Morgunblaðið - 20.10.2020, Side 27
Morgunblaðið/Eggert
Formaður Guðni Bergsson.
Framtíð Íslandsmótsins í knattspyrnu
2020 skýrist í dag. Þetta staðfesti
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Stjórn KSÍ fundaði um framtíð
mótsins síðdegis í gær en hlé var gert á
allri keppni í fótboltanum 7. október
síðastliðinn vegna kórónuveiru-
faraldursins.
Í dag taka nýjar reglur gildi þar sem
félögum verður heimilt að æfa á höf-
uðborgarsvæðinu en þó undir miklum
takmörkunum. Þá verður áfram
keppnisbann á höfuðborgarsvæðinu
en félög úti á landi mega hins vegar
áfram æfa og keppa.
„Við áttum góðan fund í dag og við
munum svo funda aftur í hádeginu á
morgun [í dag] þar sem endanleg
ákvörðun verður tekin,“ sagði Guðni í
samtali við Morgunblaðið.
„Stemningin á fundinum var bara
ágæt eins og alla jafna. Það þurfti að
fara vel yfir málin enda stjórnvöld
nýbúin að gefa út nýjustu reglugerðina
varðandi sóttvarnareglur og annað.
Það er að mörgu að huga í þessu,
meðal annars stöðu liðanna í deildun-
um, þeirra sjónarmiðum og þeirra rök-
um, sem eru auðvitað fjölmörg.“
Guðni ítrekar að KSÍ muni senda
frá sér tilkynningu síðar í dag.
„Þetta er margþætt ákvörðun og
mikilvæg þannig að við þurfum að gefa
okkur smá tíma í þetta.
Við munum svo bara kynna okkar
niðurstöður í málinu þegar allt liggur
fyrir síðdegis á morgun [í dag].“
bjarnih@mbl.is
Margþætt ákvörðun og að mörgu að huga
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2020
Þegar við tökum tæknina í
okkar þjónustu er tilgangurinn
vanalega sá að gera okkur lífið
einfaldara og betra. Oft verður
það líka niðurstaðan.
Þegar stærstu deildir og
sambönd heimsfótboltans tóku
upp myndbandsdómgæslu
(VAR), átti hún að leysa öll
vandamál og deilur um einstök
atriði í leikjum. Fallega hugsað.
En hefur það gengið eftir?
Það er auðvelt að setja sig í spor
stuðningsmanna Liverpool sem
klóra sér í hausnum yfir rang-
stöðunni sem dæmd var í lokin
gegn Everton á laugardaginn og
varð til þess að leikurinn endaði
með jafntefli en ekki með sigri
þeirra rauðklæddu.
Ég ætla ekki að krefjast þess
að hætt verði með mynd-
bandadómgæslu þótt tilkoma
hennar hafi ekki kætt mig sér-
staklega.
En það þarf að nota hana rétt
og Englendingar eru á algjörum
villigötum. Nú situr hópur fólks í
höfuðstöðvum í London og rýnir
í atvik sem eiga sér stað á velli
einhvers staðar í landinu og
eyðir allt að þremur mínútum í
að finna út hvort mögulega hafi
verið um brot eða rangstöðu að
ræða. Og það er ekki einu sinni
sjálfgefið að það komist að réttri
niðurstöðu. Þrátt fyrir tæknina.
Það á að setja skeiðklukku á
þetta fólk. Ef ekki er hægt að
taka ákvörðun á 15 sekúndum
um það sem dómarinn sá ekki á
sekúndubroti á að láta leikinn
halda áfram.
Hvort olnbogi, handarkriki
eða ofvaxið hælbein séu í rang-
stöðu á ekki að vera það sem allt
snýst um. Ef rangstaðan sést um
leið, þá á að dæma hana, annars
láta leikinn halda áfram. Ef vafi
er til staðar, á sóknarmaðurinn
að njóta hans. Einfalt mál.
Svo er auðvitað galið að
sleppa því að refsa fyrir ljót brot
eins og þegar Jordan Pickford
markvörður Everton slasaði Virg-
il van Dijk á laugardaginn. Bara
vegna þess að sá síðarnefndi var
rangstæður. Samkvæmt VAR.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
UNGVERJAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ungverska liðið sem mætir því ís-
lenska í úrslitaleiknum um sæti á
EM karla í fótbolta í Búdapest 12.
nóvember er með góða liðsheild,
frekar en áberandi einstaklinga.
Þetta segir Matyas Szeli, knatt-
spyrnublaðamaður hjá ungverska
fjölmiðlinum Nemzeti Sport, en
hann hefur fylgst með ungverska
landsliðinu og fjallað um það um
langt árabil.
