Morgunblaðið - 06.10.2020, Síða 16

Morgunblaðið - 06.10.2020, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020 Landsins mesta úrval af settum FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Bitasett 54 stk. Vörunr. BHS54BC Bitasett 35 stk. Vörunr. BHS35BC Árið 2017 flutti ég búferlum og seldi eign og keypti aðra og átti í afgang þrjár milljónir króna, sem ég lagði í bundna verðtryggða bók til þriggja ára hinn 16.9. 2017. Um daginn vitjaði ég höfuðstóls- ins, sem þá var laus. Niðurstöður þessarar ávöxtunar fylgja hér á eftir og er miðað við verðtryggingu, bankainnistæðu 16.6. 2020 og gengi bandaríkjadollara og svissnesks franka: (tafla og mynd) Þarna sést að ef ég hefði keypt svissneska franka og geymt undir koddanum í þrjú ár hefði ég hagnast um 885 þús. kr. umfram það sem ég fékk frá bank- anum en 656 þús. kr. ef ég hefði geymt dollara undir sama kodda. Ástæða þessarar herfi- legu útreiðar íslenskrar innistæðu er tvíþætt. Í fyrsta lagi miðast ís- lensk verðtrygging ekki við gengi gjaldmiðla heldur meðaleinkaneysluútgjöld sem end- urspegla seint og illa verðmæti pen- inga. Samt er fjármagnstekjuskatt- urinn verri sökudólgur og hefur vinur minn Vilhjálmur Bjarnason gert honum góð skil hér í blaðinu. Þar verð ég að játa syndir mínar: Fyrir um 25 árum var ég skipaður í nefnd til þess að koma á fjármagns- tekjuskatti. Þar var sjálfur ráðu- neytisstjórinn Indriði Þorláksson og urðum við fljótt sammála um að þessar tekjur bæri að skattleggja eins og aðrar tekjur. Forystumenn verkafólks í nefndinni töldu það frá- leitt og skipti nú engum togum að Indriða var vikið úr nefndinni og inn kom hlýðnari maður. Forystumenn verkafólks töldu einnig ófært annað en að skattleggja verðbætur eins og vexti saman, því ógjörningur væri að greina í sundur verðbætur og vexti. Þetta varð ofan á. Sagt var að skatt- urinn yrði einungis 10%, en verka- lýðsflokkur hækkaði þetta síðan í 22%. Þetta er vitlausasti gerningur sem ég hef staðið að og bið ég Guð og þjóðina að fyrirgefa mér að hafa ekki reynt að gera allt vitlaust á þessum tíma. Játning Eftir Guðmund Ólafsson Guðmundur Ólafsson »Um verðrýrnun bankainnistæðna Höfundur er lektor emeritus. Örlög verð tryggðrar innistæðu Mismunandi ávöxtun 3 m.kr. í 3 ár frá 16.9. 2017 Bandaríkjadalir Svissneskir frankar Hækkun m.v. verðbótavísitölu Verðtryggð bankainnistæða 3,942 m.kr. 4,171 m.kr. 3,241 m.kr. 3,286 m.kr. 4,5 4,0 3,5 3,0 2,5 2,0 Eins og margir hafa tekið eftir stendur yfir átak undir yfirskriftinni „Láttu það ganga“, átak sem atvinnurek- endasamtökin og hið opinbera standa að. Til- gangur átaksins er að fá neytendur á Íslandi til að kaupa íslenskar vörur og þjónustu, framleiddar og fram- reidda á Íslandi, og með því stuðli neytendur að bættum sameiginlegum hag þjóðarinnar og þá ekki síst sjóðs okkar allra, ríkissjóðs. Ekki það ein- asta að fleiri krónur verði eftir í rík- issjóði við slíkt heldur veitir það fleir- um störf sem síðan aftur skapar ríkinu tekjur. Þannig hefur hið opinbera, ríki og sveitarfélög, mörgum sinnum tekjur af þessari hringrás, aftur og aftur, árum saman. Þetta er svo auð- velt reiknisdæmi að það þarf ekki að eyða tíma í að reikna það, hið opinbera fær alltaf meira af þeirri verðmæta- sköpun sem á sér stað á Íslandi en í öðrum löndum. Margir einstaklingar hafa ekkert annað val en að kaupa það ódýrasta, en hið