Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Síða 12
V estast í Vesturbænum, í fallegu hvítu steinhúsi, býr sjónvarps- konan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir ásamt manni sínum Hauki Inga Guðnasyni og fjórum börnum á aldrinum eins til tíu ára. Ragnhildur býður upp á dásemdarkaffi við borðstofu- borðið en húsið er afar smekklega innréttað og allt er á sínum stað. Blaðamaður undrar sig á því hvernig hægt sé að halda heimilinu svona hreinu og fínu með öll þessi börn. Það virðist ekki vera mikið mál, enda viðurkennir Ragn- hildur að hún þoli ekki drasl. Það kemur svo í ljós þegar líður á viðtalið að Ragnhildi er mikið í mun að gera allt vel sem hún tekur sér fyrir hendur; hvort sem það tengist vinnu hjá RÚV, leik í bíómyndum, að skrifa bók eða því sem henni finnst mikilvægast; uppeldi á börnum sínum. Hún gefur sig alla í verkin, stóru og smáu. Tveir drengir bættust í hópinn Það var í mars á síðasta ári sem fjölskyldan stækkaði heldur betur þegar tvíburadrengir bættust í hópinn. „Þótt oft hafi nú verið líf og fjör á heimliinu þá má segja að frá þessum tíma höfum við ekkert verið í vandræðum með dauða tímann,“ segir Ragnhildur sem hefur nýlega hafið aftur störf hjá RÚV eftir fæðing- arorlof. „Fyrsta árið í lífi tvíburaforeldra er skilj- anlega strembið. Lítill svefn og að nægu að huga. Þetta hefur þó gengið framar vonum en það hefur verið mikil áskorun að samþætta vinnu og fjölskyldulífið eftir orlof. Eins og flestir foreldrar vita getur reynst þrautinni þyngra að fá dagvistun að loknu orlofi. Hér í Vesturbænum eru allir leikskólar fullir og bið- listinn langur hjá dagmömmum. Í níu mánuði höfum við, eins og margir aðrir, þurft að stilla upp vaktaplani á sunnudagskvöldum til að redda pössun fyrir vikuna,“ segir Ragnhildur, sem segir drengina nú loks hafa fengið pláss hjá dagmömmu og eru þeir í aðlögun. „Þetta hefur valdið mestu streitunni; að hafa ekki vistun fyrir börnin á vinnutíma. Það vant- ar betri úrræði í dagvistunarmálum í Reykja- vík, það er á hreinu. Það bjargaði hins vegar öllu að mæta mikilli velvild hjá mínum vinnu- veitanda eftir að tveir drengir bættust í systk- inahópinn.“ Man ekkert eftir heilu ári Ragnhildur er fædd og uppalin í Keflavík, með viðkomu í Danmörku í fjögur ár, þar sem móð- ir hennar og nafna, Ragnhildur Steinunn, var í námi ásamt föður hennar. „Mamma var menntaður tækniteiknari og pabbi, Jón Þór Harðarson, er véltæknifræð- ingur og meistari í bifvélavirkjun. Hann starf- aði lengst af hjá ÍSAL í Straumsvík. Ég var lengi einbirni en eignaðist svo hálfsystur, Telmu Karen, sem er þrettán ára. Hún er stór hluti af okkar fjölskyldu, það má eiginlega segja að hún sé eins og okkar fimmta barn.“ Ragnhildur var aðeins sjö ára þegar móðir hennar lést eftir baráttu við krabbamein. „Mamma var bara 27 ára þegar hún lést, og pabbi orðinn ekkill 28 ára. Hún fékk Hodkins- krabbamein, en nú orðið er hægt að með- höndla sjúkdóminn með góðum árangri og því hefði hún líklega lifað ef þetta hefði gerst í dag,“ segir hún. Hvað manstu frá þessum tíma? „Það er erfitt að vita hvað er raunveruleg minning en ég man eftir ótrúlega góðri mömmu og þó að langt sé um liðið þá finnst mér ennþá svolítið erfitt að tala um þetta, sér- staklega eftir að ég eignaðist sjálf börn,“ segir Ragnhildur. „Þrátt fyrir að vera ung áttaði ég mig að ein- hverju leyti á veikindum hennar. Minningin um það þegar mér var tilkynnt að hún væri dá- in er enn ljóslifandi. Ég man þéttingsfast faðmlag en eftir það ekkert. Ég man ekki eftir jarðarförinni né neinu öðru næsta árið. Mér finnst ekki ólíklegt að ég hafi fengið áfall,“ seg- ir hún og segir tímana vissulega hafi verið öðruvísi í þá daga og minna talað við börn um sorg og missi. „Við vorum því bara tvö eftir, ég og pabbi, og hann elur mig einn upp. Ég var fljótt mjög sjálfstæð enda gerði ég mér grein fyrir því að við pabbi þyrftum að standa saman til að kom- ast í gegnum þetta. Eitt af því dýrmætasta sem pabbi kenndi mér er að maður uppsker eins og maður sáir og það hafa svo oft reynst orð að sönnu,“ segir hún. „Það er svo nokkuð mörgum árum seinna sem pabbi eignast systur mína. Þau búa hér rétt hjá þannig að það er mikill samgangur á milli húsa og mjög kært samband, enda á ég alveg frábæran pabba.