Morgunblaðið - 20.10.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020
ar- og snertiskilaboð sem þeim ber-
ast. Þessi tækni gerir blindum kleift
að fá strax upplýsingar um það sem
myndavélin nemur.“ Haustið 2018
fengu Árni og Rúnar, ásamt sam-
starfsmönnum sínum, nýsköp-
unarverðlaun Evrópusambandsins,
Innovation Radar Price, fyrir hug-
myndina og útfærslu búnaðarins.
Stór hluti fræðastarfsins er sam-
starf við aðra fræðimenn og því
fylgja mikil ferðalög. Árni hefur und-
anfarin ár sinnt hlutastarfi sem leið-
andi rannsóknarprófessor við Nat-
ional Research University HSE í
Moskvu í Rússlandi. Árni hefur yf-
irleitt verið í einn mánuð á ári í
Moskvu, sem hluta af samstarfinu, en
ekkert varð úr því í ár. „Við höfum jú
verið í sambandi í gegnum netið, en
mín skoðun er sú að þegar verið er að
vinna að nákvæmum og frumlegum
hugmyndum á vísindasviðinu, þá
kemur ekkert í staðinn fyrir að hitta
fólkið. Það er einfaldlega betra að
geta setið saman og rætt augliti til
auglitis.“
Fjölskylda
Eiginkona Árna er Anna María
Hauksdóttir, f. 21.8.1970, uppeldis-
og menntunarfræðingur og verkefn-
isstjóri við Háskóla Íslands. For-
eldrar hennar eru Haukur Matthías-
son, f. 20.6. 1948, og María Kristín
Lund Jörgensen, f. 31.3. 1949. Dætur
Árna og Önnu Maríu eru María
Kristín, f. 14.10. 1998, háskólanemi
og Áshildur Margrét, f. 15.4. 2005,
grunnskólanemi.
Systur Árna eru Ragnheiður, f.
7.2. 1968, prófessor við Háskóla Ís-
lands; Gunnhildur, f. 9.10. 1977, sér-
fræðingur hjá VIRK og Nanna, f. 9.8.
1993, kennaranemi, allar búsettar í
Reykjavík.
Foreldrar Árna eru Kristján Árna-
son, f. 26.12. 1946, prófessor við Há-
skóla Íslands (seinni kona, Arna Em-
ilía Vigfúsdóttir, f. 1.10. 1961) og
Guðrún Ágústsdóttir, f. 1.1. 1947
(seinni maður, Svavar Gestsson, f.
26.06. 1944), fv. forseti borgar-
stjórnar. Þau búa bæði í Reykjavík.
Árni
Kristjánsson
Helga Geirsdóttir
b. og húsfr. Ystafelli, Köldukinn, S.Þing.
Jón Sigurðsson
bóndi og rithöfundur
Ystafelli, Köldukinn,
Hólmfríður Jónsdóttir
bókavörður á Akureyri
Árni Kristjánsson
menntaskólakennari á Akureyri
Kristján Árnason
prófessor við Háskóla Íslands í Rvk.
Halldóra Sigurbjarnardóttir
bóndi og húsfreyja á
Finnstöðum, Köldukinn
Kristján Árnason
b. á Finnstöðum, Köldukinn, S.Þing.
Áslaug Ágústsdóttir
formaður KFUK, Reykjavík
Bjarni Jónsson
dómkirkjuprestur og
vígslubiskup, Reykjavík
Ágúst Bjarnason
skrifstofustjóri í Reykjavík
Ragnheiður Eide
húsmóðir í Reykjavík
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Hans Eide
kaupmaður í Reykjavík
Úr frændgarði Árna Kristjánssonar
Guðrún Ágústsdóttir
fv. forseti borgarstjórnar Reykjavíkur
„EKKI LÁTA HANN TALA ÞIG INN Á
AÐ BÍÐA Á BARNUM. ÞAR BYRJAR
PENINGAPLOKKIÐ.”
„VIÐ ÞURFTUM AÐ FJARLÆGJA HEILANN
ÚR ÞÉR Í NOKKRA DAGA, SVO ÞÚ GETUR
BARA SLAKAÐ Á.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar orð eru óþörf.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPYRÐU HUNDINN,
HEFURÐU BORÐAÐ PÖDDU?”
KYNGDU
FYRST
KJAMS
KJAMS
KJAMS
HRÓLFUR, NOKKRIR
MANNANNA ÞURFA
LÆKNISAÐSTOÐ
EN ÞAÐ ER ENGINN
LÆKNIR!
ÉG
REDDA
ÞESSU!
SOFÐU Á MAGANUM!
Helgi R. Einarsson skrifar mérog segir að fólk sé ekki alltaf
sammála öðrum: „V. Hauksdóttir“:
Hefur allt sitt á hreinu,
er nákvæm í öllu og einu.
Vigdís er vitur
og vandlát, en bitur.
Því sammála sumu’ ekki’ í neinu.
Og svo kemur hér alveg út í hött,
bætir hann við. „Frygð“:
Gegnum skráargatið hann skreið,
því hún skjálfandi’ í rúminu beið
eftir honum svo hlý.
En það var af því
að hann þekkti’ ekki aðra leið.
Maðurinn með hattinn lætur að
sér kveða og yrkir á Boðnarmiði:
Eftir fréttum æ er sóst,
á þær flestir hlýða.
Mér hefur verið lengi ljóst
að lygin ferðast víða.
Dapur stundum styn ég þungan,
stígi Gróa á Leiti dans.
Lipur hefur lygatungan
löngum kitlað eyru manns.
Sigurlaug Ólöf svaraði:
Lygin er oft fljót í för,
flestra eyrna nær hún til
Einatt á hún ótal svör,
sem allir trúa, hér um bil.
Ingólfur Ómar Ármannsson bætti
við:
Lygi beitir, lastar mest
lævís eiturnaðra.
Gróu á Leiti líkar best
að ljúga og hreyta í aðra.
Hallmundur Kristinsson kveður:
Man ég það vel úr minni sveit:
Misvel var tuggan þegin,
og alltaf var talin betri beit
á bakkanum hinum megin.
Kristján H. Theodórsson tekur
undir:
Handan lækjar löngum þótti,
ljúffengara grasið vera.
Búfénaður brátt í sótti
beit sem dygði stóði mera.
Hjálmar Freysteinsson yrkir og
kallar „Læknisráð“:
Andleysi, athyglisbrest,
uppþembu, hjartslátt og pest
ættlæga galla,
ilsig og skalla
limrurnar lækna best.
„Limrueðli“ eftir Ingvar Gíslason:
Limrunnar æði er ljótt,
og læst skal hún inni um nótt,
því annars af hlýst
það sem verður hún víst,
vínóður klámhundur skjótt.
Sigurbjörn á Fótaskinni orti:
Lítils met ég mælskuglaum,
meira þarf að skoða
hvort mun betur standast straum
steinn eða hreykin froða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sammála sumu ekki í neinu Scangrip vinnuljósin
eiga heima í Fossberg