Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 Sjáum um allar merkingar Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is Gísli, sölu- og markaðsstjóri vinnufatnaðar Sími 766 5555 | gisli@run.is ÖRYGGIS- SKÓR VANDAÐUR VINNUFATNAÐUR 6424 6202 55505536 3307 3407 SAFE & SMART monitor Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þátttakendur á rafrænum íbúa- fundum verkefnishóps um samein- ingu fimm sveitarfélaga á Suður- landi virðast almennt fylgjandi því að verkefnishópurinn ljúki undir- búningsvinnu og beri tillögu um sameiningu undir íbúana í fyllingu tímans. Verkefnishópurinn hefur haldið fjóra fundi, með íbúum Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Mýrdalshrepps og í næstu viku verður fundað með íbúum Skaftárhrepps. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu varð að nota fjar- fundabúnað til að funda. Fyrst kynnir verkefnishópurinn vinnu sína og síðan er þátttakendum skipt niður í smærri hópa til að ræða einstök mál. „Fjallað er um málin á breiðum grunni og reynt að fá sýn íbúa á þessa hluti. Þetta hefur verið virkilega skemmtilegt og gengið vonum framar,“ segir Anton. Stóra spurningin sem lögð er fyrir íbúana á þessum fundum er hvort sveitarfélögin fimm eigi að halda áfram viðræðum og leyfa íbúum að kjósa um sameiningu þeirra. Þátt- takendur í fundunum virðast velja þá leið, samkvæmt mati Antons, eins og fram kemur í upphafi greinar. Sveitarstjórnir ákveða Næsta skrefið í ferlinu er að gera skoðanakannanir meðal íbúa og leggja málið fyrir sveitarstjórnir sem þurfa að ákveða hver fyrir sig hvort hefja eigi formlegar samein- ingarviðræður sem lýkur með því að tillaga um sameiningu verður lögð fyrir íbúana á næsta ári. Listakonurnar Rán Flygenring og Elín Elísabet voru fengnar til að lýsa á sinn hátt sjónarmiðum sem fram hafa komið á fundunum og eru nokkur dæmi sýnd hér til hliðar. Jákvæðir fyrir áframhaldandi viðræðum  Sameining fimm sveitarfélaga á Suðurlandi rædd á rafrænum fundum Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ríkiseignir hafa ekki tekið ákvörðun um endurnýjun eða úrbætur á loft- ræstikerfum vegna kórónuveirunnar, að sögn Sólrúnar Jónu Böðvarsdóttur framkvæmdastjóra. Hún segir að tíminn eigi eftir að leiða það í ljóst hvort slíkt verði skoðað sérstaklega. Reykjavíkurborg hefur ekki heldur gert sérstaka úttekt á loftræstingum með tilliti til kórónuveiru, samkvæmt upplýsingum. Morgunblaðið sendi fyrirspurnir til Ríkiseigna og Reykjavíkurborgar vegna þess að þýsk stjórnvöld ætla að verja sem nemur 81 milljarði króna til að bæta loftræstikerfi í opinberum byggingum. Það verður gert í þeirri viðleitni að stöðva útbreiðslu kórónu- veirunnar. Spurt var hvort eitthvað svipað væri í bígerð hér. „Ríkiseignir eru sífellt að rýna í verkferla og gæði framkvæmda ásamt þjónustu við sína leigutaka. Þegar endurnýjun eða lagfæring á sér stað er alltaf skoðað í samvinnu með ráðgjöfum Ríkiseigna hvaða lausn er best fyrir verkefnið,“ sagði í skriflegu svari Sólrúnar Jónu við fyr- irspurn Morgunblaðsins. Síur í loftræstisamstæðum í bygg- ingum Reykjavíkurborgar eru yfir- farnar með reglubundnum hætti til að óhreinindi í útilofti berist ekki inn í loftræstikerfin. Síuskipti eru árlega hið minnsta og eru virkir þjónustu- samningar vegna þessa í öllum stofn- unum borgarinnar, samkvæmt upp- lýsingum frá borginni. Ítarlegt mat var gert á ástandi hús- næðis skóla- og frístundasviðs á þessu ári og hluti af því var skoðun á loft- gæðum. Á grundvelli þeirrar heildar- úttektar verða teknar ákvarðanir um endurnýjun og viðhald. Þessa dagana er unnið að úrvinnslu gagna og er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyr- ir í nóvember. Eignasafn Ríkiseigna nam rúmlega 500.000 fermetrum í byrjun árs 2019. Í því eru m.a. framhaldsskólar, heil- brigðisstofnanir, lögreglustöðvar, söfn og skrifstofuhúsnæði. Reykja- víkurborg á einnig um 500.000 fer- metra húsnæði. Þar á meðal er skóla- húsnæði, íþróttamannvirki, skrif- stofuhúsnæði og húsnæði á vegum félagsþjónustu borgarinnar. Morgunblaðið/Frikki Loftsía Þjóðverjar hafa ákveðið að endurbæta loftræstikerfi í opinberum byggingum þar í landi í því skyni að hamla útbreiðslu kórónuveirunnar. Loftræstikerfi og veiruvarnir  Ekki á dagskrá hér að breyta kerfum Á miðvikudag greindust 33 ný til- felli kórónuveirunnar hér á landi. Þar af voru 20 í sóttkví við grein- ingu. Af orðum Þórólfs Guðnason- ar sóttvarnalæknis má dæma að faraldurinn sé á niðurleið. Hann segir þó, að þrátt fyrir að núna sjáist árangur af hertum aðgerð- um sé sigurinn hvergi nærri í höfn. „Þó við getum kannski hrósað happi eins og staðan er núna þá er sigurinn hvergi í höfn og því þurf- um við að halda áfram okkar sam- vinnu og samstöðu þannig að hægt verði á næstunni að létta á ýmsum íþyngjandi aðgerðum sem nú eru í gangi,“ sagði Þórólfur á upp- lýsingafundi almannavarna í gær. Honum þykir leitt að misræmi hafi verið í tilmælum hans og reglugerð heilbrigðisráðherra um núgildandi samkomutakmarkanir. Vísar hann þá til þess að hann hafi lagt til við ráðherra að líkams- ræktarstöðvar yrðu áfram lok- aðar, en Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fór gegn þessu og leyfði stöðvunum að hafa opið með skilyrðum. Kórónu- veirusmit Nýgengi smita frá 1. sept. Nýgengi innanlands 21. október: 248,7 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 291,5 248,7 22,9 1.159 eru með virkt smit og í einangrun Innanlands Landamæri september október 33 ný inn an lands smit greindust 21. október Faraldurinn á stöðugri niðurleið  Segir að sér þyki leitt að misræmi hafi orðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.