Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Frédéric Boyer fer fyrir dagskrár-
nefnd RIFF, Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík, og ber
ábyrgð á keppnisflokknum Vitr-
unum sem tileinkaður er nýjum
leikstjórum og efnilegum og er
ýmist fyrsta eða önnur kvikmynd
þeirra sýnd í
flokknum. Ein
myndanna hlýt-
ur aðalverðlaun
hátíðarinnar,
Gyllta lundann.
Boyer er einnig
listrænn stjórn-
andi kvikmynda-
hátíðanna Tri-
beca í New
York og Les
Arcs í Frakklandi. Þá hefur hann
á ferli sínum einnig gegnt starfi
aðaldagskrárstjóra þess hluta
kvikmyndahátíðarinnar í Cannes
sem nefnist Directors’ Fortnight.
Frábært fólk
Boyer er hinn hressasti þegar
blaðamaður nær tali af honum rétt
fyrir kvöldmat í París. Hann er
spurður hvert ferlið sé þegar kem-
ur að því að velja myndir á RIFF
og segir hann dagskrárnefndina
alltaf vinna náið saman. Valið sé
því aldrei í höndum einnar mann-
eskju. „Ég er að vinna með frá-
bæru fólki,“ segir Boyer en hinir í
nefndinni eru Hrönn Marinós-
dóttir, Guðrún Helga Jónasdóttir,
Ana Catala og Giorgio Gosetti en
Gosetti gegndi áður þeirri stöðu
sem Boyer gegnir nú. „Við horfum
á margar kvikmyndir og ræðum
þær okkar á milli, reynum að
finna frekar nýlegar myndir,
myndir sem sýndar hafa verið ný-
verið á hátíðum, t.d. í Feneyjum,
og reynum að hafa kynningar,
annaðhvort á netinu eða á staðn-
um, og „spurt og svarað“-
sýningar,“ segir Boyer.
Boyer segist hafa fengið þá hug-
mynd að sýna heimildarmyndir um
listamenn á hátíðinni í ár og er
stoltur af því framtaki sínu. „Þetta
eru myndir um listamenn og port-
rett af þeim,“ útskýrir Boyer og
nefnir m.a. mynd um ljósmynd-
arann Helmut Newton. Mun sá
flokkur nefnast „Innsýn í huga
listamannsins“ og munu áhorf-
endur fara í „ferðalag um sköpun
áhrifaríkra listamanna – hvort sem
það eru meistarar í hönnun og
arkitektúr, umdeildir kvikmynda-
gerðarmenn, víðfrægir ljósmynd-
arar eða tónlistarfólk frá öllum
heimshornum,“ svo vitnað sé beint
í texta um flokkinn á vef RIFF.
Alltaf að horfa á kvikmyndir
Boyer hefur alltaf verið mikill
áhugamaður um kvikmyndir og
starfaði m.a. á vídeóleigu í París í
14 ár. „Hún var á sínum tíma
stærsta vídeóleiga Evrópu, með
65.000 titla, og það var mjög
spennandi að vinna þar, velja kvik-
myndir á leiguna, ræða við við-
skiptavini og ráðleggja þeim,“ seg-
ir Boyer. Nú eru vídeóleigurnar
svo gott sem horfnar og segir Bo-
yer kvikmyndahátíðir fyrir vikið
þeim mun mikilvægari.
– Hversu margar kvikmyndir
horfir þú á daglega yfir árið að
meðaltali? Tvær á dag?
„Miklu fleiri,“ svarar Boyer,
„því ég er listrænn stjórnandi Les
Arcs sem er haldin í desember og
Tribeca og svo fer ég á fjölmargar
kvikmyndahátíðir. Ég er alltaf að
horfa á kvikmyndir, hef mikinn
áhuga á þeim og það er því erfitt
að telja hversu margar þær eru,“
segir Boyer og hlær innilega.
Hann segir mikilvægt að hafa
opinn huga og fagna hvers konar
kvikmyndum frá ólíkum heims-
hornum. Best sé að vita sem
minnst áður en sýning hefst en
auðvitað viti hann alltaf eitthvað
um þær myndir sem hann velur að
horfa á. „Dagskrárgerð er ekki
bara spurning um smekk heldur
er dagskráin eins og matseðill með
forréttum, aðalréttum og eftir-
réttum,“ bendir Boyer á. Gæta
þurfi að því að dagskráin sé fjöl-
breytt og ekki aðeins með kvik-
myndasýningum heldur margs
konar kvikmyndatengdum við-
burðum.
Getur verið þreytandi
– Þetta kann að vera kjánaleg
spurning en er ekki hætta á því, í
þínu starfi, að þú verðir leiður á
kvikmyndum?
„Nei, þetta er alls ekki kjánaleg
spurning, þetta er mjög góð
spurning! Auðvitað erum við
stundum þreytt af því við erum
ekki alltaf að horfa á meistaraverk
eða góðar kvikmyndir en við þurf-
um alltaf á kvikmyndum að halda.
Því verð ég að fara á milli landa,
hitta kvikmyndagerðarmenn, fara
á kvikmyndamarkaði og kynna
mér líka verk í vinnslu,“ svarar
Boyer. Starf hans felist einnig og
ekki síst í endurgjöf, að gefa álit
og velja og hafna. „Það geta verið
fjölmargar ástæður fyrir því að
maður segir nei,“ bendir Boyer á
og að hinir listrænu stjórnendur
hafi auðvitað ólíkan smekk.