Ungverjar hafa náð góðum úrslit-
um í Þjóðadeildinni í haust og sigrað
bæði Tyrki og Serba á útivöllum,
ásamt því að gera jafntefli við Rússa
í Moskvu í síðustu viku. Sá árangur
er mun betri en í undankeppni EM á
síðasta ári þegar liðið tapaði fjórum
af átta leikjum sínum.
„Ég er ekki viss um að þetta sé
okkar sterkasta lið í seinni tíð ef
horft er á það frá leikmanni til leik-
manns. En liðsheildin er tvímæla-
laust orðin sterkari núna en oft áður
þrátt fyrir að miklar breytingar hafi
orðið á leikmannahópnum undan-
farin ár,“ sagði Szeli við Morgun-
blaðið í gær.
Miklar breytingar eftir EM
Ísland og Ungverjaland skildu
jöfn, 1:1, í Marseille á Evrópumótinu
í Frakklandi sumarið 2016 þar sem
Ungverjar jöfnuðu með sjálfsmarki
rétt fyrir leikslok. Szeli segir að mik-
ið hafi breyst frá þeim tíma.
„Það urðu miklar breytingar á lið-
inu eftir Evrópukeppnina 2016. Okk-
ar leikjahæsti maður, markvörð-
urinn Gábor Kiraly, hætti, rétt eins
og Roland Juhász, lykilmaður í varn-
arleik liðsins, og Zoltán Gera, okkar
mest skapandi leikmaður.
Við höfum í staðinn fengið nokkra
unga og efnilega leikmenn sem hafa
komið inn í mikilvæg hlutverk í lið-
inu, og þá hafa aðrir öðlast meiri
reynslu og eru komnir í stærri hlut-
verk en áður. Þá er Nemanja Nikolic
kominn aftur í liðið, hann lagði upp
markið gegn Íslandi 2016, en hætti
síðan með landsliðinu. Hann sneri
aftur fyrir stuttu og hefur verið
drjúgur í sóknarleiknum. Svo hefur
Willi Orbán, leikmaður RB Leipzig,
fengið ungverskan ríkisborgararétt
og hann hefur styrkt varnarleik liðs-
ins,“ sagði Szeli.
Spilar alltaf 3-5-2
Ítalinn Marco Rossi tók við ung-
verska liðinu sumarið 2018.
„Rossi hefur gert talsverðar
breytingar. Hann tók inn menn eins
og Loic Nego og Dominik Szoboszlai
en setti út Balázs Dzsudzsák fyrir-
liða sem lék ekki í marga mánuði og
fór svo að spila með B-deildarliði í
Ungverjalandi.
Þá breytti hann um leikaðferð og
fór að spila 3-5-2. Rossi hafði aðeins
notað þá uppstillingu tvisvar þar til
liðið vann leikinn í Tyrklandi. Eftir
það spilar hann alltaf þannig og það
hefur gengið vel upp.“
Magnað að fá heimaleiki á EM
Sigurliðið í leiknum í Búdapest fer
í riðil með Frökkum, Þjóðverjum og
Portúgölum á EM næsta sumar og
tveir leikjanna fara einmitt fram á
Puskás Aréna, heimavelli Ungverj-
anna. Szeli sagði að ungverskir
knattspyrnuáhugamenn væru að
vonum afar spenntir fyrir þessum
möguleika.
„Já, það eru miklar væntingar í
garð liðsins um að komast á EM. Við
vitum að Íslendingar eru með betra
lið en Búlgaría og leikurinn árið
2016 var geysilega erfiður, en Ísland
er ekki óyfirstíganleg hindrun, eins
og ef við værum t .d. að mæta
Frökkum. Íslenska liðið virðist held-
ur ekki vera alveg eins sterkt og það
var 2016 þannig að það má vel orða
þetta þannig að við Ungverjar séum
bjartsýnir en samt varkárir.
Auðvitað er það gríðarleg hvatn-
ing að eiga fyrir höndum leiki á
heimavelli í Búdapest ef liðið kemst
á EM og vera í riðli með Þýskalandi,
Frakklandi og Portúgal. Hér hafa
aldrei verið leikir af þessari stærð-
argráðu. Vissulega var leikurinn um
meistarabikar Evrópu leikinn á Pus-
kás Aréna í september en þar voru
aðeins áhorfendur í um 30 prósent-
um sætanna.
Það væri því magnað að spila á
heimavelli á EM næsta sumar, og
sérstaklega á fullum velli af áhorf-
endum. Það myndi líka þýða að við
hefðum komist áfram, og værum
líka að mestu eða alveg lausir við
veiruástandið, þannig að lífið væri
aftur orðið nokkurn veginn eðlilegt.“
Einn sá besti í Evrópu
Eins og fram kom er markvörð-
urinn reyndi og litríki Gábor Király
horfinn úr liði Ungverja en eftir-
maður hans er líklega enn betri, að
sögn Szeli sem nefnir þrjá leikmenn
sem þá bestu um þessar mundir.
„Já, Péter Gulácsi er einn af bestu
markvörðum í Þýskalandi og jafnvel
í Evrópu. Zsolt Kalmár er mjög góð-
ur hjá Dunajská Streda í Tékklandi
og svo er það að sjálfsögðu Dominik
Szoboszlai. Hann er bara rétt að
verða tvítugur (næsta sunnudag) og
hann er samt einn af lykilmönnum
Salzburg og ungverska landsliðsins.
Hann skoraði frábært mark gegn
Tyrkjum og það kom dálítið á óvart
að hann skyldi ekki fara til stærra
félags í sumar, en með þessu áfram-
haldi gerir hann það núna í vetur,“
sagði Matyas Szeli.
Erum bjartsýnir en varkárir
Matyas Szeli segir Ungverja afar spennta fyrir heimaleiknum gegn Íslandi
12. nóvember Heimaleikir á EM 2021 eru í húfi Liðsheildin er styrkur
AFP
Ungverjar Varnarmað-
urinn Áttila Szalai og Zsolt
Kalmár sækja að rúss-
neskum leikmanni í Moskvu
í síðustu viku. Kalmár
þekkir til Íslands en hann
lék með Dunajská Streda
gegn FH í Evrópudeildinni í
Kaplakrika í ágúst.
Andrew Johnston hefur látið af
störfum sem þjálfari karlaliðs Þórs
frá Akureyri í körfuknattleik.
Johnston tók við liði Þórsara í
ágústbyrjun á þessu ári og náði að-
eins að stýra liðinu í einum leik,
gegn Keflavík 6. október síðastlið-
inn, áður en hann lét af störfum.
„Uppsögn Andrews er fyrst og
fremst fjárhagslegs eðlis en körfu-
knattleiksdeild Þórs treysti sér ekki
í ljósi þeirrar stöðu sem nú er vegna
Covid-19 til að standa við gerða
samninga við hann,“ segir meðal
annars í fréttatilkynningu Þórsara.
Lætur af störfum
eftir einn leik
Morgunblaðið/Þórir Tryggvason
Hættur Fyrsti og eini leikur And-
rews reyndist tap gegn Keflavík.
Körfuknattleikssamband Íslands,
KKÍ, hefur ákveðið að fresta öllu
mótahaldi til og með 3. nóvember
næstkomandi. Þetta kom fram í til-
kynningu sem sambandið sendi frá
sér í gær. Í tilkynningunni kemur
meðal annars fram að KKÍ sér fram
á að leikið verði í úrvalsdeildum
karla og kvenna, Dominos-
deildunum, milli jóla og nýárs. Þá
er ljóst að vegna landsliðsverkefna
erlendis í nóvember munu íslenskir
leikmenn þurfa að fara í sóttkví hér
á landi og við það mun mótahald
raskast enn frekar.
Mótahaldi frestað
fram í nóvember
Morgunblaðið/Þórir Tryggvason
Akureyri Síðast var leikið í efstu
deild karla hinn 6. október.
Akureyrarliðið
KA/Þór tekur í
fyrsta skipti þátt
í Evrópukeppni
kvenna í hand-
knattleik í vetur
og í dag kemur í
ljós hverjir and-
stæðingar liðsins
verða í 32 liða úr-
slitum.
KA/Þór sat hjá
í fyrstu umferð keppninnar sem lauk
um síðustu helgi. Nú hefur liðunum í
32 liða úrslitum verið skipt upp í tvö
svæði og fjóra hópa. KA/Þór er í
hópi tvö á svæði eitt og getur mætt
einhverjum eftirtalinna átta liða:
Elche (Spáni), Colegio de Gaia
(Portúgal), Slavia Prag (Tékklandi),
Lokomotiva Zagreb (Króatíu)
Jomi Salerno (Ítalíu), Unirek (Hol-
landi) Zug (Sviss)o, Wiener Neus-
tadt (Austurríki).
Fyrri leikirnir fara fram helgina
14.-15. nóvember og þeir seinni viku
síðar.
Mögulegir
mótherjar
KA/Þórs
Rut
Jónsdóttir