Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 32
Tónleikaröðin „Beethoven í 250 ár“ heldur áfram í
Salnum í Kópavogi í kvöld, klukkan 19.30, og verða
þá fluttar fimm af píanósónötum meistarans. Thomas
Higgerson flytur sónötu nr. 7 í D-dúr, Peter Máté són-
ötu nr. 11 í B-dúr, Mathias Halvorsen sónötu nr. 19 í
g-moll og Nr. 20 í G-dúr, og þá
mun Aladár Rácz flytja sónötur
nr. 13 í Es-dúr. Á undan hverri
sónötu les Arnar Jónasson leik-
ari úr bókinni „Beethoven – í
bréfum og brotum“ sem Árni
Kristjánsson tók saman. Tak-
markaður sætafjöldi er í
boði á tónleikana vegna
fjarlægðar- og fjöldatak-
markana en farið er
eftir öllum
sóttvarnareglum í
hvívetna.
Fimm píanósónötur Ludwigs van
Beethoven fluttar í Salnum í kvöld
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Samsöngur eldri borgara í sam-
félagshúsinu Aflagranda í Reykja-
vík er aftur byrjaður að óma eftir
hádegi á miðvikudögum eftir að
hafa legið niðri í samkomubanni
vegna kórónuveirufaraldursins. „Við
köllum þetta söngstund við píanóið
og hérna syngur hver með sínu nefi
með það að markmiði að njóta
söngsins og samverunnar sem
best,“ segir Helga Gunnarsdóttir,
stjórnandi hópsöngsins og undir-
leikari undanfarinn áratug. „Svo
fáum við okkur kaffi saman á eftir.“
Helga var tónmenntakennari í
rúma þrjá áratugi, lengst af í Mela-
skólanum, og eftir að hún hætti að
kenna 2010 var hún beðin að stjórna
samsöng á Aflagranda. „Ég taldi
mig hafa lokið ævistarfinu en sló til
vegna þrýstings og er hér enn ára-
tug síðar. Þetta var strax svo gam-
an, allir skemmtu sér vel og ekki
síst ég. Það hefur ekki breyst.“
Gleðin fyrir öllu
Lagavalið hefur alla tíð verið í
höndum Helgu. Hún segist hafa tínt
til texta af ýmsum toga, jólalög,
sumarsöngva og svo framvegis,
stækkað letrið, prentað og ljósritað.
„Ég spurði fólkið hvort það vildi
syngja önnur lög en svörin voru öll
á sömu lund, „þetta er fínt hjá þér“,
svo ég hélt mig við planið. Smám
saman ákvað ég að blanda öllum
lögunum saman með skemmtana-
gildið í huga frekar en að binda þau
við árstíðir.“ Leggur samt áherslu á
að jólalögin séu eingöngu sungin á
aðventunni.
Að sögn Helgu falla gömlu
dægurlögin og ættjarðarlögin alltaf
vel í kramið og hún haldi sig við þau
enda sé gleðin aðalatriðið. „Ég kann
heldur ekki nýjustu lögin,“ segir
hún.
Helga segir að öðruvísi sé að
skipuleggja tímana og syngja með
fólkinu á Aflagranda en þegar hún
hafi verið í kennslu. Þá hafi áhersla
verið á að fylgja ákveðinni námskrá
og sérstakar kröfur verið gerðar til
þeirra sem voru í skólakórnum.
„Hérna er ég bara ein af hópnum en
munurinn á mér og hinum er sá að
ég vel lögin og spila undir.“
Fjöldasöngurinn hefur verið viku-
lega frá miðjum september og út
maí en kórónuveirufarldurinn hefur
sett strik í reikninginn í ár og því
byrjaði Helga seinna þetta haustið,
en fjórði tíminn verður á morgun.
Söngvararnir þurfa ekki að búa í
húsinu heldur geta allir verið með.
Helga segir að tímarnir hafi spurst
út og til dæmis hafi fólk, sem hún
hafi verið með í sundleikfimi í Vest-
urbæjarlauginni, látið sjá sig. „Ég
byrjaði með tíu manns og mest hafa
verið yfir þrjátíu,“ segir hún. Bætir
við að veiran hafi áhrif og fjölda-
söngurinn sé öðruvísi þegar fólkið
sé dreift um salinn vegna tveggja
metra reglunnar. „Við finnum fyrir
aukinni samkennd þegar við sitjum
þétt saman og þá styrkist fólkið í
tóninum, en við verðum að þreyja
þorrann og góuna og vona að
ástandið verði fljótlega eðlilegt. Enn
er von.“
Söngvararnir syngja
hver með sínu nefi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á Aflagranda Helga Gunnarsdóttir stjórnar samsöng og spilar á píanó.
Vikuleg söngstund við píanóið með Helgu fyrir eldri borgara
Reglur Söngvararnir dreifa sér um salinn vegna tveggja metra reglunnar. STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
DUCA model 2959
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
L 241 cm Leður ct. 10 Verð 549.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 10 Verð 339.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
GOLF model 2945
L 176 cm Áklæði ct. 70 Verð 239.000,-
L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
L 244 cm Leður ct. 10 Verð 489.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 280. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Eftir að ellefta umferðin í Pepsi Max-deild karla var
loks leikin á sunnudaginn er 18 umferðum lokið (mínus
einn leikur) og þá blasa við tvær stórar spurningar:
Hvenær verður Valur Íslandsmeistari? Verður það í
næstu eða þarnæstu umferð? Verður Steven Lennon
fyrstur í sögunni til að skora 20 mörk í efstu deild
karla? Lennon hefur rokið upp markalista efstu deildar
og þá eru hann og Atli Sigurjónsson nú efstir í
M-einkunnagjöf Morgunblaðsins. »26
Efstur í markaskorun og í M-gjöf
ÍÞRÓTTIR MENNING