Morgunblaðið - 17.09.2020, Síða 72

Morgunblaðið - 17.09.2020, Síða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is mánudaga - sunnudaga 12-18 COMO LOFTJÓS. Glær skermur. Ø30 cm. 9.995 kr. NÚ 7.496 kr. VENICE VEGGLJÓS. Svart eða hvítt. H28,5 x B13,5 cm. 12.995 kr.NÚ 9.746 kr. RICO GÓLFLAMPI H210 x Ø42 cm. 24.995 kr. NÚ 17.497 kr. SPAraðu 7.498 Nú17.497 SPAraðu 3.249 Nú9.746 SPAraðu 2.499 Nú7.496 25-50% Sparadu- af öllum ljósum 10. - 28. september 25% af perum Sparadu- 20% af kertum Sparadu- LYSS BORÐLAMPI. H50 x B18 cm. 34.995 kr. NÚ 24.497 kr. GRACE LOFTLJÓS. Ø23 cm. 29.995 kr. NÚ 22.496 kr. SPAraðu 10.498 Nú24.497 SPAraðu 7.499 Nú22.496 Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson mun í kvöld kl. 20 leika píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven með Sin- fóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu. Víkingur mun einnig leika stutt verk eftir Philip Glass, Opening úr Glassworks fyrir píanó og strengi. Upptaktur tónleikanna er lokaþáttur úr fyrstu sinfóníu Ludwigs van Beethoven en í ár eru liðin 250 ár frá fæð- ingu tónskáldsins og heldur hljómsveitin upp á tíma- mótin með þrennum tónleikum í september. Hljóm- sveitarstjóri er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri SÍ. Tónleik- arnir verða í beinni sjónvarps- útsendingu á RÚV og útvarpað á Rás 1 en miðasala fer fram á sin- fonia.is og í miðasölu Hörpu. Vík- ingur mun einnig halda tón- leika í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 25. október kl. 20 en tilefnið er 10 ára af- mæli Hofs og 50 ára afmæli Listahátíðar í Reykjavík. Víkingur Heiðar leikur með SÍ í kvöld og í Hofi 25. október FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 261. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Það er skrítið að ég virðist geta komið úr meiðslum og kastað langt. Það hefur gerst áður þótt ég væri ekki í keppnisformi,“ segir Guðni Valur Guðnason, kringlu- kastari úr ÍR, í samtali við Morgunblaðið í dag en í gær náði hann fimmta lengsta kasti í í greininni í heiminum í ár. Guðni Valur kastaði kringlunni 69,35 metra og stórbætti Íslandsmet Vésteins Hafsteinssonar sem staðið hafði frá árinu 1989. Vésteinn kastaði þá 67,74 metra. Frá 1. desember verður hægt að reyna við ól- ympíulágmarkið en það er 66 metrar. »63 Stórbætti eitt elsta Íslandsmetið í frjálsum íþróttum í Laugardalnum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fimm sýningar eru í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi og hafa þær dregið marga að í sumar. „Ís- lendingar hafa verið duglegir að koma og hafa komið okkur skemmti- lega á óvart,“ segir Guðrún Jóns- dóttir, forstöðumaður safnsins frá 2007. Grunnsýningarnar, „Börn í 100 ár“ og „Ævintýri fuglanna“, eru sér- staklega hannaðar. „Vegna sam- vinnu við hönnuðinn Snorra Frey Hilmarsson hafa þær unnið sig áfram inn í framtíðina,“ segir Guð- rún og vísar til þess að þær tali sterkt til allra vegna jafnræðis og al- þjóðahyggju. Á Barnasýningunni eru myndir af fólki frá öllu landinu. Guðrún segir að hugmyndin með sýningunni hafi verið að höfða til alþjóðlegrar hug- sjónar, sameiginlegs menningararfs og sameiginlegs eðlis mannsins. Því hafi verið ákveðið að hafa myndirnar, sem bera uppi sýninguna, frá öllu landinu. Það hafi vakið athygli, ekki síst útlendinga. Þeir skilji ekki hvers vegna fólk gefi svona persónulegar myndir á söfn og eins furði þeir sig á fjölda mynda af alþýðu fólks. „Út- lendingar eru mjög hrifnir af þessu, sjá hérna daprar og glaðar stundir, nærfærna mynd af þjóðinni.“ Þeir finni samkennd með myndunum. „Með því að segja frá börnum sér- staklega er eiginlega verið að segja að börn eru alls staðar eins.“ Guðrún segir að aðkoma Snorra Freys að sýningunum, djúp hugsun hans um sameiginlega hætti og mikl- ar breytingar á lífi okkar skili sér vel til gesta. „Fólk frá öllum heiminum finnur samsvörun í sýningunum.“ Guðrún segir að þegar til dæmis skólahópar komi staldri hún jafnvel við eina mynd og segi krökkunum frá lífinu á bak við hana. Athygli vekur að engin rafræn leiðsögn er í boði. Guðrún segir það vísvitandi gert. „Okkur fannst tækn- in ekki eiga við þegar verið er að lýsa 20. öldinni á Íslandi. Við vildum skapa kyrrlátt andrúmsloft, þar sem væru gesturinn, sýningargripir og myndir. Ekkert sem truflaði. Friður frá erlinum.“ Tvær skammtímasýningar voru settar upp í sumar. Ljósmyndasýn- ing Borgfirðingsins Helga Bjarna- sonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, „353 andlit“, sem verður tekin niður 22. september, og „Saga úr sam- félagi“, myndir af Eygló Lind Egils- dóttur í Borgarnesi í ýmsum bún- ingum, sem hún fór í til að létta lund barna og barnabarna í samkomu- banninu í vor. Sýning um harmleik- inn 1936, þegar franska rannsókn- arskipið Pourquoi pas strandaði við Straumfjörð hefur verið uppi und- anfarin fjögur ár. Auk þess eru reglulega listsýningar í svonefndum Hallsteinssal. „Við reynum að vinna þétt með samfélaginu í sýningarhaldi tímabundinna sýninga,“ útskýrir Guðrún. „Okkar starfsheimur er stór.“ Íslendingar hafa lítið farið til út- landa vegna kórónuveirufaraldursins og ferðuðust innanlands í sumar. Safnið naut góðs af því. Guðrún telur að fólk hafi jafnframt haft meiri tíma en áður, verið rórra. „Þegar skapast meiri ró skapast meiri þörf fyrir menningu og andlega næringu sem felst í því að auka við þekkinguna og skoða sögu lands og þjóðar.“ Börn alls staðar eins Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Sögur Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður segir frá því sem fyrir augu ber.  Áhugaverðar sýningar í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgar- nesi  Saga á bak við hverja mynd  Friður, ró og menning Staðan Mynd segir margt, jafnvel möguleika á taflborðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.