Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Page 29
– Þið hafi væntanlega lært
margt á þessum fyrsta vetri?
„Ekki spurning. Það er auðvitað
snúið að fara af stað með þjóðar-
sportið á nýjum stað. Það tekur
áhorfendur alltaf tíma að venjast
nýju fólki og nýjum röddum. Á
heildina litið held ég hins vegar að
þetta hafi bara gengið ljómandi
vel hjá okkur í fyrra; alla vega
fengum við meira lof en last. Okk-
ur tókst að koma Enska boltanum
inn á 50 þúsund heimili á Íslandi,
sem eru tölur sem aldrei hafa sést
áður, þannig að við getum ekki
verið annað en stolt af okkar
framlagi.“
Sjálfur segist hann kunna ágæt-
lega við sig í sjónvarpi. „Ég kann
ekkert annað en að tala, hvort sem
það er gegnum sjónvarp eða lykla-
borð, þannig að ekki stendur á
minni þjónustu meðan einhver
nennir að hlusta á mig.“
Spennan á toppi deildarinnar
var engin á liðnu tímabili; Liver-
pool stakk öll önnur lið af fyrir
áramót. „Ég veit að Púlarar vilja
ekki heyra það en ég verð samt að
vona að það verði meiri spenna í
þessu í vetur. Það er ómögulegt að
vera ár eftir ár með lið sem ber
höfuð og herðar yfir önnur. Ég
trúi ekki öðru en að Manchester
City, Manchester United og
Chelsea ætli að gera eitthvað í því.
Alla vega hlýtur City að ætla sér
að elta Liverpool.“
– Hverjir verða meistarar í vet-
ur, ef ég þrýsti þér upp við vegg?
„Ef þú þrýstir mér upp við vegg
þá verð ég að segja Liverpool. Ég
er gríðarlegur aðdáandi Jürgens
Klopps og hef fylgst með honum
lengi. Hann gerði mig til dæmis að
Dortmund-aðdáanda á sínum tíma.
Klopp er stórkostlegur þjálfari og
takist honum að halda hungrinu í
þessum hópi leikmanna, án þess
að kaupa nánast neitt, fer hann í
sögubækur sem varla nokkur mað-
ur þorir að skrifa.“
Pressa á Lampard
Að sögn Tómasar Þórs verður
gríðarleg pressa á Frank Lamp-
ard hjá Chelsea í vetur. „Hann
fékk algjöran vinnufrið með ungt
lið í fyrra og gerði vel en eftir að
hafa verið stórtækur á leik-
mannamarkaði í sumar verður
hann að skila árangri. Roman
Abramovich er nákvæmlega sama
hvort þú heitir Frank Lampard
eða Guðjón Þórðarson, ef þú skilar
ekki árangri þá er þér bara spark-
að.“
Hann segir þetta af slíkri sann-
færingu að ég er sjálfur hér um
bil staðinn upp og genginn út með
pokann minn.
„Að því sögðu þá er ég mjög
spenntur fyrir Chelsea-liðinu í vet-
ur, sérstaklega fram á við. Ég hef
áfram áhyggjur af vörn og mark-
vörslu en fram á við verða þeir
rosalega flottir og hafa burði til að
skora mörg mörk í leik.“
Tómas Þór spáir Manchester
United líka góðu gengi en sér þó
hættumerki í þeim herbúðum.
„Fyrstu ellefu hjá Manchester
United eru á pari við fyrstu ellefu
hjá Liverpool og City en menn eru
komnir fram á bjargbrúnina í
gæðum þegar komið er að fjór-
tánda og fimmtánda manni. Þegar
Ole Gunnar þarf að gera miklar
breytingar á liðinu þá er hann í
vandræðum.“
Ég lauma Arsenal bakdyra-
megin að Tómasi Þór en hann
stendur fast í ístaðið. „Arsenal
verður hvorki í toppbaráttu né
baráttu um meistaradeildarsæti í
vetur. Arteta er hins vegar „the
real deal“, svo maður sletti aðeins,
maður sem veit hvað hann vill og
þarf. Þessi uppbygging frá grunni
sem Arsenal er komin af stað í er
líka ótrúlega spennandi en hún
kemur til með að taka tíma og allt
umfram Evrópudeildarsæti í vetur
yrði bónus.“
Loks ber Leeds United á góma
en það fornfræga félag leikur nú í
úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í
sextán ár. „Leeds þarf fleiri leik-
menn. Rodrigo mun styrkja þá til
muna en betur má ef duga skal.
Samt held ég að þeir verði ekki í
fallströggli; sigli frekar lygnan sjó.
Marcelo Bielsa er auðvitað snar-
ruglaður en fyrst Pep Guardiola
segir að hann sé besti þjálfari sem
hann hefur kynnst þá hlýtur hann
að kunna eitthvað. Annars er
Leeds flottur klúbbur og gaman
að hafa þá í úrvalsdeildinni.“
Undir það taka ugglaust margir.
AFP
Jordan Henderson, fyrirliði
Liverpool, lyftir Englandsbik-
arnum 22. júlí síðastliðinn.
Ver Rauði herinn titilinn?
13.9. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
MORÐ Sápurnar okkar eru óðum
að rumska aftur eftir heimsfarald-
urinn og Bretar fengu þau gleðitíð-
indi á dögunum að ný sería af East-
Enders væri handan við hornið.
