Morgunblaðið - 13.10.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com,
kajaorganic@gmail.com
Byggmjólk
Eina íslenska
jurtamjólkin
Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi
Sigmundur Davíðbirti snjalla
grein hér í blaðinu
um Ybba og nýskírð-
ir oflátungar réðu
ekki við sig og ýttu
undir tíðindin sem í
greininni fólust. Páll
Vilhjálmsson skrifar:
Ybbar á félags-miðlum keppast
við að hafa áhrif á
dagskrá fjölmiðla.
Eftir opinberan at-
burð, s.s. ræðu Sig-
mundar Davíðs á
þingi, ráðstafanir í efnahagsmálum,
frétt af hælisleitanda, drífa ybbarnir
sig af stað að selja sitt sjónarhorn.
Færslur frá þekktum ybbum rataeinatt í fjölmiðla og þar með er
komin hlutdeild í dagskrárvaldi.
Pólitískur ávinningur er töluverð-ur. Á hverjum tíma er takmörk-
uð dagskrá, þótt hún sé ekki afmörk-
uð við fyrirframgefin atriði.
Fólk kemst einfaldlega ekki yfirnema takmarkað magn af upp-
lýsingum.
Sjónarhornið er afgerandi.
Ef tekst að setja rasískan stimpil ástjórnmálamann er sá kominn í
veika stöðu.
Ef einhver þarf að verjast ásök-unum um spillingu er viðkom-
andi fastur í vörninni og getur ekki
sótt fram með sinn málflutning.
Flestir ybbar eru vinstrimenn.
Enda er vinstrislagsíða á pólitískriumræðu.“
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Ybbar stimpla inn
STAKSTEINAR
Páll Vilhjálmsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dóms-
málaráðherra mælti fyrir frumvarpi á
Alþingi í gær, þar sem gerðar eru rót-
tækar breytingar á mannanafnalög-
um sem meðal annars fela í sér að
mannanafnanefnd verði lögð niður.
Verði frumvarpið að lögum segir
Áslaug að fólk muni hafa frelsi til að
bera það nafn sem það kýs, að taka
upp nýtt ættarnafn og að engin há-
mörk verði á fjölda nafna fólks.
Hugmyndir á borð við þær sem
fram koma í frumvarpinu hafa lengi
verið til umræðu en frumvarpið eins
og það er lagt fram núna er ólíkt öðr-
um sem fram hafa komið. Ýmsir að-
ilar hafa veitt umsögn um efni þess
nú, þar á meðal Ármann Jakobsson,
prófessor og formaður Íslenskrar
málnefndar.
Í umsögn sinni segir Ármann til-
efni til að endurskoða lögin en legg-
ur til að þrátt fyrir að það verði gert,
haldi mannanafnanefnd velli, enda
sé mikilvægt að
slík nefnd sé til
staðar til að veita
ráðgjöf um þessi
efni.
Eiríkur Rögn-
valdsson mál-
fræðingur segir í
sinni umsögn að
engin ástæða sé
til að óttast þess-
ar lagabreytingar
og vill að lagðar séu sem minnstar
hömlur á form og eðli mannanafna.
Breytingar í þá átt skaði ekki ís-
lenska tungu.
„Það eru mismunandi skoðanir á
málinu innan míns þingflokks og
stjórnarflokkanna, en ég tel að með
þessu frumvarpi sé litið til ólíkra
sjónarmiða og gengið ákveðinn milli-
veg í nauðsynlegum breytingum,“
segir Áslaug spurð um stuðning við
frumvarpið.
Mannanafnanefnd verði lögð niður
Dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi sínu á þingi um mannanafnalög
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Dr. Pétur Mikkel Jón-
asson, vatnavistfræð-
ingur og prófessor em-
erítus við Kaupmanna-
hafnarháskóla, er
látinn, 100 ára gamall.
Pétur fæddist í
Reykjavík 18. júní
1920. Foreldrar hans
voru Jónas Halldór
Guðmundsson skipa-
smiður og Margrét
Guðmundsdóttir Otte-
sen húsfreyja.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1939 og
las líffræði við Hafnar-
háskóla. Að loknu almennu þriggja
ára námi lagði hann stund á vatna-
líffræði og lauk magistersprófi í
dýrafræði 1952. Hann rannsakaði
vistfræði stöðuvatna og varði dokt-
orsritgerð um Esrom-vatn á Sjá-
landi við Hafnarháskóla 1972.
Pétur varð kennari við Hafnarhá-
skóla 1956, skipaður forstöðumaður
Vatnalíffræðistofnunar skólans 1977
og prófessor í vatnalíffræði 1979.
Þeirri stöðu gegndi hann til ársins
1990 en starfaði sem prófessor em-
erítus til ársins 2017.
Pétur hóf að rannsaka vistkerfi
Mývatns 1971 og sneri sér svo að
rannsóknum á vistkerfi Þingvalla-
vatns. Rannsóknirnar mörkuðu
tímamót og lagði Pétur mikið af
mörkum til náttúruverndar.
Náttúrufræðing-
urinn sem kom út á
liðnu sumri var gefinn
út til heiðurs Pétri í
tilefni af 100 ára af-
mæli hans. Þingvalla-
vatn og rannsóknir á
því voru þema heft-
isins. Pétur ritaði þar
grein, Þingvallavatn
og Mývatn – gróð-
urvinjar á flekaskilum.
Hann skrifaði meira
en 100 vísindagreinar
auk bókarkafla og
bóka um vatnavist-
fræði og náttúruvernd.
Pétur var félagi í ýmsum vísinda-
félögum og m.a. forseti Alþjóða-
samtaka vatnalíffræðinga um skeið
og lengi varaforseti Norræna vist-
fræðiráðsins. Hann hlaut margar
viðurkenningar, m.a. Verðlaun Jóns
Sigurðssonar 2012, riddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu, ridd-
arakross af Dannebrog og æðsta
heiðursmerki vatnalíffræðinga. Pét-
ur var heiðursdoktor við Hafnarhá-
skóla og Háskóla Íslands og heið-
ursfélagi Hins íslenska
náttúrufræðifélags.
Pétur kvæntist Dóru Kristínu
Gunnarsdóttur (f. 1926, d. 2018) árið
1964. Þau eignuðust tvær dætur,
Margréti hagfræðing (f. 1964) og
Kristínu lögfræðing (f. 1967). Þær
eru báðar búsettar í Danmörku.
Andlát
Dr. Pétur M. Jónasson