Morgunblaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 32
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hljóðrituð handleiðsla í sjö flokkum í
kristnu bænahaldi er nú aðgengileg á
vefsíðunni amen.is og er síðan og efni
hennar afrakstur vinnu sr. Grétars
Halldórs Gunnarssonar, prests í
Grafarvogskirkju.
Grétar Halldór segir að upphafið
megi rekja til beiðni frá ástvini í upp-
hafi kórónuveirufaraldursins í byrjun
árs. Hann hafi upplifað streitu vegna
óvissuástandsins og beðið um leið-
beiningu í bæn. „Ég veitti þá leiðbein-
ingu og hugsaði á sama tíma hvað það
væri fullkomið ef til væri efni á netinu
sem gæti veitt fólki leiðbeiningu og
stuðning í bæninni, svipað og finna
má í heimi hugleiðsluforrita.“ Þegar
hann fyrir tilviljun hafi frétt af svip-
aðri hugmynd á Biskupsstofu hafi
hann boðist til þess að leiða þetta til-
raunaverkefni. Hann hafi sótt um og
fengið styrk frá kirkjuráði, útbúið
efnið og nú sé það tilbúið í þriðju
bylgju faraldursins.
„Vonandi gagnast það fólki sem
upplifir ástandið flókið og erfitt og vill
leita í bænina, rétt eins og fólk hefur
gert í árþúsundir,“ segir Grétar Hall-
dór. Hann bendir á að landsmenn geti
enn notað guðsorðabækur, en fólk sé
ekki alltaf með guðsorðabók á sér og
þá sé ágætt að hafa efnið aðgengilegt
í símanum eða tölvunni. Þeir sem vilji
daglega áminningu um að biðja geti
jafnframt fylgt amen.is á Facebook.
Fjölbreytni
Flokkarnir á amen.is eru kvöld-
bænir barna, tíðasöngur að kvöldi,
bænastundir, biblíuleg íhugun, kristi-
leg íhugun, tíðasöngur að morgni og
bænagjörð. „Fólk er mismunandi og
kristin trúarhefð er fjölbreytt, miklu
fjölbreyttari en þessir flokkar gefa til
kynna, en þetta eru ákveðnir megin-
flokkar,“ útskýrir Grétar Halldór.
Einhver nái hugsanlega best sam-
bandi við leidda kristilega íhugun.
Annar tengist kannski best við tíða-
söng og sá þriðji við einfalda bæna-
stund. „Sumir eru óöruggir við að
biðja með börnunum sínum og vilja
nota kvöldbænir með börnum til að
styðja við sig í stuttri kvöldbæn fyrir
svefninn. Við erum mismunandi,
þurfum mismunandi hluti og kristin
trú er fjölbreytt. Flokkarnir sjö eru
til þess að lýsa fjölbreytninni og
mæta henni.“
Frumkvæðinu hefur verið vel tekið
og Grétar Halldór segir að verkinu sé
ekki lokið. Hlustað verði á allar til-
lögur um hvað betur megi fara og
hugsanlega verði bætt við flokkum og
þannig byggt ofan á verkefnið. „Þetta
er fyrsta skrefið og ég hef ýmsar hug-
myndir um framhaldið,“ segir Grétar
Halldór. „Við vissum að þetta væri
þarft mál og það kemur berlega í ljós
í samkomutakmörkunum. Á slíkum
tímum er gott að gera tilraunir með
andlega rækt. Sömu lögmál gilda um
hana og líkamsræktina,“ leggur hann
áherslu á.
Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson
Amen.is Sr. Grétar Halldór Gunnarsson aðstoðar fólk í bæninni og segir gott að sinna andlegri rækt.
Handleiðsla í bæn
og íhugun á netinu
Vefsíðan amen.is stuðningur fyrir kristið fólk í bæninni
... stærsti
uppskriftarvefur
landsins!
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 294. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Anton Sveinn McKee fór í gær til Ungverjalands til að
keppa á sundmótum í atvinnumannadeild sem stofnuð
var í fyrra. Kanadískt lið frá Toronto fékk Anton til liðs
við sig en í deildinni er keppt í liðakeppni þar sem
sundfólkið safnar stigum með árangri sínum í sinni
grein. Anton ferðaðist frá Bandaríkjunum þar sem hann
æfir til að keppa en kærkomið er fyrir hann að reyna
sig gegn öflugum sundmönnum á þessum tíma. Anton
keppti síðast á sterku móti í desember í fyrra en hann
er með keppnisrétt á Ólympíuleikunum 2021. »26
Anton Sveinn keppir fyrir Toronto í
nýlegri atvinnumannadeild í sundi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Víkingur Heiðar Ólafsson
píanóleikari og Hildur Guðna-
dóttir tónskáld tóku á sunnu-
dagskvöldið við hinum virtu
þýsku Opus Klassik-tónlistar-
verðlaunum í Konzerthaus í
Berlín en afhendingin var í út-
sendingu þýska ríkissjón-
varpsins. Hildur fékk verðlaun
fyrir nýstárlegustu tónleikana
á árinu. Hún var ekki á staðn-
um en rætt við hana í vefsp-
jalli og fékk hún síðan að kynna Víking, þar sem hún
rifjaði upp að hann hefði þegar heillað áheyrendur með
leik sínum þegar þau voru tíu ára gömul í tónlistarnámi
í Reykjavík. Víkingur flutti síðan verk af verðlaunaplötu
sinni, Debussy Rameau, en hann hlaut annað árið í röð
Opus-verðlaun fyrir bestu píanóplötu ársins. Meðal
annarra verðlaunahafa sem komu fram voru fiðluleik-
arinn Ann-Sophie Mutter og söngstjörnurnar Diana
Damrau og Jonas Kaufmann.
Víkingur Heiðar og Hildur tóku við
Opus-verðlaununum í Berlín