opinbera er í þeirri stöðu að taka hlut allan hringinn, fá meira út úr virðiskeðjunni, ekki ein- staklingarnir. Því er ábyrgð þess meiri. Ekki skal gera lítið úr því að- haldi sem samkeppni við íslenskar vörur og þjón- ustu frá útlöndum veitir. Þau störf og þjónusta sem skapast í landinu við innflutning eru vissulega til staðar en klárlega í minna umfangi og eðli málsins samkvæmt enda færri krónur í ríkissjóði þeirra vegna. Slæm fordæmi hins opinbera Því miður er það svo að þegar átak sem þetta í gangi að þá er hið op- inbera með allt niður um sig. Ekki vantar það að ráðherrar mæti og mæri íslenska framleiðslu og mik- ilvægi hennar og ég geri ráð fyrir að stuðningur þeirra sé einlægur en í honum er engu að síður holur hljóm- ur. Þessir sömu ráðherrar hafa undir sér aragrúa opinbers rekstrar, stofn- un eftir stofnun. Í flestum þessara stofnana eru mötuneyti þar sem keypt er inn frosin erlend framleiðsla í tonnavís í hverjum mánuði. Hið sama ríkisvald og styður það heils- hugar að fólk kaupi íslenskt ætlar ekki að gera það sjálft f.h. ríkisins. Og tvöfeldnin er víða. Þannig bauð hið opinbera út annað sambærilegt átak til kynningar á íslenskum vörum og þjónustu, nú fyrir útlendinga. Kynningarátak í útlöndum til að lokka hingað ferðamenn. Milljarður var undir og erlendu tilboði var tekið fegins hendi og reiddur fram stabbi af gjaldeyri fyrir, enda nóg til eftir margra ára söfnun, þökk sé einmitt íslenskum fyrirtækjum sem sköpuðu tekjur fyrir hið opinbera. Það sér hver maður að meirihluti þessara við- skipta hins opinbera endar í annars lands ríkiskassa. Og áfram skal hald- ið. Sjálft forsetaembættið tók sig saman í andlitinu og mublaði sig upp með „íslenskum“ húsgögnum. Eðli- legt og sjálfsagt það. Við nánari skoð- un kom svo í ljós að mublurnar góðu voru bara hannaðar á Íslandi en ekki smíðaðar. Því ekki að ganga alla leið í því? Er það skrýtið að um mann hríslist aulahrollur þegar maður horfir á ríkið „láta það ganga“ …aft- urábak. Láttu það ganga – bara ekki afturábak Eftir Steinþór Jónsson Steinþór Jónsson » Því miður er það svo að þegar átak sem þetta í gangi að þá er hið opinbera með allt niður um sig. Höfundur rekur fyrirtæki. steinthorj@hotmail.com Undanfarin 25 ár hafa fjölmargir útlend- ingar flutt til Íslands til að lifa, starfa og nema, eins og allir vita. Sumir hafa dvalist hér í skamman tíma, aðrir ílengst og sest hér að til frambúðar. Hin hraða uppbygging ferðaþjónustunnar hefði aldrei orðið nema fyrir vinnuframlag þessa góða fólks. En ferðaþjónustan er ekki eina atvinnugreinin sem not- ið hefur góðs af þessari þróun, það hafa margar grunnatvinnugreinar einnig gert. Mikið hefur verið að gera hjá þeim hópi fólks sem hefur unnið við ferðaþjónustu. Þrátt fyrir góðan ásetning margra um að læra íslensku hefur minna orðið úr hjá mörgum, einkum vegna anna. En nú er lag. Nú á haustönn er gríðarleg eftir- spurn eftir íslenskunámi hjá Fræðslunetinu – símenntun á Suð- urlandi. Svo mikil að mörgum um- sækjendum þarf að vísa frá. Því miður hafa stjórnvöld ekki séð ástæðu til þess að bæta við fjár- munum vegna íslenskunáms útlend- inga á þessum sérstöku tímum. Nú hafa margir bæði góðan tíma og vilja til að læra og styrkja þannig stöðu sína á vinnumarkaði og í ís- lensku samfélagi. Í raun er þetta óskiljanlegt og mikið vanþakklæti til alls þess góða fólks sem hefur lagt okkur