Morgunblaðið - 13.10.2020, Page 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 2020
✝ StyrmirHreinsson
fæddist 17. febrúar
1934 á Hamri í Lax-
árdal, Reykdæla-
hreppi. Hann lést á
Sólvöllum á Eyr-
arbakka 4. október
2020. Foreldrar
Styrmis voru Ragna
Sigurðardóttir, f.
1906, d. 1999, og
Hreinn Sigtryggs-
son, f. 1898, d. 1985. Eiginkona
Styrmis var Ásta Rakel Sæ-
mundsdóttir, f. 23. nóvember
1931, d. 28. febrúar 2016. Styrm-
ir og Ásta Rakel eignuðust fimm
börn: 1) Ásdís, f. 7.12. 1965, maki
Magnús I. Guðjónsson Öfjörð, f.
22.3. 1957. Börn þeirra eru: a)
Sævar Öfjörð, f. 3.8. 1983, maki
Auður Örlygsdóttir, f. 17.5. 1983.
Börn þeirra eru Steinunn Dís
Öfjörð, f. 5.6. 2009, Magnús
Kjartan Öfjörð, f. 13.6. 2012, og
Úlfhildur Elín, f. 28.7. 2014. b)
Bryndís Öfjörð, f. 8.1. 1990. 2)
Gunnar, f. 15.2. 1967, maki Bára
Hafliðadóttir, f. 30.5. 1968. Börn
þeirra eru: a) Erla, f. 3.12. 1993,
maki Bjarki Jónsson, f. 17.1.
1989, barn þeirra Máney, f. 6.11.
2019. b) Íris, f. 20.11. 2002 og c)
Björk, f. 10.7. 2004. 3) Hjalti, f.
4.1. 1969, maki Martha Rut Sig-
urðardóttir, f. 8.11. 1979. Börn
þeirra eru: a) Sig-
urður Fannar, f.
12.1. 2000, b)
Styrmir Freyr, f.
22.10. 2007, og c)
Kristín Ásta, f. 4.3.
2010. 4) Sólveig, f.
9.11. 1970, maki
Viðar Þór Pálsson,
f. 31.8. 1964. Börn
þeirra eru: a) Ásta
Rakel, f. 2.6. 1998,
og Katrín Karítas, f.
7.9. 2000. 5) Ragnheiður Ásta, f.
24.5. 1976.
Systkini Styrmis voru Ormur,
f. 1927, d. 2016, Sigurður, f. 1928,
d. 1983, Ölvir, f. 1932, d. 1988,
Helga, f. 1936, d. 2012. Styrmir
bjó í Laxárdal til 1954 er fjöl-
skylda hans flytur suður að Eg-
ilsstöðum í Villingaholtshr.
Hann og Ásta stunda búskap
þar frá 1965-1977 er þau flytja á
Selfoss. Eftir það vann Styrmir
ýmsa verkamannavinnu, síðast
hjá Kjötvinnslunni Höfn á Sel-
fossi. Styrmir og Ásta höfðu
gaman af að ferðast um landið og
gerðu mikið af því.
Útför Styrmis fer fram frá
Selfosskirkju 13. október 2020,
klukkan 14. Streymt verður frá
útförinni
https://selfosskirkja.is
Virkan hlekk á slóð má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Í dag kveð ég elsku pabba.
Við vorum mjög lík með margt,
höfðum til dæmis mikla ástríðu
fyrir mat. Þú komst oft til mín og
við elduðum saman. Nú eða fórum
í pylsuvagninn í kók og pylsu.
Tókum ófáa rúnta á Ravinum
meðfram Þjórsá, en þá varstu að
spá í hvernig gengi hjá bændun-
um. Það var víst eftir því tekið
hversu lágskýjað var í bílnum
þegar við feðginin mættum á
rúntinn, þá reyktum við bæði. Það
var mjög gaman að fara með þér í
bíltúra því þú vissir allt um stað-
arheiti, hver bjó hvar og margt
fleira. Þú kenndir mér margt, t.d.
að prjóna, lesa og reima skó fyrir
fyrsta skóladaginn.
Þú fluttir á Sólvelli á Eyrar-
bakka 2018 en þá ákvörðun tókstu
sjálfur. Þar leið þér greinilega vel.
Við töluðum saman í síma daglega
og hittumst oft, 4-5 sinnum í viku.
Vorum háð hvort öðru. Þú varst
mjög stundvís og gott betur,
snöggur hálftími var 20 mínútur
hjá þér.
Þú vissir að þinn tími væri
kominn og varst búinn að sjá fal-
lega laut í sumarlandinu. Ég veit
að mamma tekur vel á móti þér.
Þín elskandi dóttir,
Ragnheiður Ásta (Gagga).
