Morgunblaðið - 23.10.2020, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
HAMMERSHOI
JÓLAKÚLA 3.490
Jólavörurnar frá KÄHLER
komnar í verslanir okkar
HAMMERSHOI
SKÁL Á FÆTI frá 9.290,-
HAMMERSHOI
DISKUR frá 5.190,-
HAMMERSHOI
KRÚS 4.590,-
HAMMERSHOI vasi
10,5 cm – 4.690,-
13 cm – 6.990,-
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Ég tel að einvígi sem þetta verði aldrei end-
urtekið,“ segir Guðmundur G. Þórarinsson
verkfræðingur, en bók hans „Einvígi allra
tíma“ kom út á dögunum.
Þar skrifar hann um reynslu
sína af heimsmeistaraeinvígi
Bobbys Fischers og Boris
Spasskís, sem fram fór hér á
Íslandi árið 1972, en það hef-
ur jafnan gengið undir nafn-
inu „einvígi aldarinnar“.
Guðmundur var þá forseti
Skáksambands Íslands, og
upplifði því frá fyrstu hendi
allt það er gekk á í einvíginu.
Guðmundur lenti raunar
fyrir tilviljun í þeirri stöðu að vera fulltrúi Ís-
lands, þegar hugmyndin um heimsmeistara-
einvígið kom upp. „Það hringdi í mig blaðamað-
ur frá Morgunblaðinu í maí 1969, og sagði hann
að þeir vildu fá að vita áform mín með Skák-
samband Íslands. Ég sagði við hann að það
kæmi mér ekkert við, ég er ekkert með það,“
segir Guðmundur, sem fékk þá að heyra að
hann hefði nú víst verið kjörinn forseti sam-
bandsins um helgina, á fundi sem hann var ekki
viðstaddur. Sagði Guðmundur blaðamanninum
eftir nokkurt karp að hann hefði hringt í rang-
an mann.
„En svo runnu tvær grímur á mig, svo ég
hringdi í bróður minn, Jóhann Þóri Jónsson,
sem var útgefandi tímaritsins Skák, og spurði
hann hvað hefði gerst,“ segir Guðmundur. Þá
kom upp úr dúrnum að aðalfundurinn hefði
sprungið í loft upp og Guðmundur Arason, for-
seti sambandsins og hnefaleikakappi, hefði sagt
af sér. Jóhann Þórir hafði þá ákveðið að bjóða
bróður sinn fram til forseta til þess að lægja
öldurnar. Guðmundur segist ekki hafa verið
kátur með þetta uppátæki bróður síns, enda
var hann með margt í gangi, en hafi látið tilleið-
ast með það að markmiði að gera sem minnst
og láta svo af embætti eftir tvö ár.
Tilboði óvænt tekið
Örlögin höguðu því þó á annan veg. „Þegar
ég ætla að fara að hætta, kemur bréf frá al-
þjóðaskáksambandinu FIDE, og þá er Max
Euwe, fyrrverandi heimsmeistari og forseti
FIDE, að biðja aðildarlöndin að gera tilboð í að
halda heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spass-
kís,“ segir Guðmundur sem segir að þá hafi
ýmsir íslenskir skákáhugamenn lagt að honum
að bjóða í einvígið. Guðmundur segir að sér hafi
þótt það afleit hugmynd, enda hafi Íslendingar
á þeim tíma engin ráð haft til þess að keppa við
stórþjóðir um viðburði af þessu tagi. Hann
ákvað þó að útbúa tilboð ásamt Freysteini Þor-
bergssyni og Guðmundi Einarssyni, sem Frey-
steinn flaug svo út með á fund FIDE í skyndi,
þar sem tímafresturinn til að skila tilboðinu var
nánast á enda. Íslenska tilboðið reyndist hið
þriðja besta, og taldi Guðmundur það vera
endapunkt málsins.
„En þá gerðist það sem ég sá ekki fyrir, sem
var að Spasskí, ríkjandi heimsmeistari, og
Rússarnir sögðust bara vilja tefla á Íslandi,“
segir Guðmundur. Fischer vildi hins vegar bara
tefla í Júgóslavíu, þar sem þeir buðu hæstu
verðlaunin. Þá hefði Euwe skorist í leikinn og
ákveðið að mótið yrði haldið til skiptis í báðum
löndum. Við tóku langar og flóknar samninga-
viðræður milli Íslands, Júgóslavíu, FIDE og
svo risaveldanna tveggja.
