Morgunblaðið - 20.10.2020, Page 18

Morgunblaðið - 20.10.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020 ✝ Pétur MikkelJónasson fædd- ist í Reykjavík 18. júní 1920. Hann lést á Pleje og rehabili- teringscenter Hegnsgården í Nærum í Dan- mörku 1. október 2020. Foreldrar Pét- urs voru Jónas Halldór Guðmunds- son skipasmiður, f. 2.9. 1891 á Hrauni í Keldudal í Dýrafirði, d. 20.2. 1970, og Margrét Guð- mundsdóttir húsmóðir, f. 19.2. 1890 á Ingunnarstöðum í Kjós, d. 10.12. 1964. Eiginkona Péturs var Dóra Kristín Gunnarsdóttir, f. 4.11. 1926 í Reykjavík, d. 2.2. 2018. Dóra var húsmóðir og ritari í Sáttmálasjóði. Þau gengu í hjónaband 1964 í Kaupmanna- höfn. Foreldrar Dóru voru hjón- in Gunnar Árnason verkamað- ur, f. 27.4. 1892, frá Tréstöðum í Hörgárdal, d. 20.12. 1984, og bænum. Fyrstu árin bjó fjöl- skyldan á Stýrimannastíg 7 en síðar byggðu foreldrar hans hús á Framnesvegi 11. Árið 1939 flutti fjölskyldan síðan á Fjöln- isveg 8. Pétur útskrifaðist sem stúd- ent frá MR árið 1939 og flutti í kjölfarið til Danmerkur, þar sem hann hóf nám í vatna- líffræði við Kaupmannahafnar- háskóla. Eftir að námi lauk vann hann sem sérfræðingur á sviði straumvatnsrannsókna. Hann helgaði líf sitt fræðistörfum og var frumkvöðull í rannsóknum á vistkerfum vatna víðsvegar um heim, einkum þó á Mývatni og Þingvallavatni. Fyrir fræðistörf sín hlaut hann fjölda viðurkenninga og var virkur vísindamaður fram á síðasta dag og lagði mikið af mörkum til náttúruverndar. Í Danmörku kynntist Pétur Dóru eiginkonu sinni og lífs- förunaut. Þau héldu lengst af heimili í Hilleröd en árið 2017 fluttu þau í íbúð fyrir eldri borg- ara í Gammel Holte, þar sem Pétur bjó einn eftir að Dóra lést. Útför Péturs fer fram frá Skansekapellet í Hilleröd í dag, 20. október 2020, og hefst at- höfnin klukkan 12. Guðrún Halldórs- dóttir verkakona, f. 18.8. 1895, fædd í Pálsseli í Laxárdal í Dalasýslu, d. 7.12. 1973. Þau voru bú- sett í Reykjavík. Dætur Dóru og Péturs eru: 1) Mar- grét, f. 15.9. 1964, gift Claus Parum. Þeirra börn eru: Marcus, f. 1999, og Liv, f. 2002. 2) Kristín, f. 3.10. 1967, gift Henrik Thorval og eiga þau soninn Peter Vilhelm Frederik, f. 2003. Börn Henriks frá fyrra hjónabandi eru Andr- eas og Natasia. Systkini Péturs voru Guð- mundur, f. 12.11. 1921, d. 14.10. 2015, skipasmiður í Reykjavík, Jón Örn (Jón á ellefu), f. 25.2. 1923, d. 19.10. 1983, skipa- smiður í Reykjavík, og Ása Val- dís, f. 26.2. 1926, d. 15.6. 2001, húsfreyja og verslunarkona í Reykjavík. Pétur var alinn upp í Vestur- Pétur átti farsælan starfsferil og hlaut viðurkenningu sam- starfsmanna sinna, nú síðast með sérútgáfu af Náttúrufræð- ingnum í tengslum við 100 ára afmæli sitt í sumar. Áhuga fyrir vatnalíffræði var sáð í hjarta hans í sumarfríum hans hjá ömmu hans og afa í Miðfelli í Þingvallasveit. Fyrsti stóri áfangi hans sem vatnalíffræðing- ur var á fyrsta alþjóðafundi hjá International Society of Limno- logy (SIL) í Sviss árið 1948, þar sem hann kynnti niðurstöður sínar um rannsóknir á Suså í Danmörku. Rannsóknin þótti svo athyglisverð að hann varð einn af aðalfyrirlesurum fund- arins. Þessi áfangi mótaði upp- haf að alþjóðlegu starfi hans. Ár- ið 1972 hlaut hann doktors- nafnbót og varð prófessor 1977. Árið 1987 hlaut hann Naumann- Thienemann-verðlaunin fyrir framlag sitt til rannsókna á ferskvatni. Hann var forseti SIL á árunum 1989-1995 og félagi í vísindafélögum í Danmörku, Ís- landi og Noregi. Árið 2001 hlaut hann heiðursnafnbót við raunvís- indadeild Háskóla Íslands. Við vorum og erum öll stolt