Morgunblaðið - 06.10.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020
6. október 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.28
Sterlingspund 178.89
Kanadadalur 103.95
Dönsk króna 21.798
Norsk króna 14.872
Sænsk króna 15.559
Svissn. franki 150.3
Japanskt jen 1.3144
SDR 195.01
Evra 162.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 192.8161
Hrávöruverð
Gull 1906.4 ($/únsa)
Ál 1705.0 ($/tonn) LME
Hráolía 40.65 ($/fatið) Brent
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ein af þeim íslensku auglýsinga-
stofum sem kepptu um að fá að gera
kynningarherferðina „Ísland saman
í sókn“, en fékk ekki, er nú
með lögsókn í undirbúningi vegna
málsins. Þetta herma heimildir
Morgunblaðsins. Telur stofan að um
brot á lögum um opinber innkaup sé
að ræða. Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í vor hlaut alþjóð-
lega auglýsingastofan M&C Saatchi
hæstu einkunn valnefndar fyrir
verkefnið, en það var boðið út á
Evrópska efnahagssvæðinu og bár-
ust fimmtán tilboð. Samstarfsaðili
M&C Saatchi hér á Íslandi er aug-
lýsingastofan Peel. 1.500 milljónum
var varið í verkefnið, en stærstur
hluti fjárins fer í auglýsingabirting-
ar á erlendum vettvangi. Markmiðið
var að kynna áfangastaðinn Ísland á
völdum erlendum mörkuðum.
Ekki raunverulegir hátalarar
Fyrsta verkefni „Ísland saman í
sókn“ sem kom fyrir sjónir manna,
hér á landi og víða um heim, var hin
svonefnda „öskurherferð“ en hún
gekk út á að fá erlenda ferðamenn
til að öskra frá sér streitu. Yfirskrift
herferðarinnar var „Let it Out“ eða
Losaðu þig við það, í lauslegri ís-
lenskri snörun. Hægt var að taka
upp öskur í gegnum tölvu eða síma á
heimasíðu átaksins, og var sjö gul-
um hátölurum komið fyrir víðs veg-
ar um landið til að öskrin fengju að
njóta sín úti í náttúrunni. 50 þúsund
öskur bárust á heimasíðu átaksins.
Margir hér á Íslandi gagnrýndu
herferðina, meðal annars á þeim
forsendum að ekki ætti að raska ró
fólks úti í náttúrunni. Eins og
Magnús Magnússon hjá Peel segir
í samtali við Morgunblaðið voru
hátalararnir í kynningarefni her-
ferðarinnar ekki raunverulegir,
heldur einungis myndskreyting.
Öll öskur, sem fólk tók upp í gegn-
um netið, voru spiluð í mun minni
hátölurum sem staðsettir voru
töluvert aftan við þá gulu. Þá var
hljóðstyrkur mjög hófstilltur. Enn
fremur segir Magnús að staðirnir
sem hátalararnir voru settir upp á,
hafi ekki verið í alfaraleið, til að
tryggja að enginn yrði fyrir ónæði.
Sá hátalari sem hafi fengið flestar
heimsóknir hafi verið sá sem var á
Rauðasandi.
Vakti mikla athygli
Magnús segir að herferðin hafi
vakið mikla athygli. Um hana hafi
verið fjallað í 900 erlendum frétta-
miðlum, þar á meðal stórum og
þekktum sjónvarpsstöðvum og stór-
blöðum.
Magnús segir, spurður um stöð-
una á „Ísland saman í sókn“, að
þessa dagana sé aðallega verið að
vinna í almannatengslum erlendis í
samstarfi við Íslandsstofu, ásamt
því að undirbúa næsta auglýsinga-
verkefni sem hrinda á í framkvæmd
um leið og landamærin opnast á ný.
Markmiðið nú sé að halda vöru-
merkinu Íslandi að fólki, svo það
haldi áfram að „dreyma um að koma
hingað“, eins og Magnús orðar það.
„Markmiðið er að fólk langi að koma
hingað um leið og landamærin opn-
ast.“
Langt umfram væntingar
Magnús segir að í dag sé sam-
keppnin um athygli ferðamanna
mikil. Kórónuveirufaraldurinn sé
alþjóðlegt fyrirbæri, og allir vilji
laða að ferðamenn þegar faraldrin-
um ljúki. Þegar Inspired by Ice-
land-herferð Íslandsstofu hafi farið
í gang árið 2010 hafi Ísland notið
mikillar alþjóðlegrar athygli vegna
gossins í Eyjafjallajökli.