lið á tímum uppgangs í at- vinnulífinu. Á Suðurlandi eru um þessar mundir 1.200 manns í at- vinnuleit og er helmingurinn fólk með erlent ríkisfang. Í tillögum Sam-hópsins, samhæf- ingarhóps um atvinnu- og mennta- úrræði, dagsettum 3. júlí 2020, er ekki að finna tillögu um að efla og styrkja íslenskunám útlendinga með beinum fjármunum í kjölfar CO- VID-19. Þar stendur orðrétt: „Það er álit SAM hópsins að end- urskoða beri allt íslenskunám fyrir útlendinga og leggur hópurinn til að mennta- og menningarmálaráðu- neytið hafi forgöngu um slíka endur- skoðun þar sem byggt verði á stöðu- mati í íslensku en nauðsynlegt er að samræma það og byggja á hæfni- kröfum A-C í evrópska tungumál- arammanum.“ Það er því eðlilegt að spyrja: Hver er tímarammi þessarar endur- skoðunar? Það er vissulega þörf á endurskoðun og þróun í þessum efn- um, en hvenær má vænta þess að þeirri vinnu verði lokið? Mun þetta nýtast þeim mikla fjölda útlendinga sem nú leita sér að nýrri vinnu og vilja um leið læra íslensku? Sam-hópurinn leggur til að að- ferðir í raunfærnimati, bæði á ensku og pólsku, verði þróað- ar, sem er góðra gjalda vert. Einnig er lögð áhersla á að vottaðar námsleiðir FA geti nýst sem vinnumark- aðsúrræði, m.a. fyrir þennan hóp. Er þá ekki ástæða til að ætla, að til þess að fólk af er- lendum uppruna geti stundað slíkt nám, sé grunnurinn góð ís- lenskukunnátta? Símenntunar- miðstöðvar standa frammi fyrir þeim raunveruleika að vaxandi fjöldi útlendinga óskar þess að sækja ýmiskonar nám sem þær bjóða upp á og þá koma tungu- málaörðugleikar oft við sögu. Ekki er raunhæfur möguleiki að bjóða upp á nám á erlendum tungumálum úti á landi, einkum vegna fámennis og mikils kostnaðar við slíkt. Í apríl 2020 voru tæp 14% lands- manna af erlendum uppruna eða ríf- lega 50.000 manns. Um 8.000 þeirra eru nú án atvinnu eða að hluta til og því má gera ráð fyrir yfir 20% at- vinnuleysi meðal þeirra. Margir í þessum hópi vilja nú nýta tímann til að læra íslensku eins og áður hefur komið fram. Rannís, í umboði mennta- og menningarmálaráðu- neytis, veitir árlega styrki til ís- lenskukennslu til viðurkenndra fræðsluaðila. Síðastliðin ár hefur eftirspurn verið nokkurn veginn í takt við þá styrki sem veittir hafa verið, en svo er ekki nú. Íslenskukennsla fyrir fullorðna útlendinga virðist því miður vera al- gerlega munaðarlaus málaflokkur í mennta- og menningarmálaráðu- neytinu. Námskrár-, námsefnisgerð og öll þróun hefur setið á hakanum í fjölda ára. Það er gott að nú eigi að endurskoða þetta kerfi. Slíkt getur tekið tímann sinn. Það er samt sem áður gríðarlega mikilvægt að strax verði sett aukið fé til íslensku- kennslu svo hægt verði að bregðast við þeirri eftirspurn sem nú hefur skapast. Sé vilji til þess að skapa fjölmenningarsamfélag hér á landi sem sómi er að þarf að sinna þeim hópi sem hefur íslensku sem annað tungumál miklu betur. Nú er lag. Eftir Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur » Því miður hafa stjórnvöld ekki séð ástæðu til þess að bæta við fjármunum vegna ís- lenskunáms útlendinga á þessum sérstöku tím- um. Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Höfundur er verkefnastjóri íslenskukennslu hjá Fræðslunetinu – símenntun á Suðurlandi. steinunnosk@fraedslunet.is Fálæti stjórnvalda í garð útlendinga á tímum covid

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.