af hon- um og velgengni hans var hreint ekki skrifuð í stjörnurnar, þegar hann fæddist inn í tiltölulega fá- tæka fjölskyldu á Íslandi árið 1920. Lífið hafði ekki alltaf verið dans á rósum hjá honum. Að komast til Kaupmannahafnar ár- ið 1939, sem ungur fátækur námsmaður var erfitt. Námsárin voru erfið, þar sem hann bjó í köldu herbergi og þurfti fyrir- hyggju til að eiga í sig og á. Hann var duglegur námsmaður og hlaut námsstyrki sem hjálp- uðu honum mikið. En óttinn við að skorta fjárráð einkenndi hann alla tíð. Geymslan okkar var allt- af full af mat og bílskúrinn var fylltur með ýmsum vörum sem erfitt gæti verið að fá á kreppu- tímum. Pabbi og mamma voru afar samheldin. Með samvinnu náðu þau að samtvinna fjölskylduna ævistarfi pabba. Hann fékk tækifæri til að helga sig rann- sóknum, ferðast á ráðstefnur og vera virkur í vísindasamfélaginu. Mamma studdi hann og hvatti til dáða alla tíð og pabbi missti mikið þegar mamma lést árið 2018. Sem betur fer voru þau þá flutt í íbúð fyrir eldri borgara, þar sem hann gat borðað kvöld- matinn í góðum félagsskap. Við fundum hversu mikið hann sakn- aði mömmu en hann kvartaði aldrei. Pabbi var jákvæður maður og hvetjandi, sagði alltaf: „Why not do it?“ Því ef maður fengi tækifæri eða ætti sér draum skyldi maður láta á reyna. Svo sagði hann alltaf ,,Frågen er fri“ (sænska); ,,kostar ekki að spyrja“. Hann sagði líka „science is fun“ og meinti að spennandi væri að varpa fram nýjum hugmyndum. Hann hafði þennan viljastyrk sem fræði- maður en nýtti sér það einnig á öðrum vettvangi. Hann var óspar að hvetja okkur til mennta og ól okkur upp við það að við hefðum nákvæmlega sömu möguleika og strákar. Pabbi var með langan lista af því sem hann ætlaði að fram- kvæma í lífinu og listinn lengdist með árunum. Ekki beint dæmi- gert fyrir eldri mann og hann gleymdi að verða gamall! Eitt á listanum var að verða 100 ára og það tókst! Hann var með bók í smíðum og ætlaði að ljúka við hana. Þegar mamma og pabbi fluttu frá Hillerød í íbúðina var ekki pláss fyrir bókasafnið. Þá ákvað hann að gefa Náttúru- minjasafni Íslands það. Ef okkur væri til lista lagt að mála mynd af mömmu og pabba væri umhverfið íslenskt. Mál- verkið myndi skarta íslenska hestinum og fossi í baksýn. Mamma væri hesturinn sem fer á tölti og tryggir að vegurinn sé greiðfær. Pabbi er fossinn sem steypist fram í öllu sínu veldi, flæðandi hugmyndum og áhrifa- krafti til breytinga. Líf pabba hafði sannarlega áhrif á framtíð- ina. Við kveðjum pabba með þakk- læti. Viljastyrkur hans hefur stuðlað að gæfu og vegsemd okkar allra. Nú er hann farinn á nýjar slóðir og vonandi hefjast ný ævintýri þar sem hann mun hitta mömmu, ættingja og gamla vini. Við þökkum fyrir að hafa fengið að hafa þig elsku Pétur, pabbi og afi. Ástarkveðjur frá Margréti, Kristínu, Claus, Henrik, Marcusi, Liv og Pétri. Meira: mbl.is/andlat Það var ákveðið fyrir löngu að vera viðstödd á 100 ára afmæl- inu hans svila míns, en ástandið í heiminum gerði það ekki mögu- legt. Og nú þegar hann er jarð- settur er það ekki heldur hægt. Mikill samgangur og vinátta var alltaf með fjölskyldunum þótt Atlantshafið skildi okkur að. Móttökurnar í Hilleröd voru ávallt yndislegar og alltaf jafn gaman að fá þau Pétur og Dóru til Íslands. Nú eru þau bæði komin yfir í sumarlandið til hans Hilmars míns. Þegar ég hugsa til baka minn- ist ég skemmtilegrar ferðar sem við fórum öll fjögur saman, við Hilmar með Dóru og Pétri til Stykkishólms fyrir nokkrum ár- um. Veðrið lék við okkur og sól- in skein í heiði. Það er svo fal- legt