Morgunblaðið - 20.10.2020, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020
LÉLEG
RAFHLAÐA?
Við skiptum
um rafhlöðu
samdægurs
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Ragnhildur Þrastardóttir
Jóhann Ólafsson
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra
vegna Covid-19-aðgerða tók gildi á
miðnætti en aðgerðir sem hún boðar
eru í meginatriðum þær sömu og þær
aðgerðir sem hafa verið í gildi síðustu
tvær vikurnar. Reglugerðin heimilar
þó líkamsræktarstöðvum að opna á
hóptíma með ákveðnum takmörk-
unum. Eina aðaluppsprettu smita í
þriðju bylgju má rekja til nokkurra
líkamsræktarstöðva, að sögn Þórólfs
Guðnasonar sóttvarnalæknis.
Alls greindust 42 ný kórónuveiru-
smit innanlands á sunnudag. Af þeim
voru 74% í sóttkví en 11 utan sóttkví-
ar. Nítján bíða nú niðurstöðu mót-
efnamælingar eftir að hafa greinst
með smit á landamærunum en um
var að ræða hóp sem kom til landsins
frá Póllandi. 27 eru á sjúkrahúsi og af
þeim eru þrír á gjörgæsludeild Land-
spítalans.
Færri smit en færri sýni
Smitin sem greindust á sunnudag
eru umtalsvert færri en dagana þar á
undan. Í því samhengi er vert að hafa
í huga að umtalsvert færri sýni voru
tekin á sunnudag en dagana þar á
undan eða um 1.200 talsins.
Í tilkynningu sem almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra sendi frá sér
í gær kemur fram að þrátt fyrir að
smitum hafi farið fækkandi sé of
skammur tími liðinn til þess að hrósa
sigri.
„Viðbúið er að í komandi viku og
þeirri næstu gæti álag á heilbrigðis-
kerfið farið vaxandi. Því er áríðandi
að við höldum áfram að tryggja ein-
staklingsbundnar smitvarnir. Það er
að þvo og sótthreinsa hendur oft og
reglulega, virða fjarlægðarmörk sem
eru í gildi og nota grímu þar sem ekki
er hægt að tryggja tvo metra á milli
fólks,“ segir í tilkynningunni.
Þá mæla almannavarnir með því að
fólk haldi sig heima og fari ekki í
ferðalög út á land í vetrarfríum grunn-
skólanna sem hefjast von bráðar.
Þórólfur sagði á upplýsingafundi al-
mannavarna í gær að ein aðal-
uppspretta þriðju bylgju kórónuveiru-
faraldursins væri rakin til líkams-
ræktarstöðva; ekki einnar heldur
fleiri. Þrátt fyrir það er útlit fyrir að
einhverjar líkamsræktarstöðvar opni
dyr sínar í dag með ákveðnum tak-
mörkunum þó. Það er vegna þess að
reglugerð heilbrigðisráðherra heim-
ilar slíkt.
Í reglugerðinni segir meðal annars
að heimilt sé með skilyrðum að
standa fyrir og stunda íþrótta- og
heilsuræktarstarfsemi á höfuðborg-
arsvæðinu ef um er að ræða skipu-
lagða hóptíma þar sem allir þátttak-
endur eru skráðir. Við þessar
aðstæður er skylt að virða tveggja
metra regluna, þátttakendur mega
ekki skiptast á búnaði meðan á tíma
stendur og allur búnaður skal sótt-
hreinsaður á milli tíma.
Sóttvarnalæknir mælti með því við
heilbrigðisráðherra í minnisblaði sínu
að halda núverandi aðgerðum áfram
næstu tvær til þrjár vikurnar til þess
að kveða veiruna niður, fækka nýjum
smitum og ná að vernda þannig heil-
brigðiskerfið.
Opna þrátt fyrir að vera uppsprettur smita
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mælti með sömu reglum og áður Líkamsræktarstöðvar
geta opnað á hóptíma Rekja má fjölda smita til líkamsræktarstöðva, að sögn sóttvarnalæknis
Ljósmynd/Lögreglan
Sóttvarnalæknir Þórólfur á upplýsingafundi í gær. Þar sagði hann of
snemmt að hrósa happi í baráttunni við veiruna þótt færri smit hafi greinst.
Kórónuveirusmit á Íslandi
Staðfest smit frá 30. júní
4.101 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 18. október:
287,7 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
Nýgengi, landamæri:
15,5 14 daga nýgengi
27 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af 3 á gjörgæslu
42 ný inn an lands smit greindust 18. október
1.650
eru í skimunarsóttkví
100
80
60
40
20
0
99
75
16
2.878 einstaklingar eru í sóttkví
1.234 eru með virkt smit og í einangrun
júlí ágúst september október
Landamæraskimun:
Virk smit Beðið eftir mótefnamælingu
Fjöldi smita
innanlands
11 einstaklingar eru látnir
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hættan á að smitast af nýju kórónu-
veirunni eykst eftir því sem fleiri
koma saman, að sögn Jóhanns
Björns Skúlasonar, yfirmanns smit-
rakningarteymis sóttvarnalæknis og
almannavarna. Ef margmenni er á
staðnum og einhver í hópnum er
smitandi aukast líkurnar á að smit
berist út ef loftræsting er léleg og
eins ef mikil nálægð er á milli fólks.
Sjaldnast er hægt að fullyrða um
það hvernig smit fer fram þegar kór-
ónuveiran berst á milli manna. Jó-
hann segir að líkurnar á að smitast
með snertismiti séu líklega minni en
að smitast með dropasmiti. Droparn-
ir koma t.d. þegar smitaðir hósta eða
hnerra. Við dropasmit nægir að vera
í sama rými og smitberinn. Það þarf
ekki endilega að vera lítið rými.