Magnús segir að markmiðið með
Öskurherferðinni hafi verið að fá
umfjöllun í 50 erlendum fréttamiðl-
um. Það að ná til 900 miðla hafi ver-
ið langt umfram væntingar. „Við
teljum að þetta sé umfjöllun sem sé
2,5 milljarða króna virði.“
Lögsókn í undirbúningi
Náttúra Gulu hátalarnir í Öskurherferðinni voru ekki raunverulegir hátalarar. Þeir hafa nú verið fjarlægðir.
Íslensk auglýsingastofa hyggst leita réttar síns vegna „Ísland saman í sókn“ 900 fréttamiðlar
sögðu frá öskurherferðinni, sem er metfjöldi Verðmæti umfjöllunarinnar 2,5 milljarðar króna
Ljósmynd/InspiredByIceland
Auglýs-
ingastofan
M&C Saatchi
viðurkenndi í
lok síðasta
árs bókhalds-
misferli og er
til rann-
sóknar hjá
breska fjár-
málaeftirlit-
inu.
Viðskipti með bréf félagsins
hafa nú verið stöðvuð þar sem fé-
lagið hefur ekki enn skilað árs-
reikningi fyrir síðasta ár. M&C Sa-
atchi segir að tafirnar stafi af
villu í bókhaldi félagsins. Spurður
að því hvort það hafi einhver áhrif
á „Ísland saman í sókn“ að við-
skipti með bréfin hafi verið stöðv-
uð, segir Magnús svo ekki vera.
„Viðskiptin verða stopp í tvær til
þrjár vikur á meðan endurskoð-
unarfyrirtækið PwC fer aftur yfir
ársreikninga fyrirtækisins til að
tryggja að það lendi ekki aftur í
vandræðum, líkt og fjallað var um
í vor. Það má segja að M&C Sa-
atchi séu að tryggja sig, og vilja
vera með bæði belti og axlabönd í
þessum efnum. Þeir vilja tryggja
að ekkert misjafnt megi finna í
ársreikningnum. Vegna kór-
ónuveirunnar hefur það tekið
lengri tíma en ella að skila inn
gögnum, og því eru viðskipti með
bréfin stöðvuð. Þetta hefur engin
áhrif á okkur, eða samstarfið við
M&C Saatchi.“
Viðskipti
stöðvuð
BÓKHALD M&C SAATCHI
RANNSAKAÐ Í BRETLANDI
Magnús
Magnússon.
STUTT
● IATA, alþjóða-
samtök flugfélaga,
hafa fært niður
fyrri spá sína um
umsvif í farþega-
flugi á heimsvísu á
þessu ári. Fyrri spá
gerði ráð fyrir að
samdráttur upp á
63% yrði miðað
við fyrra ár. Nú
telja samtökin hins vegar að hann
verði töluvert meiri eða 66%.
„Innanlandsmarkaðir bentu í rétta
átt – þeir voru á ákveðnum tímapunkti
u.þ.b. 50% niður miðað við fyrra ár.
Aðalvandamálið er sem fyrr millilanda-
flugið,“ sagði Brian Pearce, aðal-
hagfræðingur IATA, á blaðamannafundi
í gær. Benti hann á að hægst hefði á
upptakti sem vart hefði orðið við á
mörgum mörkuðum. Þá hefði komið í
ljós í september að á sumum mörk-
uðum hefði ekki aðeins hægt á þróun-
inni í rétta átt heldur hefði staðan snú-
ist flugfélögunum í óhag.
IATA bendir á að þótt enn sé alvar-
legt hökt á markaðnum þá geri sam-
tökin enn ráð fyrir að fluggeirinn verði
búinn að ná fyrri vopnum sínum
2024. Sú spá byggir hins vegar á því
að á öðrum árshelmingi næsta árs
verði komið fram bóluefni gegn kór-
ónuveirunni.„Áhyggjur okkar lúta
meira að næstu 12 mánuðum – og við
vonum klárlega að skilvirkari og ódýr-
ari leiðir til skimunar geti bætt stöð-
una.“
IATA færir niður far-
þegaspá fyrir árið 2020
● Heildarviðskipti með hlutabréf í
Kauphöll Íslands námu 39,3 milljörðum
króna í september. Jafngildir það 1.786
milljónum á dag. Jukust viðskiptin um
24,2% frá ágústmánuði. Hins vegar
nemur hækkunin aðeins 0,8% sé litið
til septembermánaðar 2019.
Mest voru viðskipti með bréf Marels
eða 6,9 milljarðar, Arion banka, 5,7
milljarðar og Símans, 3,7 milljarðar.
Heildarfjöldi viðskipta var 3.546
eða að jafnaði 161 á dag. Milli ára fjölg-
aði þeim um 57% en þau voru 2.257 í
septembermánuði 2019.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,86% í
mánuðinum. Hefur hún nú, eftir lok við-
skipta í gær, lækkað um 2,66% frá ára-
mótum.
Veltan í Kauphöll í sept-
ember svipuð og í fyrra