á Snæfellsnesinu og Pétur var alveg yfir sig hrifinn. Hann hafði eytt svo miklum tíma í að rannsaka Þingvallavatn og Mý- vatn að lítill tími hafði verið til að ferðast um landið. Hann fór sem ungur maður til náms í vatnalíffræði og það var fyrir stríðið, allar götur síðan hafði hann búið í Danmörku þannig að hann hafði ekki skoðað landið okkar mikið. Það var gaman að bjóða Pétri í mat, hann var ekki spar á hrós- ið og naut þess að skála í rauð- víni með. „Þetta er alveg geysi- lega gott hjá þér, Steina mín,“ sagði hann ævinlega. Blessuð veri minning hans. Elsku Margrét og Kristín, hugur minn er hjá ykkur öllum á þessum erfiða tíma. Steinunn (Steina). Ég kynntist Pétri M. Jónas- syni fyrst sem ritstjóra Nátt- úrufræðingsins. Ég þekkti til þessa mikla fræðimanns þegar hann kom með grein til birtingar 2004, en hef líklega eins og fleiri gert ráð fyrir því að hann væri sestur í helgan stein þegar hér var komið sögu, enda orðinn 84ra ára gamall. Ég komst fljótt að hinu gagnstæða. Greinin var um eitt helsta hugðarefni hans: Baráttuna gegn mengun Þing- vallavatns, sem á bláma sinn og tærleika því að þakka að vatnið er niturvana. Greinin var í anda eldhugans Péturs: Barmafull af röksemdum fyrir þeirri ályktun hans að framandi barrtré í þjóð- garðinum og vaxandi bílaumferð myndu að endingu menga Þing- vallavatn af nitri og gera það grænt og gruggugt. Í greininni sem bar fyrirsögnina: „Á að fórna Þingvallavatni fyrir nitur- mengandi hraðbrautir?“ tvinnast saman á einstakan hátt ná- kvæmni vísindamannsins og sannfæringarkraftur náttúru- verndarans, en þessum eigin- leikum Péturs eigum við það að þakka að Alþingi friðlýsti Mý- vatn og Laxá 1974 og vatnasvið Þingvallavatns 2005 á grunni einstakra vistfræðirannsókna sem hann stýrði. Lengi voru menn vantrúaðir á kenningu Péturs um vaxandi nit- ur í Þingvallavatni og hættuna sem af því stafar. Það var hon- um því mikils virði þegar í sum- ar birtist ný vísindagrein þar sem rennt er sterkum stoðum undir kenningu hans: Styrkur niturs í vatninu hefur aukist vegna aukinnar ákomu niturs á vatnasviðinu og/eða vegna auk- innar virkni blágrænna baktería í vatninu. Greinin birtist í þema- hefti Náttúrufræðingsins um Þingvallavatn, sem gefið var út til heiðurs Pétri á aldarafmæli hans. Þar segir að ljóst sé að takmarka þurfi ákomu niturs á vatnasviðið hvort sem hún sé staðbundin eða lengra að komin. Tíræður birtir Pétur í sama riti síðustu ritsmíð sína – um friðun Mývatns og Þingvalla- vatns. Þar sýnir hann fram á svart á hvítu að Þingvallavatn allt nýtur UNESCO-friðunar, samkvæmt sérstöku ákvæði í skilmálum Heimsminjaskrárinn- ar, sem búsvæði bleikjunnar og kemur efalaust mörgum á óvart. Baráttuþrek Péturs var óþrjótandi. Hann kom hingað heim á hverju ári og eggjaði okkur sem stóðum í pólitískum stafni til þess að standa betur vörð um vatnið dýrmæta. Oft óskuðum við okkur þess helst, mörgum áratugum yngra fólk, að hafa þó ekki væri nema helm- inginn af eldmóði öldungsins. Oft var þörf en nú er nauðsyn! Ég átti þess kost að dvelja í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaup- mannahöfn 2015 í þeim tilgangi m.a. að flytja á stafrænt form gögn, myndir og minningar Pét- urs. Því miður auðnaðist okkur ekki að ljúka því verki, en ég kynntist þeim Dóru vel í nær daglegum heimsóknum mínum til Hilleröd um nokkurra vikna skeið. Pétur var ættrækinn og kunni margar sögur af lífsbar- áttu þeirra sem að honum stóðu í báðar ættir. En alltaf voru það þó Dóra og dæturnar, Margrét og Kristín, sem voru honum efst í huga. Á