Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020 Happdrætti vikulega út október ára Afmælishátíð 28. október „ER ÞETTA NAUÐSYNLEGT? ÉG ER ÞEGAR BÚINN AÐ SJÚGA ALLA ÁNÆGJU ÚR ÞVÍ AÐ VINNA HÉRNA AÐ MARGRA SÖGN.” „hvenær var þessi passamynd tekin?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stundum togstreita. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞEF ÞEF ÞEF ÞEF ÞEF NÆSTA „SPYRÐU HUNDINN” KEMUR FRÁ RAUNVERULEGUM HUNDI EINHVER SEM ÞÚ ÞEKKIR? PLÖNUM FRÍ! HELDURÐU AÐ ÞRJÁR VIKUR Í FENEYJUM VÆRU EKKI GÓÐ SKEMMTUN? KANNSKI … ÉG SKAL SENDA ÞÉR PÓSTKORT OG LÁTA ÞIG VITA! leikið mér mikið með olíuliti og vatns- liti.“ Guðmundur og Bergdís hafa allt- af verið mikið fyrir útvist og þekkja landið vel í gegnum fjölmargar göngu- ferðir um fjöll og firnindi. Auk þess hafa þau mikið spilað golf í gegnum tíðina og búa nánast á golfvellinum í Grafarvogi. Fjölskylda Eiginkona Guðmundar er Bergdís Helga Kristjánsdóttir, f 6.5. 1943, hjúkrunarfræðingur. Foreldrar henn- ar voru Elín Þórðardóttir, f. 18.12. 1914, d. 2002 og Kristján Hermann Jónatansson, f. 14.9. 1914, d. 1992. Fósturfaðir hennar var Hreggviður Guðmundsson, f. 28.5. 1914, d. 2001. Fyrri eiginkona Guðmundar var Erla Jónsdóttir, f. 22.10. 1929, bókasafns- fræðingur. Börn Guðmundar eru Bjarni, f. 15.5. 1955, fv. lögreglumaður; Hallur, f. 5.1. 1957, vélvirkjameistari; Snorri, f. 16.9. 1962, fiskeldisfræðingur og verktaki. Stjúpdóttir Guðmundar er Elín Arna Þorgeirsdóttir, f. 13.5. 1967, félagsfræðingur. Systur Guð- mundar eru tvíburarnir Sigríður (d. 8.12. 2013) og Hildur f. 15.3. 1929 (d. 1.9. 2009) og Þóra, f. 2.3. 1940. Foreldrar Guðmundar voru Bjarni Valdimar Guðmundsson læknir, f. 11.6. 1898, d. 8.12. 1973 og Ásta Magn- úsdóttir, f. 2.8. 1902, d. 27.1. 1997. Þau bjuggu á Brekku í Fljótsdal, Flateyri, Patreksfirði og Selfossi. Guðmundur Bjarnason Ásta Antonsdóttir húsfreyja áArnarnesi, Ytri- Haga, Árgerði og Akureyri Sigurður Sigurðsson Draupnisformaður, bóndi og hákarlaskipstjóri íArnarnesi á Galmaströnd, síðarAkureyri Margrét Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja í Hamarskoti áAkureyri Magnús Jónsson bóndi í Hamarskoti áAkureyri og síðar ökumaður og bóndi í Garði,Akureyri Ásta Magnúsdóttir húsfreyja á Brekku í Fljótsdal, Norður-Múlasýslu,Ólafsfirði, Patreksfirði og Selfossi Anna Þorláksdóttir húsfr. í Hamarskoti áAkureyri Jón Jónsson bóndi í Hamarkoti áAkureyri Jósep Jónsson er faðir Jóhannesar Jósepssonar hótelhaldara á Hótel Borg og glímukappa Þuríður Magnúsdóttir húsfreyja í Króki, Villingaholtssókn, Árn. Fluttist síðar tilAmeríku Björn Snæbjarnarson b íKróki,Villingaholtssókn, Árn. Hildur Björnsdóttir húsfreyja í Önundarholti, Villingaholtshrepp, Árn. Guðmundur Bjarnason bóndi í Önundarolti í Villingaholtshrepp, Árn. Valgerður Eiríksdóttir húsfreyja í Önundarholti Bjarni Guðmundsson bóndi í Önundarholti Villingasókn, Árn. Úr frændgarði Guðmundar Bjarnasonar Bjarni Valdimar Guðmundsson læknir á Brekku í Fljótsdal, Norður-Múlasýslu,Ólafsfirði, Patreksfirði og Selfossi Ádögunum birtist hér í Vísna-horni lítið ljóð um Akureyr- arlistann eftir Helga R. Einarsson. Nú hefur hann ort ögn meira og kallar „Meira að norðan“: Á óvildinni nú ala engir lengur en hjala um snjómokstur gatna og greiðsluþol skatna. Ei minnast á horn eða hala. Ef tekst því að fara með friði þessu framsýna norðanliði, kannski þau brenna suður og kenna kurteisi’ og mannasiði. Ólafur Stefánsson sendi mér póst, þar sem hann segir: „Samgöngu- ráðherra mótmælti fullyrðingum stjórnarandstöðunnar, sem ýmist sagði stefnu stjórnarinnar helbláa sjálfstæðisstefnu eða sósíalisma“: Sigurð Inga sígur í sært er hans næma geð. Hann færir rökin fyrir því að Framsókn sé líka með. Hólmfríður Bjartmarsdóttir spyr á Boðnarmiði: „Hvað er klám?“ Hve oft er spurt er umhugsunar vert en alltaf finnst mér nægja þetta svar. „Klám er eitthvað illa og vitlaust gert og óviturlegt tal um kvennafar.“ Sigurlín Hermannsdóttir segir að nú sé farið að dimma og þá fari ýmsir svipir á kreik: Drauginn hann Desmýrar-Jón dreymdi um alt-saxófón. Var hræddur við myrkur því horfinn var styrkur. Hann var ekki svipur hjá sjón. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir að gefnu tilefni: Ég vorkenni mjög henni Veiru Vagnsdóttur bónda á Leiru sem nú hrakin og hædd er á fundum og hugleiði oft á þeim stundum hvort öll hennar erfiða vera hafi eitthvað með nafnið að gera. Indriði á Skjaldfönn rifjar upp að Sighvatur Björgvinsson sagði eitt sinn á þingmennskuárum sín- um að dilkar á Grænlandi væru miklu vænni en þeir íslensku. Her- mann Jóhannesson þingritari horfði af svölum yfir þingbekki og kvað. Hér er sægur af sællegum föllum en Sighvatur ber af þeim öllum. Mér sýnist ei vafi að sauðurinn hafi gengið á grænlenskum fjöllum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af snjómokstri og Desmýrar-Jóni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.