Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Lesið vandlega upplýsingarnar á g fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsing- um umáhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Ibuprofen Bril umbúðumo Á hreint brilliant verði! Bólgueyðandi og verkjastillandi 400mg töflur - 30 stk og 50 stk Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is ENGIN SKILYRÐI. ÞÚ ÞARFT HVORKI LYKIL NÉ KORT. ÖNNUR VILDARKJÖR GILDA EKKI MEÐ LÆGSTA VERÐI ÓB. ob.is LÆGSTA VERÐÓB ARNARSMÁRI BÆJARLIND FJARÐARKAUP HLÍÐARBRAUT AKUREYRI Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fjármálasvið Reykjavíkurborgar telur að nauðsynlegur stuðningur ríkisins við sveitarstjórnarstigið á Íslandi vegna afleiðinga kórónuvei- rufaraldursins sé að minnsta kosti 50 milljarðar króna á yfirstandandi ári og á næsta ári. Hlutur borgarinnar í þeim stuðn- ingi yrði þá um 11,1 milljarðar á þessu ári vegna tekjufallsins og út- gjaldaaukans sem leiðir af fjármála- kreppunni og á næsta ári þyrfti stuðningurinn við borgina að nema a.m.k. 11,6 milljörðum kr. eða sam- tals 22,7 milljörðum kr. á yfirstand- andi og næsta ári. Áhyggjur af aðgengi að lánum Þetta kemur fram í nýrri umsögn fjármála- og áhættustýringarsviðs borgarinnar við fjárlagafrumvarp næsta árs og fjármálaáætlunina til næstu fimm ára. Afkomuhalli sveitarfélaganna gæti stefnt í að verða svo alvarlegur að ekki verði við ráðið, hvorki með hagræðingu né með lántökum. Ástæða sé til að hafa áhyggjur af því að sveitarfélögin muni við dýpkun fjármálakreppunnar ekki fá aðgengi að lánum á markaði á ásættanlegum kjörum og jafnvel alls ekki. Að mati borgarinnar væru það hagstjórnarmistök að styðja ekki betur við fjárhag sveitarfélaga. Gagnrýnir borgin að stefna ríkis- ins fram að þessu hafi gengið þvert á ráðgjöf OECD til aðildarríkjanna og bendir á að ríkisstjórnir á öðrum Norðurlöndum virðist munu styðja myndarlega við sveitarfélögin ólíkt því sem eigi sér stað á Íslandi. Í ítarlegri greiningu á stöðunni kemur fram að svigrúm til niður- skurðar sé afar lítið þar sem allar helstu þjónustuskyldur sveitarfélaga séu ákveðnar með lögum og þau séu því þvinguð til að skera niður fjár- festingar. Spáð er stórauknu atvinnuleysi og fjölgun einstaklinga sem fá fjárhags- aðstoð hjá Reykjavíkurborg. Sam- kvæmt dekkstu sviðsmyndum gæti fjöldinn sem þarf fjárhagsaðstoð far- ið úr 1.398 í ár í 3.196 á árinu 2022 og aukning útgjalda borgarsjóðs vegna fjárhagsaðstoðar mun nema allt að 5.560 milljónum kr. 19,1 milljarðs fall útsvarstekna „Þrátt fyrir stuðningsaðgerðir ríkisins í formi lengingar á tekju- tengingu atvinnuleysisbóta og hluta- starfaleið og úttektir einstaklinga á séreignarsparnaði nemur áætlað fall í útsvarstekjum 19,1 [milljarði kr.] árin 2020-2022,“ segir í greinargerð borgarinnar. Útsvarstekjurnar gætu þannig lækkað um 3,6 milljarða í ár frá því sem fjárhagsáætlun borgarinnar gerir ráð fyrir, um 7,5 milljarða á næsta ári og minnkað um 8 milljarða á árinu 2022. „Annar stuðningur ríkisins hefur einkum beinst að smáum sveitar- félögum sem hafa orðið verst úti vegna