Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Ryðfrítt vinnsluborð
og bandsagarblað
Vinnsluhæð: 240 mm
Vinnslubreidd: 250 mm
Færanlegt vinnsluborð 47
Mótor: 550 w
Hæð: 1.470 mm
Þyngd: 58 kg
Verð aðeins87
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, RE
DYNAMIX
Frábær k
með hakk
ARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
0x6
.9
YKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFN
jö
a
s
00 mm
00 kr.
tsög
fs.i
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Íbúar sem mæla á móti lagningu Arn-
arnesvegar um Vatnsendahvarf telja
að aðstæður hafi breyst svo mikið á
þeim fjörutíu árum sem vegurinn hef-
ur verið í umræðunni og frá því um-
hverfisáhrifin voru metin að nauðsyn-
legt sé að gera nýtt umhverfismat.
Reykjavíkurborg hefur ekki tekið
undir þessi sjónarmið.
Íbúarnir hafa með sér óformleg
samtök og hóp á Facebook sem
nefndur er Vinir Vatnsendahvarfs og
er með um 300 fylgjendur.
Bent er á að upphaflega hafi veg-
urinn verið kallaður Ofanbyggðar-
vegur. Hópur íbúa, ekki síst í efsta
hluta Seljahverfis í Reykjavík, hefur
mótmælt þessum áformum á öllum
stigum skipulags og undirbúnings
framkvæmda í þessi 40 ár.
Helga Kristín Gunnarsdóttir, úr
hópnum Vinir Vatnsendahvarfs, segir
að margt hafi breyst á þeim átján ár-
um sem liðin eru frá því gert var um-
hverfismat sem grundvallaðist á mis-
lægum gatnamótum. Nefnir hún að
umferðarspá geri nú ráð fyrir mun
meiri umferð. Byggð hafi færst nær
vegstæðinu, nýjar götur bæst við og
Vetrargarður í Seljahverfi ekki verið
kominn á áætlun. Áhersla á aðra sam-
göngumáta hafi aukist. Þá hafi græna
svæðið verið að gróa upp, tré séu far-
in að vaxa þar, og það sé orðið mik-
ilvægt útivistarsvæði, í framhaldi af
Elliðaárdalnum, og þyrfti að friða.
Hún segir að íbúarnir geti ekki kraf-
ist nýs umhverfismats. Reykjavíkur-
borg hafi hafnað því með pólitískri
ákvörðun.
Leysir ekki vandamálin
Helga segir að leysa þurfi vanda
slökkviliðsins vegna viðbragðstíma
og segist hafa skilning á vanda íbúa í
Kórahverfi við að komast um gatna-
mót Vatnsendahvarfs og Breiðholts-
brautar.
„Búið er að segja Kópavogsbúum
að Arnarnesvegur muni leysa öll
vandamál en það er draumsýn. Þeir
gleyma því að þetta var hugsað sem
Ofanbyggðarvegur til að stytta leið-
ina og umferðin mun þyngjast. Öll
umferð frá Reykjanesi og flugvell-
inum til og frá Suðurlandi mun fara
um þennan veg þótt leiðin og ferða-
tíminn styttist lítið,“ segir Helga og
bætir því við að vandamálin færist til.
Hún segir að bent hafi verið á aðr-
ar leiðir til að leysa vandamál slökkvi-
liðsins og íbúa í Kórahverfi. „Við
þurfum að setjast niður til að endur-
skoða málið í heild og skoða alla
möguleika. Taka þarf tillit til breyttra
áherslna í samgönguháttum og um-
hverfismálum.
Helga Kristín hefur einnig áhyggj-
ur af áformum Kópavogs um 4.000
manna byggð efst uppi á Vatns-
endahvarfi. Hún standi allt of hátt og
það muni valda vandræðum. Einnig
telur hún að nýr Vatnsendavegur
verði martröð fyrir snjóruðnings-
menn. Þeir sem þekki til þarna viti að
niðurgrafinn vegur verði fljótt ófær á
veturna því það fenni ofan í hverja
einustu gjótu á hæðinni á stuttum
tíma.
Telja forsendur
framkvæmdar
gjörbreyttar
Vinir Vatnsendahvarfs vilja fá nýtt
umhverfismat fyrir Arnarnesveg
Morgunblaðið/Hanna
Vatnsendahæð Útvarpshúsið og
möstrin standa hæst á hæðinni.
Arnarnesvegur
» Vegagerðin áformar að ljúka
lagningu Arnarnesvegar frá
Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut,
um 1,3 km leið. Tillaga er um
að gatnamótin verði ljósastýrð,
ekki full mislæg gatnamót eins
og áður var áformað. Áður var
lokið tveim fyrri áföngum Arn-
arnesvegar, frá Reykjanes-
braut að Rjúpnavegi.
» Áformað er að bjóða verkið
út á næsta ári.
Talsvert meira var greitt fyrir síld
sem landað var í Noregi heldur en á
Íslandi á árunum 2012-2019. Hins
vegar var minni munur á síldaraf-
urðum frá löndunum tveimur á
þessu tímabili og ýmist hvort landið
fékk hærri verð. Það er Verðlags-
stofa skiptaverðs sem hefur gert
verðsamanburðinn.
Um tilgang og tilurð birtingar-
innar segir á heimasíðu Verðlags-
stofu að í ljósi umræðu í samfélag-
inu um verð á uppsjávarfiski, ásamt
þeim umkvörtunum sem Verðlags-
stofu hafi borist, hafi stofan ákveðið
að taka sérstaklega til skoðunar
uppsjávarverð í Noregi. Teknar
hafi verið saman opinberar upplýs-
ingar um hráefnisverð og afurða-
verð norsk-íslenskrar síldar í Nor-
egi og sett í samhengi við innlent
verð.
Hvað varðar hráefnisverð var
meðalverð á NÍ-síld til vinnslu og
bræðslu að meðaltali 128% hærra í
Noregi en á Íslandi á fyrrnefndu
tímabili. Á árinu 2019 var meðal-
verð á NÍ-síld, til bræðslu og
vinnslu, 51% hærra í Noregi en á Ís-
landi en á því ári var minnsti munur
á tímabilinu og minnkaði munurinn
á árunum 2017-19. Mesti munur á
milli landanna var 2015 en þá var
verðið 186% hærra í Noregi.
Á tímabilinu var meðalverð á NÍ-
síld til vinnslu að meðaltali 125%
hærra í Noregi. Meðalverð á NÍ-
síld til bræðslu var á sama tíma að
meðaltali um 34% hærra í Noregi.
Meira fyrir heilfrysta síld
Meðalverð á heilfrystri síld sem
flutt var út frá Íslandi var um 8%
hærra en meðalverð á sambæri-
legum afurðum útfluttum frá Nor-
egi á tímabilinu 2012-2019. Mesti
munur var árið 2017 en þá var með-
alverðið 14% hærra á afurðunum
frá Íslandi en frá Noregi. Minnsti
munur var árið 2015 þegar rúmlega
1% hærra verð fékkst á þessum af-
urðum frá Noregi.
Meðalverð á síldarflökum útflutt-
um frá Noregi var að meðaltali 6%
hærra en á síldarflökum sem flutt
voru út frá Íslandi. Mesti munur var
2013 en þá var meðalverð 24%
hærra á norskum afurðum. Meðal-
verð á síldarsamflökum er svipað
yfir tímabilið.
Verðupplýsingar á NÍ-síld á Ís-
landi eru unnar upp úr vigtar- og
ráðstöfunarskýrslum innsendum af
aflakaupa til Fiskistofu. Aðeins eru
notaðar upplýsingar frá fyrirtækj-
um á Íslandi sem kaupa afla í bein-
um viðskiptum af innlendum skip-
um og sem reka landvinnslu og
bræðslu. Verðupplýsingar fyrir NÍ-
síld í Noregi byggjast á upplýsing-
um frá Norges Sildesalgslag og eiga
við um norsk skip sem landa NÍ-síld
til frekari vinnslu eða bræðslu í
Noregi. Meðalgengi hvers árs á
norskri og íslenskri krónu var notað
til að skipta yfir í íslenskar krónur.
Upplýsingar um afurðaverð voru
sóttar fyrir heilfrysta síld, síldar-
flök og síldarsamflök hjá Hagstofu
Íslands og hagstofu Noregs fyrir
árin 2012 til og með 2019. Á heima-
síðu Verðlagsstofu er vakin athygli
vakin á því að afurðaflokkar fyrir
Noreg eiga við um NÍ-síld en fyrir
síld almennt varðandi Ísland, þar
sem gögn Hagstofu Íslands að-
greina ekki í sundur veiðistofna ís-
lenskrar síldar og norsk-íslenskrar.
Ólíkir þættir hafa áhrif
Verðlagsstofa vekur athygli á því
að ólíkir þættir kunni að leiða til
mismunandi verðlagningar hráefnis
og afurða á milli landa. „Þar hafa
verið tekin dæmi um uppbyggingu
fiskveiðistjórnunarkerfis, stöðu
gjaldmiðils, millifærslur í formi nið-
urgreiðslu og gjaldtöku hins opin-
bera, gæði hráefnis og aðgang að
mörkuðum. Einnig er líklegt að
mismunandi samningar útgerða og
sjómanna, ásamt mismun á laga- og
regluverki samanburðarþjóða hafi
þýðingu í þessu sambandi, til dæmis
er varðar sölufyrirkomulag hráefn-
is og samþættingu veiða og vinnslu.
Athygli er auk þess vakin á því að
ekki er um að ræða samanburð á
launum sjómanna,“ segir á heima-
síðu Verðlagsstofu skiptaverðs.
Meðalverð á síld
128% hærra í Noregi
Verðlagsstofa ber saman verð á afla og afurðum 2012-2019
Samanburður Síldarflök renna eftir færibandi í íslenskri vinnslu.
Riða á Stóru-Ökrum 1 í Akrahreppi
í Skagafirði hefur verið staðfest, að
sögn Matvælastofnunar (MAST).
Undirbúningur að niðurskurði alls
fjár á bænum stendur nú yfir.
MAST ítrekar að allur flutningur
líffjár innan Tröllaskagahólfs sé
bannaður. Riða hefur ekki greinst á
svæðinu síðan árið 2000. Beðið er
eftir niðurstöðum sýna úr sauðfé
sem flutt var frá bænum til annarra
bæja innan varnarhólfsins.
Sterkur grunur vaknaði um riðu-
veiki á bænum í síðustu viku. Bónd-
inn hafði samband við starfandi
dýralækni sem tilkynnti héraðs-
dýralækni um kind með einkenni
riðuveiki. Henni var lógað og sýni
send til Tilraunastöðvar Háskóla
Íslands á Keldum. Bráðabirgðanið-
urstöður bentu sterklega til þess að
um riðuveiki væri að ræða.
Á búinu eru um 500 fullorðnar
kindur auk um 300 lamba eða alls
um 800 fjár. gudni@mbl.is
Riða staðfest í kind
í Tröllaskagahólfi
Morgunblaðið/Árni Torfason
Kindur Reynt er með öllum ráðum
að útrýma riðuveiki. Mynd úr safni.