Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Page 15
Afvegaleiðir lesendur Upp á trúverðugleika bókanna er mikilvægt að halda staðreyndum vel til haga og sannreyna upplýsingar, rétt eins og í blaðamennskunni. „Það er hins vegar ólíkt með þessu tvennu að í glæpasögunum þarf að vera visst af fölskum upplýsingum til að afvegaleiða lesandann. Til að byrja með hafði ég samviskubit yfir þessu en hef vanist því núna og afvegaleiði því mína lesendur kinnroðalaust núorðið.“ Aftur hlær hún. Hugmyndir knýja dyra á öllum tímum, ekki bara á milli 9 og 17 á daginn. Það á bæði við um rithöfunda og blaðamenn. „Stundum er maður í miðjum samtölum og þarf að biðjast forláts og fara afsíðis til að punkta niður. Svo er und- irmeðvitundin auðvitað sífellt að störfum og fyrir kemur að maður sefur ekki vel – meðan hugmyndirnar krauma í manni. Meðan það er samvinna að taka viðtal þá má helst ekki segja neinum neitt meðan verið er að skrifa bók. Maður dregur tennurnar úr bókinni ef maður talar of mikið um hana.“ Og þegar bók er búin og komin út er hún einmitt það – búin og komin út. „Þá minnkar áhugi höfundarins strax á henni. Hann getur ekkert meira gert, nú verður bókin bara að spjara sig sjálf.“ – Hvað með framhaldið? Eigum við von á fleiri bókum um Ölmu Jónsdóttur blaðamann? „Eftir Barnsránið, sem kom út í fyrra, velti ég fyrir mér hvort Alma mætti ekki fara að hvíla sig. Hún togar hins vegar alltaf í mig, þannig að það er alveg raunhæfur möguleiki að við eigum eftir að heyra meira af henni. Ég kann vel við þessar þriðjupersónufrásagnir og raunar betur en að skrifa í fyrstu persónu, eins og ég gerði í tveimur fyrstu skáldsög- unum mínum sem eru ástar- og lífsreynslu- sögur. Ég reikna því með að halda áfram á sömu nótum. Hafa skal það sem skemmtilegra reynist!“Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 13.9. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Heyrnarþjónusta í alfaraleið Heyrðu umskiptin með háþróuðum ReSound gæðaheyrnartækjum. Margir verðflokkar, SÍ niðurgreiðir heyrnartæki. Heyrnargreining, ráðgjöf og heyrnartæki til reynslu afgreidd samdægurs.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.