Morgunblaðið - 13.10.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020
Hörður Bergmann,
kennari og rithöfundur,
lést á Landspítalanum
að morgni 10. október,
87 ára að aldri.
Hörður fæddist 24.
apríl 1933 í Keflavík,
sonur hjónana Hall-
dóru Árnadóttur hús-
móður og Jóhanns
Bergmanns bifvéla-
virkja. Hann lauk stúd-
entsprófi frá ML 1954,
BA-prófi í dönsku, sögu
og uppeldisfræði frá HÍ
1956, stundaði nám í
kennslufræði, uppeldis-
sálarfræði og dönsku við Kenn-
araháskólann í Kaupmannahöfn
1971-72 og sótti auk þess ýmis nám-
skeið í dönsku, málakennslu og
kennslu- og uppeldisfræðum hér á
landi, í Danmörku, Svíþjóð og Eng-
landi.
Hörður var kennari við Gagn-
fræðaskólann við Hringbraut 1956-
58 og við Hagaskóla 1958-74, var
námstjóri í dönsku við skólarann-
sóknadeild menntamálaráðuneytis
1972-82 og endurskoðandi námskrár
fyrir grunnskóla við sama ráðuneyti
1982-84 og annaðist endurmennt-
unarnámskeið fyrir dönskukennara
á vegum KHÍ 1973-79, var deildar-
stjóri fræðsludeildar Vinnueftirlits
ríkisins 1984-93 og framkvæmda-
stjóri Hagþenkis 1993-2001.
Hörður sat í Stúd-
entaráði HÍ 1955-56,
var formaður Félags
róttækra stúdenta
1956-57, sat í stjórn
Æskulýðsfylking-
arinnar 1958-60 og Fé-
lags háskólamennt-
aðra kennara 1968-71,
var í fræðsluráði
Reykjavíkur 1978-82
og fulltrúi Íslands í
nefnd sem stjórnaði
norrænu grannmála-
áætluninni 1976-77.
Hörður var fyrsti for-
maður Hagþenkis
1983-89 og sat í stjórn Fjölís, sam-
taka rétthafa, frá 1986 til 2002.
Hörður ritaði margt um mennta-
og þjóðmál og birti í blöðum og tíma-
ritum. Þrjár bækur um þróun þjóð-
félags- og lífshátta liggja eftir hann.
Þá samdi hann, ýmist einn eða í sam-
starfi við aðra, fjölda kennslubóka í
dönsku og íslensku. Einnig var hann
höfundur bóka og fræðsluefnis um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á
vinnustað. Hann þýddi ritið Inn-
gangur að félagsfræði eftir Peter
Berger, ásamt Lofti Guttormssyni.
Eiginkona Harðar var Dórothea
Sveina Einarsdóttir leiðbeinandi en
hún lést 2011. Börn þeirra eru Hall-
dóra Björk, Atli, Jóhanna og Helga
Lilja. Barnabörnin eru níu og barna-
barnabörnin ellefu.
Andlát
Hörður Bergmann
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Töluvert hefur sést af flækingsfuglum
á Suðausturlandi og Austurlandi í
þessum mánuði. Þeir hafa flestir kom-
ið í suðaustlægum áttum frá Evrópu-
löndum.
Brynjúlfur Brynjólfsson, fugla-
áhugamaður á Höfn í Hornafirði, set-
ur fréttir af flækingsfuglum á vefinn
fuglar.is. Í fyrradag voru þar m.a.
skráðir þrír gráhegrar í Nesjum, tveir
fjöruspóar og gulllóa í Garði, hettu-
söngvari í Kjós og elrigreipur á Hvals-
nesi. Að undanförnu hefur græningi
haldið sig á Höfn og 14 fjöruspóar
voru í Nesjum. Þá sást gráhegri í
Garðabæ, nánar tiltekið við Vífilsstaði.
Listinn var óvenju langur um þar
síðustu helgi og taldi um 20 flækings-
fuglategundir. Þá höfðu margir fugla-
skoðarar lagt leið sína austur til að
leita að flækingsfuglum eftir hag-
stæðar vindáttir.