Eitt af því sem stóð í veginum var Bobby
Fischer sjálfur, en Júgóslavar vildu fá trygg-
ingu fyrir því að hann myndi mæta í einvígið, en
Bandaríkjamenn reyndust ófúsir til þess. „Þá
stóðu Júgóslavarnir upp og sögðu bara að þeir
væru hættir, þetta væri tómt rugl og það yrði
ekkert af einvíginu.“ Eftir nokkrar tilraunir
Euwe til þess að fá aðrar þjóðir til þess að taka
að sér hlut Júgóslava varð niðurstaðan sú að
einvígið færi allt fram á Íslandi.
„Ég var nú svo bláeygður og auðtrúa að ég
sagði við mína menn að það gæti ekki verið svo
mikið mál að halda eitt skákeinvígi,“ segir Guð-
mundur. Annað kom á daginn, þar sem auk
þess að skipuleggja mótið sjálft þurfti að semja
um alls kyns hluti, nánast frá degi til dags, og
ekki minnkaði það eftir að einvígið sjálft var
hafið í Reykjavík.
Skák í skugga kalda stríðsins
Það var ekki til að draga úr áhuganum á ein-
víginu að þar áttust við fulltrúar risaveldanna
tveggja í kalda stríðinu, Bandaríkjanna og Sov-
étríkjanna, sem höfðu skipt heiminum á milli
sín, bæði landfræðilega og hugmyndafræðilega,
en nálgun þeirra til skáklistarinnar var mjög
frábrugðin. „Sovétmenn höfðu gert skákina að
þjóðaríþrótt,“ segir Guðmundur og bendir á að
einungis Sovétmenn höfðu getað teflt um
heimsmeistaratignina frá 1948. „Þeir sögðu að
þessi velgengni sýndi yfirburði kommúnistíska
kerfisins, og það gat enginn komist nálægt Sov-
étmönnum í skák.“
Á sama tíma hefðu Bandaríkjamenn aldrei
sýnt neinn almennan áhuga á skák, þó að þeir
ættu sterka stórmeistara eins og Reshevsky.
„En svo kemur þessi eini maður fram á sjón-
arsviðið og þá myndast þetta andrúmsloft, ein-
staklingurinn Fischer gegn sovéska kerfinu,“
segir Guðmundur og bætir við að menn hafi
einnig horft á hversu ólíkir hann og Spasskí
voru að skapgerð.
Guðmundur segir hins vegar að þeir hafi ver-
ið líkari en menn héldu. „Þeir voru báðir aldir
upp af einstæðri móður, og mæður þeirra voru
svo fátækar að þær þurftu báðar að leita til vina
og aðstandenda til þess að kaupa mat,“ segir
Guðmundur.
Skákin varð hins vegar að vegabréfi beggja
út úr fátækt, þar sem Spasskí var tekinn upp á
arma sovéska skákskólans og hampað af hon-
um, en undrahæfileikar Fischers gerðu hann að
stórmeistara einungis 15 ára gamlan, sem var á
þeim tíma met.
Einkennilegur eftirleikur
Einvígið hófst í júlí 1972 og lauk í september
með sigri Fischers með tólf og hálfum vinningi
gegn átta og hálfum vinningi Spasskís, en á bak
við tjöldin var allt á suðupunkti og ýmis mál
sem þurfti að greiða úr og oftar en ekki lenti
það á herðum Guðmundar. Hann segir að þegar
allt var yfirstaðið hafi hann og félagar sínir í
Skáksambandi Íslands verið fegnir að hafa
komist í gegnum þessa þolraun, en bætir við að
eftirleikur einvígisins hafi ekki síður verið ein-
kennilegur.
„Báðir þessir menn verða landflótta. Þegar
Spasskí kemur heim, þá er hann orðinn að
manninum sem hafði tapað heimsmeistaratign-
inni frá Sovétmönnum. Hann er lækkaður í
launum og fær ekki að tefla erlendis næstu tvö-
þrjú árin, jafnvel þó Spasskí sýni á innanlands-
mótum hvað hann er ennþá öflugur skákmað-
ur,“ segir Guðmundur, en Spasskí endaði á því
að flytja til Frakklands og gerðist franskur
þegn árið 1978.
Saga Fischers er ekki síður harmræn, en
hann verður landflótta eftir að hann og Spasskí
tefldu á ný í Júgóslavíu árið 1992, en það var í
trássi við viðskiptabann Bandaríkjanna.
Bandarísk stjórnvöld brugðust hart við, gáfu út
handtökuskipun á hendur honum og hundeltu
eftir það. „Hann á tvo ættingja, móður sína og
systur, þær deyja báðar og hann kemst ekki til
að vera við jarðarfarirnar. Hann er hundeltur
og hrakinn út í eyðimörkina, sviptur sínu föður-
landi,“ segir Guðmundur.
Á endanum var Fischer handtekinn í Japan
árið 2004, og stóð til að framselja hann til
Bandaríkjanna, þegar íslensk stjórnvöld skár-
ust í leikinn og veittu honum íslenskan ríkis-
borgararétt.
„Raunveruleikinn hefur ekki burði til þess að
skapa svona aðstæður aftur,“ segir Guðmundur
að lokum. „Það sem þarna fór fram yrði ekki
einu sinni talið marktækt í skáldsögu, þetta er
svo sérstakt mál,“ segir Guðmundur. „Og því
skrifaði ég þessa bók, það var eiginlega skylda
mín gagnvart skákinni, svo að þessi saga myndi
ekki gleymast.“
Einvígi sem aldrei verður jafnað
Guðmundur G. Þórarinsson hefur ritað nýja bók um einvígi Fischers og Spasskís Varð forseti
skáksambandsins að sér forspurðum Eftirleikur einvígisins ekki síður merkilegur en einvígið sjálft
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Einvígi aldarinnar Það gekk á ýmsu á bak við tjöldin í einvígi þeirra Fischers (t.h.) og Spasskís.
Guðmundur G.
Þórarinsson
Thorvaldsensfélagið hefur frá
árinu 1913 gefið út jólamerki sem
hafa verið sett á bréf eða pakka
fyrirtækja og einstaklinga. Allur
ágóði af sölu merkjanna hefur
ávallt runnið óskertur til líkn-
armála. Jólamerkið í ár prýðir
mynd eftir listakonuna Sigrúnu
Eldjárn og ber nafnið Ömmujól.
Samkvæmt upplýsingum frá
Thorvaldsensfélaginu stóð það á
síðasta ári fyrir kaupum á 15 raf-
knúnum nýburavöggum sem gefn-
ar voru kvennadeild Landspít-
alans. Vöggurnar auðvelda
mæðrum eftir barnsburð að sinna
barni sínu og gera þeim auðveld-
ara að taka barnið í fang sér og
gera alla umönnun barnanna létt-
ari.
„Önnur verkefni okkar á síðasta
ári voru að styðja við börn sem
misst höfðu foreldri eða náið ætt-
menni. Eins var stutt við börn sem
bjuggu við erfiðar aðstæður bæði
fjárhagslegar, félagslegar og and-
legar. Verkefni Thorvaldsens-
félagsins hafa ávallt verið mjög
fjölbreytt og snúið að heilsuvernd,
velferð og umönnun barna,“ segir
Dröfn H. Farestveit, formaður
Barnauppeldissjóðs Thorvaldsens-
félagsins. Hún bætir við að á þessu
Covid-ári verði verkefni félagsins
sem aldrei fyrr svar við knýjandi
þörf margra barna fyrir aðstoð,
svo létta megi þeim lífið og vekja
með þeim von um betri tíma.
Auk þess að kaupa Jólamerkið
er einnig hægt að styrkja félagið
með beinum framlögum á banka-
reikning nr. 0301-13-087122, kt.
650269-6839.
Verð einnar arkar af Jólamerk-
inu, sem telur 12 jólamerki, kostar
400 krónur.
Jólamerki Sigrún Eldjárn hannaði.
Thorvaldsensfélagið
með Ömmujól í ár
Jólamerkið
2020 komið í sölu