Hið óvænta mikilvægt
– Yfir hvaða eiginleikum býr góð
kvikmynd?
„Það er auðvitað huglægt mat
og fer líka eftir aðstæðum, t.d.
hvort þú ert að horfa á kvikmynd
með maka þínum, börnum eða
einn og hvort þú ert niðurdreginn
eða hress. Allt þetta skiptir máli.
Kvikmynd sem þú sást fyrir 20 ár-
um virkar öðruvísi á þig í dag,“
svarar Boyer. Frásögnin þurfi að
vera nógu áhugaverð til að halda
manni föngnum frá upphafi til
enda og ákveðin gæði þurfi að
vera fyrir hendi, m.a. þegar kem-
ur að leikurum og samtölum.
Margir ólíkir þættir þurfi að
smella saman til að kvikmynd
verði góð.
„Svo er það hið óvænta, að
koma fólki á óvart í stað þess að
endurtaka eitthvað sem hefur
margoft verið gert,“ segir Boyer
og nefnir m.a. ofurhetjumyndir
þar sem fylgt sé ákveðinni form-
úlu og endurtekningum. „Ég kann
vel að meta þegar kvikmynda-
gerðarmaður býður mér í ferðalag
um heim sem ég þekki ekki,“ bæt-
ir Boyer við, „heldur mér föngn-
um í frásögninni og færir mér
listaverk.“
Óvissutímar
– Nú hefur Covid-faraldurinn
haft slæm áhrif á kvikmyndageir-
ann á margan hátt, m.a. með lok-
un kvikmyndahúsa, síðan fjölda-
takmörkunum og töfum á
kvikmyndatökum. Heldurðu að
áhrifa þessa eigi eftir að gæta
næstu ár?
„Já, vissulega. Í fyrsta lagi vit-
um við ekki hvað mun gerast á
næsta ári og ég held að þetta snú-
ist um samstöðu, að við förum aft-
ur í bíó og styðjum þannig rekst-
urinn og um leið kvikmynda-
gerðarmenn,“ segir Boyer. Margt
hafi breyst með Covid-19 og muni
breytast, nú megi fólk t.d. ekki
kyssast og faðmast og það eitt og
sér muni breyta kvikmyndum
næstu mánaða og ára. Kvik-
myndagerðarmenn þurfi að laga
sig að ýmsum breytingum og leita
leiða til að halda listinni lifandi og
fjölbreyttri sem fyrr.
Boyer segist að lokum hlakka
mikið til hátíðarinnar í Reykjavík,
að hitta þar fyrir kvikmynda-
gerðarmenn og kynna gestum þær
gæðamyndir sem prýða dag-
skrána.
RIFF fer fram 24. september
til 4. október og má finna allar
upplýsingar um hátíðina á riff.is.
Verðlaunamynd Úr Hirðingjalandi, Nomadland, sem hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á
laugardaginn var. Hún verður sýnd á RIFF. Frances McDormand fer með aðalhlutverkið í myndinni.
„Ég er alltaf að horfa á kvikmyndir“
Frédéric Boyer fer fyrir dagskrárnefnd RIFF og ber ábyrgð á Vitrunum Starfaði á vídeóleigu
í París í 14 ár Mikilvægt að hafa opinn huga, segir Boyer Skyggnst inn í huga listamanna
Frédéric Boyer
Rithöfundarnir Gyrðir Elíasson og
Jón Kalman Stefánsson eru báðir til-
nefndir til frönsku Médicis-
bókmenntaverðlaunanna í ár, í flokki
þýddra bókmennta, Prix Médicis
étranger. Gyrðir er tilnefndur fyrir
þýðingu á skáldsögunni Suður-
gluggginn ( La Fenêtre au sud) og
Jón Kalman fyrir Sumarljós, og svo
kemur nóttin (Lumière d’été, puis
vient la nuit) en báðar sögurnar eru
nýlega komnar út á frönsku og hafa
hlotið lof gagnrýnenda. Verðlaunin
verða afhent í nóvember. Stofnað
var til þeirra árið 1958 og eru þau
meðal allra virtustu bókmenntavið-
urkenninga sem veittar eru í Frakk-
landi. Markmiðið með verðlaun-
unum er að vekja athygli á og hylla
framúrskarandi höfunda sem, eins
og segir í reglum verðlaunanna, hafa
enn ekki hlotið þá frægð sem hæfi-
leikar þeirra verðskulda.
Þess má geta að Auður Ava Ólafs-
dóttir hreppti þessi verðlaun í fyrra
fyrir þýðingu á skáldsögunni Ungfrú
Ísland.
Þrettán bækur eru tilnefndar til
verðlaunanna í flokki þýddra bóka
og á listanum eru meðal annars verk
eftir Jeanine Cummins, Lucy Ell-
mann, Yaa Gyasi, Colum McCann og
Antonio Muñoz Molina.
Fimmtán höfundar sem skrifa á
frönsku eru síðan tilnefndir til verð-
launanna fyrir besta franska skáld-
verkið og athygli vekur að Emm-
anuel Carrère er á listanum, einn
þekktasti samtímahöfundur Frakka.
Hann er tilnefndur fyrir skáldsög-
una Yoga.
Gyrðir og Jón Kalman
tilnefndir í Frakklandi
Jón Kalman
Stefánsson
Gyrðir
Elíasson