Brynjúlfur fann garðaskottu í
Hvalnesi í Lóni á fimmtudaginn var
og önd sem heitir krummönd við
Þvottárskriður í Álftafirði. Hún hefur
sést á vorin og haustin. „Þetta var í
fyrsta skipti sem ég sá hana í haust.
Þetta er amerísk hrafnsönd og gæti
mögulega verið eina eintakið sem hef-
ur fundist hér á landi. Þær gætu þó
hafa verið tvær. Ég fann þessa teg-
und fyrst fyrir 2-3 árum. Þetta gæti
mögulega verið sami fuglinn að koma
aftur á sama svæði,“ sagði Brynjúlfur.
Grátrana sást á Mýrum en par af
þeirri tegund hafa orpið fyrir austan.
Þessi gæti mögulega tengst því varpi.
Brynjúlfur segir að grátrönur hafi
verið að færa sig norður eftir Evrópu
og séu orðnar mjög algengar í Svíþjóð
og þeim hafi líka fjölgað í Noregi.
Margar tegundir söngvara
Margar tegundir af söngvaraætt
hafa sést á landinu í haust. Þar má
nefna hettusöngvara, hnoðrasöngv-
ara, gransöngvara, laufsöngvara og
netlusöngvara. Talsverður hópur af
hnoðrasöngvurum, frá Síberíu, og
gransöngvurum, skandinavískum eða
rússneskum, virðist hafa komið til
landsins. Brynjúlfur segir að gran-
söngvararnir séu harðgerir þrátt fyr-
ir smæðina. Þá sáust hér dvalsöngv-
ari og elrisöngvari í haust en þeir eru
sjaldgæf sjón. Hnoðrasöngvari er
minnstur söngvara, um níu senti-
metra langur, en hauksöngvarinn
stærstur, 15-16 sentimetrar, eða svip-
að og þúfutittlingur.
Um leið og koma suðvestan- eða
norðanáttir tekur fyrir komur flæk-
inga frá Evrópu. Gæsirnar láta hins
vegar norðanáttina létta sér flugið á
vetrarstöðvarnar. Í síðustu viku fóru
stórir hópar af helsingjum frá Horna-
firði. Fimm íslenskir helsingjar bera
GPS/GSM senda og er því hægt að
fylgjast nákvæmlega með ferðum
þeirra. Þeir voru allir komnir til Skot-
lands um síðustu helgi.
Ljósmynd/Brynjúlfur Brynjólfsson
Hnoðrasöngvari Hann er einn af minnstu fuglunum sem flækjast hingað og koma þeir stundum í hópum.
Margar tegundir flækingsfugla
BHM hefur sent forstjóra Sjúkra-
trygginga Íslands (SÍ) bréf þar sem
nýlegum uppsögnum stjórnenda hjá
stofnuninni er mótmælt og lögmæti
þeirra dregið í efa. Bandalagið skor-
ar á stofnunina að draga uppsagn-
irnar til baka.
Nýlega var tilkynnt um skipulags-
breytingar hjá SÍ sem taka gildi frá
og með næstu áramótum. Í tengslum
við þær var 22 stjórnendum sagt upp
en sumum þeirra boðnar nýjar
stjórnunarstöður innan stofnunar-
innar. Öðrum voru boðin lægra laun-
uð störf sérfræðinga.
Fram kemur í bréfi BHM, sem
lögmaður bandalagsins undirritar,
að ekki liggi fyrir hvaða verkefnum
fyrrverandi stjórnendum sé ætlað að
sinna kjósi þeir að þiggja lægra laun-
uð störf sérfræðinga. Að mati banda-
lagsins er þetta gagnrýnivert. Einn-
ig er bent á að einhverjum
stjórnendum hafi verið tjáð að ekki
tæki því fyrir þá að sækja um nýja
stjórnunarstöðu hjá stofnuninni þar
sem þau uppfylltu ekki hæfnisskil-
yrði, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu sem BHM sendi frá sér í gær.
Draga lögmæti
uppsagna í efa
BHM mótmælir uppsögnum hjá SÍ
Sjúkratryggingar BHM mótmælir
uppsögnum þar harðlega.
Barnakuldaskór
Verð 11.995
Stærðir 25-36
SMÁRALIND
www.skornir.is
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið