Morgunblaðið - 17.09.2020, Side 66

Morgunblaðið - 17.09.2020, Side 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Frédéric Boyer fer fyrir dagskrár- nefnd RIFF, Alþjóðlegrar kvik- myndahátíðar í Reykjavík, og ber ábyrgð á keppnisflokknum Vitr- unum sem tileinkaður er nýjum leikstjórum og efnilegum og er ýmist fyrsta eða önnur kvikmynd þeirra sýnd í flokknum. Ein myndanna hlýt- ur aðalverðlaun hátíðarinnar, Gyllta lundann. Boyer er einnig listrænn stjórn- andi kvikmynda- hátíðanna Tri- beca í New York og Les Arcs í Frakklandi. Þá hefur hann á ferli sínum einnig gegnt starfi aðaldagskrárstjóra þess hluta kvikmyndahátíðarinnar í Cannes sem nefnist Directors’ Fortnight. Frábært fólk Boyer er hinn hressasti þegar blaðamaður nær tali af honum rétt fyrir kvöldmat í París. Hann er spurður hvert ferlið sé þegar kem- ur að því að velja myndir á RIFF og segir hann dagskrárnefndina alltaf vinna náið saman. Valið sé því aldrei í höndum einnar mann- eskju. „Ég er að vinna með frá- bæru fólki,“ segir Boyer en hinir í nefndinni eru Hrönn Marinós- dóttir, Guðrún Helga Jónasdóttir, Ana Catala og Giorgio Gosetti en Gosetti gegndi áður þeirri stöðu sem Boyer gegnir nú. „Við horfum á margar kvikmyndir og ræðum þær okkar á milli, reynum að finna frekar nýlegar myndir, myndir sem sýndar hafa verið ný- verið á hátíðum, t.d. í Feneyjum, og reynum að hafa kynningar, annaðhvort á netinu eða á staðn- um, og „spurt og svarað“- sýningar,“ segir Boyer. Boyer segist hafa fengið þá hug- mynd að sýna heimildarmyndir um listamenn á hátíðinni í ár og er stoltur af því framtaki sínu. „Þetta eru myndir um listamenn og port- rett af þeim,“ útskýrir Boyer og nefnir m.a. mynd um ljósmynd- arann Helmut Newton. Mun sá flokkur nefnast „Innsýn í huga listamannsins“ og munu áhorf- endur fara í „ferðalag um sköpun áhrifaríkra listamanna – hvort sem það eru meistarar í hönnun og arkitektúr, umdeildir kvikmynda- gerðarmenn, víðfrægir ljósmynd- arar eða tónlistarfólk frá öllum heimshornum,“ svo vitnað sé beint í texta um flokkinn á vef RIFF. Alltaf að horfa á kvikmyndir Boyer hefur alltaf verið mikill áhugamaður um kvikmyndir og starfaði m.a. á vídeóleigu í París í 14 ár. „Hún var á sínum tíma stærsta vídeóleiga Evrópu, með 65.000 titla, og það var mjög spennandi að vinna þar, velja kvik- myndir á leiguna, ræða við við- skiptavini og ráðleggja þeim,“ seg- ir Boyer. Nú eru vídeóleigurnar svo gott sem horfnar og segir Bo- yer kvikmyndahátíðir fyrir vikið þeim mun mikilvægari. – Hversu margar kvikmyndir horfir þú á daglega yfir árið að meðaltali? Tvær á dag? „Miklu fleiri,“ svarar Boyer, „því ég er listrænn stjórnandi Les Arcs sem er haldin í desember og Tribeca og svo fer ég á fjölmargar kvikmyndahátíðir. Ég er alltaf að horfa á kvikmyndir, hef mikinn áhuga á þeim og það er því erfitt að telja hversu margar þær eru,“ segir Boyer og hlær innilega. Hann segir mikilvægt að hafa opinn huga og fagna hvers konar kvikmyndum frá ólíkum heims- hornum. Best sé að vita sem minnst áður en sýning hefst en auðvitað viti hann alltaf eitthvað um þær myndir sem hann velur að horfa á. „Dagskrárgerð er ekki bara spurning um smekk heldur er dagskráin eins og matseðill með forréttum, aðalréttum og eftir- réttum,“ bendir Boyer á. Gæta þurfi að því að dagskráin sé fjöl- breytt og ekki aðeins með kvik- myndasýningum heldur margs konar kvikmyndatengdum við- burðum. Getur verið þreytandi – Þetta kann að vera kjánaleg spurning en er ekki hætta á því, í þínu starfi, að þú verðir leiður á kvikmyndum? „Nei, þetta er alls ekki kjánaleg spurning, þetta er mjög góð spurning! Auðvitað erum við stundum þreytt af því við erum ekki alltaf að horfa á meistaraverk eða góðar kvikmyndir en við þurf- um alltaf á kvikmyndum að halda. Því verð ég að fara á milli landa, hitta kvikmyndagerðarmenn, fara á kvikmyndamarkaði og kynna mér líka verk í vinnslu,“ svarar Boyer. Starf hans felist einnig og ekki síst í endurgjöf, að gefa álit og velja og hafna. „Það geta verið fjölmargar ástæður fyrir því að