Morgunblaðið - 17.09.2020, Side 68

Morgunblaðið - 17.09.2020, Side 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 Leikhópurinn Reykjavík ensemble tekur aftur upp í Tjarnarbíói í kvöld, fimmtudagskvöld, leiksýn- inguna Polishing Iceland eða Ísland pólerað. Sýningin hefst kl. 20.30. Sýningin var frumsýnd 11. mars síðastliðinn og hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda en var lokað strax að lokinni frumsýningu vegna kórónuveirufaraldursins. Verkið byggist á sjálfsævisögu- legu smásagnasafni Ewu Marcinek í leikgerð og er í leikstjórn Pálínu Jónsdóttur. Um er að ræða, eins og segir í tilkynningu, „sögu pólsks innflytjanda og þær áskoranir sem felast í því að samlagast íslensku samfélagi. Sýningin er skynörvandi líkamsleikhús sem leikur á mærum gamans og alvöru í ringulreið leit- arinnar að mannlegum tengslum og skilningi, umfram orðin ein“. Skynörvandi Leikverkið segir athyglis- verða sögu innflytjanda til Íslands. Polishing Iceland sýnt að nýju Út er komin bókin Hamir eftir myndlistarmanninn Önnu Jóa. Í dag, fimmtudag, kl. 17 býður Anna til útgáfuhófs samhliða opnun sýn- ingarinnar „Fjörufundir“ í Nes- stofu á Seltjarnarnesi. Verkin í bókinni Hamir fjalla um klæði og hami hvers konar og tengsl þeirra við híbýli og tímans rás. Hugsanir listamannsins um tímann og staði fléttast saman við gerð myndanna og rata á blað sem ljóðrænir textar. Textarnir birtast einnig í enskri þýðingu Söruh Brownsberger og í bókinni er eftir- máli eftir Jóhannes Dagsson á báð- um málunum. Verk úr bókinni verða til sýnis í Nesstofu ásamt ný- legum verkum Önnu sem innblásin eru af ströndinni og ummerkjum um sérstök tengsl menningar og náttúru sem finna má í fjöru. Sýn- ingin verður opin nú föstudag til sunnudags, kl. 13 til 17 alla daga. Hamskipti IV Blýantsteikning frá 2004 eftir Önnu Jóa, höfund bókarinnar. Hamir Önnu Jóa – bók og sýning Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tæring nefnist nýtt sviðslistaverk sem frumsýnt verður á Hælinu, setri um sögu berklanna á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit, laugardaginn 19. september kl. 19. „María átti hug- myndina að verkefninu og fékk mig til að leikstýra og Vilhjálm til að skrifa,“ segir Vala Ómarsdóttir leik- stjóri Tæringar og vísar þar til Maríu Páls- dóttur, leik- og athafnakonu og stofnanda Hæl- isins. Verkið er sett upp í sam- starfi við Leik- félag Akureyrar. „Verkið er inn- blásið af sögu berklasjúklinga sem dvöldu á Hælinu á árunum 1930-60,“ segir Vala og bendir á að leikhópurinn hafi sem efnivið nýtt dagbækur fyrrum sjúklinga og bréf sem skrifuð voru til ástvina utan Hælisins og Maríu hafi áskotnast á umliðnum árum. „Þannig eru öll at- riðin byggð á raunverulegum at- burðum þótt verkið í heild sinni sé skáldskapur,“ segir Vala og tekur fram að sýningin sé unnin sér- staklega inn í sýningarrýmið sem María og Auður Ösp Guðmunds- dóttir, leikmynda- og búningahönn- uður sýningarinnar, hafa útbúið. „Þar er leiknum senum blandað við vídeóverk og hljóðverk og einnig fara einhver atriði fram utandyra sem áhorfendur sjá út um glugga,“ segir Vala, en María Kjartansdóttir vídeólistakona og ljósmyndari og Biggi Hilmars tónlistarmaður eru meðal listrænna stjórnenda sýning- arinnar. Sterkari upplifun með fáum Til að virða eins metra regluna sem gildir vegna yfirstandandi kófs komast einungis tíu áhorfendur á hverja sýningu og aðstandendur árétta að öllum reglum um sótt- varnir verði framfylgt. „Við lögðum upp með að hafa 20 áhorfendur á hverri sýningu til að tryggja þá nánd sem verkið krefst. Vegna kófsins þurftum við að fækka áhorfendum niður í tíu, en það kemur alls ekki að sök. Fyrir vikið verður upplifun áhorfenda enn sterkari og okkur gefst tækifæri til að sýna oftar, sem er bara skemmtilegt. Sýningin er „site-specific“ sem þýðir að