Morgunblaðið - 20.10.2020, Page 11

Morgunblaðið - 20.10.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 var tekið í notkun. Síðan þá hefur húsið staðið sem geymsla og var það farið að láta mjög á sjá á margan hátt. Endurgerð í samráði við Minjastofnun Nú er búið að laga kjallarann og skipta þar um hurð og glugga. Þá er búið að klæða austurhlið hússins með bárujárni og skipta um glugga í austur- og suðurhlið. Svo er búið að skipta um burðarbita á milli hæða og til stendur að klára vesturhliðina að utan í haust. Lögð hefur verið áhersla á að endurbæta ytra byrði hússins til að byrja með og svo þegar það er búið er hægt að snúa sér að því að laga húsið að innan. Þakið er aðeins sigið og það þarf að skipta um járnið og bæta við sperrum. Allt er þetta gert í samráði við Minja- stofnun. Upphaflega hugmyndin var sú að gera húsið að laxveiðiminjasafni en mikið er til enn þá af veiðistöngum og öðrum veiðarfærum sem eldri laxveiðimenn notuðu á síðustu öld. En yfirleitt eiga slík einkasöfn erfitt uppdráttar vegna mikils kostnaðar við rekstur svo hugmyndin hefur þróast í þá átt að gera húsið að frí- stundahúsi þar sem hægt er að búa og vera en halda jafnframt á lofti minningunni um stangveiðarnar. Búast má við að víða séu til gamlir spúnar, veiðiflugur, veiðihjól og önglar í geymslum, sem gaman væri að safna saman, því allt eru þetta heimildir um horfna tíma. Merkir gestir og mörg spor Gamla veiðihúsið geymir margar sögur og þar sátu merkir menn til borðs á hverju sumri. Nægir þar að nefna Kekkonen Finnlandsforseta sem kom sumarið 1958 með Ásgeiri Ásgeirssyni forseta Íslands og fylgdarliði til laxveiða. Var þá bændum boðið að sitja með þessum merku gestum til borðs og fór vel á með öllum meðan snæddur var soð- inn lax beint upp úr ánni. Borðið sem þeir borðuðu við er enn þá til, þótt auðvitað sé það farið að láta á sjá, sem og aðrir munir sem í húsinu voru. Oft var þröng á þingi og voru fjög- ur herbergi á efri hæðinni með mörgum rúmum. Ráðskonurnar höfðu í nógu að snúast og mikið var lagt upp úr góðum og miklum mat því oft komu veiðimenn svangir heim á kvöldin eftir mikla og stranga veiðidaga. Það er sannarlega eftirsjá í félögum Laxárfélagsins en umgengni veiðimanna hefur alltaf verið til fyrirmyndar. Sporin eru mörg meðfram ánni og vera þeirra hefur sett svip á mannlífið. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Veiðihúsið Gamla veiðihúsið sem veiðimenn í Laxá notuðu í mörg ár, eða til 1969 að Vökuholt var tekið í notkun. Endurbætur Veiðihúsið á Laxamýri gengur nú í gegnum miklar endurbætur að innan sem utan. Laxárfélagið leggur árar í bát  Gamla veiðihús Laxárfélagsins geym- ir margar minningar af bökkum Laxár í Aðaldal  Félagið var með stóran hluta árinnar í leigu í 80 ár  Ekki búið að semja við nýja leigutaka árinnar BAKSVIÐ Atli Vigfússon Laxamýri Á bökkum Laxár í Aðaldal hafa veiðimenn frá Laxárfélaginu staðið og kastað fyrir lax í 80 sumur en nú eru tímamót í vændum. Félagið er að leggja árar í bát og löng saga er á enda. Eins og fram hefur komið í fréttum framlengdi félagið ekki samning um leigu á Laxánni, eftir að hafa verið með stóran hluta af ánni í leigu í 80 ár. Enn hefur ekki verið samið við nýja leigutaka eða greint frá því hvaða fyrirkomulag verði á veiðinni á þeim jörðum sem Laxárfélagið leigði áður. Saga félagsins er örugglega efni í heila bók því mikið er til af veiðisög- um og saga veiðimannanna er sam- ofnin sögum bændanna á bökkum árinnar því sterk tengsl mynduðust sem einkenndust af velvild og vin- semd. Veiðimönnunum fylgdi alltaf ákveðin gleði og þegar veiðin var sem mest í ánni gerðust mörg æv- intýri á bökkunum. Þá var líka gam- an að kíkja í laxakælinn í kjall- aranum í gamla veiðihúsinu sem var sneisafullur af stórlöxum, sumir á bilinu 25-30 pund. Og þá var reyk- húsið á Hólmavaði fullt af einstökum ilmi og reykti laxinn þaðan var góð- gæti sem fáir gleyma. Með eldri húsum í Þingeyjarsýslum Félagar í Laxárfélaginu byggðu veiðihúsið Vökuholt árið 1969, en áð- ur höfðu þeir verið í veiðihúsinu sem stendur á hlaðinu á Laxamýri. Það hús stendur enn og nú eru hafnar á því endurbætur. Framkvæmdir þessar byrjuðu fyrir nokkru þegar farið var í að laga undirstöður húss- ins og grafa undan austurhlið þess þar sem gömul vegghleðsla hafði sigið inn í kjallarann. Húsið var upphaflega byggt sem smiðja og dúnhreinsunarhús árið 1874 og er því að hluta til eitt af elstu húsum í Suður-Þingeyjarsýslu sem enn standa. Í húsinu voru einnig hafðar miklar matargeymslur og um tíma var þar ostagerð um aldamótin 1900. Burðarbitar í húsinu eru úr rekaviði og eru í góðu standi enn þann dag í dag. Aðrir viðir eru úr gömlum sjóbúðum sem keyptar voru á Siglufirði upp úr 1870 og kom það mjög á óvart að burðargrind hússins skuli hafa verið að mestu leyti ófúin. Um 1920 var húsinu breytt í íbúð að hluta og þakinu lyft. Seinna varð húsið svo gestahús og veiðihús eftir að stangveiðin hófst og allt fram til 1970 þegar veiðiheimilið á Vökuholti DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Smárabíó verður opnað í dag, eftir tveggja vikna lokun sökum sótt- varnareglna. Hefur bíóið aukið sjálfvirkni og snertilausa þjónustu til að draga úr smithættu. Sjálfvirk hlið hafa verið sett upp við inngang bíóhússins þar sem gestir skanna sjálfir miðana sína þegar gengið er inn. Sjoppan hefur verið endurskipulögð og er nú sjálfsafgreiðsla að mestu þar sem gestir taka sjálfir sínar vörur og skanna. Því geta bíógestir Smárabíós keypt bíómiða og veitingatilboð fyrirfram í appi, skannað sig sjálfir inn við inngang, sótt vörur úr sjoppunni og skannað og gengið svo í sitt sæti þar sem sjálfkrafa tveggja metra sætisbil er þegar tryggt á milli gesta, segir í tilkynn- ingu frá Smárabíói í gær. „Við munum halda áfram að þróa sjálfvirkar lausnir til að bregðast við breyttu landslagi í samfélaginu og bjóða okkar bíógestum upp á öruggt umhverfi,“ segir einnig í til- kynningunni frá bíóinu. Aukin sjálfvirkni í endurbættu Smárabíói Smárabíó Snertilaus þjónusta hefur verið aukin nú þegar bíóið verður opnað á ný.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.