Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Side 32
SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2020 Söngvaskáldið Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, hefur ekki gert það endasleppt á þessu undarlega ári en tvö af vinsælustu lögum ársins, Í kvöld er gigg og Takk fyrir mig, hafa verið á flestra vörum í sumar. Föstudagskvöldið 18. september hefst á Stöð 2 nýr skemmtiþáttur í umsjá Ingós sem ber einfaldlega nafnið Í kvöld er gigg. Áhorfendur heima í stofu fá þar tækifæri til að læðast baksviðs og upplifa stemninguna þegar skemmtikraftar koma saman og telja í gleðina. Í hverjum þætti syngur Ingó sig í gegnum íslenska tónlist- arsögu með skemmtilegasta fólki landsins, að því er fram kemur í kynningu Stöðvar 2, og er fjölskyldum landsins ráðlagt að koma sér vel fyrir í sófanum heima og taka undir. Ingó hefur stýrt brekku- söngnum á Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum undanfarin ár. Morgunblaðið/Ófeigur Giggið heim í stofu Nýr skemmtiþáttur, Í kvöld er gigg, hefur göngu sína á Stöð 2 á föstudag- inn kemur. Eins og nafnið gefur til kynna verður Ingó þar í fararbroddi. „Riddaramennska“ var yfirskrift myndatexta sem birtist á bak- síðu Morgunblaðsins fyrir hálfri öld, sunnudaginn 13. september 1970. Þar sagði: „Frúin varð bensín- laus á Hringbrautinni, eins og alltaf getur komið fyrir hús- mæður, sem mikið hafa um að hugsa. Ekki er það þó þægilegt, þegar bíllinn stanzar allt í einu á umferðargötu eins og Hring- brautinni. En það er ekki bara í mið- aldasögum, að riddarar koma þeysandi, þegar konur lenda í vandræðum. Nú á dögum er riddarinn lögregluþjónn á mót- orhjóli. Þessi þeysti umsvifalaust eftir bensínsbrúsa og bjargaði frúnni, svo hún komst heilu og höldnu til síns heima.“ Blaðið hafði einnig á orði að ljósmyndarar væru líka alla jafna nærstaddir til að mynda dáðir nútímariddara. Að þessu sinni var það Sveinn Þormóðs- son. Tímarnir breytast og frétt- irnar með. Á baksíðunni þennan dag mátti líka lesa um það að Jón Helgason prófessor leiddi að því líkum í af- mælisriti Einars Ól. Sveinssonar að Egill Skallagrímsson hefði ekki ort kvæðið fræga Höfuðlausn. GAMLA FRÉTTIN Riddara- mennska Frúin fylgist hin ánægðasta með laganna verði kippa málunum í liðinn. Morgunblaðið/Sv. Þorm. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Gillian Welch bandarísk söngkona Rúnar Pálmason upplýsingafulltrúi Landsbankans Hugo Weaving breskur leikari ... stærsti uppskriftarvefur landsins!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.