Einnig skiptir máli hvað maður hef-
ur þar langa viðdvöl. Líkurnar eru
meiri á að smitast í þröngu rými en
rúmgóðu. Þannig fylgir því talsverð
áhætta að ferðast í bíl með einhverj-
um sem er smitandi. Eins aukast lík-
ur á smiti ef samskipti við smitber-
ann eru ítrekuð yfir daginn, eins og
getur gerst á vinnustöðum. Andlits-
grímur draga úr hættu á dropasmiti.
Jóhann segir að svo virðist sem
ekki fylgi mikil smithætta stuttum
einskiptissamskipum þar sem gætt
er að fjarlægð milli fólks, eins og t.d.
við afgreiðslu. Þannig er ekki al-
gengt að afgreiðslufólk í verslunum
eða á gistihúsum hafi smitast í
vinnunni.
Jóhann segir ekki hægt að útiloka
að á skemmtistöðum sem smit voru
rakin til hafi bæði verið um dropa-
smit og snertismit að ræða. Þar var
margt fólk í sama rými, mikil nálægð
á milli þess og margir sameiginlegir
snertifletir. Hann segir að eftir smit
á vinnustað segist fólk gjarnan bara
hafa farið í kaffivélina. Snertifletirn-
ir séu þó líklega fleiri, þótt fólk átti
sig ekki alltaf á því.
Flest smitin komu utan að
„Kórónuveirusmit hafa komið upp
hjá starfsmönnum Landspítala eins
og öðrum landsmönnum. Flest smit
starfsmanna hafa átt uppruna í sam-
félaginu og hafa ekki náð að dreifast
innan Landspítala nema í fáum til-
fellum,“ segir Anna María Þórðar-
dóttir, hjúkrunarfræðingur sem er í
smitrakningarteymi Landspítalans.
„Við vitum ekki til þess að smit hafi
dreifst milli starfsmanna og sjúk-
linga en dæmi er um hópsýkingu á
deild og þá er erfitt að fullyrða hver
smitaði hvern.“
Nýlega kom upp eitt smit á bráða-
móttöku spítalans og kom það utan
frá. Enginn annar á bráðamót-
tökunni smitaðist. Anna María segir
að Landspítali búi við afar þröngan
húsnæðiskost og í sumum tilvikum
uppfylli húsnæðið ekki nútímakröfur
um sýkingarvarnir. Þrengsli í starfs-
mannarýmum auki hættu á dreif-
ingu smits milli starfsmanna.
„Samkvæmt tilmælum sóttvarna-
læknis á fólk að halda tveggja metra
fjarlægð ef það er ekki með grímu.
Það er ekki framkvæmanlegt á kaffi-
stofum spítalans en þangað þarf fólk
að fara í neysluhléum á vinnutíma.
Við höfum haft miklar áhyggjur af
þessu. Hins vegar getum við ekki
fullyrt að smit hafi borist á milli
starfsmanna á kaffistofum en mögu-
leikinn er sannarlega fyrir hendi,“
segir Anna María. „Vitað er að kór-
ónuveiran smitast auðveldlega með
dropa- og snertismiti og því er mikil
áhersla lögð á hreinsun snertiflata í
sameiginlegum rýmum oft á dag til
að rjúfa smitleiðir, samfara hand-
hreinsun, fjarlægðarmörkum og
notkun einnota skurðstofugríma.
Einnig hafa verið innleiddar snerti-
fríar lausnir, t.d. við inn- og útstimpl-
un, til að fækka snertiflötum.“
Veirusmit í marg-
menni og þrengslum
Þröngar kaffistofur Landspítalans valda áhyggjum
Morgunblaðið/Golli
Mannmergð Margmenni, mikil nálægð á milli fólks og léleg loftræsting í
rými auka líkur á kórónuveirusmiti milli manna. Myndin er úr safni.
Fyrirtækið Heilsuvernd getur tekið
við 100 sjúklingum frá Landspítala
án mikils tíma eða tilkostnaðar, og
hefur sent heilbrigðisráðuneytinu
bréf þess efnis.
Um 100 sjúklingar á Landspítala
eru einmitt búnir með sína meðferð
og bíða þess að komast að á hjúkr-
unarheimilum. 35 manns þarf að út-
skrifa þegar í stað svo Landspítali
geti tekist á við kórónuveirufarald-
urinn með góðu móti.
Þetta kom fram á fundi velferð-
arnefndar Alþingis í gærmorgun.
Helga Vala Helgadóttir, formaður
nefndarinnar, segir að þrátt fyrir
að hún tali fyrst og fremst fyrir
opinberu heilbrigðiskerfi sé það sín
skoðun að taka beri fagnandi þeim
aðilum sem séu
tilbúnir að
tryggja jafnt að-
gengi að sínum
lausnum og und-
irgangast þau
skilyrði sem hið
opinbera setur
fyrir þjónust-
unni.
„Ég átta mig
ekki á því hvers
vegna þetta tekur svo langan tíma
þegar þetta bara stendur til boða
þarna. Þetta er fyrirtæki sem hefur
nú þegar gert samning við Sjúkra-
tryggingar varðandi heilsugæsl-
una,“ segir Helga Vala í samtali við
Morgunblaðið.
Heilsuvernd getur
tekið við sjúklingum
Helga Vala
Helgadóttir
Hundrað bíða eftir hjúkrunarrými
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI