Morgunblaðið - 23.10.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
DimmalimmReykjavik
ÚLPUDAGAR
20%
afsláttur
af öllum
ÚLPUM
23.-28.
október
Höfum opnað netverslun dimmalimmreykjavik.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
15 milljarðar af séreigninni
317 fyrirtæki fengið tíu milljarða vegna greiðslu hluta launa á uppsagnarfresti
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Frá því að stjórnvöld veittu tímabundið heimild til
að taka út séreignarsparnað sl. vor vegna afleið-
inga veirufaraldursins hafa landsmenn fengið
greidda út úr séreignarsjóðum tæplega 15 millj-
arða króna á tímabilinu apríl til og með sept-
ember. Þetta kemur fram á nýju yfirliti Skattsins
yfir aðgerðir sem embættið hefur umsjón með.
Þar kemur einnig fram að 6. október sl. var bú-
ið að afgreiða 854 umsóknir frá rekstraraðilum
um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta
launakostnaðar á uppsagnarfresti starfsfólks.
Samtals var þá búið að greiða út rúma tíu millj-
arða í stuðning vegna þessa til 317 fyrirtækja. Er
Icelandair efst á listanum, hefur fengið tæpa þrjá
milljarða í stuðning vegna 1.889 launamanna og
Bláa lónið er í næstefsta sæti og hefur fengið tæp-
lega 571 milljón vegna 545 launamanna.
Á annað þúsund hafa fengið lokunarstyrki
Minni fyrirtækjum og öðrum rekstraraðilum
hefur verið gert kleift að sækja um lokunarstyrki
til að mæta erfiðleikunum. Í fyrri hluta október
var búið að greiða tæplega 888 milljónir króna í
lokunarstyrki til 1.052 rekstraraðila skv. yfirlit-
inu.
Einnig var heimilað að sækja um viðbótarlok-
unarstyrki frá og með 11. september til 1. október
og er staðan sú að 54 umsóknir bárust og er búið
að afgreiða 48. Samtals hafa verið greiddar út
rúmlega 46 milljónir kr. í viðbótarlokunarstyrki.
Heimildir til að fá endurgreiddan virðisauka-
skatt voru útvíkkaðar til að létta róðurinn. Frá
áramótum til 8. október hafa alls 27.713 sótt um
endurgreiðslur samanborið við 8.308 umsóknir á
sama tíma í fyrra. Búið er að afgreiða rúmlega 2,7
milljarða endurgreiðslur virðisaukaskatts vegna
viðhalds og endurbóta og rúmlega 2,9 milljarða
vegna nýbygginga frá áramótum. Frá því í vor og
til 8. október sl. nema endurgreiðslur virðisauka-
skatts vegna bílaviðgerða rúmlega 130 milljónum
króna.
Launagreiðendum sem eiga við verulega
rekstrarörðugleika að stríða var heimilað að
sækja um frestun þriggja greiðslna af stað-
greiðslu og tryggingagjaldi. 5. október höfðu
1.748 sótt um frest á greiðslum fyrir rúma 8,4
milljarða vegna staðgreiðslu launamanna og 2,5
milljarða vegna tryggingagjalds.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks í bæj-
arráði Hafnarfjarðar samþykktu á
fundi í gærmorgun að taka tilboði fé-
lags 14 lífeyrissjóða auk einkafjár-
festis í hlut bæjarins í HS veitum.
Áður hafði meirihlutinn fellt sameig-
inlegar tillögur minnihlutaflokkanna
um að sölunni yrði vísað í íbúakosn-
ingu og að sölunni yrði frestað. Sölu-
verð 15,42% hluta Hafnarfjarðar er
3,5 milljarðar kr.
Ákvörðun bæjarráðs verður lögð
fyrir fund bæjarstjórnar í næstu
viku til staðfestingar.
„Það er að fást mjög gott verð fyr-
ir þennan hlut. Enn fremur má
benda á að lífeyrissjóðirnir eignast
þennan hlut og hann verður því
áfram í eigu almennings. Ekki er
verið að einkavæða fyrirtækið,“
segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjar-
stjóri. 14 lífeyrissjóðir eiga 90,8% í
HSV eignarhaldsfélagi sem kaupir
bréfin. Segir Rósa að þessi sala létti
verulega undir með bænum og dragi
úr lánsfjárþörf sem við blasi í þeim
erfiðu aðstæðum sem sveitarfélagið
sé í.
Málið keyrt í gegn
Fulltrúar allra minnihlutaflokk-
anna í bæjarstjórn, Samfylkingar,
Miðflokks, Bæjarlistans og Viðreisn-
ar, stóðu saman gegn sölunni og
lögðu til að henni yrði vísað í íbúa-
kosningu. Meirihlutinn hafnaði því
og einnig að fresta sölunni. „Það er
ekki spurning hvort heldur hvenær
ríkið kemur með aðstoð til sveitarfé-
laganna og hefði verið skynsamlegt
að bíða eftir því. En meirihlutinn
taldi málið ekki þola neina bið og að
keyra þyrfti í gegn sölu á þessari al-
menningseign,“ segir Friðþjófur
Helgi Karlsson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar. Vekur hann athygli á
því að meirihluti bæjarstjórnar hafi
minnihluta atkvæða á bak við sig.
Samtökin Íbúalýðræði hvetja til
íbúakosningar. Rósa bendir á að
samtökin hafi ekki náð tilskildum
fjölda íbúa á bak við þessa kröfu í
sumar.
Tillögu minnihlutans um
íbúakosningu hafnað
Samþykkt að selja hlutabréf Hafnarfjarðar í HS veitum
Áslaug Arna Sig-
urbjörnsdóttir
dómsmálaráð-
herra segir að
ríkislög-
reglustjóri muni
funda með lög-
regluráði til þess
að ræða mál sem
snúa að klæðnaði
lögreglumanna
og kynþátta-
fordómum. Lögreglukona hefur ver-
ið harðlega gagnrýnd undanfarið
fyrir að hafa borið barmmerki sem
tengd hafa verið við nýnasisma og
kynþáttafordóma.
Hún segir jafnframt að flestir geti
verið sammála um að lögreglan leggi
sig almennt fram við að koma fram
við aðra af vinsemd og virðingu.
Fræðsla lögreglumanna sé til skoð-
unar og úrbætur á því sviði taki með-
al annars til umræðu um kynþátta-
fordóma og samfélagslegs skilnings.
„Það er alveg skýrt, haturstákn og
-sjónarmið verða ekki liðin innan
lögreglunnar, hvorki nú né fram-
vegis. Ef við þurfum að auka mennt-
un eða taka á því með einhverjum
hætti sem yfirstjórn lögreglunnar
telur rétt, þá gerum við það,“ skrif-
aði Áslaug á Twitter í gær.
Hún segir enn fremur það vera
lögreglumanna að vera meðvitaðir
um að gefa ekki merki um haturs-
orðræðu frá sér.
Funda um
fordóma
hjá lögreglu
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Haturstákn ekki
liðin hjá lögreglu
Maður á sextugsaldri lést í fyrrinótt
í malarnámu við Lambafell þegar
jarðýta sem hann ók féll fram af
fjallsbrún.
Í tilkynningu lögreglu segir að
maðurinn hafi verið að losa efni og
ýta fram af fjallsbrúninni þegar
jarðýtan féll fram af með þessum af-
leiðingum.
Talið er að slysið hafi átt sér stað
laust fyrir miðnætti í gærkvöldi en
tilkynning um slysið barst lögreglu á
sjöunda tímanum í gærmorgun.
Þegar viðbragðsaðilar mættu á vett-
vang var maðurinn látinn.
Lögreglan á Suðurlandi rann-
sakar nú málið og biður vegfarendur
sem fóru um Þrengslaveg í gær-
kvöldi að hafa samband við lögreglu
ef þeir telja sig hafa upplýsingar um
tildrög slyssins.
Lést við vinnu
í malarnámu
Stöplarnir í vatnslistaverkinu Fyssu í Grasa-
garðinum í Laugardal stóðu af sér jarðskjálftann
stóra á Reykjanesi í vikunni, enda þykkir og
standa á traustum grunni í garðinum. Listakon-
an Rúrí hannaði verkið, sem vígt var árið 1995,
en því er ætlað að tákna flekana tvo sem Ísland
liggur á, Norður-Ameríkuflekann og Evrasíu-
flekann. Skjálftinn í vikunni sýndi vel áhrif þess
þegar flekarnir rekast á og fara hvor í sína átt-
ina.
Haustlegt er um að litast í Grasagarðinum
þessa dagana, laufin falla af trjánum og gróð-
urinn undirbýr sig fyrir vetrarmánuðina fram
undan. Fyrsti vetrardagur er á morgun og því
síðasti séns að fagna haustinu í dag.
Fyssa stóð af sér árekstur flekaskilanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haustlegt um að litast í Laugardalnum nú þegar vetur fer senn að ganga í garð