kveðjustund þakka ég góða vináttu og samstarf sem ritstjóri og þáverandi formaður Þingvallanefndar við þennan mikla náttúruvin, Pétur M. Jón- asson, og sendi dætrum hans og fjölskyldum þeirra samúðar- kveðjur. Álfheiður Ingadóttir. Nú er hann allur, Pétur M. Jónasson, eitt hundrað ára eld- huginn, prófessor emeritus við Hafnarháskóla, brautryðjandi á alþjóðavísu í rannsóknum á vist- fræði straum- og stöðuvatna og ötull baráttumaður fyrir náttúr- vernd. Ég kynntist Pétri 1981, þá nemi í líffræði við Háskóla Ís- lands. Pétur stýrði þá rannsókn- um á vistfræði Þingvallavatns og fyrir hans tilstilli bauðst tveimur stúdentum að taka þátt í rann- sóknunum og nýta vinnuna til háskólagráðu. Ég sló til og það gerði einnig Skúli Skúlason, nú prófessor við Háskólann á Hól- um og sérfræðingur á Náttúru- minjasafni Íslands. Við fengum greidd laun fyrir rannsóknavinn- una, sem var nýlunda á þessum tíma meðal framhaldsnema. Þetta var Pétri að þakka og lýsir atorku hans við að afla fjár til rannsóknarverkefna sinna, jafnt úr einkasjóðum sem frá hinu op- inbera. Annar mikilvægur eig- inleiki Péturs var djúpstæður skilningur hans á vistfræðilegu samhengi og gildi þverfaglegrar nálgunar gagnvart viðfangsefn- inu. Í krafti þessa lagði Pétur sig fram um að fá til liðs við sig úrval fræðimanna af ólíkum sviðum og þannig bjó hann til öfluga deiglu rannsakenda í verkefnunum sem hann leiddi. Fyrir áeggjan Péturs hélt ég til framhaldsnáms í vatnavist- fræði við Hafnarháskóla þar sem ég lauk meistaraprófi 1989 og doktorsprófi 1992. Viðfangsefnið var vistfræði bleikjugerðanna fjögurra í Þingvallavatni. Vinnu- aðstaðan var ekki af verri end- anum, í húsnæði Vatnalíffræði- stofnunar Hafnarháskóla á bakka Slotsøen, gegnt hinni fögru Friðriksborgarhöll í Hill- eröd. Þar deildi ég aðstöðu með Pétri sem veitti stofnuninni for- stöðu 1977-90. Við Pétur áttum þar margar góðar stundir sam- an, oft um helgar og langt fram á kvöld, enda var Pétur ekki ein- hamur til verka. Hann mætti snemma dags, fékk sér stuttan lúr á skrifstofunni um kl. tvö, fór heim í kvöldmat á Helsevej en kom gjarnan aftur og var fram á kvöld. Hann og Dóra kona hans studdu mig og fjölskyldu mína á námsárunum með ráðum og dáð og fyrir það er ég afskaplega þakklátur. Ferill Péturs sem náttúruvís- indamanns og frumkvöðuls í vatnavistfræði var einstaklega farsæll og glæsilegur. Hann var afar afkasta- og áhrifamikill og telst meðal helstu vatnalíffræð- inga seinni tíma. Hann skilur eftir sig dýrmæta arfleifð sem felst í stórbættum skilningi og þekkingu í vistfræði, á tengslum hins lífræna og ólífræna, á gang- verki náttúrunnar. Ekki er síðra framlag Péturs til náttúruvernd- ar, þar sem er friðun vatnasviða Laxár og Mývatns og Þingvalla- vatns. Þá ber að geta framlags Péturs til varðveislu menningar- arfs þjóðarinnar sem felst í rausnarlegum bóka- og tímarita- gjöfum til Náttúruminjasafns Ís- lands, sem Pétur afhenti í des- ember 2018, þá 98 ára, þegar Náttúruminjasafnið opnaði sýn- inguna sína í Perlunni. Lands- menn eiga Pétri mikið að þakka fyrir framlag hans og gjafir – þess vegna erum við sem þjóð betur í stakk búin að fást við framtíðina á farsælan og sjálf- bæran hátt. Pétur Mikkel Jónasson Elsku hjartans Elma mín, ég veit ekki í raun hvort ég get skrifað eitt- hvað af viti um þig eins og þér sæmir. Ég man þig, búandi heima hjá ömmu og afa, háa og granna og þá þegar orðin ansi mikill töffari. Ég sitjandi inni í her- berginu þínu, hlustandi á Elvis Presley í plötuspilaranum sem þú hafðir keypt þér og þér dugði ekki