri um skömm,“ segir Magnús Geir og tekur fram að mikilvægt sé að íslenskir höfundar fái tækifæri til að sýna verk sín á Stóra sviðinu. „Tyrf- ingur hefur síðustu árin verið eitt af okkar fremstu leikskáldum. Hér mætir hann með sitt besta verk til þessa,“ segir Magnús Geir og upp- lýsir að verkið fjalli um konu sem lent hafi í áfalli og fari í gegnum sjö ævin- týri sem stjórna lífi hennar til að ná bata og skila skömminni. „Þetta ferðalag er átakanlegt, en einkennist samtímis af bullandi húmor,“ segir Magnús Geir og bendir á að þrjár konur verði í aðalhlutverkum, þær Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ilmur Kristjánsdóttir ásamt Hilmi Snæ Guðnasyni sem fastráðið hefur sig við Þjóðleikhúsið á ný. Ögraði ríkjandi viðhorfum Sex sýningar verða frumsýndar í Kassanum á komandi leikári. Fyrst ber þar að nefna Upphaf eftir David Eldridge í þýðingu Auðar Jónsdóttur og leikstjórn Maríu Reyndal. „Þetta er undurfagurt leikrit sem frumsýnt var hjá Breska þjóðleikhúsinu fyrir þremur árum þar sem það sló í gegn,“ segir Magnús Geir og rifjar upp að hann hafi verið dolfallinn þeg- ar hann sá uppfærsluna í London. „Í verkinu fylgjumst við með tveimur ókunnugum manneskjum sem reyna að nálgast hvor aðra að loknu partíi. Þetta er verk um nánd og nándar- fælni, þar sem þessi næturstund gæti orðið upphafið að einhverju meiru.“ Leikgerð Silju Hauksdóttur og Ilmar Kristjánsdóttur á Kópavogs- króniku Kamillu Einarsdóttur í leik- stjórn Silju verður frumsýnd 25. september, en uppsetningin var nær tilbúin í vor þegar samkomubannið skall á vegna kófsins. „Þetta er fersk og drepfyndin saga úr Íslandi sam- tímans um unga konu sem reynir að sameina móðurhlutverkið og djamm- lífernið.“ Síðasta frumsýningin í Kassanum fyrir áramót er Jólaboðið í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar sem einnig skrifar handritið, sem er innblásið af verki Thorntons Wilder, The Long Christmas Dinner, og sýningu Þjóð- leikhússins í Noregi, unninni af Tyru Tønnessen. „Verk Wilder er brilljant hugmynd í grunninn þar sem við fylgjumst með stórfjölskyldu á 100 ára tímabili og gægjumst reglulega inn um gluggann á aðfangadags- kvöldi,“ segir Magnús Geir, en í með- förum Gísla hefur verkið verið stað- fært og aðlagað að íslenskum veruleika og sögu. „Þetta er fjöl- skyldusaga með öllu því drama sem slíkt getur innifalið, en á sama tíma er þetta bæði hlýleg og jólaleg sýn- ing,“ segir Magnús Geir og bendir á að sýningin verði frumsýnd 6. nóv- ember og aðeins sýnd fram á þrett- ándann. „Í lok janúar frumsýnum við metn- aðarfullt nýtt verk í Kassanum,“ seg- ir Magnús Geir og vísar þar til Ástu í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar sem jafnframt skrifar handritið og byggir á höfundarverki og ævi Ástu Sigurð- ardóttur, en Birgitta Birgisdóttir leikur titilhlutverkið. „Ásta var mikil skáldkona, myndlistarkona og bóhem. Hún hafði með list sinni og líferni mikil áhrif á bæjarlíf Reykja- víkur. Hún hikaði ekki við að ögra ríkjandi viðhorfum og lýsa mætti skrifum hennar sem fyrstu #metoo- sögunum. Í mars frumsýnum við enn eitt íslenska verkið, en það er Vertu Úlf- ur sem Unnur Ösp Stefánsdóttir leik- stýrir, en hún skrifar jafnframt leik- gerð upp úr magnaðri bók Héðins Unnsteinssonar,“ segir Magnús Geir og bendir á að verkið veiti innsýn í baráttu manns sem glími við geð- sjúkdóm, en tekst að nýta reynslu sína til að breyta geðheilbrigðiskerf- inu og vinna bug á fordómum sam- félagsins. Síðasta frumsýning leikársins í Kassanum er Krufning á sjálfsmorði eftir Alice Birch í þýðingu Sölku Guð- mundsdóttur og leikstjórn Mörtu Nordal, en um er að ræða samstarfs- verkefni Þjóðleikhússins við Leik- félag Akureyrar og Listaháskóla Íslands þar sem útskriftarnemar af leikarabraut skólans leika. „Í verkinu segja þrjár kynslóðir kvenna sögu sína samtímis á sviðinu og skoðað er hvernig áföll og sorg erfast milli kyn- slóða,“ segir Magnús Geir og fagnar samstarfinu við LA og LHÍ. „Ég trúi því að Þjóðleikhúsið eigi að vera stórt í hugsun. Okkar markmið er að efla leikhúslíf í landinu öllu. Það gerum við með því að láta leiklistina blómstra hér í húsinu, en einnig því að fara í leikferðir um landið og efla samstarfið við aðra í landinu sem eru að sinna leiklist,“ segir Magnús Geir og bendir á að Þjóðleikhúsið muni fara með að minnsta kosti þrjár sýn- ingar í leikferðir um landið í vetur; Upphaf, Vloggið og Ég get. Mikill fjöldi barnasýninga „Við erum mjög stolt af þeim mikla fjölda barnasýninga sem við bjóðum upp á í vetur. Fyrir utan Karde- mommubæinn frumsýnum við í Kúl- unni í mars Kafbátinn eftir Gunnar Eiríksson í leikstjórn Hörpu Arnar- dóttur,“ segir Magnús Geir og rifjar upp að Kafbáturinn hafi verið valinn úr um 150 innsendum handritum sem bárust Þjóðleikhúsinu þegar það aug- lýsti eftir nýjum íslenskum barna- leikritum. „Gunnar, sem býr í Noregi þar sem hann vinnur sem leikari og leikstjóri, skrifaði þetta dásamlega verk sem fjallar um feðgin sem ferðast um höfin í kafbát í ókominni framtíð eftir að öll lönd eru sokkin í sæ,“ segir Magnús Geir og tekur fram að verkið sé í senn fyndið, átak- anlegt, ógnvekjandi og hjartnæmt. Í janúar verður í Kúlunni frumsýnt samstarfsverkið Geim-mér ei eftir leikhópinn Miðnætti í leikstjórn Agnesar Wild, sem hentar að sögn þjóðleikhússtjóra mjög vel yngstu áhorfendunum. „Þetta er heillandi brúðusýning leikin án orða um ævin- týraþrá, áræði og vináttu,“ segir Magnús Geir og bendir á að sýningin henti vel börnum með ólík móðurmál. Í apríl er frumsýnd unglingasýningin Vloggið eftir Matthías Tryggva Har- aldsson í leikstjórn Björns Inga Hilmarssonar. „Þetta er verk um ungt fólk og samfélagsmiðla,“ segir Magnús Geir. Einnig verða í Kúlunni sýnd frá fyrri leikárum Þitt eigið leik- rit II – Tímaferðalag; Leitin að jól- unum; Ég get og brúðusýningin Aladdín, en Brúðuloftinu verður breytt í Loftið og við það færast sýn- ingar Brúðuheima í Kúluna. Sprottin úr íslenskum samtíma „Við höfum markað tveimur rým- um í húsinu, Kjallaranum og Loftinu, afgerandi sérstöðu. Bæði rými eru hugsuð fyrir ungt fólk, en með gjör- ólíkri nálgun. Kjallarinn, sem hefur verið endurnýjaður í upprunalegum anda, verður klassabúlla þar sem boðið verður upp á uppistand, impro, kabaretta og drag í hæsta gæðaflokki auk þess sem leikhópurinn Kanarí frumsýnir nýja grínsýningu í leik- stjórn Guðmundar Felixsonar. Loftið er hins vegar nýr vettvangur fyrir formtilraunir, rannsóknir og nýsköp- un í leikhúsinu þar sem ætlunin er að þróa verk fyrir ungt fólk og með virkri þátttöku þess í sköpunarferl- inu,“ segir Magnús Geir og bendir á að nú bjóði Þjóðleikhúsið fólki yngra en 25 ára leikhúskort þar sem miðinn sé á bíóverði til að auka aðgengi þess að leikhúsinu óháð efnahag. Í Kjallaranum verður í nóvember hleypt af stokkunum nýju hádegis- leikhúsi þar sem boðið verður upp á 25 mínútna langar sýningar. „Við völdum fjögur verk úr um 250 inn- sendum verkum til að setja upp í vet- ur og þrjú fyrir næsta leikár. Þetta eru eitursnjöll og auðmeltanleg verk sprottin úr íslenskum samtíma,“ seg- ir Magnús Geir, en verk vetrarins eru Út að borða með Ester eftir Bjarna Jónsson og Verkið eftir Jón Gnarr sem Gréta Kristín Ómarsdóttir leik- stýrir, en hún er jafnframt listrænn stjórnandi bæði Kjallarans og Lofts- ins; Heimsókn eftir Hildi Selmu Sig- bertsdóttur sem Vigdís Hrefna Páls- dóttir leikstýrir og Rauða kápan eftir Sólveigu Eiri Stewart sem Hilmar Guðjónsson leikstýrir. „Það er ánægjulegt að geta gefið bæði nýjum röddum og leikstjórum tækifæri, á sama tíma og allir fremstu leikstjórar landsins eru að leikstýra hjá okkur.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Okkar bíður mikil veisla“  Framúrskarandi vinkona, Nashyrningarnir, Jólaboðið og Kafbátur meðal sýninga Þjóðleikhússins  „Fjölbreytt og metnaðarfullt,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri um komandi leikár Stoltur Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.