Handritshöfundar sitja nú sveittir
við að skrifa kórónuveiruna inn í
söguþráðinn og lekið hefur út að
þessi lífseiga sápa ætli að skoða
vöxt heimilisofbeldis í faraldrinum
sérstaklega. Fram hefur meira að
segja komið að hárgreiðslukonan
unga Chantelle Atkins verði myrt
af bónda sínum, Gray.
Verður myrt af bónda sínum
Chantelle greyið Atkins er bráðfeig.
BBC/Kieron McCarron
BÓKSALA 2.-8. ÁGÚST
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Lygalíf fullorðinna Elena Ferrante
2
Bekkurinn minn 1
– prumpusamloka
Yrsa Þöll Gylfadóttir
3
Bekkurinn minn 2
– geggjað ósangjarnt!
Yrsa Þöll Gylfadóttir
4 Glerhús Louise Penny
5 Þín eigin saga – risaeðlur Ævar Þór Benediktsson
6 Þín eigin saga – knúsípons Ævar Þór Benediktsson
7 Verstu kennarar í heimi David Walliams
8 Stormboði Maria Adolfsson
9 Líkkistusmiðirnir Morgan Larsson
10 Drottningin Fritz Már Jörgensson
1 Aldrei nema kona Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir
2 Síðustu dagar Skálholts Bjarni Harðarson
3 Aðferðir til að lifa af Guðrún Eva Mínervudóttir
4 Barn náttúrunnar Halldór Laxness
5 Sjálfstætt fólk Halldór Laxness
6 Kokkáll Dóri DNA
7 Heimsljós Halldór Laxness
8 Tilfinningabyltingin Auður Jónsdóttir
9 Selta Sölvi Björn Sigurðsson
10
Það sem ég tala um þegar
ég tala um hlaup
Haruki Murakami
Allar bækur
Skáldverk & hljóðbækur
Ég ætla að segja stuttlega frá fjór-
um bókum sem eru ofarlega í
huga mér þessar vikurnar.
Byrjum á Braga. Ég las mína
fyrstu bók eftir
Braga Ólafsson,
Staða pundsins, um
síðustu jól. Síðan þá
er ég búinn að lesa
sex aðrar bækur
eftir hann. Ég heill-
aðist strax af stíl-
brögðum og frá-
sagnarmáta Braga og þessum
Reykjavíkurheimi sem hann hefur
skapað þar sem persónur mis-
munandi bóka koma fyrir aftur og
aftur og verða þannig eins og góð-
kunningjar manns. Bækur Braga
eru algjör yndislestur og ég hef
ítrekað staðið mig að því að hætta
að lesa bara til að klára ekki bæk-
urnar of fljótt. Eina af þessum
bókum get ég kallað mína uppá-
haldsbók en það er bókin Hand-
ritið að kvikmynd Arnar Feat-
herby og Jóns Magnússonar um
uppnámið á veitingahúsinu eftir
Jenný Alexon. Leiftrandi snilld út í
gegn. Skemmtilegasta bók sem ég
hef lesið.
Ég hef
mikinn
áhuga á fólki
og les því oft
bækur um
áhugaverða
einstaklinga.
Ég hef verið
að glugga í bókina Og svo tjöllum
við okkur á rallið: Bókin um Thor
þar sem Guðmundur Andri
Thorsson minnist föður síns,
Thors Vilhjálmssonar. Skemmti-
leg bók um Thor sem var ansi
áhugaverður einstaklingur. Bókin
veitir einstaka og persónulega inn-
sýn í líf Thors, bæði í gegnum rit-
mál og myndmál. Á náttborðinu
er líka bókin Billie Holiday: The
Musician and the Myth um sam-
nefnda jazzsöngkonu eftir John
Szwed. Bókin fjallar um einstaka
hæfileika söngkon-
unnar og framlag
hennar til jazz-
tónlistarinnar. Hún
fjallar líka um
hvernig óhófleg
áfengis- og lyfjamis-
notkun fór illa með
Holiday – líkt og
marga jazzmeistara síðustu aldar
– en hún lést langt um aldur fram,
44 ára að aldri.
Að lokum verð ég að koma að
félagsfræðinni – sem ég starfa við
dags daglega – og á yfirleitt hug
minn allan. Ég les mikið í kringum
félagsfræðina og rýni í flestar bæk-
ur með félagsfræðilegum „gler-
augum“. Núna síðast hef ég verið
að lesa bókina This is Not Just a
Painting eftir
franska fé-
lagsfræðinginn
Bernard Lahire sem
kom út nýverið.
Bókin byggir á um-
fjöllun um uppruna
tiltekins málverks,
The Flight Into
Egypt eftir franska málarann
Nicolas Poussin frá 1657-58, eftir
að meint falsað eintak af verkinu
kom fram í dagsljósið. Í bókinni
gerir Lahire ítarlega greiningu á
þeim félagslegu öflum og töfrum
sem málverkið framkallar svo úr
verður einstaklega upplýsandi út-
tekt á því hvernig samfélög virka í
raun og veru.
VIÐAR HALLDÓRSSON ER AÐ LESA
Bragi algjör yndislestur
Dr. Viðar
Halldórson er
prófessor í
félagsfræði við
Háskóla
Íslands.