bara að hlusta á hann, heldur voru veggir her- bergisins þaktir myndum af honum, ein meira að segja í fullri líkamsstærð, myndir sem Hulda Elma Guðmundsdóttir ✝ Hulda ElmaGuðmunds- dóttir fæddist 16. janúar 1943. Hún lést 8. október 2020. Útför fór fram 15. október 2020. þú klipptir út úr Bravo, keyptu í Bókabúðinni hans Dalla. Ég man þig, þeg- ar þið Nonni keypt- uð fyrsta hreiðrið ykkar, hann sjó- maður og mikið að heiman. Þú þá þeg- ar farin að sýna bæjarbúum hvers þeir mættu vænta af þér, brunandi á Bjöllunni, ýmist farandi á fundi, æfingar eða að sinna öðrum félagsstörf- um. Ég held að ég hafi oftar sof- ið í rúminu hjá þér á þeim árum heldur en Nonni og við með Petru á milli okkar. Ég man þig vorið 1968, þegar þú varst í Landsmótsnefnd ásamt fjórum góðum félögum úr UÍA, þú eina konan í hópnum. Fundir gjarnan haldnir á Eiðum þar sem mótið fór fram, snjó- þungt vor og erfitt. Að Odds- skarð kæmi í veg fyrir að þú mættir á fundi kom aldrei til greina en ekki voru allar þessar ferðir auðveldar eða áhættulaus- ar. Ég man þig í Atlavík, því þá fór ég með þér, þú á fullu í gæslu og handboltakeppni, og varðeldinn þar sem Dúmbó og Steini fluttu lagið Angelia, ógleymanleg stund. Ég man þig á gullaldarárum Þróttar bæði í handboltanum og á fullu í félagsstarfinu, dugleg, hvetjandi og klárlega fyrirmynd ungra kvenna og stúlkna. Ég man þig árið sem ég bjó hjá ykkur í Starmýrinni, mín á fullu og ef eitthvað var bara að bæta í. Þar kom í ljós umburð- arlyndi þitt og aldursleysi, vinir mínir alltaf velkomnir, þú alltaf reiðubúin í spjall og góð ráð og margir þeirra eignuðust þig að vini, aðrir alla vega sem góðan kunningja, takk elskan. Ég man þig á Mýrargötunni í félagsmálum, bæjarpólitík og blaðamennsku. Petra og Jóhann ennþá búandi heima og þau tóku allt það besta frá þér í arf, ynd- isleg bæði tvö. Ég man þig stundum eins og þú værir stóra systir mín, stundum eins og þú værir mamma mín, en alltaf eins og mína bestu vinkonu, takk fyrir það, elskan. Ég man þig líka, yndi, þar sem líf þitt var ekki leikur og það tók allt of mörg ár frá þér. En seigla þín og viska gáfu þér góðan tíma á milli. Elsku Elma mín, nú er komið að leiðarlokum og ég hef því miður engin tök á að fylgja þér nema í huganum. Öllu okkar fólki og vinum votta ég mína dýpstu samúð. Þér þakka ég allt og allt, elsku Elma. Í mínum huga ertu mesti kvenskörungur Austurlands. Hvíl í friði, kossar og ást, þín Oddný (Odda). Nú hefur hún Elma okkar kvatt þetta líf og vil ég minnast hennar með fáeinum orðum. Hún afrekaði margt á lífsleiðinni og var kröftug á mörgum svið- um, svo sem íþróttum, stjórn- málum og ritstörfum. Hún var mikil fjölskyldumanneskja og elskaði og dáði börn sín og barnabörn. Okkar vinátta varði í nokkra áratugi. Við áttum óteljandi sím- töl og hittumst þegar færi gafst, en bjuggum hvor í sínum lands- fjórðungnum. Hún var liðtækur bridgespilari, elskaði að spila golf og hafði gaman af margs konar sönglagatónlist. Óhætt er að segja að hún hafi haft sterkar skoðanir á mönnum og málefn- um, þar ríkti engin lognmolla. Henni fannst ég ýmsum kostum búin, en sagði mér líka til synd- anna svo mér þótti oft nóg um. Þetta var allt gert af tryggð og kærleika, en af honum átti hún nóg. Það bar aldrei skugga á okkar vináttu. Að lokum þakka ég fyrir að hafa átt yndislega vinkonu sem kenndi mér margt og votta öllum sem að henni standa innilega samúð. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (E. Ben.) Hvíl í friði. Helga Hrönn Þórhallsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.