maður segir nei,“ bendir Boyer á og að hinir listrænu stjórnendur hafi auðvitað ólíkan smekk. Hið óvænta mikilvægt – Yfir hvaða eiginleikum býr góð kvikmynd? „Það er auðvitað huglægt mat og fer líka eftir aðstæðum, t.d. hvort þú ert að horfa á kvikmynd með maka þínum, börnum eða einn og hvort þú ert niðurdreginn eða hress. Allt þetta skiptir máli. Kvikmynd sem þú sást fyrir 20 ár- um virkar öðruvísi á þig í dag,“ svarar Boyer. Frásögnin þurfi að vera nógu áhugaverð til að halda manni föngnum frá upphafi til enda og ákveðin gæði þurfi að vera fyrir hendi, m.a. þegar kem- ur að leikurum og samtölum. Margir ólíkir þættir þurfi að smella saman til að kvikmynd verði góð. „Svo er það hið óvænta, að koma fólki á óvart í stað þess að endurtaka eitthvað sem hefur margoft verið gert,“ segir Boyer og nefnir m.a. ofurhetjumyndir þar sem fylgt sé ákveðinni form- úlu og endurtekningum. „Ég kann vel að meta þegar kvikmynda- gerðarmaður býður mér í ferðalag um heim sem ég þekki ekki,“ bæt- ir Boyer við, „heldur mér föngn- um í frásögninni og færir mér listaverk.“ Óvissutímar – Nú hefur Covid-faraldurinn haft slæm áhrif á kvikmyndageir- ann á margan hátt, m.a. með lok- un kvikmyndahúsa, síðan fjölda- takmörkunum og töfum á kvikmyndatökum. Heldurðu að áhrifa þessa eigi eftir að gæta næstu ár? „Já, vissulega. Í fyrsta lagi vit- um við ekki hvað mun gerast á næsta ári og ég held að þetta snú- ist um samstöðu, að við förum aft- ur í bíó og styðjum þannig rekst- urinn og um leið kvikmynda- gerðarmenn,“ segir Boyer. Margt hafi breyst með Covid-19 og muni breytast, nú megi fólk t.d. ekki kyssast og faðmast og það eitt og sér muni breyta kvikmyndum næstu mánaða og ára. Kvik- myndagerðarmenn þurfi að laga sig að ýmsum breytingum og leita leiða til að halda listinni lifandi og fjölbreyttri sem fyrr. Boyer segist að lokum hlakka mikið til hátíðarinnar í Reykjavík, að hitta þar fyrir kvikmynda- gerðarmenn og kynna gestum þær gæðamyndir sem prýða dag- skrána. RIFF fer fram 24. september til 4. október og má finna allar upplýsingar um hátíðina á riff.is. Verðlaunamynd Úr Hirðingjalandi, Nomadland, sem hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á laugardaginn var. Hún verður sýnd á RIFF. Frances McDormand fer með aðalhlutverkið í myndinni. „Ég er alltaf að horfa á kvikmyndir“  Frédéric Boyer fer fyrir dagskrárnefnd RIFF og ber ábyrgð á Vitrunum  Starfaði á vídeóleigu í París í 14 ár  Mikilvægt að hafa opinn huga, segir Boyer  Skyggnst inn í huga listamanna Frédéric Boyer Rithöfundarnir Gyrðir Elíasson og Jón Kalman Stefánsson eru báðir til- nefndir til frönsku Médicis- bókmenntaverðlaunanna í ár, í flokki þýddra bókmennta, Prix Médicis étranger. Gyrðir er tilnefndur fyrir þýðingu á skáldsögunni Suður- gluggginn ( La Fenêtre au sud) og Jón Kalman fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin (Lumière d’été, puis vient la nuit) en báðar sögurnar eru nýlega komnar út á frönsku og hafa hlotið lof gagnrýnenda. Verðlaunin verða afhent í nóvember. Stofnað var til þeirra árið 1958 og eru þau meðal allra virtustu bókmenntavið- urkenninga sem veittar eru í Frakk- landi. Markmiðið með verðlaun- unum er að vekja athygli á og hylla framúrskarandi höfunda sem, eins og segir í reglum verðlaunanna, hafa enn ekki hlotið þá frægð sem hæfi- leikar þeirra verðskulda. Þess má geta að Auður Ava Ólafs- dóttir hreppti þessi verðlaun í fyrra fyrir þýðingu á skáldsögunni Ungfrú Ísland. Þrettán bækur eru tilnefndar til verðlaunanna í flokki þýddra bóka og á listanum eru meðal annars verk eftir Jeanine Cummins, Lucy Ell- mann, Yaa Gyasi, Colum McCann og Antonio Muñoz Molina. Fimmtán höfundar sem skrifa á frönsku eru síðan tilnefndir til verð- launanna fyrir besta franska skáld- verkið og athygli vekur að Emm- anuel Carrère er á listanum, einn þekktasti samtímahöfundur Frakka. Hann er tilnefndur fyrir skáldsög- una Yoga. Gyrðir og Jón Kalman tilnefndir í Frakklandi Jón Kalman Stefánsson Gyrðir Elíasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.