áhorf- endur eru leiddir milli ólíkra rýma þar sem ólíkar minningar og myndir birtast sem á endanum skapa eina heild,“ segir Vala og tekur fram að verkið sé unnið sem samsköpunar- sýning, en leikhópinn skipa þau Árni Beinteinn, Birna Pétursdóttir, Kol- brún Lilja Guðnadóttir, Sjöfn Snorradóttir, Stefán Guðlaugsson, Ronja Sif Björk og Sigríður Birna Ólafsdóttir. Að auki leika Karítas Auðunsdóttir, Theódór Árnason og aðstandendur verksins í víd- eóverkum. Aðspurð segir Vala að vinnan við Tæringu hafi verið vel á veg komin þegar kófið brast á snemma árs, en merkilegt hafi verið að sjá hliðstæð- urnar birtast milli sjúkdómanna tveggja, þ.e. berklanna og kórónu- veirunnar, með tilheyrandi ótta við smit og einangrun þeirra sem smit- ast í sóttvarnaskyni. „Við drögum samtímann markvisst inn í sýn- inguna. Það hefur verið mjög lær- dómsríkt að skoða hvernig berkla- sjúklingar tókust á við veikindi sín og óvissuna sem þeim fylgdu,“ segir Vala og bendir á að einangrun sjúk- linga frá ástvinum hafi tekið mikið á. Líf tímabundið sett á pásu „Við lestur dagbóka og bréfa sjúk- linga má samt sjá hversu æðruleysið var sterkt,“ segir Vala og rifjar upp að í sumum tilvikum hafi sjúklingar þurft að dvelja á Hælinu í nokkur ár meðan þeir voru að ná bata. „Mér hefur fundist áhugavert að skoða fé- lagslegu og andlegu hlið sjúklinga, en ekki bara veikindi þeirra. Bréfin eru uppfull af rómantík, lífsvilja og minningum, en segja má að veik- indin setji líf sjúklinga tímabundið á pásu,“ segir Vala. Undirtitill Tæringar er „Með lífið í augunum og dauðann í brjóstinu“ og segir Vala það vísa til þess að allir sjúklingar báru þá von að lifa þrátt fyrir veikindi sín. „Þótt umfjöllunar- efnið sé á köflum þungt, einkennist verkið líka af fegurð og rómantík og jafnvel húmor. Við skoðum hvernig manneskjan lifir í voninni. Það er von okkar að sýningin snerti við áhorfendum, enda unnum við þessa sýningu fyrst og fremst út frá hjart- anu,“ segir Vala. Allar nánari upp- lýsingar um verkið og sýningardaga má sjá á vefnum mak.is. „Við mun- um sýna verkið eins lengi og eftir- spurn gefur tilefni til.“ Ljósmynd/María Kjartansdóttir Blanda „Þar er leiknum senum blandað við vídeóverk og hljóðverk,“ segir Vala Ómarsdóttir, leikstjóri Tæringar. Innblásið af sögu sjúklinga  Sviðslistaverkið Tæring frumsýnt á Hælinu  Dagbækur og bréf berkla- sjúklinga veittu innblástur  Aðeins tíu áhorfendur komast á hverja sýningu Vala Ómarsdóttir Taflmenn – sögumenn – misindis- menn er yfirskrift kvöldgöngu á vegum Borgarbókasafnsins sem verður farin í kvöld um slóðir sagna Braga Ólafssonar rithöfundar. Lagt verður upp við Loftskeyta- stöðina á Brynjólfsgötu 5 kl. 20 og lýkur göngunni um kl. 21.30. Kristín Svava Tómasdóttir sagn- fræðingur og Guðrún Lára Péturs- dóttir bókmenntafræðingur ganga með gestum um söguslóðir í Vesturbænum og staldra við hús, glugga, götur og undirgöng sem leika mikilvægt hlutverk í skáld- sögum, smásögum og ljóðum en flest skáldverk Braga Ólafssonar eiga það sameiginlegt að gerast á kunnuglegum slóðum í Reykjavík. Morgunblaðið/Einar Falur Skáldið Sögur Braga Ólafssonar gerast á kunnuglegum slóðum í Reykjavík. Gengið um sögu- slóðir verka Braga Píanóleikarinn Ingi Bjarni stendur á næst- unni fyrir sex viðburða tón- leikaröð í menn- ingarhúsinu Hannesarholti við Grundarstíg og kallar þá „In duo with“. Ingi Bjarni fær þessi kvöld til sín gesti og í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20 er það trommarinn Magnús Trygvason Eliassen. Magnús hefur komið víða við og gert margt á sínum ferli. Hann hefur leikið með ADHD, ami- inu, Moses Hightower, K-tríó og fleirum. Eftir spjall um tónlistina og ferilinn leika þeir Ingi Bjarni og Magnús saman. Magnús gestur Inga Bjarna Magnús Trygvason Eliassen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.