ferðaþjónustunnar. Það er mat Reykjavíkurborgar að fjármála- lega áfallið mælt í krónum á hvern íbúa verði mest og þyngst í Reykja- vík og þetta mat er stutt í nýrri greiningu starfshóps sveitarstjórn- arráðherra. Þrátt fyrir það beinist lítill sem enginn stuðningur til borg- arinnar og höfuðborgarsvæðisins,“ segir í umsögninni. Kallar á beinan stuðning strax Að mati fjármálasviðs borgarinn- ar verða áhrif niðursveiflunnar mun meiri á sveitarfélögin en forsendur fjármálastefnu og fjármálaáætlunar ríkisins gera ráð fyrir, bæði á tekju- og útgjaldahlið. Það muni leiða til enn lakari afkomu og meiri lántöku- þarfar en gert er ráð fyrir í forsend- um fjármálastefnu. ,,Þessar aðstæður kalla á beinan stuðning ríkisins strax vegna tekju- falls og útgjaldaauka og til framtíðar þarf að endurskoða tekjustofna sveitarfélaga og leikreglur um aukin framlög ríkisins ef tekjur duga ekki fyrir kostnaði vegna lögbundinnar þjónustu við rekstur grunnskóla og þjónustu við fatlaða,“ segir í umsögn borgarinnar til fjárlaganefndar. Borgin þarf 22,7 milljarða stuðning Morgunblaðið/Golli Ráðhús Stjórnvöld eru gagnrýnd.  Sveitarfélögin þurfa 50 milljarða fjárstuðning frá ríkinu að mati fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkur  Aukning útgjalda borgarsjóðs vegna fjárhagsaðstoðar nemur allt að 5.560 milljónum kr. „Það er mjög ánægjulegt að sjá þessa miklu aukningu,“ segir Jón Gunnarsson, samskiptastjóri Hug- verkastofunnar. Fyrstu níu mánuði ársins jukust vörumerkjaskráningar um 56% samanborið við sama tímabil í fyrra og eru nú alls 3.142 talsins. Á sama tímabili jukust alþjóðlegar vörumerkjaskráningar um 26% og eru nú 2.404. Aðeins hefur hallað á fjölda evr- ópskra einkaleyfa, sem eru rétt undir fjölda síðasta árs, en eru þó fleiri en árið 2018. Hins vegar fjölgaði alþjóðlegum PCT-einkaleyfis- umsóknum ís- lenskra aðila en þær voru 19 á fyrstu níu mán- uðum ársins samanborið við 11 árið 2019. Þetta eru ljós- ir punktar í þessu ástandi segir Jón, sem telur að fjöldi vöru- merkjaskráninga geti gefið vís- bendingar um stöðu nýsköpunar og markaðsstarfs á Íslandi. Þessar upplýsingar tengir Jón við þá al- mennu áherslu sem lögð sé á ný- sköpun sem birtist í t.d. sam- keppnum, aðkomu ríkisstjórnar og Samtökum iðnaðarins. Þarna birt- ist m.a. afrakstur þess að frum- kvöðlar séu að ná árangri á sinni vegferð við að skapa ný verðmæti. Hjá Hugverkastofu fer nú fram átak í rannsóknum á vörumerkjum sem hófst í byrjun árs og gera áætlanir ráð fyrir að 4.500 vöru- merki verði rannsökuð í ár. Fjöldi starfsmanna Hugverkastofu vinn- ur heima hjá sér í faraldrinum, sem að sögn hefur ekki komið að sök. Skrá mikið fleiri vörumerki  Uppgrip í flestum flokkum á milli ára  Ljósir punktar Jón Gunnarsson Andrés Magnússon andres@mbl.is Borgarstjóri telur ekki að álit reikn- ingsskilanefndar sveitarfélaga kalli á breytt vinnubrögð í reikningsskilum hjá Reykjavíkurborg og stofnunum hennar. Eyþór Arnalds, oddviti sjálf- stæðismanna, telur hins vegar blasa við að samræmi þurfi að vera í reikn- ingsskilum rekstrareininga borgar- innar í samstæðureikningi. Reikningsskilanefnd sveitarfélaga hefur skilað áliti á reikningsskilum Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða hf., þar sem fundið var að því að reikningsskil Félagsbústaða væru tekin óbreytt inn í samstæðureikning, þó þar væri beitt öðrum reiknings- skilareglum. „Ég fæ ekki betur séð en að álitið þýði að borginni sé heimilt að gera upp með óbreyttum hætti,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið. „Endur- skoðunarnefnd mun væntanlega fara yfir þetta á næstu dögum og veita sitt álit, en hún er borgarráði og borg- arstjórn til ráðgjafar í þessum efnum og hefur á að skipa reynslumiklu fag- fólki á þessu sviði.“ Hann telur ekki að borgin þurfi að breyta vinnulagi við reikningsskil í ljósi álitsins og fellst raunar ekki á að í því felist nokkur gagnrýni. „Ég get ekki séð að það feli í sér gagnrýni að staðfesta það að Félagsbústaðir hafi verið að gera upp með réttum hætti. Nefndin segir einnig að borginni sé heimilt að taka reikningsskil Fé- lagsbústaða óbreytt upp í samstæðu- reikning sinn, ef reikningsskil Fé- lagsbústaða gera ráð fyrir sömu matsaðferð og í samstæðureikningi borgarinnar. Þetta kemur ekki á óvart og kallar ekki á breytingar eftir því sem ég fæ séð.“ Borgarstjóri telur alls ekki að eigið fé samstæðureiknings borgarinnar sé ofmetið miðað við þetta. „Nei, það væri þvert á móti vanmetið ef fast- eignir Félagsbústaða væru metnar á einhverju öðru en markaðsverði.“ Borgarstjóri í afneitun „Borgarstjóri er í alvarlegri afneit- un við raunveruleikann,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna. „Málið snýst um tvennt: Annars veg- ar er verið að bókfæra hagnað upp á meira en 50 milljarða króna, sem aldrei munu koma í kassann. Einfald- lega vegna þess að það stendur ekki til af hálfu meirihlutans að selja fé- lagslegt húsnæði, ekki frekar en að það á að selja skólana eða annað slíkt húsnæði á vegum borgarinnar,“ segir Eyþór. „Þessar íbúðir Félagsbústaða eru ekki eignir á markaði og þess vegna er þetta bara pappírshagnað- ur.“ Hann segir hitt snúast um eðlileg vinnubrögð, sem ekki ættu að vera pólitískt bitbein. „Samstæða Reykja- víkurborgar, sem sagt bæði borgin sjálf og sjálfstæðar stofnanir á henn- ar vegum, hefur verið gerð upp með mismunandi hætti. Sumar einingar með einni reikningsskilaaðferð og aðrar með annarri. Þar með er mis- ræmi í reikningsskilum og það er það sem reikningsskilanefndin bendir á að gangi ekki upp.“ Eyþór segir blasa við að það eigi að gera borgina upp með einum og sam- ræmdum hætti. „Þar með þarf að bakfæra þennan pappírshagnað upp á meira en 50 milljarða, því hann er ekki innleystur og verður aldrei inn- leystur.“ Hann segir að reikningsskil- in hafi því ekki gefið rétta mynd og fráleitt að tala um afgang af rekstri með slíkum bókhaldssjónhverfingum. „Það er ekki gott að blekkja aðra, en verra þó að blekkja sjálfan sig, eins og borgarstjóri er að gera.“ Deilt um reikningsskil Reykjavíkurborgar  Borgarstjóri telur álit reikningsskilanefndar ekki gagnrýni Dagur B. Eggertsson Eyþór Arnalds
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.