Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Meirihlutinn í Reykjavík varðfyrir því áfalli á dögunum að
reikningsskila- og upplýsinganefnd
sveitarfélaga komst að þeirri nið-
urstöðu að reikningsskil samstæðu
Reykjavíkurborgar standist ekki
lög. Einar S. Hálfdánarson, sem sat
í endurskoðunarnefnd Reykjavík-
ur, sagði sig úr
þeirri nefnd eftir að
hafa gagnrýnt
vinnubrögð borg-
arinnar sem notaði
eignir Félagsbú-
staða til að gefa vill-
andi upplýsingar
um rekstur borg-
arinnar. Borgin
tekjufærði metna
verðmætaaukningu
íbúða Félagsbústaða
sem borgin er vita-
skuld ekki að fara
að selja.
Meirihlutinn í borginni hefurekki sýnt neina iðrun í þessu
máli nema síður sé. Fyrr í vikunni
vildu sjálfstæðismenn í borgar-
stjórn, sem eiga einn fulltrúa í end-
urskoðunarnefnd borgarinnar, að
Einar settist aftur í nefndina þar
sem niðurstaða í ágreiningsmálinu
lægi fyrir og Einar hefði haft rétt
fyrir sér.
Viðbrögð Dags borgarstjóravoru að veitast að Einari og
meirihlutinn hafnaði ósk sjálfstæð-
ismanna. Næst þegar meirihluti
borgarstjórnar hefur upp raust
sína um lýðræði, opna stjórnsýslu,
fagleg vinnubrögð eða annað álíka
er ágætt að borgarbúar hafi þessa
ótrúlegu valdníðslu í huga.
Og það vekur athygli að það varekki Dagur einn sem beitti sér
í málinu. Pawel Bartozek, forseti
borgarstjórnar og borgarfulltrúi
Viðreisnar, tók fullan þátt í aðför-
inni. Það var ekki mikil reisn yfir
því.
Dagur B.
Eggertsson
Valdníðsla
meirihlutans
STAKSTEINAR
Pawel Bartozek
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hef-
ur samþykkt niðurrif á friðuðu húsi
að Skólavörðustíg 36, sem rifið var í
óleyfi í september síðastliðnum. Jafn-
framt hefur hann samþykkt bygg-
ingu á nýju húsi á lóðinni.
Í fundargerð byggingarfulltrúa frá
sl. þriðudegi kemur fram að Birgir
Örn Arnarson og Arwen Holdings
ehf. sæki um leyfi fyrir áður fram-
kvæmdu niðurrifi á húsi á lóð nr. 36
við Skólavörðustíg. Þetta var sam-
þykkt enda samræmdist það ákvæð-
um laga um mannvirki frá árinu 2010.
„Það athugist að um er að ræða sam-
þykkt á áður gerðri framkvæmd sem
gerð var án byggingarleyfis. Óvissa
kann því að vera um uppbyggingu og
útfærslu framkvæmdar. Hvorki er
skráð verktrygging á verkið né
ábyrgðaraðilar,“ segir í bókun á fundi
byggingarfulltrúa. Borgin stendur
frammi fyrir gerðum hlut og tryggja
þarf að niðurrifi verðir lokið og úr-
gangi fargað með lögbundnum hætti.
Eigandi hússins sagði í fjölmiðlum
í fyrri mánuði að niðurrifið hafi verið
„óhapp“. Reykjavíkurborg kærði nið-
urrifið umsvifalaust til lögreglu enda
væri það óleyfisframkvæmd.
Á sama fundi byggingarfulltrúa
var tekin fyrir beiðni JB ferða ehf.
þar sem sótt er um leyfi til að byggja
þriggja hæða staðsteypt hús með
verslunarhúsnæði á jarðhæð og einni
íbúð á annarri og þriðju hæð á um-
ræddri lóð. Húsið er sagt verða 315
fermetrar. Byggingaleyfi var sam-
þykkt með vísan til sömu laga og áður
er getið. Frágangur á lóðamörkum
skal gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða. sisi@mbl.is
Samþykktu niðurrif og nýtt hús
Morgunblaðið/Eggert
Niðurrif Ekkert er eftir af húsinu
sem stóð við Skólavörðustíg 36.
Magnús H. Magnússon
rafvirkjameistari varð
bráðkvaddur á heimili
sínu mánudaginn 19.
október, 68 ára að aldri.
Magnús fæddist á
Hólmavík 2. febrúar
1952, sonur Magnúsar
Ingimundarsonar og
Sigrúnar Huldu Magn-
úsdóttur. Magnús ólst
upp á Hólmavík og
vann þar ýmis störf frá
13 ára aldri og var með-
al annars á sjó þar til
hann fór í Iðnskólann í
Reykjavík. Hann flutti
til Hafnar í Hornafirði árið 1972
ásamt eiginkonu sinni, Þorbjörgu
Magnúsdóttur, þar sem hann lærði
rafvirkjun. Magnús starfaði sem raf-
virkjameistari alla tíð, var mikill at-
hafnamaður og tók virkan þátt í upp-
byggingu ferðamála á Vestfjörðum.
Hann rak hellusteypu, bílaleigu,
verslun með rafmagns- og ljósabún-
að, var vitavörður, umsjónarmaður
flugvallarins um árabil, umboðs-
maður Stöðvar 2 og fréttaritari
Morgunblaðsins á
Hólmavík. Hann fékk
einkaflugmannspróf
1989. Magnús var einn
af stofnendum Galdra-
safnsins á Hólmavík og
sat í stjórn Orkubús
Vestfjarða.
Hann sinnti félags-
og sveitarstjórnar-
málum um árabil, sat í
hreppsnefnd og var
oddviti Hólmavíkur-
hrepps, síðar Stranda-
byggðar. Magnús og
Þorbjörg keyptu og
gerðu upp elsta hús
Hólmavíkur og ráku þar myndar-
legan veitingstað, Café Riis, frá
1996. Að auki keyptu þau gamla fé-
lagsheimilið, Braggann og gerðu
upp í upphaflegri mynd. Magnús og
Þorbjörg seldu reksturinn á Hólma-
vík árið 2005 og fluttu til Kópavogs.
Börn Magnúsar og Þorbjargar
eru Sigrún Harpa fædd 1971 og
Marín fædd 1976. Auk þess átti
Magnús tvíburana Eyjólf og Sigur-
björgu, fædd 1976.
Andlát
Magnús H. Magnússon
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Mán. – Fim. 10–18
Föstudaga 10–17
Laugardaga 11–15
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar