Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: Mán-fös: 11-18 Lau: 11-15 www.spennandi-fashion.is & VELLÍÐAN HEIMSENDING! FRÍ Ef verslað er fyrir kr.15.000 eða meira. FALLEG HÖNNUN FYRIR HEIMAVINNUNA Umræða um stjórnarskrármál síð- ustu daga hefur verið á nokkrum villigötum varðandi nýlega umsögn Feneyjanefndarinnar, en í svari hennar við fyrirspurn kemur fram að nefndin taki enga afstöðu til þess hvort breytingar hafi orðið á fyrir- liggjandi tillögum frá tillögum stjórnlagaráðs. Í umræðu hefur sérstaklega verið tínt til að samkvæmt mati nefndar- innar þurfi stjórnvöld að skýra sér- staklega hvers vegna vikið hafi verið frá tillögum stjórnlagaráðs. Það gerði meðal annars Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pí- rata, á Alþingi á mánudag og sagði nefndina álíta að „íslenska þjóðin eigi að fá augljósar, skýrar og sann- færandi útskýringar á leið ríkis- stjórnarinnar og enn fremur að ástæður þess að vikið sé í veigamikl- um atriðum frá tillögum sem áður voru samþykktar í ráðgefandi þjóð- aratkvæðagreiðslu 2012 ætti að út- skýra fyrir almenningi“. Það er hins vegar ekki réttur skilningur, samkvæmt svari Fen- eyjanefndarinnar, sem hún veitti Hirti J. Guðmundssyni alþjóða- stjórnmálafræðingi. Hann taldi eitt- hvað bogið við þýðinguna, eins og Helgi Hrafn hafði hana eftir á Al- þingi. Sendi hann því fyrirspurn um þetta til nefndarinnar, sem svaraði í gær. Svarið er svohljóðandi í þýð- ingu blaðsins: „Feneyjanefndin tekur enga af- stöðu til þess hvort einhver frávik eru í yfirstandandi umbótaferli frá drögunum frá 2012. En séu þau ein- hver ætti að útskýra það fyrir al- menningi. Í nýlegu áliti nefndarinn- ar er engin skipuleg samanburðar- greining á drögunum tvennum.“ Feneyjanefndin skýrir mál sitt  Tekur ekki afstöðu til breytinga Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Helgi Hrafn spurði for- sætisráðherra um málið á dögunum. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sterka olíu- og brennisteinslykt leggur nú frá Grænavatni við Krýsu- vík og virkni í svonefndum Engja- hver þarna skammt frá hefur aukist verulega eftir jarðskjálfta sl. þriðju- dag. Styrkur skjálftans mældist 5,6 og voru upptök hans í Núpshlíð- arhálsi, 5 – 6 km norðvestan við fyrr- greinda staði. „Síðustu daga hefur lagt afar sterka lykt frá Grænavatni, satt að segja er eins og risastórt olíu- skip hafi strandað þarna,“ segir Óskar Sæv- arsson, land- vörður í Reykjanesfólkvangi, sem sýndi Morgunblaðinu aðstæður í gær. Grænavatn er sprengigígur rétt sunnan við Kleifarvatn og er grænt vegna brennisteinstegunda. Engja- hver er hins vegar oftast blátær vegna vatnsinnstreymis. Fyllur í flæðamáli Í eftirköstum jarðskjálftans nú sætir tíðindum að um 50 metra löng og um að jafnaði 60 cm breið sprunga, sannkölluð ógnargjá, hefur myndast vestarlega í Krýsuvík- urbergi. Þetta er á þeim slóðum sem ferðamenn leggja leið sína helst um. Segir Óskar að nú sé bókstaflega hættulegt að vera þarna. Nokkrar aðrar sprungur sem fyrir voru á þessum slóðum gliðnuðu. Auk þess má sjá hvar fyllur hafa fallið fram í jarðskjálftanum svo eftir þær eru bingir í grýttu flæðarmálinu 30-40 metrum neðar. Jarðskjálftinn sl. þriðjudag mæld- ist 5,6 og átti upptök sín um 5-10 kíló- metra frá Krýsuvíkurbergi. Áhrifa hans gætti víða, þó mest á Reykja- nesskaganum. Víða hrundi grjót úr fjallshlíðum, lausir munir féllu úr hillum í húsum og fleira slíkt þó skemmdir væru aldrei miklar. Mikill fjöldi skaðlausra eftirskjálfta fylgdi. Strax eftir skjálftann á þriðjudag- inn var settur upp leiðari á Krýsuvík- urbergi, teinar sem band er strengt á milli. Það gerðu starfsmenn Hafn- arfjarðarbæjar, en Krýsuvíkurberg er innan landamæra þess sveitarfé- lags. Á vegum Reykjanesfólkvangs verður svo haldið áfram með aðgerð- ir í varnarskyni. Fyrir eru á svæðinu skilti og skýrar merkingar sem vara við hættum. Stór atburðarás Umbrotin við Krýsuvík nú segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur vera hluta af stórri atburðarás, sem séu hreyfingar á flekaskilum Am- eríku og Asíu sem ganga eftir Reykjanesskaganum endilöngum. Á árunum 2009-2010 hafi land risið nærri Krýsuvík og hið sama hafi gerst við Grindavík fyrr á þessu ári, í alls þremur lotum. Atburðirnir við Krýsuvík séu hluti af þeirri atburða- rás. „Hvernig mál þarna þróast áfram kemur okkur vísindamönnum sífellt á óvart og því er litlu hægt að spá um framhaldið,“ segir Páll. Ógnargjá og sterk olíulykt  Klofnar í Krýsuvíkurbergi og óvenjuleg lykt úr Grænavatni  Fyllur í sjó fram og sprungur víkka  Hættulegur staður  Hreyfingar á flekaskilunum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sprungan Horft til austurs eftir bjarginu sem víða er laust í sér. Fremst er nýja sprungan sem er um 50 metra löng. Grænavatn Sterka lykt hefur lagt frá vatninu eftir jarðskjálftann. Litur vatnsins ræðst af innstreymi brennisteins sem mikið er af á þessum stað. Landvörður Óskar Sævarsson í roki og rigningu á berginu í gær. Páll Einarsson „Þetta var ekki stórkostlegur at- burður með tilliti til skemmda, að því er okkur sýnist,“ sagði Hulda Ragnheiður Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Náttúruhamfara- tryggingar Íslands (NTÍ), um stóra jarðskjálftann vestur af Krýsuvík 20. október. „Þetta virðist hafa sloppið ótrú- lega vel miðað við það sem við höfum frétt af enn sem komið er. Það virðast ekki hafa orðið neinar stórar skemmdir,“ sagði Hulda í gær. Þá hafði NTÍ fengið um tíu tilkynningar um mögulegar skemmdir af völdum jarðskjálft- ans. Engar gátu talist miklar. Til- kynningarnar bárust vítt og breitt að af höfuðborgarsvæðinu og ein úr Reykjanesbæ. Hulda sagði að oft liðu nokkrir dagar áður en fólk tilkynnti um tjón af völdum náttúruhamfara. Tilkynningunum gæti því fjölgað. Þeir sem telja sig hafa orðið fyr- ir tjóni vegna jarðskjálftans ættu að tilkynna það strax. Tilkynning- arfrestur er eitt ár. Eigin áhætta er 2% af hverju tjóni, að lágmarki 200.000 krónur vegna tjóns á innbúum og lausafé og 400.000 vegna húseigna. Hulda sagði að við fyrstu sýn virtist meirihluti tjónanna vera undir eigin áhættu. Hvert mál er unnið sérstaklega. Fólk er beðið um að áætla upphæð tjónsins. Ef hún er hærri en eigin áhætta eru matsmenn sendir til að meta tjónið. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Golli Jarðskjálftar Mikið tjón getur orðið í jarðskjálftum. Mynd úr safni. Tíu til- kynningar um tjón  Ekki vitað um miklar skemmdir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.