Í dag fylgjum við afa Styrmi
síðasta spölinn. Það er svo sárt að
kveðja en við vitum og vonum að
þér líði betur í sumarlandinu með
ömmu Ástu. Síðustu mánuðir hafa
verið þér ansi erfiðir þar sem þá
mátti lítið sem ekkert heimsækja
þig. Í heila tvo mánuði var rétt svo
hægt að kíkja á þig á tröppunum
fyrir utan Sólvelli. Þetta var alls
ekki þinn stíll. Þú vildir vera um-
kringdur fólkinu þínu og vera á
flakki um landið og sveitirnar. Þú
sagðir okkur fjölskyldunni frá því
í vor að þig hefði dreymt draum,
og í þessum draumi var afskap-
lega falleg laut. Þetta var auðvitað
sumarlandið, sagðir þú. Á svona
kveðjustund koma minningar um
gamla og góða tíma upp og eru
okkur systkinunum ofarlega í
huga allar þær stundir sem við
áttum með þér og ömmu í Lamb-
haga 18 þar sem þið bjugguð frá
1977 til 2012. Þar var aldrei dauð
stund og þér féll aldrei verk úr
hendi. Okkur krökkunum var allt-
af treyst til verka við hæfi, hvort
sem það voru garðyrkjustörf,
hjálp við eldamennsku og bakstur
eða jafnvel að skipta um dekk á
bílnum ykkar ömmu. Stundum
var skroppið í veiði í Þjórsá og afl-
inn auðvitað eldaður þegar heim í
Lambhagann var komið. Þið
amma nutuð þess að ferðast um
landið, heimsækja fólk og staði og
fá að drekka kaffi og spjalla um
daginn og veginn. Þú varst alltaf
með landafræðina á hreinu og ef
þú fékkst veður af því að við vær-
um að fara eitthvað í ferðalag eða
bíltúr þá var sest niður og farið ít-
arlega yfir leiðina, hvað við gæt-
um átt í vændum og auðvitað það
mikilvægasta að okkar mati,
hvaða sjoppur væru nú góðar til
að stoppa í á leiðinni. Nú ert þú á
leið í þitt síðasta ferðalag í sum-
arlandið eins og þú orðaðir það
sjálfur. Hvar sem þú ert þá hugs-
um við til þín og ömmu saman í
sumarlandinu ykkar. Látum
fylgja nokkrar línur úr ljóðinu eft-
ir afa þinn sem lýsa vonandi þess-
um fallega stað.
Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður,
þegar lífsins dagur dvín,
dýra, kæra fóstra mín,
búðu um mig við brjóstin þín.
Bý ég þar um eilífð glaður.
Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður.
(Sigurður Jónsson.)
Sævar og Bryndís.
Elsku afi.
Nú er komið að kveðjustund.
Flestar helgar komum við í heim-
sókn til þín, spjölluðum um dag-
inn og veginn og alltaf áttir þú
eitthvað gott handa okkur í
skápnum þínum. Alla miðviku-
daga komst þú til okkar og borð-
aðir með okkur kvöldmat. Þegar
við fórum í ferðalög vildir þú
heyra í okkur þegar við vorum
komin á leiðarenda. Þú gafst okk-
ur oft smá ferðapeninga sem við
máttum nota til að gera eitthvað
skemmtilegt eða bara kaupa okk-
ur smá nammi á ferðalaginu.
Þetta ár er búið að vera skrítið og
höfum við ekki getað hitt þig eins
mikið og við vildum. Við söknum
þín, elsku afi, en minningar um
skemmtilegar samverustundir
lifa í hjörtum okkar.
Þín barnabörn.
Sigurður Fannar, Styrmir
Freyr og Kristín Ásta.
Elsku afi okkar er fallinn frá.
Eftir sitja margar minningar um
samverustundir með elsku afa
okkar. Þegar við komum í heim-
sókn í Lambhagann og fengum
afa rebba ís og tókum upp kart-
öflur og tíndum rifsber í garðin-
um. Afi hafði gaman af matargerð
og gátum við alltaf treyst á það
væri alvöru íslenskur matur
heima hjá afa og ömmu.
Afi passaði alltaf upp á okkur
og fór ófáa túra eftir að hann flutti
á Sólvelli í
Pylsuvagninn til Írisar, fylgjast
með pallasmíðum hjá Erlu og
heilsa upp á yngsta langafabarn-
ið, hana Máneyju. Afi hafði líka
alltaf gaman af því þegar hann fór
að versla í Krónunni og Björk að-
stoðaði hann.
Við vitum að amma Ásta tekur
vel á móti þér með hlýju í sum-
arlandinu.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín,
yndislega sveitin mín,
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
(Sigurður Jónsson frá Arnarvatni.)
Hvíl í friði, elsku afi.
Þínar
Erla, Íris og Björk.
Styrmir Hreinsson
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
HELGA HANSDÓTTIR,
Sléttuvegi 13, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn
30. september.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 14. október klukkan 11.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á slóðinni:
https://youtu.be/FNRtbtqsdi0
Hlekkur inni á:
https://www.mbl.is/andlat/minningar/utfarastreymi/ á
útfarardegi.
Guðrún Þorsteinsdóttir Friðrik G. Olgeirsson
Sigrún Þorsteinsdóttir Brynjólfur Markússon
Hans Ragnar Þorsteinsson Helga Laufdal
Sveinn Þorsteinsson Heiða Lára Eggertsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÉTUR MIKKEL JÓNASSON
prófessor, dr. phil í vatnalíffræði
við Kaupmannahafnarháskóla,
lést í Nærum fimmtudaginn 1. október.
Útförin fer fram frá Skansekirkegårdens
kapel þriðjudaginn 20. október klukkan 12.
Margrét Jónasson Claus Parum
Kristín Jónasson Henrik Thornval
Marcus, Liv, Peter Vilhelm Frederik,
Andreas og Natasia
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR GARÐARSSON,
Boðaþingi 24,
verður jarðsunginn frá Lindakirkju
föstudaginn 16. október klukkan 16.
Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar
og vinir viðstaddir.
Margret Elíasdóttir
Ólafía Sigurðardóttir
Laufey Sigurðardóttir Ingi Rafn Bragason
Steinunn Sigurðardóttir
barnabörn og langafabörn
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
ÁSDÍS R. ARTHURSDÓTTIR,
Ársölum 3, Kópavogi,
lést á deild 2A Landspítalanum, Fossvogi
fimmtudaginn 1. október. Jarðarförin hefur
þegar farið fram.
Einar H. Einarsson Sigurlína Gísladóttir
Sigrún Einarsdóttir
Arnþór Einarsson Elín Þóra Dagbjartsdóttir
Lára Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐNI HANNESSON,
Lindarvaði 12, Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 6. október.
Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju
fimmtudaginn 15. október klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða
aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Starfsfólki HERU
sendum við sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun og hlýju við
heimahjúkrun. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort HERU
líknarheimaþjónustu.
Valgerður Jónsdóttir
Svanlaug Guðnadóttir Sigurjón Kr. Sigurjónsson
Jörgen Már Guðnason
Einar Guðnason
Arnar Guðnason Sigríður Mist Hjartardóttir
Heiðar Guðnason Sandra Valsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN HJARTARSON
offsetprentari,
lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn
7. október á A4 á Landspítala, Fossvogi.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
15. október klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins
nánustu ættingjar og vinir viðstaddir, en athöfninni verður
streymt. Upplýsingar um streymið má finna á fésbókarsíðu
Jóns.
Ásta Jónsdóttir Einar A. Símonarson
Vala Hrund Jónsdóttir Sigfús Kröyer
Sólveig Ásgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
SÆBERGS ÞÓRÐARSONAR
fasteignasala.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaða
3. hæð fyrir alúð og góða umönnun.
Magný Kristinsdóttir
Hekla Karen Sæbergsdóttir Friðrik Guðmundsson
Hulda Katla Sæbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku besti eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, tengdasonur og hjartkær vinur,
HALLDÓR ERLENDSSON,
lést af slysförum sunnudaginn 4. október.
Útför hans fer fram frá Garðakirkju
föstudaginn 16. október klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á
https://livestream.com/luxor/halldor. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Linda Björk Jóhannsdóttir
Sigurrós Björg Halldórsdóttir Rix
Erlendur Halldórsson
Þorgerður Sveinbjörnsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÞÓRIR GUÐJÓNSSON,
bakarameistari frá Sauðárkróki,
Álfaheiði 8b, Kópavogi,
lést laugardaginn 3. október.
Útför fer fram frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 15. október klukkan 15 og
verður streymt frá athöfninni á slóðinni:
https://www.facebook.com/groups/gunnar.
Sólrún J. Steindórsdóttir
Guðbjörg Gunnarsdóttir Sigurjón Sæland
Kristín Gunnarsdóttir Hákon Sigþórsson
Gunnar Andri Gunnarsson Herdís Guðmundsdóttir
Guðjón Baldur Gunnarsson Anna Lára Ármannsdóttir
Guðjón, Þórður, Andrea, Aðalbjörg, Steindór, Sólrún,
Iðunn, Hlín, Eydís, Eva og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og systir,
VILBORG SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn
9. október. Útförin fer fram í kyrrþey.
Jóhannes Arason
Telma Jóhannesdóttir
Ari Jóhannesson
Árni Gautur Arason Sólveig Þórarinsdóttir
Vilborg Elísabet Árnadóttir
Kristján Pétur Árnason
Bjarney Bjarnadóttir
Kristín Árnadóttir
Björn Th. Árnason
Einar Sveinn Árnason
Árni Árnason
Vilhjálmur Jens Árnason