Morgunblaðið - 17.09.2020, Qupperneq 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Okkar bíður mikil veisla, allt litróf
mannlegra tilfinninga,“ segir Magn-
ús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri
um komandi leikár Þjóðleikhússins
sem hefst formlega um helgina með
frumsýningu á Upphafi. „Veturinn
leggst einstaklega vel í mig enda er-
um við með afar fjölbreytt og metn-
aðarfullt leikár þar sem hvergi er
slegið af. Fjöldi sterkra listamanna
hefur gengið til liðs við Þjóðleikhúsið
á síðustu mánuðum og leikárið ein-
kennist ekki síst af miklum fjölda
íslenskra verka og góðu úrvali barna-
sýninga,“ segir Magnús Geir þegar
hann er spurður hvernig veturinn
leggist í hann nú meðan eins metra
reglan er í gildi út af kófinu og há-
marksfjöldi leikhúsgesta má vera
200.
„Nýverið hefur verið slakað á tak-
mörkunum í tvígang og við gerum
ráð fyrir frekari tilslökunum á næst-
unni. Hins vegar er okkur ekki til set-
unnar boðið og því hefjum við leik
miðað við núverandi takmarkanir.
Við trúum því að þjóðin þurfi á því að
halda að sækja sér andlega næringu
og skynjum skýrt ákall um það. Við
ætlum að taka þátt í því að koma hjól-
unum af stað á nýjan leik og okkar
hlutverk er að hreyfa við og hrífa
áhorfendur með okkur. Við þurfum
öll á því að halda.
Leikárið sem við erum að leggja
upp með markar að mörgu leyti nýtt
upphaf hér í Þjóðleikhúsinu,“ segir
Magnús Geir og tekur fram að það
skýrist meðal annars af nýju teymi
listrænna stjórnenda, sem hefur
endurskoðað áherslur og stefnu leik-
hússins. „Við höfum líka nýtt tímann
síðustu sex mánuði meðan leikhúsið
hefur verið lokað almenningi til að
gera gagngerar endurbætur á forsal
til að bæta þjónustuna við áhorfendur
með það að markmiði að efla leikhús-
upplifun þeirra,“ segir Magnús Geir
og nefnir í því samhengi bætta veit-
ingaaðstöðu og nýja leikhúsbókabúð
þar sem ný íslensk verk, nýjar þýð-
ingar verka, bækur um leikhús og
prentaðar leikskrár verða til sölu.
Hvalreki fyrir íslenskt leikhús
„Fyrsta frumsýningin á Stóra svið-
inu verður 26. september á Karde-
mommubænum eftir Thorbjørn
Egner, sem er ástsælasta fjölskyldu-
sýning Íslendinga fyrr og síðar,“
segir Magnús Geir, en leikstjóri er
Ágústa Skúladóttir. „Þetta ástsæla
verk birtist hér í viðamikilli og metn-
aðarfullri uppsetningu,“ segir Magn-
ús Geir og vísar þar til stórs leikhóps
og fjölmennrar hljómsveitar. Bendir
hann á að þegar sé orðið uppselt á
fyrstu 30 sýningarnar.
„Í lok október er komið að Fram-
úrskarandi vinkonu sem er stórsýn-
ing í fleiri en einum skilningi. Leik-
verkið er byggt á Napólí-sögum
Elenu Ferrante, sem er stór epísk,
dramatísk saga, en á sama tíma að-
gengileg,“ segir Magnús Geir og tek-
ur fram að sýningin verði brotin upp
með tveimur hléum. „Uppsetningin
er leidd af einum fremsta leikstjóra
heims í dag, Yaël Farber,“ segir
Magnús Geir og áréttar að það sé
hvalreki fyrir íslenskt leikhúslíf að fá
Farber til starfa hérlendis. „Leikhóp-
urinn er agndofa yfir aðferðum henn-
ar,“ segir Magnús Geir og bendir á að
Farber leiði tæplega 30 manna leik-
hóp og sterkt teymi listrænna stjórn-
enda. „En í þeim hópi er hreyfihöf-
undurinn Conor Doyle, sem er einn
leiðtoga hins þekkta Punch Drunk
leikhúss.“ Höfundur leikgerðarinnar
er April de Angelis og Salka Guð-
mundsdóttir íslenskaði.
Jólasýning Þjóðleikhússins er
Nashyrningarnir eftir Eugène
Ionesco í þýðingu Guðrúnar Vil-
mundardóttur og leikstjórn Bene-
dikts Erlingssonar „Þetta merka
verk var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
1961 aðeins ári eftir heimsfrumsýn-
inguna,“ segir Magnús Geir og fagn-
ar því að verkið sé loks aftur að rata á
svið í atvinnuleikhúsi hérlendis.
„Þetta er eitt af merkustu verkum 20.
aldarinnar. Verk sem talar sterkt inn
í samtímann og leikstjórinn er með
spennandi og ærslafullar hugmyndir
um uppsetninguna.“
Rómeó og Júlía eftir William
Shakespeare í leikstjórn og leikgerð
Þorleifs Arnar Arnarssonar og þýð-
ingu Jóns Magnúsar Arnarssonar og
Hörpu Rúnar Kristjánsdóttur verður
frumsýnt á Stóra sviðinu í febrúar.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um að
leikhópurinn undir stjórn Þorleifs
muni töfra fram mjög kraftmikla, nú-
tímalega og óvænta útgáfu af þessari
frægustu ástarsögu allra tíma,“ segir
Magnús Geir og áréttar að sýn Þor-
leifs á verkið sé afgerandi þar sem
kastljósinu verði ekki síst beint að
hlutskipti Júlíu í verkinu.
„Síðasta frumsýningin á Stóra
sviðinu er nýtt íslenskt verk eftir
Tyrfing Tyrfingsson í leikstjórn Stef-
áns Jónssonar sem nefnist Sjö ævin-
týri um skömm,“ segir Magnús Geir
og tekur fram að mikilvægt sé að
íslenskir höfundar fái tækifæri til að
sýna verk sín á Stóra sviðinu. „Tyrf-
ingur hefur síðustu árin verið eitt af
okkar fremstu leikskáldum. Hér
mætir hann með sitt besta verk til
þessa,“ segir Magnús Geir og upp-
lýsir að verkið fjalli um konu sem lent
hafi í áfalli og fari í gegnum sjö ævin-
týri sem stjórna lífi hennar til að ná
bata og skila skömminni. „Þetta
ferðalag er átakanlegt, en einkennist
samtímis af bullandi húmor,“ segir
Magnús Geir og bendir á að þrjár
konur verði í aðalhlutverkum, þær
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ilmur
Kristjánsdóttir ásamt Hilmi Snæ
Guðnasyni sem fastráðið hefur sig við
Þjóðleikhúsið á ný.
Ögraði ríkjandi viðhorfum
Sex sýningar verða frumsýndar í
Kassanum á komandi leikári. Fyrst
ber þar að nefna Upphaf eftir David
Eldridge í þýðingu Auðar Jónsdóttur
og leikstjórn Maríu Reyndal. „Þetta
er undurfagurt leikrit sem frumsýnt
var hjá Breska þjóðleikhúsinu fyrir
þremur árum þar sem það sló í
gegn,“ segir Magnús Geir og rifjar
upp að hann hafi verið dolfallinn þeg-
ar hann sá uppfærsluna í London. „Í
verkinu fylgjumst við með tveimur
ókunnugum manneskjum sem reyna
að nálgast hvor aðra að loknu partíi.
Þetta er verk um nánd og nándar-
fælni, þar sem þessi næturstund gæti
orðið upphafið að einhverju meiru.“
Leikgerð Silju Hauksdóttur og
Ilmar Kristjánsdóttur á Kópavogs-
króniku Kamillu Einarsdóttur í leik-
stjórn Silju verður frumsýnd 25.
september, en uppsetningin var nær
tilbúin í vor þegar samkomubannið
skall á vegna kófsins. „Þetta er fersk
og drepfyndin saga úr Íslandi sam-
tímans um unga konu sem reynir að
sameina móðurhlutverkið og djamm-
lífernið.“
Síðasta frumsýningin í Kassanum
fyrir áramót er Jólaboðið í leikstjórn
Gísla Arnar Garðarssonar sem einnig
skrifar handritið, sem er innblásið af
verki Thorntons Wilder, The Long
Christmas Dinner, og sýningu Þjóð-
leikhússins í Noregi, unninni af Tyru
Tønnessen. „Verk Wilder er brilljant
hugmynd í grunninn þar sem við
fylgjumst með stórfjölskyldu á 100
ára tímabili og gægjumst reglulega
inn um gluggann á aðfangadags-
kvöldi,“ segir Magnús Geir, en í með-
förum Gísla hefur verkið verið stað-
fært og aðlagað að íslenskum
veruleika og sögu. „Þetta er fjöl-
skyldusaga með öllu því drama sem
slíkt getur innifalið, en á sama tíma
er þetta bæði hlýleg og jólaleg sýn-
ing,“ segir Magnús Geir og bendir á
að sýningin verði frumsýnd 6. nóv-
ember og aðeins sýnd fram á þrett-
ándann.
„Í lok janúar frumsýnum við metn-
aðarfullt nýtt verk í Kassanum,“ seg-
ir Magnús Geir og vísar þar til Ástu í
leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar sem
jafnframt skrifar handritið og byggir
á höfundarverki og ævi Ástu Sigurð-
ardóttur, en Birgitta Birgisdóttir
leikur titilhlutverkið. „Ásta var mikil
skáldkona, myndlistarkona og
bóhem. Hún hafði með list sinni og
líferni mikil áhrif á bæjarlíf Reykja-
víkur. Hún hikaði ekki við að ögra
ríkjandi viðhorfum og lýsa mætti
skrifum hennar sem fyrstu #metoo-
sögunum.
Í mars frumsýnum við enn eitt
íslenska verkið, en það er Vertu Úlf-
ur sem Unnur Ösp Stefánsdóttir leik-
stýrir, en hún skrifar jafnframt leik-
gerð upp úr magnaðri bók Héðins
Unnsteinssonar,“ segir Magnús Geir
og bendir á að verkið veiti innsýn í
baráttu manns sem glími við geð-
sjúkdóm, en tekst að nýta reynslu
sína til að breyta geðheilbrigðiskerf-
inu og vinna bug á fordómum sam-
félagsins.
Síðasta frumsýning leikársins í
Kassanum er Krufning á sjálfsmorði
eftir Alice Birch í þýðingu Sölku Guð-
mundsdóttur og leikstjórn Mörtu
Nordal, en um er að ræða samstarfs-
verkefni Þjóðleikhússins við Leik-
félag Akureyrar og Listaháskóla
Íslands þar sem útskriftarnemar af
leikarabraut skólans leika. „Í verkinu
segja þrjár kynslóðir kvenna sögu
sína samtímis á sviðinu og skoðað er
hvernig áföll og sorg erfast milli kyn-
slóða,“ segir Magnús Geir og fagnar
samstarfinu við LA og LHÍ. „Ég trúi
því að Þjóðleikhúsið eigi að vera stórt
í hugsun. Okkar markmið er að efla
leikhúslíf í landinu öllu. Það gerum
við með því að láta leiklistina
blómstra hér í húsinu, en einnig því
að fara í leikferðir um landið og efla
samstarfið við aðra í landinu sem eru
að sinna leiklist,“ segir Magnús Geir
og bendir á að Þjóðleikhúsið muni
fara með að minnsta kosti þrjár sýn-
ingar í leikferðir um landið í vetur;
Upphaf, Vloggið og Ég get.
Mikill fjöldi barnasýninga
„Við erum mjög stolt af þeim mikla
fjölda barnasýninga sem við bjóðum
upp á í vetur. Fyrir utan Karde-
mommubæinn frumsýnum við í Kúl-
unni í mars Kafbátinn eftir Gunnar
Eiríksson í leikstjórn Hörpu Arnar-
dóttur,“ segir Magnús Geir og rifjar
upp að Kafbáturinn hafi verið valinn
úr um 150 innsendum handritum sem
bárust Þjóðleikhúsinu þegar það aug-
lýsti eftir nýjum íslenskum barna-
leikritum. „Gunnar, sem býr í Noregi
þar sem hann vinnur sem leikari og
leikstjóri, skrifaði þetta dásamlega
verk sem fjallar um feðgin sem
ferðast um höfin í kafbát í ókominni
framtíð eftir að öll lönd eru sokkin í
sæ,“ segir Magnús Geir og tekur
fram að verkið sé í senn fyndið, átak-
anlegt, ógnvekjandi og hjartnæmt.