“ Skoraði fyrir mig mark Ástin kviknaði strax á unglingsárum og hafa þau Haukur Ingi og Ragnhildur verið saman síðan þá. „Ég æfði bæði fimleika og körfubolta og valdi svo fimleikana sem ég æfði alveg til tví- tugs,“ segir Ragnhildur en það voru einmitt íþróttirnar sem leiddu táningana saman. „Ég var bara fimmtán og hann að verða átján þegar við kynntumst. Það var auðvitað í íþróttahúsinu þar sem hann var á fótboltaæf- ingu en ég á fimleikaæfingu,“ segir hún og upplýsir að þau hafi þá fylgst með hvort öðru úr fjarlægð í einhvern tíma. „Svo fékk ég skilaboð frá vini hans um að ég ætti að mæta á næsta úrvalsdeildarleik því hann ætlaði að skora fyrir mig. Hann stóð við stóru orðin og þá var þetta bara komið,“ segir Ragnhildur og brosir. Haukur var efnilegur fótboltamaður og fljótlega eftir að þau kynntust fór hann til Englands, á samning hjá Liverpool. „Ég fór þá út til hans af og til og flutti svo til Englands þegar ég átti ár eftir af framhalds- skólanunum. Við fluttum svo heim og fórum bæði í háskólanám,“ segir hún. Ragnhildur segist fljótt hafa vitað að Hauk- ur væri maðurinn í lífi hennar. „Hann er einstakur. Við erum ólík en samt lík og ég gæti ekki hugsað mér betri lífs- förunaut.“ Eldey kom í draumi Ragnhildur ber nafn móður sinnar, en fleiri konur í ættinni bera þetta mikla og sterka nafn. „Amma mín og langalangamma hétu líka Ragnhildur Steinunn,“ segir hún og brosir. Sjálf á hún eina stúlku sem fékk nafnið Eld- ey. Mögulega „neyðast“ þau hjón til að eignast eina stúlku í viðbót til þess að rjúfa ekki hefð- ina, en Ragnhildur segir góða ástæðu fyrir nafngiftinni á dótturinni. „Eldey var eina nafnið sem ég var búin að viðra við manninn minn þegar ég var ólétt. Mér fannst nafnið sterkt og fallegt en súlu- byggðin Eldey blasir við frá Reykjanesinu. Svo hringir mágkona mín einn daginn og seg- ist hafa dreymt að ég gengi með stúlku og ég hafi skírt hana nafni sem hún hafði aldrei áður heyrt, Eldey. Það leið næstum yfir mig. Ég hafði engum sagt frá þessum hugleiðingum mínum, nema manninum mínum. Ég þorði ekki annað en að hlusta á draum mágkonu minnar. Þannig að það kom aldrei neitt annað til greina en að skíra hana Eldeyju, ef það yrði stelpa.“ Tvíburar í felum Ragnhildur og Haukur giftu sig árið 2018 á fal- legum stað á Ítalíu en þau hafði lengi dreymt um brúðkaup á erlendri grundu, innan um blóm og falleg tré. „Við fundum stað í hæðunum rétt fyrir utan Verona. Í brúðkaupinu voru aðeins nánustu vinir og ættingjar. Ég er algjör blóma- og trjáaunnandi og þarna fann ég garð sem meðal annars er notaður við kennslu í garðyrk- jufræðum. Umhverfið heillaði okkur undir eins Að taka þátt í eigin tilveru Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er á réttri hillu sem aðstoðardag- skrárstjóri sjónvarps hjá RÚV en hún á að baki langan og fjöl- breyttan feril í sjónvarpi. Dugnaður og þrjóska einkennir Ragn- hildi, en hún segir mikilvægt að drekkja sér ekki í vinnu. Hamingja fjölskyldunnar er nefnilega ávallt í fyrsta sæti. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Ragnhildur Steinunn missti móður sína aðeins sjö ára gömul og segist ekki muna neitt í heilt ár eftir and- lát hennar. Hún fékk ástríkt og gott uppeldi hjá föður sínum en finnst enn erfitt að tala um missinn. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.9. 2020

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.