Morgunblaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Starfsfólk og börn á Drafnarborg minnast þess í dag að 70 ár eru frá því leikskólinn var tekinn í notkun. Húsnæðið var hannað og byggt sérstaklega sem leikskóli og hafði slíkt ekki verið gert áður í Reykja- vík. „Við ætlum að hafa gaman með litlu börnunum, syngja, dansa, baka vöfflur og blása í blöðrur,“ segir Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri um afmælisveisluna. Leikskólarnir Drafnarborg á Drafnarstíg og Dvergasteinn á Seljavegi sameinuðust 2011 og eru sex deildir í þremur húsum. Fjórar deildir elstu barnanna eru á Selja- vegi en eins og tveggja ára börnin á Drafnarstíg. Bryndís fyrst Bryndís Zoëga var fyrst Íslend- inga til þess að útskrifast sem leik- skólakennari og veitti Drafnarborg forstöðu frá 1950 til 1991. Halldóra tók við fyrir tveimur árum og er fimmti leikskólastjórinn. Hún seg- ir að fjölskyldur barnanna tengist gjarnan skólanum því foreldrar margra þeirra hafi verið þar og jafnvel afar og ömmur. Vegna kórónuveirufaraldursins geti þetta fólk samt ekki tekið þátt í veislu dagsins. „Þetta er fjórða vikan sem bara starfsfólk og börn skól- ans fá að koma inn,“ bendir hún á og vísar í samkomubannið. Þar til í fyrra voru allir aldurs- flokkar á Drafnarborg. „Þá ákvað ég að þar yrðu aðeins yngstu skjólstæðingar okkar og því tókum við garðinn alfarið í gegn með hlið- sjón af því og breyttum líka innan- húss með yngstu börnin í huga. Við ætlum líka að halda upp á það.“ Morgunblaðið/Eggert Drafnarborg Krakkarnir á leikskólanum fagna 70 ára afmæli skólans í dag. Hér viðra þau sig í blíðunni í gær. Sungið, dansað, bakaðar vöfflur og blásið í blöðrur  Starfsfólk og börn á Drafnarborg halda upp á 70 ára afmælið  Forráðamenn barnanna fá ekki að mæta Freyr Bjarnason Sigurður Bogi Sævarsson Hjá Neyðarlínunni og fjarskiptamið- stöð ríkislögreglustjóra er nú rann- sakað hvers vegna boð um eld í hús- bíl í Grafningi síðastliðið föstudagskvöld bárust ekki lögregl- unni á Selfossi. Frá Neyðarlínunni áframsendu neyðarverðir á vakt símtal frá innhringjanda, sem sá eld- inn, til lögreglunnar sem svaraði ekki, hvað sem olli. Allir þættir í at- burðarás þessari eru skoðaðir, svo sem hvort símtalið hafi lent í „tækni- legu svartholi símkerfisins“, eins og Tómas Gíslason, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, komst að orði í samtali við mbl.is í gær. Tvær tilkynningar Það var um klukkan hálftólf á föstudagskvöldið sem tilkynning um eldsvoða barst Neyðarlínunni. Til- kynnandi, sem var nærri Búrfelli í Grímsnesi, sagði eldinn vera í ann- aðhvort bíl eða húsi í Grafningi, það er handan Sogsins, í um fimm kíló- metra fjarlægð. Að sögn Tómasar liðu 56 sekúndur frá því viðkomandi var gefið sam- band við lögreglu uns símtalið rofn- aði. „Það á ekki að geta verið ákvörð- un símkerfisins,“ segir Tómas um að símtalið hafi slitnað og telur að við- komandi hafi gefist upp á biðinni. Daginn eftir barst lögreglu svo önn- ur tilkynning. Þá var húsbíllinn fundinn mikið brunninn og var þá í malargryfju nærri Torfastöðum. Átti athvarf í bílnum „Við erum að velta við hverjum steini til að átta okkur á hvort þetta var tæknilegt vandamál eða ekki,“ segir Tómas. Hann útilokar ekki að Neyðarlínan hafi gert mistök, sem hafi þá verið tæknilegt klúður. Skv. heimildum Morgunblaðsins hafði bíllinn, sem var gömul Benz- rúta innréttuð sem húsbíll, verið í gryfjunum við Torfastaði í Grafningi síðustu vikur og maðurinn, sem tal- inn er hafa farist, átt athvarf sitt í ökutækinu. Maðurinn var tæplega fertugur og hafði m.a. haldið til í bílnum um nokkurt skeið. Var meðal annars í Hveragerði síðasta vetur. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir rannsókn lögreglu í héraði nú munu beinast að því hver upptök eldsins í bílnum voru og ekki sé gengið að neinu gefnu í málinu. Sömuleiðis þurfi að staðfesta auð- kenni mannsins með allri vissu, enda þótt vísbendingarnar um hver hinn látni sé hnígi allar í sömu átt. Þá er leitað upplýsinga um mögulega um- ferð ökutækis við brunavettvanginn þegar eldurinn var hvað mestur og óskar lögreglan eftir upplýsingum frá þeim sem þar hafi mögulega ver- ið á ferð. Breytingar hjá Neyðarlínu í undirbúningi Tómas Gíslason greinir frá því að nú sé verið í samvinnu við lögregluna að breyta fyrirkomulagi innhring- inga í Neyðarlínuna og taki það gildi um næstkomandi áramót. Eftir það mun sá eða sú sem hringir í 112 að- eins tala við einn neyðarvörð allt símtalið, í stað þess að vera færður yfir til lögreglu, slökkviliðs eða ann- ars. Þess í stað getur lögreglan eða aðrir eftir atvikum haft samband við innhringjanda strax í kjölfarið til að fá frekari upplýsingar um aðstæður eða málavöxtu. Í langflestum tilvik- um mun símtalinu því ljúka eftir samtal við neyðarvörð. Öll atburðarásin er í rannsókn  Rannsókn á bílbruna í Grafningi sl. föstudagskvöld í fullum gangi  Lögregla fékk ekki boð um eld  Tæknilegt svarthol í símkerfi er hugsanleg skýring, segir Neyðarlínan  Átti athvarf í húsbílnum Malargryfjan þar sem bíllinn fannst sl. laugardag Álftavatn Tunguá Hlíðará So gi ð Torfastaðir ■ Þ ingvallavegur G R A F N I N G U R G R Í M S - N E S Búrfellsland Sjón arvottar hringdu kl. 23:30 á föstudagskvöld Bruni í húsbíl í Grafningi Kortagrunnur: OpenStreetMap Búrfell Lyngdals- heiði Ingólfs- fjall Hvítá Ölfusá Stækkað svæði Þingvalla- vatn Selfoss GRAFNINGUR GRÍMS- NES Grafningsvegur neðri 36 350 Loftmyndir ehf. Oddur Árnason Tómas Gíslason Átta landvörðum og einum verkefn- isstjóra Þingvallaþjóðgarðs var sagt upp störfum í gærmorgun. Upp- sagnirnar taka gildi 1. nóvember, en þjóðgarðsvörður segist vona að hægt verði að endurráða starfsmennina með vorinu. „Við þurftum að grípa til þessara uppsagna vegna þess að það hefur verið mikið tekjufall á þessu ári og það er fyrirséð áfram á næsta ári. Tekjugrunnur þjóðgarðsins hefur að miklu leyti verið byggður upp á sér- tekjum, það er að segja bílastæða- gjöldum, gjöldum í Silfru og tjald- svæðum og öðru. Þetta hefur farið ansi hratt á þessu ári og þjóðgarð- urinn hefur verið í hálfgerðri gjör- gæslu þetta árið. Ég hef verið í mikl- um samskiptum við ráðuneytið til þess að reyna að fá úr því skorið hvernig við getum staðið að þessu,“ segir Einar Ásgeir Sæmundsen þjóðgarðsvörður. Einar segir að framlag til þjóð- garðsins sé það sama í fjárlögum fyr- ir næsta ár og hefur verið undanfar- in ár. Það hafi því þurft að grípa til ráðstafana til að stemma stigu við sértekjutapi sem hefur orðið af völd- um heimsfaraldurs kórónuveirunn- ar. liljahrund@mbl.is Átta landvörðum sagt upp störfum  Þingvellir „í hálfgerðri gjörgæslu“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.