Í janúar verður í Kúlunni frumsýnt
samstarfsverkið Geim-mér ei eftir
leikhópinn Miðnætti í leikstjórn
Agnesar Wild, sem hentar að sögn
þjóðleikhússtjóra mjög vel yngstu
áhorfendunum. „Þetta er heillandi
brúðusýning leikin án orða um ævin-
týraþrá, áræði og vináttu,“ segir
Magnús Geir og bendir á að sýningin
henti vel börnum með ólík móðurmál.
Í apríl er frumsýnd unglingasýningin
Vloggið eftir Matthías Tryggva Har-
aldsson í leikstjórn Björns Inga
Hilmarssonar. „Þetta er verk um
ungt fólk og samfélagsmiðla,“ segir
Magnús Geir. Einnig verða í Kúlunni
sýnd frá fyrri leikárum Þitt eigið leik-
rit II – Tímaferðalag; Leitin að jól-
unum; Ég get og brúðusýningin
Aladdín, en Brúðuloftinu verður
breytt í Loftið og við það færast sýn-
ingar Brúðuheima í Kúluna.
Sprottin úr íslenskum samtíma
„Við höfum markað tveimur rým-
um í húsinu, Kjallaranum og Loftinu,
afgerandi sérstöðu. Bæði rými eru
hugsuð fyrir ungt fólk, en með gjör-
ólíkri nálgun. Kjallarinn, sem hefur
verið endurnýjaður í upprunalegum
anda, verður klassabúlla þar sem
boðið verður upp á uppistand, impro,
kabaretta og drag í hæsta gæðaflokki
auk þess sem leikhópurinn Kanarí
frumsýnir nýja grínsýningu í leik-
stjórn Guðmundar Felixsonar. Loftið
er hins vegar nýr vettvangur fyrir
formtilraunir, rannsóknir og nýsköp-
un í leikhúsinu þar sem ætlunin er að
þróa verk fyrir ungt fólk og með
virkri þátttöku þess í sköpunarferl-
inu,“ segir Magnús Geir og bendir á
að nú bjóði Þjóðleikhúsið fólki yngra
en 25 ára leikhúskort þar sem miðinn
sé á bíóverði til að auka aðgengi þess
að leikhúsinu óháð efnahag.
Í Kjallaranum verður í nóvember
hleypt af stokkunum nýju hádegis-
leikhúsi þar sem boðið verður upp á
25 mínútna langar sýningar. „Við
völdum fjögur verk úr um 250 inn-
sendum verkum til að setja upp í vet-
ur og þrjú fyrir næsta leikár. Þetta
eru eitursnjöll og auðmeltanleg verk
sprottin úr íslenskum samtíma,“ seg-
ir Magnús Geir, en verk vetrarins eru
Út að borða með Ester eftir Bjarna
Jónsson og Verkið eftir Jón Gnarr
sem Gréta Kristín Ómarsdóttir leik-
stýrir, en hún er jafnframt listrænn
stjórnandi bæði Kjallarans og Lofts-
ins; Heimsókn eftir Hildi Selmu Sig-
bertsdóttur sem Vigdís Hrefna Páls-
dóttir leikstýrir og Rauða kápan eftir
Sólveigu Eiri Stewart sem Hilmar
Guðjónsson leikstýrir. „Það er
ánægjulegt að geta gefið bæði nýjum
röddum og leikstjórum tækifæri, á
sama tíma og allir fremstu leikstjórar
landsins eru að leikstýra hjá okkur.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Okkar bíður mikil veisla“
Framúrskarandi vinkona, Nashyrningarnir, Jólaboðið og Kafbátur meðal sýninga Þjóðleikhússins
„Fjölbreytt og metnaðarfullt,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri um komandi leikár
Stoltur Magnús
Geir Þórðarson
þjóðleikhússtjóri.
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is